Morgunblaðið - 05.03.1981, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 05.03.1981, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. MARZ 1981 39 ^ ____ Ottar Eggert Páls- son — Minning Fæddur 16. febrúar 1931. Dáinn 20. febrúar 1981. Dauðinn hefir nú sigrað vin okkar sem hefir um langa tíð háð baráttu stranga og angistarþunga. Þegar unglings- og námsárum lauk kvaddi dyra gestur sá er nú hefir lagt lífsblóm hans að velli. Arf íslenzkrar menningar og styrkra ætta hlaut hann í vöggu- gjöf. Brátt myrkvaðist lífssólin og vonir brugðust. Þá þegar tók degi að halla. Kynni okkar urðu náin hin seinni ár. Oft töluðum við saman frá þeim stað er hann dvaldi á og einnig þegar hann kom í heimsókn til vandamanna sinna. Mér duldist aldrei hin ljúfa lund, samúð og vinátta er hann bar í brjósti til sinna nánustu og sorgin yfir örlögum þeim er voru lögð á herðar hans. Alltaf ól hann þó djúpt í huga von um batnandi heilsu. Von um betri tíð og máski áframhald um nám og þroska. Áhugi hans á sögu íslands og ættfræði var honum í blóð borinn, enda kunni hann betri skil á þeim fræðum en margir aðrir, það duldist ekki þeim er deildu kjörum við hann, þá sjaldan er fundust. Óttar Eggert Pálsson fæddist í Reykjavík 16. febrúar 1931. For- eldrar hans voru hjónin Margrét Magnúsdóttir og dr. Páll Eggert Ólason. Beztu kveðjur og þakkir fyrir góð og æ betri kynni og fyrir lærdóm okkur til handa, sem erum sólarmegin í lífinu. Birna Jónsdóttir kveðja fáir vinir hann hinztu kveðju. Páll Eggert var vinmargur og hlaut maklegt lof margra. Óttar Eggert sonur hans fór ekki með fjölmenni. Hann var hljóður ein- fari í flokki hins þögla meirihluta. Um hann verður fátt eitt skráð í íslenzkum æviskrám þeim er skrá framaferil og heiðursmerki. Þrátt fyrir það verður hann minnis- stæður vinum er hann eignaðist á lífshlaupi sínu og fylgdust með honum á ævibraut. Himnasmiður lagði á hann fjötra heilsubrests þegar á æsku- árum. Vonir þær er foreldrar og vandamenn bundu við ungan svein rættust eigi í þeim mæli er efni atgervis stóðu til. Mun þó faðir Óttars hafa bundið vonir nokkrar við son sinn ungan, að hann bæri fram merki atgervis og frægðar- ferils. Mennirnir álykta en Drottin ræður. Óttar Eggert lauk stúdents- prófi. Einnig það var afrek er honum tókst að vinna sjúkum og sárum. Hugur Óttars stefndi til sagnfræði og bókmenntanáms. Þau fræði voru honum hugstæð alla tíð svo sem hann átti kyn til. Minnisstæð verður sú stund er hann veitti viðtöku íslenzkum æviskrám, ritverki föður síns, þá þrotinn að heilsu. Bókmenntafé- lagið sendi honum þær að gjöf í minningu föður hans. Við vorum stundum að gera okkur vonir um að fara fámennir og með friði á söguslóðir Njálu. Setjast í grasigróna laut og taka upp nestisbita og súpa kaffisopa og rifja upp vígaferli og stórvirki hetjualdar. Svo ætluðum við að brosa saman að öllum þessum fyrirgangi og fremdarstandi og þurrka móðuna af gleraugunum okkar og aka heilum vagni heim, úr ríki Breiðbælinga og Öddaverja er miðnætursólin ljómaði á lofti og Rangárgrundin glóði við sól. Pétur Pétursson þulur. Minning: Steinn Steinsen fv. bœjarstjóri Akuregri Óttar Eggert Pálsson var sonur Páls Eggerts Ólasonar og Mar- grétar Magnúsdóttur. Missti hann móður sína árið 1946 var hann þá aðeins 15 ára að aldri. Það var honum mikið áfall og missir því hún hafði verið honum svo kær. Hann bjó á heimavistinni á Akur- eyri þann tíma sem hann var við nám í Menntaskólanum og lauk stúdentsprófi frá MA árið 1954. Eftir það fer hann að kenna þess sjúkdóms sem háði honum að meira eða minna leyti alla hans lífdaga. Vegna þessa dvaldist hann oft lengri tima á sjúkrahús- um. En þrátt fyrir það var hann ekki að kvarta, hann var hægláta maður og mikið góður drengur. Eg man þegar ég og systir mín vorum litlar, þá vissum við að von var á móðurbróður okkar, Óttari, í heimsókn á jólum og öðrum hátíð- isdögum og dvaldi hann oft í nokkra daga og var ætíð kærkom- inn gestur á heimili foreldra okkar. Og var svo fram á þennan dag. Nú kveð ég Óttar minn, í hinsta sinn, ég vona að honum líði vel. „Dúnmjúkum hondum strauk kuliÖ um krónu ok hx./ok kvöldið stóö álenKdar hikandi feimiö og beið./AÖ baki okkar tyndist í mistriö hin lanKÍrama Ieiö,/eins ok lóttstÍKÍn dansspor i rökkur hins hnÍKandi daKN. Ok viA settumst við veKÍnn, tveir ferðlúnir framandi menn,/eins ok fuKÍar, sem þöndu tdnn vænK yfir úthöfin breið./Hve Kott er að hvila hík rótt. eins ok lokið só leið,/þótt lanKur ok eilifur KanKur biði manns enn.“ (Steinn Steinarr.) Hvíl í friði. Margrét Berndsen Fáum einum er gefið slíkt þrek að lesa pensúm lagadeildar á fáum vikum, Ijúka prófi með lofi og láði, setja saman króníkur liðinna alda, æviskrár íslenskrar þjóðar, rita um aldarfar, sýsla um fjármuni og framkvæmdir. Lifa lífsnautn frjóa í embættisframa og fjölvísi. Páll Eggert Ólason lék þá list með prýði. Hann lék einnig á orgel Breiðabólstaðarkirkju í Fljótshlíð við sína eigin fermingarathöfn. Námsferill og frami blöstu við honum ungum í krafti skapfestu og gáfna. Nú þá er organtónar óma við útför yngsta sonar Páls Eggerts, Óttars Eggerts Pálssonar Margir stórbrotnir, sérkenni- legir og eftirminnilegir menn hafa verið prófdómarar við Mennta- skólann á Akureyri alla þá löngu tíð sem ég hef verið þar viðurloða. Einn þessara svipmiklu og sér- stæðu manna var Steinn Steinsen verkfræðingur. Hann var próf- dómari í stærðfræði á stúdents- prófi, frá því að ég man fyrst eftir mér við skólann, og síðan óslitið þar til hann fluttist úr bænum. Hann orkaði þannig á nemendur að traust vakti. Festa hans og gaumgæfni jók tiltrú á dómgreind hans, og ekki var hann þess legur að flana að neinu eða líklegur til þess að rubba af nokkru verki í flaustri. Steinn Steinsen fluttist til Ak- ureyrar og gerðist þar bæjarstjóri á erfiðum tímum. Kreppan mikla vofði enn yfir öllu, og fylgdu henni margir óhrjálegir fiskar. Lítil festa var í stjórnmálum á Akur- eyri, svo að ekki færri en sex listar fengu fulltrúa kjörna í bæjar- stjórn í janúar 1934. Þar við bættist að maður sá, sem einn hafði verið bæjarstjóri frá upp- hafi, Jón Sveinsson, lét nú af embætti. Mikinn vanda var því við að rjá, að fá hæfan og traustan mann, þegar ósamlyndi og jafnvel glundroði var á aðra hönd. Engum mun nú dyljast að heppilega tókst til, þegar Steinn Steinsen var kosinn annar bæjar- stjóri á Akureyri. Fljótt ávann hann sér traust, enda hefur hann gegnt embættinu lengur en nokk-- ur annar, eða í 24 ár. Hann vann sér ekki traust og vinsældir með látum eða lýðskrumi, né heldur var hann hvers manns jábróðir. En hann var gjörhugull, vel menntaður, greindur og samvisku- samur. Hann fór sér hægt og var ekki morgunhani, en honum vannst eigi að síður. Hann hélt hlut sínum, og hann stjórnaði Akureyrarbæ af eðlislægri festu og yfirlætisleysi. Hann var af sumum talinn íhaldssamur, en því fór fjarri. Hann var varkár og gætinn framfaramaður, sem und- irbjó hvaðeina vel, það er hann taldi til heilla horfa, og hann var einkennilega glöggskyggn og framsýnn í því efni. Þegar ég kom fyrst í bæjar- stjórn, var hann að láta af störf- um, og það var ekkert þrotabú sem hann skildi eftir sig. Bæjarfélagið var vel á sig komið, og Akureyri hafði mikið lánstraust, ef til þurfti að taka. Það sannaðist best, þegar ráðist var í Laxárvirkjun, en störf Steinsens að því mikla framfaramáli voru mjög mikilvæg og ber líklega hæst, þegar bæjar- stjóraferill hans er rakinn. Steinn Steinsen gat verið glett- inn og hafði gaman af leikfléttum. Bridgemaður var hann af ástríðu og list. Það sannreyndi ég sjálfur. Lítt var hirt um tímamörk, þegar til þess leiks var komið. Aldrei sáust á honum mikil geðbrigði, en stundum reykti hann ofurlítið fleiri vindla en endranær og var fljótari með hvern, þegar snúinn vanda þurfti að leysa. Og Steinsen leysti vandann. Ég þykist mæla fyrir munn fjölmargra Akureyringa, þegar ég færi honum látnum þakkir fyrir tryggð hans við bæinn og það starf sem hann vann. Heilindum hans, stefnufestu og styrk verður alltaf við brugðið. Táknrænt má það vera fyrir það álit, sem menn höfðu á honum, að kraninn mikli, stórvirkt og burðamikið verkfæri í eigu Akureyrar, var í gamni og alvöru látinn bera nafn hans í daglegu tali. Sonum Steinsens, Eggert og Gunnari, sendi ég kveðjur mínar um leið og ég ítreka þakkir mínar til föður þeirra. Hans mun ég ætíð minnast með virðingu og aðdáun. Gisli Jónsson Minning: Friðjón Guðmundsson frá Fáskrúðsfirði Hinn 10. janúar sl. andaðist Friðjón Guðmundsson frá Fá- skrúðsfirði í Landspítalanum í Reykjavík eftir þunga legu. Hann var fæddur í Búðakaupstað í Fáskrúðsfirði 17. april 1909, sonur hjónanna Guðmundar Michelsen og Snjólaugar Jónsdóttur er þar bjuggu. Hann var yngstur fjög- urra systkina, en að auki ólu þau upp eina fósturdóttur. Öll náðu þau systkinin fullorðinsaldri. Friðjón ólst upp í foreldrahús- um. Á uppvaxtarárum hans var um fáar leiðir að velja fyrir unga fólkið til atvinnu og starfa. Lög- boðin skólafræðsla var að vísu veitt, en fyrir þá sem hug höfðu til frekara náms var leiðin torsótt, því þröngur efnahagur var þar oft til trafala. Friðjón lagði ekki á þá braut, heldur kaus að leggja fram krafta sína heima í fæðingarsveit sinni. Þar lifði hann og bjó öll sín athafnaár. Þá byggðist tilvera fólksins á Austfjörðum að mestu á því sem sókn til sjávarins gaf. Þangað leituðu unglingarnir strax og þeir höfðu mátt til að taka í ár og þar var þeirra starfsvettvangur er þroskaárin tóku við. Eins og hjá öðrum jafnöldrum, stóð hugur Friðjóns til þeirra starfa. Hann stundaði lítt sjóróðra, en varð öðrum snjallari við að stokka línu og beita. Og í landi kunnu fáir betur að verka sjávaraflann og ganga frá honum til sölu en hann. Þar voru handtökin hröð og örugg, enda voru afköstin mikil. Langa hríð vann hann í frystihúsinu í Búðakaupstað og mörg hin síðari ár sem verkstjóri. Þar naut hann vinsælda, enda dagfarsgóður og lipur í umgengni við alla. Öll störf léku í höndum hans. Hann var verkhagur og ráðdeildarsamur. Um það bera þær byggingar vitni, sem hann átti hlut að að reisa, mest með eigin vinnu. Hann vann af alúð við að tryggja afkomu sinna nánustu en hafði minni áhuga á afskiptum af opinberum málum. Þó hygg ég, að hann hafi starfað í hreppsnefnd kauptúns- ins, en slíkt átti ekki við hann svo setan þar varð stutt. 1. september 1933 kvæntist Friðjón fermingarsystur sinni, Borgþóru Guðmundsdóttur. Var hún fædd og uppalin í hans heimabæ og þekkti því vel þau lífskjör og aðbúnað er þeirra beið. Hjónabandið var farsælt. Þau voru samhent og einhuga við að fegra og prýða heimili sitt. Þar var tekið rausnarlega á móti gestum og þeir sem þar litu inn nutu hlýju og vinsemdar hús- bændanna í ríkum mæli. Þau eignuðust eina dóttur, Ester, sem nú er búsett í Vestmannaeyjum. Hún er gift Hauki Kristjánssyni. Sonur Borgþóru, Hörður Jakobs- son, ólst upp hjá móður sinni og stjúpa. Gekk Friðjón honum í föður stað, enda var þar um gagnkvæma virðingu og hlýju að ræða. Friðjón eignaðist aðra dótt- ur, Torfhildi, með Jónu Torfadótt- ur. Er Torfhildur gift Óskari Gunnarssyni. Búa þau í Fáskrúðs- firði ásamt börnum sínum. Er ævinni tók að halla og umsvifin minnkuðu, fluttust þau Friðjón og Borgþóra til Vest- mannaeyja og bjuggu sér notalegt heimili í húsi þeirra Esterar og Hauks að Boðaslóð 20. Þar glödd- ust þau við atlot og ærsl dóttur- dætranna og fylgdust náið með framförum þeirra og þroska. Með- an kraftarnir entust, var unnið við ýmis létt störf, en í frístundum var leitað til blómanna. Þau hjón- in höfðu einstakt yndi af blómum og öllu er laut að ræktun þeirra. Spöruðu þau hvorki tíma né fyrir- höfn til að ná sem mestum árangri á því sviði. M.a. kom Friðjón sér upp litlu vermihúsi úr gleri til að geta sinnt þessari tómstundaiðju sem best. Borgþóra andaðist fyrir nokkr- um árum og eftir það bjó Friðjón í skjóli dóttur og tengdasonar. Heilsan leyfði honum að bregða sér i heimsókn austur á æsku- stöðvarnar og varð það honum til mikillar gleði og uppörvunar. En sl. haust brast heilsan að fullu og baráttan hófst. Og þótt andstaðan væri hörð, varð hinn síðasti dóm- ur ekki umflúinn. Friðjón var jarðsettur í kirkju- garðinum í Vestmannaeyjum við hlið konu sinnar. Þar hvíla þau nú eftir langan og strangan vinnu- dag. En hlýjar hugsanir og þakkir fyrÍT samfylgdina fylgja þeim yfir landamærin miklu. Þau höfðu með starfi sínu lagt sitt af mörkum til betra lífs fyrir þá kynslóð sem nú ræður ríkjum hér á landi og nýtur verka þeirra, sem brautina ruddu. Vinur SVAR MITT EFTIR BILLY GRAHAM Mér flnnal ég akki nógu góéur Hl að vara kriatínn. Ég atanzt akki maalikvarða Bibliunnar. Á ég nokkra von? Já, vissulega eigið þér von! Hvergi stendur það í Biblíunni að menn þurfi að verða góðir til þess að verða kristnir. I raun réttri sagði Jesús sjálfur: „Ég er ekki kominn til að kalla réttláta, heldur syndara til iðrunar." Og á öðrum stað segir: „Kristur Jesús kom í heiminn til að frelsa synduga menn“. Um alla Biblíuna eru fyrirheit handa yður. „Ekki sendi Guð son sinn í heiminn til þess að dæma heiminn, heldur til þess að heimurinn skyldi frelsast fyrir hann.“ Er til dásamlegra fyrirheit en þetta? Hafið þér nokkurn tíma veitt því athygli, að Jesús var sífellt í vanda staddur gagnvart þeim, sem fannst þeir vera nógu góðir? Það fór alltaf vel á með honum og þeim, sem vissu, að þeir væru slæmir. Það var von fyrir þá, og eins er von fyrir yður. Þér eigið aðeins að játa synd yðar og óverðugleika og hata svo synd yðar, að þér snúið baki við henni — og þrá hjálpræðið svo að þér þiðjið Jesúm að veita yður það, og treystið því, að hann geri það. Þá verðið þér einn í fjölskyldu Guðs fyrir trú á Krist. Ég bið yður fyrir alla muni: Bíðið ekki lengur eftir því, að þér batnið nógu mikið. Varpið yður nú þegar í náðarfaðm Guðs. Hann tekur á móti yður fyrir sakir Jesú Krists.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.