Morgunblaðið - 05.03.1981, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 05.03.1981, Qupperneq 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. MARZ 1981 Jón Ögmundur Þormóðsson, lögfræðingur: Skrefagjaldið - óeðlilegt gjald á málfrelsi Islendinga Núverandi forsætisráðherra, dr. Gunnar Thoroddsen, sagði m.a. í háskólafyrirlestri um málfrelsi og meiðyrði hinn 6. desember 1942: „Málfrelsi ... felur í sér rétt til að mæla frjálst, frelsi til að tala og rita það, sem mönnum býr í brjósti.“ Atján árum síðar orðaði annar virtur fræðimaður, Ólafur Jóhannesson, núverandi utanrík- isráðherra, skoðun sína á gildi þess á eftirfarandi hátt í riti sínu Stjórnskipun íslands: „Málfrelsi má óefað telja til dýrmætustu mannréttinda." Hafa viðhorf ís- lendinga ávallt mótast af þeirri staðreynd að landnámsmennirnir komu flestir hingað í leit að auknu frelsi — og þeim mannréttindum sem því fylgja. Nú eru þessi réttindi m.a. vernduð í stjórn- arskrá lýðveldisins frá 17. júní 1944. Stjórnarskráin er að vísu fátækleg í orði miðað við stjórn- arskrár margra annarra ríkja. En mannréttindi almennt eru óvíða — ef nokkurs staðar — betur virt á borði en á íslandi. Hætt er við að þetta geti breyst ef handhafar íslensks ríkisvalds og þeir sem þá hafa kosið beint eða óbeint til valda, gefa þessum réttindum ekki stöðugt góðan gaum og hlúa að þeim. Eðlilegar takmarkan- ir á mannréttindum Jafnvel í þeim ríkjum þar sem mannréttindi hafa verið hvað best virt hefur tíðkast að leggja á vissa skatta og gjöld sem tengjast þessum réttindum. Þótt eignar- rétturinn sé t.d. lýstur friðhelgur í 67. gr. íslensku stjórnarskrárinnar er þó lagður á eignarskattur og fasteignagjöld, jafnvel stóreigna- skattar (sem hæstiréttur taldi standast í meginatriðum) á breiðu bökin eingöngu. Ríkið nýtur skatt- tekna af bensínsölu án þess að ferðafrelsi íslendinga teljist hafa verið skert á óviðeigandi hátt (samanber 13. gr. mannréttinda- yfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna frá 10. desember 1948). í þessu tilviki skipta olíusparnaðarsjón- armið nú æ meira máli. Þá eru lagðar á vissar hömlur og sett ýmis skilyrði er tengjast mann- réttindum. Málfrelsið takmarkast af meiðyrðalöggjöfinni svo að dæmi sé nefnt. Mergurinn málsins er að greina rétt á milli eðlilegra og óeðlilegra takmarkana á mannréttindum. Vafi ætti að koma mannréttindunum í hag. Óeðlilegar tak- markanir á mannréttindum „Vald til skattlagningar felur í sér vald til eyðileggingar." Þannig hljóða í íslenskri þýðingu fræg orð sem John Marshall, forseti Hæstaréttar Bandaríkjanna, rit- aði fyrir hönd réttarins í dómi árið 1819. Oliver Wendell Holmes yngri, varaforseti réttarins, bætti um betur í öðrum dómi á árinu 1928 og skrifaði: „Vald til skatt- lagningar er ekki vald til eyðilegg- ingar meðan þessi réttur er sett- ur.“ I samræmi við þessi sjónar- mið komst Hæstiréttur Banda- ríkjanna að þeirri niðurstöðu í dómi árið 1935 að lög Louisiana- fylkis frá árinu áður um sérstakan auglýsingarskatt á dagblöð og tímarit með meira en 20.000 ein- taka vikuupplagi væru andstæð prentfrelsisákvæði stjórnarskrár Bandaríkjanna. En lítum okkur nær viðvíkjandi tálmunum fyrir einum mikilvæg- asta þætti málfrelsisins, prent- frelsinu. í íslensku stjórnar- skránni er aðalákvæðið til verndar málfrelsinu takmarkað við prent- frelsið eitt af almennum sögu- legum ástæðum víða um lönd, aðallega vegna ritskoðunar. Hefur reynt á ákvæðið. Hæstiréttur ís- lands komst að þeirri niðurstöðu í dómi frá 1943 að ákvæði laga frá 1941 um að hið íslenska ríki hefði eitt rétt til þess að gefa út íslensk rit sem samin væru fyrir 1400 nema sérstakt leyfi stjórnvalda kæmi til fæli í sér fyrirfarandi tálmun á útgáfu rita sem óheimil yrðu að teljast samkvæmt prent- frelsisgrein stjórnarskrárinnaf. Samkvæmt þessu var Halldóri Kiljan Laxness, útgefanda bókar- innar Hrafnkötlu, endurprentunar á Hrafnkels sögu Freysgoða með nútímastafsetningu, og kostnað- armönnunum Einar Ragnari Jóns- syni forstjóra og Einari Ög- mundssyni prentara ekki dæmd refsing á grundvelli laganna vegna útgáfu ritsins án leyfis stjórnvalda. Framangreind dæmi nægja til að sýna að fara ber varlega í að leggja takmarkanir á mannrétt- indi í réttarríkjum. Ella væri unnt að skerða réttindin stig af stigi með óheppilegum afleiðingum. T.d. væri unnt að freista þess að mismuna dagblöðum hér á landi í reynd með því að leggja með lögum háa skatta er væru að vísu klæddir í hlutleysisbúning, t.d. skatta á fasteignaauglýsingar er sviptu svo til eingöngu Morgun- blaðið tekjulind og skatta á smá- augiýsingar til að ná sér niðri á Dagblaðinu og Vísi. Þá kynni einhverjum að detta í hug að láta Islendinga greiða há gjöld er þeir flytjast búferlum úr landi (hugsuð sem endurgreiðsla á menntunar- kostnaði o.s.frv.) en erlend for- dæmi eru fyrir slíku. Skrefagjaldið er skerðing á mál- frelsi hvers ein- asta Islendings Á það hefur réttilega verið bent að hið fyrirhugaða skrefagjald geti bitnað harkalega á hinum öldruðu, ekki aðeins fjárhagslega, heldur og andlega — aukið ein- angrun þeirra. En það vill gleym- ast að nefna að þarfir Islendinga til að nota símann eins og verið hefur, þ.e. án takmörkunar í formi skrefagjalds, eru mjög víðtækar og ná langt út fyrir raðir aldraðra. Hversu oft er ekki unnt að Ieysa mál sem þurfa talsverða umræðu í síma? Hvað um þá sem sinna umfangsmiklum félagsmálastörf- um á ýmsum sviðum, m.a. í líknarmálum? Hafa efnalitlir ein- staklingar ráð á að taka að sér slík ólaunuð störf sem hleypt geta símareikningum þeirra eða að- standenda þeirra upp úr öllu valdi? Eða eiga menn að efna til funda í stað þess að nota símann — auka þannig bensínnotkun á tímum stórhækkaðs olíuverðs í heiminum og stóraukins olíu- sparnaðar? Þarf fólk að hafa stóraukið eftirlit með símnotkun á heimilum sínum án þess að tryggt sé að það fái ekki mjög óvænt háa símreikninga? Þannig má lengi spyrja. Viss linun á skrefatalningu á kvöldin og um helgar og hugsan- legt lágt skrefagjald í upphafi eru aðeins tæki til að auðvelda skerð- ingu málfrelsisins, fá gjaldið sam- þykkt. Ætti þetta að vera algert aukaatriði í umræðu um skrefa- gjaldið. Skattheimta byrjar oft smátt en endar stórt, samanber t.d. söluskattinn sem hefur hækk- að úr 3% í 23,5% á tæpum tveimur áratugum hér á landi. Hér má e.t.v. hafa í huga orð C. Northcote Parkinsons, höfundar Parkinsons-lögmálsins um út- þenslu skriffinnskunnar, að skatt- ar hafi tilhneigingu til að haldast, jafnvel stríðsskattar á friðartím- um. Ekki ætti að þurfa að hengja alla símnotendur fyrir fáein tölvu- fyrirtæki sem nota símann á óvenjulegan hátt. Slíkt mál hlýtur að mega leysa án skrefagjalds á almenna símnotendur eins og hjá þorra vestrænna landa. Síminn er einn þátturinn í nútímalegri beitingu málfrelsis, „hornsteins lýðræðisins", og hefur því ómetanlegt gildi. Skrefagjald mundi fyrst og fremst bitna á hinum efnalitlu, öfugt við flesta aðra skatta, og þeim sem síst mættu við fjárhagslegum skakka- föllum um skeið, t.d. íbúðarbyggj- endum. Gjaldið er ekki aðeins skerðing á málfrelsi hvers einasta Reykvíkings, ekki aðeins skerðing á málfrelsi hvers einasta bæjar- búa í öllum kjördæmum, heldur skerðing á málfrelsi hvers einasta Islendings, og ekki óbeint, heldur beint, aðeins í mismunandi ríkum mæli eftir þörfum og aðstæðum hvers og eins. Eða nota t.d. bændur og makar þeirra, synir þeirra og dætur, ekki líka síma þegar þeir eru staddir eða búa í bæjum? Skrefagjaldið er óeðlilegt gjald á málfrelsi Islendinga Ekki verður því haldið fram hér ÞREMUR umferðum er nú lokið í skákkeppni stofnana, sem Taflfé- lag Reykjavikur gengst fyrir. Skáksveit Otvegsbankans er í fyrsta sæti með 10 vinninga af 12 mögulegum. Fast á hæla sveitar ÍJtvegsbankans er sveit Búnaðar- bankans með 9,5 vinninga. í þriðja til fjórða sæti eru sveitir Verkamannabústaða og að skrefagjaldið brjóti í bág við bókstaf íslensku stjórnarskrár- innar. Þá verður ekki kannað hér hvort gjaldið muni hafa næga stoð í gildandi lögum eins og tilskilið er með stjórnvaldsákvörðun sem þessa en aðeins tekið fram að það virðist talsvert vafasamt. Hitt ber að meta hvort þessi skerðing á málfrelsi sé eðlileg eða óeðlileg. Sýnt hefur verið fram á með gildum rökum að nauðsynlegt sé að ná sem mestum jöfnuði í símnotkunarkostnaði landsmanna enda samþykkti Alþingi ályktun í þeim anda hinn 28. mars 1974. Markmiðið er gott hér sem oft endranær. Um það eru væntan- lega flestir sammála. En ágrein- ingur í mannlegum samskiptum er oftast um leiðirnar að markmið- unum, einnig í þessu tilviki. í ofangreindri þingsályktunar- tillögu er gert ráð fyrir gjald- skrárbreytingu, svo að símgjöld innan eins svæðisnúmers eða landshluta, verði hin sömu um allt land og gjöld fyrir símtöl úr dreifbýli til höfuðborgarsvæðisins lækki verulega. Lög um stjórn og starfrækslu póst- og símamála frá 13. maí 1977 hníga í sömu átt. Ekkert benti til hins óvenjulega skrefagjalds í ályktuninni né lög- unum. Þá verður ekki séð að við afgreiðslu fjárlaga fyrir árið 1980 hafi verið vakin sérstök athygli þingmanna á kostnaði vegna kaupa á skrefatalningarbúnaði, að upphæð 395.720 sænskar krónur eða um 560.000 nýkrónur (56 milljónir gamalla króna) á sölu- gengi hinn 25. febrúar 1981. Að- flutningsgjöld eru ekki talin með. Svo til aftast í um 160 blaðsíðna löngum fjárlögum, í sérstöku yfir- liti um almenna fjárfestingu Pósts og síma, kemur fyrir undir fyrir- söginni sjálfvirkar símstöðvar lið- urinn „Karlssontalning" (100 milljónir gamalla króna). Er óvíst hvort alþingismenn hafi getað skilið orðið sem skrefagjaldsbún- að án sérstakrar skýringar. Eða þarf ekki einhvern talningarbúnað til að mæla hin hefðbundnu um- framskref símnotenda nú? Vænt- anlega stafar upplýsingaskortur- inn af afsakanlegri annríkisvangá. Almenningur er fyrst upp á síðkastið að vakna tii rækilegrar vitundar um hvert stefnir í þessu máli þótt búast megi við að Landsbankans með 8,5 vinninga. Þá koma sveitir Þýzk-íslenzka verzlunarfélagsins og Ríkisspítal- anna með 8 vinninga. í 7.-9. sæti eru sveitir Flensborgarskóla, Menntaskólans við Sund og Þjóð- viljans með 7 vinninga. Margir kunnir kappar tefla á mótinu. Þar fara fremstir Guð- einungis lítill hluti viðbragða hafi enn komið fram. Mótmælin hafa þó þegar verið það öflug að fullyrða má að fólk almennt telji skrefagjaldið óeðlilega leið að ofangreindu jafnaðarmarkmiði. Breytir engu þótt benda megi á fordæmi í líki skrefatalningar erlendis. Ábyrgir aðilar hafa ekki getað nafngreind nema 15 ríki — innan við tíunda hluta aðildar- ríkja Sameinuðu þjóðanna — þar af 8 eða einungis þriðjung vest- rænna ríkja. Byggja þeir þá könn- un erlends fyrirtækis sem tók til 56 ríkja. Ástæðurnar fyrir skrefa- gjaldskerfi í þessum ríkjum geta verið mismunandi. I höfuðborg Noregs, Osló, er t.d. sagt nauðsyn- legt að létta álagi af ofhlöðnu símakerfi. Slíkum vanda er ekki til að dreifa í bæjum hér. íslend- ingar verða a.m.k. að velja leið sem hentar íslenskum aðstæðum en flytja ekki þéttbýlisvandamál fjölmennari landa inn til íslands þegar enga nauðsyn ber til. Ef fyrirhugað væri að fara hefð- bundna eðlilega gjaldskrárbreyt- ingarleið, t.d. í formi hækkunar á hvert umframskref í innanbæjar- símtölum innan allra svæðisnúm- era, veittu sennilega fáir því athygli, hvað þá að þeir mót- mæltu, en jöfnuður mundi samt nást. Með hliðsjón af því að fara má hefðbundna gjaldskrár- breytingarleið í stað þess að skerða málfrelsi hvers einasta íslendings á hvimleiðan hátt ættu flestir að geta fallist á að skrefa- gjaldið sé óeðlilegt gjald á mál- frelsi Íslendinga. Byrgjum brunninn í tæka tíð Þeir eru ófáir sem vænta þess að Steingrímur Hermannsson símamálaráðherra taki ákvörðun um að hætta við hina óeðlilegu skrefagjaldsleið til að jafna síma- kostnað landsmanna og að fara í þess stað eðlilega gjaldskrárbreyt- ingarleið til að ná sama marki, t.d. með hækkun umframskrefa í inn- anbæjarsímtölum innan allra svæðisnúmera. Þá mundi fjöldi símtala skipta máli eins og verið hefur en ekki lengd þeirra. Búnað- inn, sem kaup hafa verið fest á fyrir um 560.000 nýkrónur aðeins (56 milljónir gamalla króna) ætti að vera unnt að selja úr landi: Þetta er lausn sem góð eining ætti að geta verið um, þ.e. ekkert skrefagjald, hvorki hátt né lágt. Þannig má koma í veg fyrir óeðlilegt gjald á málfrelsi íslend- inga. Slíkt verður ekki metið til fjár fyrir íslendinga nú og í framtíðinni. Því fyrr sem brugðist verður við því betra fyrir alla. Það er of seint að byrgja brunninn þegar þjóðin dettur ofan í. mundur Sigurjónsson, stórmeist- ari og Margeir Pétursson, alþjóð- legur meistari, fyrir Morgunblað- ið, Helgi Ólafsson, alþjóðlegur meistari, fyrir Þjóðviljann, Jón L. Árnason, alþjóðlegur meistari, fyrir Dagblaðið, og Ingi R. Jó- hannesson, alþjóðlegur meistari, en hann leiðir sveit Útvegsbank- ans, sem trónir í efsta sæti. Frá viðureign Morgunblaðsins og Dagblaðsins, sem endaði með jafntefli. í sveit Mbl. tefldu Guðmundur Sigurjónsson, Margeir Pétursson, Halldór Blöndal og Gísli Steinar Jónsson. Meðal DB-manna má sjá Jón L. Árnason og Ogmund Kristinsson. Skákkeppni stofnana: Útvegsbankinn í efsta sæti

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.