Morgunblaðið - 05.03.1981, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. MARZ 1981
31
arstjórn ... frá borgarstjórn ... frá borgarstjórn ...
Hann sagði að fjöldi manna ynni
hjá borginni og þar gæti að líta
þverskurð af þjóðfélaginu. Launa-
málin væru viðkvæmur málaflokk-
ur og þyrftu aðilar að standa
sameiginlega að ákvörðun slíkra
mála og aldrei hefðu þau verið
notuð til pólitísks áróðurs. Birgir
sagði að það væri afskaplega auð-
velt fyrir minnihiutaflokk að taka
undir öll erindi og kröfur óánægðra
starfshópa, en slíkt hefði Sjálfstæð-
isflokkurinn ekki gert. Slíkt væri
ábyrgðarleysi. Hins vegar væri nú
allt í einu breytt um vinnubrögð.
Hann sagði að fulltrúi Alþýðu-
bandalagsins hefði rifið sig út úr
þessu og flutt tillögu um að samn-
ingar yrðu opnaðir að nýju. Menn
yrðu að gera sér grein fyrir því í
hvaða átt Starfsmannafélag
Reykjavíkur vill beina samningun-
um. Hins vegar hefðu engar tillögur
um lausn á málinu komið fram
ennþá. Birgir sagði að málatilbún-
aður Alþýðubandalagsins bæri
óneitanlega keim af sýndar-
mennsku.
Einber sýndarmennska
Næstur tók til máls Davíð
Oddsson (S). Hann sagði að Guðrún
Helgadóttir hefði engar skýringar
gefið á þessum leik sínum í ræðu
sinni, „hún stóð uppi með sýndar-
mennskuna einbera," sagði Davíð.
Davíð sagði að það væri alkunna að
Alþýðubandalagið hefði gengið ein-
arðlega fram í því fyrir 3 árum að
svíkja kosningaloforðið „Samning-
ana í gildi". „Nú hafa þeir áttað sig
á því að kosningar eru í nánd og nú
erum það ekki við sjálfstæðismenn
sem Alþýðubandalagið telur sig
eiga í höggi við, heldur samstarfs-
flokkar í borgarstjórn, Framsókn-
arflokkinn og Alþýðuflokkinn."
Davíð sagði að Alþýðubandalagið
kappkostaði að telja fólki trú um að
það væri gott en samstarfsflokk-
arnir vondir. Davíð sagði að allir
sæju í gegnum þessa kosninga-
brellu Alþýðubandalagsins, auk
þess væri þetta ósmekklegt.
„... meirihlutinn svo-
nefndi gat ekki
orðið sammála ...“
Að máli Davíðs loknu tók til máls
Sjöfn Sigurbjörnsdóttir (Abl).
Sjöfn ræddi um mál fóstra og sagði
að eina leiðin til að halda dagvist-
unarheimilum opnum, væri að
framlengja uppsagnarfrest fóstra
um þrjá mánuði. Þá fengist meira
svigrún fyrir launamálanefnd til að
ná samkomulagi og einnig að þá
myndu dagvistunarheimili ekki lok-
ast fyrr enn a.m.k. 3 mánuðum
seinna. Þá vék Sjöfn máli sínu að
tillögu þeirra Kristjáns Benedikts-
sonar sem engan hlaut stuðning í
borgarráði og sagði Sjöfn að tillag-
an hefði ekki náð fram að ganga
vegna þess að „fulltrúi Alþýðu-
bandalagsins í borgarráði þorði
ekki að taka afstöðu til málsins og
sat hjá við afgreiðslu þess“. Þá
gagnrýndi Sjöfn borgarráðsfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins fyrir að hafa
setið hjá, það væri stefnuleysi.
Síðan sagði Sjöfn: „Því er þó ekki að
neita að nokkuð hafa þeir félagar
til síns máls, þar sem meirihlutinn
svonefndi gat ekki orðið sammála
um svo eðlilega málsmeðferð, eins
og þá sem við Kristján gerðum
tillögu um í borgarráði..." Og
Sjöfn hélt áfram: „Kem ég þá að
hinum ömurlega hráskinnsleik Al-
þýðubandalagsins í sambandi við
þetta mál og þá einkum og sér í lagi
Guðrúnar Helgadóttur, sem virðist
ætla að nota þetta mál sér og sínum
flokki til framdráttar og atkvæða-
veiða í komandi kosningum. Er rétt
að minna aðeins á raunverulega
afstöðu Alþýðubandalagsins til
launamála og kjarasamninga opin-
berra starfsmanna, eins og nú
hefur komið fram að undanförnu.
Eftir að hafa dregið samninga við
opinbera starfsmenn á langinn
mánuðum saman, náðist loks sam-
komulag um óverulegar kjarabætur
nokkru fyrir jól. Blekið úr pennum
þeirra Ragnars Arnalds og Harald-
ar Steinþórssonar var varla þornað,
þegar samningar voru rofnir með
lagaboði og margra mánaða vinna
við samningagerð að engu og opin-
berir starfsmenn, og þar á meðal
fóstrur, lækkaðir í launum um 7%
frá 1. mars nk. Það er sú hin sama
Guðrún Heigadóttir sem hér í
borgarstjórn þykist berjast fyrir
bættum kjörum fóstra, sem á Al-
þingi og með stuðningsmönnum
núverandi ríkisstjórnar, stendur að
því að rjúfa nýgerða kjarasamninga
og lækka laun fóstra um 7%. Hver
er nú krafan um „Samningana í
gildi“, sem Guðrún Helgadóttir
flutti hér inn í borgarstjórn í júní
1979?“
sem mælst er til að félags-
málaráðherra taki mál þetta
til sérstakrar meðferðar og
bent er á hvort ekki væri
eðlilegt að lögum um viðlaga-
tryggingu verði breytt á þá
lund að hún taki sér bóta-
greiðslur vegna þessara tjóna.
Nauðsynlegt að
bregðast strax við
Næst kom í ræðustól Adda
Bára Sigfúsdóttir (Abl). Hún
sagði að það væri rétt og
eðlilegt að taka þetta mál upp
á fundinum og nauðsynlegt
væri að bregðast strax við, ef
afla ætti upplýsinga um tjónið.
Það væri eðlileg málsmeðferð
að borgin sem sveitarfélag
aflaði upplýsinga um þetta
mál. Síðan væri það spurning-
in hvað hægt væri að gera
fyrir það fólk sem fyrir tjóni
varð og ekki fær það bætt, sem
ekki hafði tryggingu fyrir foki.
Adda Bára kvaðst telja mjög
gott að þessu máli væri hreyft
og sagði að það þyrfti að koma
til móts við fólk sem fyrir tjóni
hefði orðið, á einhvern hátt.
Stórt mál
Næstur talaði Ólafur B.
Thors (S).
í ræðu sinni lýsti hann yfir
stuðningi við tillögu Magnúsar
L. Sveinssonar. Sagði hann að
það væri ljóst að í trygginga-
kerfinu væru göt sem gerðu
það að verkum að margir yrðu
að þoia það tjón sem nú hefði
orðið, bótalaust. Sagði Ólafur
að kanna yrði hvaða aðlili gæti
bætt tjónið. Hann sagði að
þetta væri stórt mál og trygg-
ingafélögin myndu veita alla
þá aðstoð sem þau gætu í þessu
máli.
Fer frágangur
húsa versnandi?
Þá kom í pontu Guðrún
Helgadóttir (Abl). Hún sagði
að allir ættu að geta sameinast
um þessa tillögu. Hins vegar
varpaði Guðrún fram þeirri
spurningu hvort ekki væri
ástæða fyrir yfirvöld að at-
huga reglugerð um byggingu
húsa og hvort henni væri
framfylgt. Sagði Guðrún að
það gerðist nánast á 5 ára
fresti að milljarðar fykju út í
loftið. Hún sagði að svo virtist
sem gömul hús þyldu jafnvel
betur óveður en hin nýrri, og
því hlyti hún að spyrja hvort
frágangur húsa færi versn-
andi. „Þarf ekki að herða
reglur varðandi frágang á hús-
um?“ sagði Guðrún.
Næst tók til máls Sjöfn
Sigurbjörnsdóttir (Afl). Hún
lýsti yfir stuðningi sínum við
framkomna tillögu Magnúsar
L. Sveinssonar. Hún sagði að
það væri sjálfsögð skylda
borgaranna að aðstoða sam-
borgara sína sem fyrir tjóni
hefðu orðið.
Þegar borgarfulltrúinn
hafði lokið máli sínu, var
tillaga Magnúsar L. Sveinsson-
ar tekin á dagskrá og sam-
þykkt með 15 samhljóða at-
kvæðum.
MARLIN-TOG
LÍNUEFNI
BLÝ-TEINATÓG
FLOTTEINN
NÆLON-TÓG
LANDFESTAR
•
BAUJUSTENGUR
PLAST, BAMBUS
BAUJULUKTIR
LÍNUBELGIR
NETABELGIR
NÓTABELGIR
BAUJUBELGIR
ÖNGLAR — TAUMAR
NETAHRINGIR
LÍNUDREKAR
NETADREKAR
NETALÁSAR
NETAKÓSSAR
BAUJUFLÖGG
PLASTKÖRFUR
VÍRKÖRFUR
FISKGOGGAR
FISKSTINGIR
FLATNINGSHNÍFAR
FLÖKUNARHNÍFAR
BEITUHNÍFAR
SVEDJUR
STÁLBRÝNI
HVERFISTEINAR
í KASSA OG LAUSIR
RAFMAGNS-
HVERFISTEINAR
SALTSKOFLUR
ÍSSKÓFLUR
SNJÓÝTUR
KLAKASKÖFUR
•
NETAFLOT
GRÁSLEPPUNET
GAUÐMAGANET
KOLANET
SILUNGANET
FLOT- OG BLÝ-TEINAR
HÁKARLAÖNGLAR
GOTUPOKAR
GRISJUR Í RÚLLUM
VIR- OG
BOLTAKLIPPUR
GUMMISLONGUR
ALLAR STÆRÐIR
PLASTSLÖNGUR
GLÆRAR MEÐ
OG ÁN INNLEGGS
LOFTSLÖNGUR
VELATVISTUR
í 25 KG BÖLLUM
HVÍTUR OG MISL.
ANANAUSTUM
SÍMI 28855
OpiA laugardaga 9—12
GERMANÍA auglýsir
FASCHING—KARNEVAL
á morgun föstudag kl. 20.30 í Félagsheimilinu
Seltjarnarnesi.
1 "4*9 ff*
Bókamarkaóurinn
SÝNINGAHÖLLINNI
ÁFiTÚNSHÖFÐA