Morgunblaðið - 25.01.1981, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. JANÚAR 1981
„Þú verður 97 ára,“
sagði röddin við mig,
þegar ég var 17 ára
óli Ásmundsson 92 ára i anddyri Landsbókasafns.
Það var á sl. hausti að ég heyrði
greint frá því að enn væri á lífi
aldraður múrari er unnið hefði að
smíði Safnahússins við Hverfis-
götu í Reykjavík. Sá áfangi á
þroskabraut þjóðar, er heimti
heimastjórn, markaði spor í
menntalíf. Finnbogi Guðmunds-
son landsbókavörður hefir nýverið
vakið athygli á þvi, í tilefni af
smíði Þjóðarbókhlöðu, hve stór-
huga aldamótakynsióðin var er
hún veitti fé til smíði Safnahúss.
Byggingakostnaður Safnahúss-
ins, sem var að mestu reist á
tveimur árum, reyndist um 1/12
hluti fjárlaga þeirra ára, en yrði
Þjóðarbókhlöðu lokið á jafn
skömmum tíma og byggingakostn-
aði deilt á fjárlög 2ja ára yrði
útkoman 1/120 hiuti.
Auðvitað er þetta kannske eigi
að öllu leyti sambærilegt þvi
þarfirnar eru fleiri nú.
En sleppum nú öllum saman-
burði og talnaþrautum, en hyggj-
um að frásögn Óla Ásmundssonar
múrara, er hann rekur löngu liðna
atburði er enn iifa í hugskoti. Við
sitjum í herbergi því er hann
deilir með öldruðum manni, á
Eliiheimilinu Grund við Hring-
braut.
Óli segir svo frá:
Ég er fæddur árið 1889. Ég man
fyrst eftir mér, svona raunveru-
lega, þegar ég var á áttunda árinu.
Ég átti föður, sem helst ekki gat
unnið nema undir áhrifum áfeng-
is. Ásmundur Sveinsson hét hann
og var lögfræðingur. Ekki af
danska skólanum heldur tók hann
lögfræðipróf sitt i Edinborg og
fékk þarafleiðandi ekki neitt
sýslustarf hérna. En hann var
stundum settur sýslumaður. Hann
var t.d. settur sýslumaður þegar
hann kynntist hinum fræga
manni Snæbirni í Hergilsey. En
hann fékk aldrei fast embætti
vegna þess að hann var ekki
danskmenntaður.
Ég fór margar ferðir fyrir föður
minn til brennivínssala á Lauga-
veginum, með bækur að fá brenni-
vín fyrir. Það eru ófáar bækur
sem ég fór með, sem hann fékk hjá
föður mínum fyrir brennivín. Ég
skal segja þér eitt úr þessu
ferðalagi mínu með bækurnar, þá
var ég sem sagt búinn að þurrka
bókasafnið hans pabba, nema það
sem ætlað var krökkunum, það
var t.d. þjóðsagnasafnið gamla,
þykk bók og stór. Sjáðu til, þá var
ég vinnandi hjá honum Leifi
Þorleifssyni, kaupmanni á Lauga-
vegi 5. Eitt skipti sem ég var á
leiðinni þarna til brennivínssalans
fyrir föður minn þá fer ég með
þessa stóru bók, þá kemur Leifur
Þorleifsson kaupmaður, sem ég
vann hjá og segir: Óli, komdu með
mér og láttu mig fá bókina. Og
hann fór með mig til brennivíns-
salans. Ég hef aldrei séð eins
lélegan mann eins og brennivíns-
salann, þegar Leifur fór að tala
við hann og sagði: Réttast væri nú
að ég stefndi þér til þess að þú
skilaðir öllum bókunum aftur sem
þessi drengur hefir flutt til þín,
öllum. En þessa bók færðu ekki og
þú skalt þakka mér og öðrum fyrir
það, að við ekki látum lögregluna
ganga í það sem þú ert að gera
hérna, alveg hreint í lögleysi,
brennivinssali. Þú hefðir átt að
sjá andlitið á honum.
P: Þú byrjar snemma á þinni iðn,
steinsmíðinni.
Nei. Þú manst nú eftir Thom-
sensmagasíni. Ég lenti þar hjá
Kristjáni Kristjánssyni sem
Thomsen pantaði frá Danmörku.
Hann var íslendingur. Ég byrjaði
að læra hjá honum mublusmíði.
Var hjá honum eitthvað á þriðja
ár. Ég smíðaði sveinsstykkið mitt,
sem var skápaskrifborð. Það fór
austur að Selfossi. Það bjó þar
lögfræðingur, Magnús Arinbjarn-
arson. Hann fékk skápaskrifborð-
ið sem ég smíðaði sem mublusmið-
ur. Þetta var vandaðasta smíði.
Það var rauðfura.
Svo þegar þetta var komið í
kring og Thomsensmagasín fór á
höfuðið. Sjáðu til, ég átti frænda.
Ég var sem sagt búinn að vera
þarna tvö ár sem lærlingur hjá
Kristjáni í Thomsensmagasíni.
Þessi frændi minn vildi ekkert
tillit taka til tímans, sem ég hafði
unnið við smíðarnar hjá Kristjáni,
nema því aðeins ?.ð ég gæfi honum
þessi tvö ár. Iðnnámið var 4 ár. En
það varð til þess að ég gat það
ekki. Ég treysti mér ekki til þess
að gefa honum eftir þennan tíma.
Svo þar með var mublusmíðin mín
búin að vera.
P: Og þá snýrðu þér að stein-
smíðinni.
Já, það er nú dálítið merkilegt.
Þú manst eftir Rögnvaldi Ólafs-
syni arkitekt. Hann stóð fyrir
smíði Keflavíkurkirkju. Það er ein
fallegasta kirkjan á landinu. Þeg-
ar hann fréttir þetta af högum
mínum, ég veit ekki af hverjum,
en þá kallar hann til mín og segir:
Viltu nú ekki snúa þér frá þessari
mublusmíði og skal ég kenna þér
það sem ég get kennt þér í
húsasmíði. Ég ætla ekkert að
segja þér hvað ég varð feginn.
Maður sem ég þekkti svona af
afspurn. En sá reyndist mér vel.
Hann kenndi mér það sem ég flaut
á við mínar húsbyggingar. Ég
lærði hjá honum alveg að taka
teikningar og ábyrgjast að farið
væri nákvæmlega eftir þeim. Ég
sneri mér svo að múrverkinu. Þar
átti ég góðan mann að. Guðjón
sáluga Gamalíelsson. Karlinum
þótti vænt um mig sem lærling.
Það varð til þess að ég gerðist
múrari og smíðaði sveinsstykkið
mitt í Gasstöðinni. Ég fékk þar
múrsteina og ég hlóð múrara-
sveinsstykkið mitt í Gasstöðinni
við Hverfisgötu. Það stóð þar í
langan tíma. Ég þurfti að flýta
mér því ég ætlaði út til Danmerk-
ur með sveinsbréfið mitt. Guðjón
gekk nú frá því með löglegum
hætti. Ég var nú heldur glað-
hlakkalegur og fer út með sveins-
bréfið. Svo lendi ég í því að það er
vinnudeila í Danmörku þegar ég
kem þangað. Þegar ég framvísa
þessu sveinsbréfi mínu hjá félags-
skap múrarasveina í Kaupmanna-
höfn þá hlógu þeir bara að mér.
En svo var ég svo heppinn að þeir
lenda í „lockout", en ég er með
mitt sveinsbréf í höndunum, ekki
frá þeim. Og ég fékk atvinnu hjá
tveimur meisturum í Danmörku,
að sjá um smíði á húsum sem þeir
áttu að standa skil á. Eitt húsið
átti bankastjóri í Verzlunarbanka
Kaupmannahafnar. Ég lenti í því
að byggja fyrir hann sumarbústað
norður á Jótlandsskaga. Á ég að
segja þér hvað hann sagði þegar
hann tók húsinu. Þá sagði hann:
Þetta er nú vel gert. Og fann
ekkert að smiðinni. En það sem
mér þykir vænst um er að það
skuli vera Islendingur sem hefir
byggt það. Heldurðu að það hafi
komið við mig þetta?
P: Hvað kanntu að segja frá
smíði Safnahússins? Þú varst
nemi þá.
Það er byggt þannig Safnahúsið,
að það eru loftlausir salir. Það
komu sérfræðingar til að steypa
loftin. Þetta var allt saman opið,
nema gangarnir upp með, þeir
voru steyptir. Og sjáðu til. Svo er
ég þarna lærlingur og ég er að
flytja lögun, steypu handa mönn-
unum sem eru að vinna undir
súðinni. Það er gangur þar og
gangar meðfram allri súðinni og
til þess að komast þetta þurfti ég
að fara á planka, sem lá á milli
yfir gímaldið og var annar endinn
hjá smiðunum og hinn var inni á
ganginum sem ég kom upp á.
Smiðirnir höfðu sparkað plankan-
um frá sér svoleiðis að hann hafði
ekkert til þess að hvíla á. Ég fer og
spásséra út á helv. plankann, held
að það sé allt ílagi. Ég var með
tvær kalkfötur í höndunum og
reyndi að halda mig á plankanum
þangað til ég snerist við með
föturnar og á hausinn niður, 13
metra. Og sjáðu nú til, það héldu
nú allir að þetta væri síðasta
ferðin mín, niður í púkkað grjót,
en það var fjögurra álna hár
trébúkki á gólfinu í Náttúrugripa-
safninu. Ef ég hefði lent á búkkan-
Félög
sjálfstæðis-
manna í Nes- og
Melahverfi og
Vestur- og Mid-
bæjarhverfi
boöa til fundar meö umdæmafulltrúum
þrlöjudaglnn 27 jan. kl. 20.30 í Valhöll.
Háaleitisbraut 1. Á fundinn mæta Guömund-
ur H. Garöarsson, Gunnlaugur B. Daníelsson
og Sveinn H. Skúlason. Umdæmafulltrúar
eru hvattir til aö mæta stundvíslega.
Stjórnir félaganna.
Hvöt, félag sjálfstæðis-
kvenna í Reykjavík
Almennur félagstundur veröur mánudaglnn 26. janúar nk. f
Sjálfstæöishúsinu Valhöll. Háaleltlsbraut 1, 1. hæö, vestursal og hefst
kl. 20.30.
Fundarelni: Framtfð Sjáltstæöisflokksins og stsös ríkis-
stjómarinnar.
Framsögumsnn: Styrmir Gunnarsson, rlstjórl og Frtörik Soph-
usson, alþingismaöur
Almsnnar umraaöur — vsitingar.
Fundarstjórk Asdf* J. Rafnar. fréttamaöur
Fundarrttart: Artna Artnbjamardóttlr, tulttrúl.
Fundurlnn ðllum opinn. Stjórnln
Sjálfstæðisfólk Breiðholti
Þorrablót
Þorrablót Sjálfstæöisfélaganna í Brelöholti veröur haldlö i félags-
heimill Sjálfstæöisflokkslns aö Seljabraut 54. laugardginn 7. febrúar
og hefst kl. 19.00.
Miöapantanir og upplýslngar gefa Geröur sfmi 73227, Lúövfk 71972,
Halldór 72229. Alfheiöur 74826.
Félag sjálfstæöismanna f Fella- og Hólahvorfi,
Félag sjálfstæöismanna f Skóga- og Ssljahverfi,
Félag sjálfstæöismanna f Bakka- og Stekkjahverfi,
Þór — FUS.
Hafnarfjörður
Sameiginlegur fundur fulltrúaráös og Sjálfstæölsfélaganna veröur
haldinn f Sjálfstæölshúsinu mánudaglnn 26. jan., nk. og hefst kl.
20.30.
Fundarefnl:
1. Fjárhagsáætlun Hafnarfjaröar Frummælandl: Árni Grétar Flnnsson,
bæjarfulltrúl.
2. önnur mál.
Fulltrúaráö Sjálfstæöisfélaganna, Sjálfstæöisfélögin Fram, Stefnir,
Vorboölnn og Þór.