Morgunblaðið - 05.03.1981, Qupperneq 1
48 SIÐUR
53. tbl. 69. árg.
FIMMTUDAGUR 5. MARZ 1981
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Nýjum verkföllum
hótað í Póllandi
Varsjá. 4. mars. — AP.
DEILD Samstöðu. hins
óháða pólska verkalýðs-
sambands. í Lodz. næst
stærstu borg Póllands, til-
kynnti í dag, að boðað yrði
til verkfalls ef fimm félag-
ar í Samstöðu yrðu ekki
endurráðnir, en þeim
haíði verið sagt upp störf-
um. Þetta er í fyrsta sinn
sem hótað er verkfalli síð-
London, 4. mars. — AP.
DOLLARINN féll allveru-
lega í verði í gær og í dag
eftir að hafa hækkað nokk-
uð síðustu þrjá eða fjóra
dagana þar á undan. Verð-
lækkunin í gær stafar af
vaxtalækkun helstu banka
í Bandarikjunum og
vaxtahækkun vestur-
þýska seðlabankans.
an kyrrð komst á fyrir um
hálfum mánuði.
Talsmaður Samstöðu í Lodz
sagði, að ákvörðun um að-
gerðir deildarinnar hefði ver-
ið tekin í samráði við aðal-
stöðvar verkalýðssambands-
ins í Gdansk en viðvörunin
um verkfallið barst frá
skrifstofum deildarinnar í
Varsjá. Verkamönnunum
fimm hafði verið sagt upp
Vaxtaiækkunin vestra í gær olli
því, að mikil sala var á dollur-
um á alþjóðlegum gjaldeyrismörk-
uðum og jafnframt styrktist
vestur-þýska markið vegna vaxta-
hækkunar seðlabankans. Gull
hækkaði einnig í verði.
Vextir í Bandaríkjunum eru
18% og er haft eftir kauphallar-
starfsmönnum, að almennt sé bú-
ist við því, að þeir muni enn
lækka.
störfum á spítala án nokkurs
fyrirvara og án þess að
ástæðan væri tilgreind. Fjórir
þeirra hafa tekið mikinn þátt
í.að skipuleggja frjáls verka-
lýðsfélög.
Forystumenn Samstöðu í
Lodz sögðu í tilkynningu
sinni, að þeir hefðu rætt við
forráðamenn spítalans og
borgaryfirvöld og einnig skot-
ið málinu vil vinnumálaráðu-
neytisins. Þeir sögðu, að ákveð-
ið hefði verið að undirbúa
verkfallsaðgerðir þegar
vinnumálaráðherrann hefði
ekki virt þá svars.
í Varsjá sagði talsmaður
starfsmanna Kristilegs út-
gáfufélags, sem starfar í
skjóli hins opinbera, að þeir
ætluðu að hætta hungurverk-
falli, sem þeir hófu fyrir 10
dögum til stuðnings þeirri
kröfu, að fésýsla yfirmanna
stofnunarinnar yrði rannsök-
uð opinberlega. Þeir eru m.a.
sakaðir um að veita sjálfum
sér lán úr sjóðum félagsins og
greiða sér að auki „óheyrileg"
laun. Að sögn talsmanns
starfsmannanna hafa stjórn-
völd heitið því að rannsaka
málið.
Veruleg verð-
lækkun dollars
AP-stmamynd.
Lik tyrknesks sendimanns liggur i götunni eftir að ráðist var á hann
og tvo landa hans með vélbyssuskothríð i París i gær. Annar
sendiráðsmaður særðist alvarlega en sá þriðji slapp ómeiddur.
Leynileg samtök Armeniumanna segjast bera ábyrgð á morðárásinni.
Sendiráðsmaður
skotinn í París
Parls. 4. mars. — AP.
spítala en sá þriðji slapp ómeidd-
Breski Verkamannaflokkurinn:
Þingflokkurinn gegn
úrslitum aukaþings
London, 4. mars. — AP.
MIKILL meirihluti þing-
manna breska Verkamanna-
flokksins hafnaði í dag í
atkvæðagreiðslu niðurstöðum
aukaþings flokksins frá 24.
janúar sl. en þær hafa valdið
því, að flokkurinn er nú
klofinn og nýr flokkur í
uppsiglingu.
Michael Foot
Michael Foot, leiðtogi Verka-
mannaflokksins. bar upp tillög-
una um að hafna úrslitum
aukaþingsins og studdu hana
tveir þriðju þingmannanna.
Foot, sem löngum hefur verið
mjög vinstrisinnaður, hefur nú
greinilega tekið afstöðu gegn
sinum fyrri félögum í örvænt-
ingarfullri baráttu fyrir fram-
tíð flokksins.
Við atkvæðagreiðsluna í dag
sagði Foot, að þingflokkurinn ætti
að ráða a.m.k. helmingi atkvæða
við leiðtogakjör en á aukaþinginu
var ákveðið, að starfsmenn flokks-
ins, sem eru einkum vinstrisinnar,
og verkalýðsleiðtogar skyldu ráða
70% en þingmenn 30%.
155 af 255 þingmönnum Verka-
mannaflokksins stofnuðu í fyrra
mánuði með sér samtök til að
vinna gegn ákvörðun aukaþingsins
og nutu við það óformlegs stuðn-
ings Foots. Það var þó i fyrsta
sinn í dag, að hann kvað upp úr
með, að hann yrði í fararbroddi í
baráttunni gegn vinstrimönnum.
Ekki er þó búist við að úr þessum
málum verði skorið fyrr en á
árlegu þingi flokksins í haust
nema boðað verði til annars auka-
þings bráðlega.
TYRKNESKUR sendiráðsmað-
ur var skotinn til bana á götu i
París i dag og annar alvarlega
særður. Samtök, sem nefnast
Frelsishreyfing Armeniuanna,
segjast bera ábyrgð á morðinu
og er þetta í þriðja sinn sem
þau ráða tyrkneskan sendi-
mann af dögum í Frakklandi.
Ráðist var á Tyrkina, sem voru
þrír saman, með vélbyssuskothríð
þegar þeir komu út úr skrifstofu
eins þeirra, Resat Moralis, sem sér
um málefni tyrkneskra verka-
manna í Frakklandi, og féll hann
strax fyrir kúlnahríðinni. Annar
var fluttur alvarlega særður á
Skömmu eftir árásina hringdi
maður til fréttastofunnar France
Press og sagði, að Frelsishreyfing
Armeníumanna hefði verið hér að
verki. Þau samtök segjast sjáif
bera ábyrgð á 140 sprengjutilræð-
um og morðárásum víða um heim
og hafa einkum Tyrkir orðið fyrir
barðinu á þeim. Talið er, að þau
hafi náið samstarf við PLO, frels-
issamtök Palestínumanna.
Margir útlægir Armeníumenn
bera Tyrki þeim sökum að hafa
myrt hálfa aðra milljón landa
sinna á dögum fyrri heimsstyrj-
aldarinnar en Tyrkir og Sovét-
menn ráða nú Armeníu, sem áður
var sjálfstætt ríki.
Sovéski sendiherrann hefur í hótunum við Ástrali:
Ástralía líklegt skot-
mark í kjamorkustríði
Canberra. 4. mars. — AP.
MALCOLM Fraser, íorsætisráA
herra Ástralíu. réðst i dag
harkalega á sendiherra Sovét-
rikjanna þar i landi, Nikolai
Soudarikov, sem hann sagði hafa
haft i hótunum við áströlsku
þjóðina.
Fraser bar fram ásakanir sínar
á þingi í dag vegna frétta sem
blaðamenn skrifuðu í dag um
matarboð hjá sovéska sendiherr-
anum. í boðinu sagði Soudarikov,
að sú ákvörðun áströlsku stjórn-
arinnar að leyfa endurbætur á
bandarískum herstöðvum þar í
landi og ennfremur flug B-52-
sprengjuflugvéla yfir landið gerði
Ástralíu mjög líklegt skotmark í
kj arnorkusty rj öld.
Sendiherrann sovéski áfelldist
einnig áströlsk stjórnvöld fyrir
stirð samskipti milli þjóðanna og
sagði, að viðbrögð Ástralíumanna
við innrás Rússa í Afganistan
væru orðin meiri en góðu hófi
gegndi.
Á þingfundinum í dag sagði
Fraser, forsætisráðherra, að um-
mæli Soudarikovs væru „alvarleg
hótun“ og að af henni mætti ráða,
að Sovétmenn hefðu að yfirvarpi
einu stefnuna um friðsamleg sam-
skipti við Ástralíumenn og aðrar
þjóðir. Hann gagnrýndi einnig
rússneska sendiherrann fyrir að
hafa komið boðskap sinum á
framfæri við fréttamenn, sem
hann sagði ganga þvert á eðlilega
starfshætti sendiráða.
Fraser sagði að lokum, að
eðlileg samskipti við Sovétmenn
yrðu ekki tekin upp fyrr en þeir
hefðu farið með allan sinn her frá
Afganistan.