Morgunblaðið - 25.01.1981, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 25.01.1981, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. JANÚAR 1981 27 Pétur Péturs- son þulur ræðir við Óla Ásmunds- son múrara um ja, þá veit ég ekki hvað hefði skeð. Eitthvað hefði brotnað í skrokknum á mér. P: Hvernig var þér innanbrjósts á leiðinni? Það er það merkilega við það. Á leiðinni niður, þegar ég var sann- færður um að þetta væri mín síðasta ferð, þá var sagt eins greinilega og greinilegar en ég get sagt það nú: Þú verður 97 ára gamall. Alveg. Ég heyrðu það betur en ég heyri það núna. Þú verður 97 ára gamall. Þegar ég kem nú niður á þennan planka, sem að hefði nú alveg tætt mig, ég veit ekki hvernig, heldurðu að ég lendi ekki á honum samt. Sjáðu til. Ég kem á hausinn niður. Ég hefði drepist ef ég hefði lent á búkkanum, en einmitt fyrir það að ég lendi á honum þá er ég hérna. P: Hvernig skýrirðu það? Sjáðu til. Það fór hornið í molskinnsbuxnavasann minn og rífur molskinnsbuxurnar alveg niður úr. Og skilar mér eins og ég er. Hvað segirðu? Hver er það sem sagði mér þetta? Mig hefir stund- um langað til þess að segja honum Ævari Kvaran frá þessu. Mér finnst þetta svo raunhæft. En hver stjórnar þessu? Ég á 5 ár eftir. En takið þið nú eftir sem lifið mig hvort ég fer 97 ára. Fyrr fer ég ekki. P: Þú hafðir mikil umsvif eftir að heim kom og stóðst fyrir smíði margra stórhýsa. Eftir brunann mikla í Austur- stræti þá fór ég fyrst að blakta sem maður sem tók að sér ábyrgð á byggingu húsa. Seinna asnaðist ég til þess að taka að mér ábyrgð á Hótel Borg, það er að segja bara skrokknum, allt inventar var al- veg sértilboð, það voru málarar, trésmiðir og aðrir. Eitt er merkilegt við þetta. Vegna tímans. Við áttum að skila Hótel Borg um vorið. Þá átti að taka á móti flugmönnum og ferða- mönnum. Við höfðum engin tæki til þess að ná tímanum nema með því að byggja skrokkinn upp að öllu leyti í einu móti. Annars var vani að maður byggði sína hæðina og skipti og notaði á næstu hæð. Tímans vegna urðum við að hafa hana í einu lagi, uppúr. Þetta kostaði okkur náttúrlega mikið meira timbur. En með þessu sáum við framá að við myndum geta náð tímatakmarkinu 1929 fyrir inn- réttingasmiðina að geta klárað 1930. Ef við hefðum nú ekki þurft að gera þetta er ég óviss um að nokkur Borg hefði orðið til. Árið 1929 þá gerði þennan rokna jarðskjálfta. Ef það hefði ekki verið í einu móti, Hótel Borg, þá hefði hún hrunið. Steypan var naumast hörðnuð í mótunum. Sjáðu til, þegar við fórum að gá að því eftir jarðskjálftann þá hafði steypugólfið í kjallaranum komið upp við jarðskjálftann og nærri sigið niður í einu lagi. Þetta kostaði okkur óhemju peninga. En við vorum skuld- bundnir til þess að skila þessu á þessum tíma. Stefán Magnússon sem var trésmiður minn sagði: Þetta verður að reiknast sem brotatimbur, en margt af þessu er ónotað sem við fengum í utanaf- slætti. Svo þetta var ekki svo tilfinnanlegt. Full ástæða væri til að heyra frásögn Óla um fjöimörg stórhýsi er hann sá um smíði á, Gamla bíó og fjöldi annarra, en til þess er eigi tóm að þessu sinni. Það er líka á vísan að róa í næstu 5 ár, samkvæmt því er fram kom í frásögn hans. Að lokum skal aukið við sögu er sannar að Óli hefir oftar en einu sinni bjargast með undraverðum hætti. Áratugum eftir að ævintýrið gerðist í Safnahúsinu starfar hann við iðn sína. Ferðast þá víða um land á vegum RAFHA og vinnur við múrverk vegna bökun- arofna er verksmiðjan seldi. Var þá efnið sent sjóleiðina til ýmissa hafna. Eitt sinn er för hans ráðin til Seyðisfjarðar. Þar áttf hann að setja upp ofn, en efnið skyldi sent með strandferðaskipi. Óli býr sig til brottfarar á umræddum degi og á flugfar pantað til Egilsstaða. Hann gengur sem leið liggur að vélinni er bíður brottfarar á Reykjavíkurflugvelli. Er hann er í þann mund að ganga inn í flugvél- ina kemur gjaldkeri RAFHA ak- andi, skundar til Óla þar sem hann er kominn að því að stíga inn um vélardyrnar. Kallar: Óli. Þú átt ekki að fara með flugvélinni. Við náðum ekki að senda efnið með skipinu. Þú ferð seinna. Óli snéri við. Flugvélin hóf sig til flugs, en hún komst aldrei á áfangastað. Fórst með áhöfn og farþegum. Þú sérð það, segir Óli. Þegar ég var 17 ára sagði röddin: Þú verður 97 ára. Ég á fimm ár eftir. Vonandi lifir Óli Ásmundsson það að sjá Þjóðarbókhlöðuna rísa. Hann brúar kynslóðabilið frá Safnahúsi til Þjóðarbókhlöðu. Framtíö ungs fólks á íslandi Þór FUS Brelöholti. heldur (und aö Selja- braut 54, mánudaglnn 26. janúar kl. 20.30. Gestur fundarins Erlendur Krlstjénsson. Félagar fjölmenniö. Sllórnin. Kópavogur — Spilakvöld — Kópavogur Sjálfstæöisfélag Kópavogs auglýsir. Okkar vinsaelu spilakvöld halda áfram þriöjudaglnn 27. jan. kl. 21.00 í Sjálfstæöishúslnu Hamraborg 1, 3. hæö. Nýlr þátttakendur velkomnir. Mætum öll. Stjórnin. EF ÞAÐ ER FRÉTTNÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í MORGUNBLAÐINU \l (il.VSIV, \ SIMINN KK: 22480 • • Oldungur látinn MexíkóborK. 21. janúar. — AP. FRANCISCA Cambert, sem var aldursforseti Kúbu í mörg ár, lézt í dag. Hún var 145 ára gömul, fædd á Jamaica, og ern til hinzta dags. Hún var tveggja barna móðir og bjó í héraðinu Camagúey á austur- hluta Kúbu. Enn lýst eftir Mengele Frankfurt. 21. janúar. — AP. ENDURNÝJUÐ var í dag handtökutilskipun á hendur Dr. Josef Mengele, lækninum sem sagður er bera ábyrgð á dauða þúsunda manna í Auschwitz-fangabúðunum, þar sem hann starfaði. Talið er að Mengele hafi flúið til Uruguay og starfi þar í fang- elsi undir nafninu „Willi Karp“. Al'M.VSINI. ASIMINN ER: 22410 BUrgunblabib R:@ Nýja línan frá HAFA nú einnig fáanleg í hvítu Nýtísku HAFA baðinnréttingar í baöherbergiö yöar. Mjög fjölbreytt úrval. Afgreiöum samdægurs. VALD. POULSENI Suðurlandsbraut 10. Sími 86499. Innréttingadeild 2. hæö. AUOLVStNOASTOTA SAAWANOStNS iq8o árg.:106.700krónur Gmðshskilmálar Fljót afgreiðsla MAUBUSEMN ENNAGUWUVERMNU! VÉIADEILD ^ SAMBANDSINS Arrn.'Je 3 Reyk/avik Sirrv 38900

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.