Morgunblaðið - 25.01.1981, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 25.01.1981, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. JANÚAR 1981 17 Napoleon: Thiers: standi á kögunarhóli víðsýnnar mannúðarstefnu, sem virðir ein- staklinginn og rétt hans til þátt- töku, þegar að honum er vegið, og geti séð viðfangsefni sín frá fleiri en einni hlið. Það er ekki eftir- sóknarvert fyrir ríkisútvarpið að festast einn góðan veðurdag í fordómum, eins og það getur verið eftirsóknarvert að fjalla um öll fyrirbæri þjóðlífsins á mannsæm- andi og menningarlegan hátt. Ef útvarpsráð hefur ekki bol- magn til að marka stefnu ríkis- fjölmiðlanna, en afhendir hverj- um sem er þá stefnumörkun, sem því er ætlað að framfylgja, þarf að endurskoða hlutverk þess og taka af allan vafa um starfsemi þess. Svo að ekki sé nú talað um stöðu þess gagnvart framkvæmdastjórn þessarar dýrmætu eignar allrar þjóðarinnar, en ekki fárra út- valdra. Ekkert færi ríkisútvarpinu verr en fámennisstjórn þeirra, sem teldu sig arfborna og útvalda til stefnumörkunar á þeim bæ — eða hæstráðendur til sjós og lands, svo að minnzt sé á fræg ummæli úr íslenzkri „hugsjóna- baráttu." í lögum um ríkisútvarp- ið frá 26. marz 1971 segir í I. kafla, 6. grein m.a.: „Útvarpsráð tekur ákvarðanir um, hversu útvarps- efni skuli haga i höfuðdráttum. og leggur fullnaðarsamþykkt á dagskrá, áður en hún kemur til framkvæmda.“ Og í 3. grein er talað um, að kappkosta skuli að halda uppi rökræðum „á þann hátt, að menn geti gert sér grein fyrir mismunandi skoðunum um þau.“ Og ennfremur: „Ríkisút- varpið skal i öllu starfi sinu halda i heiðri lýðræðislegar grundvallarreglur... og gæta fyllstu óhlutdrægni gagnvart öll- um flokkum og stefnum ..., stofnunum. félögum og einstakl- ingum.“ Frjálst útvarp — samkeppni En kannski verður aldrei fundin lausn á slíku máli sem þessu, nema þegnarnir fái sjálfir að taka þátt í fjölmiðlun á þann hátt, sem þeir óska hver og einn, þ.e. með því að afnema einokun ríkisút- varps og gefa útvarps- og sjón- varpsrekstur frjálsan. Eða hví skyldi ríkið frekar hafa einkarétt á rekstri slíkra fjölmiðla en t.d. Þjóðleikhúsið á flutningi leikrita? Kannski verður það næsta sporið að banna leiklist annars staðar en í þessum ríkisfjölmiðlum — með fínu nöfnunum. Ríkiseinokun er sprottin úr stjórnlyndi og stefnir oftast að alræði fárra útvaldra. En ríkið þolir aldrei neina samkeppni til lengdar. Rekstur þess getur ein- ungis þrifizt við einokun. Ætli það sé ekki kjarni málsins í raun og veru. í alræðislöndunum telja stjórnvöld t.a.m. jafn fráleitt að frjáls dagblöð komi út og okkur þykir það sjálfsagt. Sumir, sem telja sig til einstaklingshyggju- manna hér á landi, hafa sömu afstöðu til fjölmiðlunar í útvarpi og sjónvarpi og einræðisstjórnir til dagblaða. En hvað skyldi verða langt þangað til það þykir jafn sjálfsagður hlutur á Islandi, að blöð séu undir ríkishælnum og einkarekstur ríkisútvarpsins þyk- ir nú sjálfsagður? Eða það skyldi þó ekki vera, að augu almennings séu að opnast fyrir því, að ríkisrekstur þarf á aðhaldi og samkeppni að halda, ekki síður en annar rekstur. Vandamál ríkisútvarpsins stafa ekki sízt af þeirri einokunarað- stöðu, sem það býr við. Hún kallar á harða gagnrýni og miklar kröf- ur, enda vita allir, að alltaf er hætta á spillingu, þar sem ríkið hefur hreiðrað um sig með einok- un. Þar sem ormurinn kemst í laufið, visnar það. Þannig fer einnig, þar sem báknið sezt að eins og illgresi. Ef frjáls rekstur út- varps og sjónvarps fengi að njóta sín, þyrftu íslenzkar útvarps- og sjónvarpsstöðvar ekki að bítast um ráðningu fréttamanna eða annarra starfsmanna ríkisút- 1. árgangur Frelsisins kominn út: 1. árgangur FRELSISINS 1980, hins nýja tímarits Félags frjáls- hyggjumanna um þjóðmál, hefur nú allur komið út. Eru það þrjú hefti, enda er ritinu ætlað að vera ársþriðjungsrit. Að sögn Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar, sem er ritstjóri tímaritsins. hefur söfnun áskrifenda gengið ágætlega og und- irtektir verið góðar undir timarit- ið. 1. hefti árgangsins 1980 var eink- um helgað fyrirlestri Friedrichs A. Hayeks, Nóbelsverðlaunahafa í ha- gfræði, um „miðju-moðið", sem hann flutti á málþingi Félags frjálshyggj- umanna 5. apríl 1980, en einnig voru þar greinar eftir Björn Bjarnason um stjórnmálarit Jóhanns Hafsteins og eftir Guðmund Heiðar Frí- mannsson um stjórnmálarit Magn- úsar Kjartanssonar. 2. hefti árgangsins er eins konar sérrit, þar sem eina efnið er tvær langar og rækilegar greinar um tvær kennslubækur í félagsfræði í fram- haldsskólunum, Samfélagsfræði eft- ir Gísla Pálsson og Samféiagið eftir Joachim Israel. Skrifar Þorvaldur Búason um Samfélagsfræði Gísla Pálssonar og gagnrýnir einkum skoðun Gísla á eðli vísinda. Hannes H. Gissurarson skrifar um Samfé- lagið eftir Joachim Israel og rekur, hvernig Israel snúi við merkingu orða, geri sig sekan um ónákvæmni og sé ósanngjarn i þeim skilningi, að hann geti ekki um skoðanir annarra. „Það er fyrir neðan allar hellur, að þessi rit skuli kennd eins og þau væru einhver fræðirit í félagsfræði, því að þau eru ekkert annað en áróður," sagði Hannes Hólmsteinn. Hann sagði, að það væri beinlínis skylda kennara að kynna aðrar skoðanir og gagnstæðar þeim, sem gæti að líta í þessum tveimur kennslubókum, og til þess hefðu þeir nú tækifæri, enda væri þetta sér- hefti til þess ætlað. 2. og 3. hefti timaritsins 1980. „Erum að safna áskrif- endum44 3. hefti Frelsisins er einkum helgað umræðum þeirra Eyjólfs Konráðs Jónssonar og Jónasar H. Haralz um, hvernig tslendingum geti tekizt að brjótast út úr víta- hring verðbólgunnar. Eyjólfur Kon- ráð telur kleift að gera það með snöggu átaki, nokkrum rekstrar- halla ríkissjóðs um skeið og ýmsum öðrum aðgerðum, og ræðir Jónas um þær tillögur hans. Einnig eru í heftinu grein eftir Hannes H. Giss- urarson um réttlætiskenningu ungs bandarísks heimspekings, Roberts Nozicks, og grein eftir Olaf Björns- son prófessor um austurríska heim- spekinginn Ludwig von Mises. í heftunum eru fastir dálkar, Fréttir af hugmyndabaráttunni, Út- lend rit og Innlend rit, þar sem sagt er frá atburðum og bókum, sem varða hugmyndabaráttuna. „Nú erum við í óða önn að ljúka áskrifendasöfnun okkar," sagði Hannes H. Gissurarson að lokum. „Við heitum á alla þá, sem hlynntir eru atvinnufrelsi og einkaframtaki, að liðsinna okkur en ekki síður á þá, sem hafa áhuga á hugmyndum og skoðanaskiptum, þótt þeir séu ekki sammála okkur í einu og öllu, að gerast áskrifendur að þessu tímariti. Menningin vex upp af frjálsri sam- keppni hugmynda, og við erum að bæta einni hugmynd við í umræð- urnar hérlendis, frjálshyggjunni. Þeir, sem vilja gerast áskrifendur, geta skrifað okkur í pósthólf 1334, 121 Reykjavík." í ritnefnd tímaritsins Frelsisins eru þeir Gísli Jónsson, norrænu- fræðingur á Akureyri, Matthías Jo- hannessen, skáld, Jónas H. Haralz, bankastjóri, Ólafur Björnsson próf- essor og dr. Þorsteinn Sæmundsson stjarneðlisfræðingur. Ráðgjafi rit- stjórnar (advisory editor) er Fried- rich A. Hayek. varpsins með þeim hætti, sem verið hefur, því að þá yrðu þeir augljóslega eftirsóttastir, sem mestur veigur væri í. Og þá væri hægt að hafa frjálsa gagnrýni, því að hún kallar á æskilegt jafnvægi. Allt þetta er vegna harðrar sam- keppni fyrir hendi í íslenzkum dagblöðum, og þó að sitthvað megi út á það setja, þekkjum við ekki lýðræðislegra fyrirkomulag. Þar heyrist ekki ein rödd, heldur margar. Og almannaviljinn getur látið til sín heyra í frjálsum blöðum, hvenær sem er. Margt ágætt starfsfólk hefur að sjálfsögðu valizt til ríkisútvarps- ins. En stofnunin hefur því miður verið rifrildisefni og bitbein, svo lengi sem elztu menn muna, eink- um af þeim sökum, að einokun þess hefur kallað á tortryggni, sem hyrfi eins og dögg fyrir sólu, ef það fengi nauðsynlegt aðhald í harðri og heiðarlegri samkeppni; þ.e. hefði enga sérstöðu fram yfir einkarekstur, t.d. hvað snertir öflun tekna. Frelsi einstaklingsins verndar almannaheill og er ekki í andstöðu við þjóðarviljann í lýð- frjálsu landi, heldur í samræmi við hann, ef það fær að njóta sín og treysta undirstöður lýðrétt- inda. Þjóðin er að vísu fámenn og bolmagn hennar takmarkað. En það hefur aldrei orðið neinum til tjóns að leysa frelsi hans úr læðingi, svo að hann geti fundið kröftum sínum viðnám og komizt til þess þroska, sem efni standa til. Lífið er ekki stöðnun, kyrr- staða, heldur hreyfing. Það eiga varðhundar kerfis og kyrrstöðu eftir að reyna. Og það er í frelsinu, sem hreyfingin felst. „Hm sagði Thiersu á 75 ára afmæli Dagsbrúnar En svo að við höldum okkur við bókmenntirnar, skulum við snúa okkur að stjórnmálunum. Þegar ríkisstjórn Framsóknar- og Sjálf- stæðisflokks var við völd 1974— 1978 og verðbólgan var komin undir 25%, þannig að mikill ár- angur hafði náðst í baráttunni við hana, taldi stjórnin sig þurfa vegna óraunhæfra kjarasamninga að skerða vísitöluna og var það gert. En þá ætlaði allt um koll að keyra. Alþýðusambandið með Ás- mund Stefánsson í fylkingar- brjósti hóf glórulaust stríð við stjórnina, BSRB efndi til ólöglegs verkfalls undir forystu Kristjáns Thorlaciusar og Verkamannasam- bandið undir forystu Guðmundar J. Guðmundssonar hóf ólöglegt útflutningsbann, sem varð okkur til mikils tjóns. En nú segir enginn neitt, hvað þá að nokkuð sé aðhafst og er vísitöluskerðingin þó meiri nú en þegar fyrrnefndar ráðstafanir voru gerðar, því að þá voru kjör hinna verst settu bætt með láglaunabótum. Auk þess hafði náðzt veruleg kjarabót með minnkandi verðbólgu. En nú gera valdshrokamennirn- ir í landsstjórninni kröfur til, að þessu sé hlýtt og eiga kommarnir í ríkisstjórninni að sjá um það. Þeir heimta, að forysta launþega- samtakanna beygi sig undir vilja þeirra og hefur það verið gert. Björn Þórhallsson, varaforseti ASÍ, er þó samkvæmur sjálfum sér, því hann gekk ekki fram fyrir skjöldu með ólæti 1977—’78. En það gerðu aðrir í þeim herbúðum. Nú minna þeir á Thiers í Heljar- slóðarorrustu, þegar hann talaði við Napoleon. Við skulum segja að Ásmundur Stefánsson, Guðmund- ur J. Guðmundsson og Kristján Thorlacius séu í hlutverki Thiers, en kommarnir í ríkisstjórninni í hlutverki Napoleons einræðiskeis- ara. Benedikt Gröndal lýsir sam- talinu svo — ok lúkum vér Reykja- víkurbréfi með þeiri óborganlegu frásögn, sem lýsir svá vel, sem verða má, því sem nú er að gerast í íslenzkum stjórnmálum: „Keisarahjónin mættu Thiers í garðinum. Thiers var með fyrsta bindið af uppreistarsögunni og var ófrýnilegr í bragði, því hann hafði fundið prentvillu í bókinni, le fyrir de, og þótti illt, ef mönnum skyldi detta í hug að bera uppreistarsög- una sína saman við Þjóðólf. „Kondu sæll Thiers", sagði Napó- leon. „Komið þér sælir Napóleon minn“, sagði Thiers. „Nú, hvurnin lízt þér á mig núna“, sagði Napó- leon. „Vel“, sagði Thiers. „Eru ekki all-hermannleg vopnin mín“, sagði Napóleon. „Jú“, sagði Thiers. „Er ekki þetta fallegr hjálmr", sagði Napóleon. „Jú“, sagði Thiers. „Er ekki þetta fallegr skjöldr", sagði Napóleon. „Jú“, sagði Thiers. „Hvurnin þykir þér ljónið málað á hann? Er ekki vinstri fóturinn á því nokkuð stuttr?" sagði Napó- leon. „Jú“, sagði Thiers. „Er ekki þetta laglegt spjót", sagði Napó- leon. „Jú“, sagði Thiers. „Eru ekki rosabullurnar mínar vígamannlig- ar“, sagði Napóleon. „Jú“, sagði Thiers. „Er ekki brynjan mín liðleg?" sagði Napóleon. „Jú“, sagði Thiers. „Svo hef jeg helvíta mikla duggarapeisu af Ófeigi í Fjalli innanundir, sem Þjóðólfr hefir gefið mér“, sagði Napóleon. „Það er svo“, sagði Thiers. „Jeg held jeg verði ekki votr í þessari peisu", sagði Napóleon. „So“ sagði Thiers. „Nú hvaða andskoti ertu fúll Thiers", sagði Napóleon. „Á“ sagði Thiers. „Já þú svarar ekki nema tómum einsatkvæðisorðum" sagði Napóleon. „Hm“ sagði Thi- ers.“ Það skyldi þó ekki vera kominn tími til, að launþegar í landinu bjóði Ásmundi Stefánssyni, Guð- mundi J. Guðmundssyni og Krist- jáni Thorlacius í svo sem eins og eina almennilega kryddsíldar- veizlu í tilefni 75 ára afmælis Dagsbrúnar. Nú verður haldið upp á það með einsatkvæðisorðum. En verkamenn eiga annað og betra skilið en þá forystumenn, sem nú birtast í gervi Thiers. I lokin óskum við Dagsbrúnar- mönnum til hamingju með afmæl- ið og vonum, að þeir hristi Thiers af sér. Það yrði bezta afmælisgjöfin þeim til handa.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.