Morgunblaðið - 05.03.1981, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. MARZ 1981
17
mikil — hvers vegna fór hanri þá
ekki strax 3. eða 4. febrúar og
kynnti sér þau? Hvers vegna beið
hann í þrjár vikur? Vildi hann
gefa gamla vélstjóranum sínum
tækifæri tii að gera hreint, áður
en hann „kynnti sér málin“?
Með allri virðingu fyrir mótor-
ista- og beitingarstarfi Jósafats
Hinrikssonar austur á Neskaup-
stað, verður það að viðurkennast
að ég skil ekki svona vinnubrögð.
Hefur Lúðvík Jósepsson gert sér
grein fyrir því að í rafsuðureyk
hefur verið greint 21 mismunandi
eiturefni? Getur hann gert sér í
hugarlund það andrúmsloft sem
skapast þar sem 6—7 menn eru að
rafsjóða í einu á vinnustað sem
ekki er loftræstur? Vill Lúðvík
Jósepsson upplýsa lesendur Þjóð-
viljans (Morgunblaðsins?) um það
gagn sem sýktir starfsmenn hefðu
af þeirri vitneskju, að eigandi
fyrirtækisins hafi verið „sérlega
þrifinn" austur á Neskaupstað
fyrir nokkrum áratugum?
Nei, Lúðvík Jósepsson hefur
með þessari framkomu sinni eyði-
lagt þá ímynd sem hann hafði í
hugum fólks sem skeleggur mál-
svari íslenskrar alþýðu. Það er
auðvitað hans mál. Hitt er alvar-
legra ef hann hefur jafnframt
eyðilagt tilraunir Þjóðviljans til
að fjalla á gagnrýninn hátt um
það sem aflaga fer á vinnustöðum.
Það er alvarlegra en ímynd Lúð-
víks.
Eg vil að siðustu vona að Lúðvík
farnist vel i sínum nýja félagsskap
— um leið og ég beini þeirri
einlægu ósk til Þjóðviljamanna að
þeir láti ekki viðbrögð hans og
Morgunblaðsins hafa áhrif á
áframhaldandi umfjöllun um
vinnuaðstöðu verkafólks.
Bókaklúbbur AB:
Ítalíustríðið —
áttunda bókin um
heimsstyrjöldina
BÓKAKLÚBBUR Almenna bóka
félagsins hefur sent frá sér átt-
unda hindið i ritröðinni um
heimsstvrjöldina 1939 — 45. Þessi
heitir Italíustriðið og er beint
framhald af Eyðimerkurstríðinu
sem kom út siðastliðið haust.
ítaliustriðið fjallar um innrás
bandamanna á Sikiley og Ítalíu og
hina geysierfiðu töku Ítalíu. Stríð-
ið er orðið vitfirringsleg örvænt-
ingarbarátta á báða bóga — her-
irnir eru sendir fram fyrir byssu-
kjaftana einn eftir annan að því er
virðist til þess eins að falla í strá.
Höfundurinn Robert Wallace,
rithöfundur, var í bandaríska flot-
anum og stóð þarna nærri, tók
sjálfur þátt í landgöngunum á
Norður-Afríku, Sikiley og Salerno.
Ráðunautar hans eru tveir sagn-
fræðingar sem báðir voru ofurstar
í bandaríska hernum.
Ítalíustríðið er eins og aðrar
bækur þessarar ritraðar um
heimsstyrjöldina með fjölmörgum
myndum af þessum heljarátökum
eða tengdar þeim.
Bókin er 208 bls. að stærð og
unnin í Prentstofu G. Benedikts-
sonar og suður í Toledo á Spáni.
(Fréttatilkynning)
AUOLVSINGASIMINN ER:
2241D
jn«r0unblahth
Odýrar
furuhillur
1 eining m/f hillum kr. 417.-
Vörumarkaðurinn hí„
Sími 86112.
KELVIN HUGHES
Colormatic
Litafisksjá fyrirliggjandi.
R. Sigmundsson hf.
Alúðarþakkir sendi ég öllum þeim mörgu er
glöddu mig á sextugsfmæli mínu meö heim-
sóknum, gjöfum, skeytum og hlýhug.
Elías ívarsson
Bú rfells vi rkj u n
l*****»**»MWMuiiMuniKua*nKwaauaMa*a*aaMm*MMa*uaumnmnn
Jektorar
■
■
9
5 Suctiow^
Poiivfy J
Fyrlr lenslngu I bátum og fiskvinnsiustöðvum.
íöfuirOaDygKuiD0 JJ&d
DlSlSfiaSf
■Q <& ©©
ESTABLISHED 1H! - TILEX( >0>7 STUE l A - IS — TELEEHONES MSIO k l>»0
Ný sending
Vorum að taka upp herraföt verð frá 1150.-
Herrajakkar verð frá 395,- og stakar buxur
verð frá 195.-.
Fjölbreytt urval
| Ullarteppa
Stæröir: 85x150 85x160 120x170 140x200
170x240 180x260 200x290 200x300
250x340 250x350 300x400
Teppaverslun
Friðrik Bertelsen
Ármúla 7 sími 86266