Morgunblaðið - 10.04.1981, Blaðsíða 1
32 SÍÐUR MEÐ MYNDASÖGUBLAÐI
84. tbl. 69. árg.
FÖSTUDAGUR 10. APRÍL 1981
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Vélaði tug-
milljomr
íiala út úr
Irönum
París. 9. april. - AP.
RÍKISSTJÓRN írans hefur höfð-
að umfangsmikið skaðabótamál
gegn libönskum fjármálamanni,
sem hefur að sögn iranskra lög-
fræðinga vélað 56 milljónir
Bandarikjadala (u.þ.b. 365 millj-
ónir nýkróna) út úr irönskum
yfirvöldum.
Iransstjórn hefur sakað mann-
inn um að hafa svikizt um að
afhenda vopn, sem hann þóttist
geta aflað á svörtum markaði, og
Iranir hugðust nota í stríðinu gegn
írak. í stað þess að koma með
vopnin hafi Líbaninn stungið af
með peningana. Leitar íransstjórn
nú eftir því fyrir frönskum dóm-
stólum að lagt verði hald á inneign-
ir mannsins í frönskum bönkum og
peningarnir endurgreiddir.
Bradley hers-
höfðingi látinn
New York, 9. april. — AP.
BANDARlSKI hershöfðinginn
Omar Bradley, sem gat sér mikið
frægðarorð í siðari heimsstyrjöld-
inni, lézt í gær 88 ára að aldri.
Bradley var eini fimm stjörnu
hershöfðinginn í Bandaríkjunum.
Hann stjórnaði milljón bandarisk-
um hermönnum í heimsstyrjöld-
inni og fór fyrir herjum í Túnis, á
Sikiley og í innrásinni í Normandy
stjórnaði hann bandaríska innrás-
arliðinu. Bradiey var í hernum til
síðustu stundar og hafði verið
hermaður í 70 ár, þegar hann lézt.
Ronald Biggs
framseldur
Bridgetown. Barbados. 9. april. AP.
DÓMARI í Bridgetown á Barba-
dos-eyjum úrskurðaði í dag, að
lestarræninginn Ronald Biggs
skyldi framseldur brezkum yfir-
völdum. Hafnaði dómarinn rök-
semdum lögfræðinga Biggs þess
efnis, að samningur Breta og
Barbadosmanna um framsal saka-
manna væri ógildur, en ákvað þó
að Biggs skyldi fá tveggja vikna
frest til að áfrýja úrskurðinum.
Símamynd AP.
Haig á fundi með Spánarkonungi
Alexander Haig, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, átti í gær viðræður við helztu ráðamenn á Spáni og
lýsti eindregnum stuðningi Bandaríkjanna við lýðræðisþróunina í landinu. Haig kom í gærkvöldi til
London, þar sem hann mun í dag eiga viðræður við Thatcher, forsætisráðherra og Carrington,
utanríkisráðherra. Haig mun koma við í fimm höfuðborgum í Evrópu, áður en hann heldur heim á leið úr
för sinni til Miðausturlanda.
Pólland:
Kania sætir harðri
gagnrýni verkamanna
Varsjá, Prag, 9. apríl. AP.
REIÐIR verkamenn i Lenín
skipasmíðastödinni i Gdansk
gagnrýndu pólska kommúnista-
flokkinn harðlega á fundi með
Kania flokksleiðtoga i skipa-
smiðastöðinni i dag. Kania fór á
fund starfsmanna i stöðinni degi
áður en Jaruzelski forsætisráð-
herra flytur stefnumarkandi
ræðu i pólska þinginu, þar sem
búizt er við að hann endurtaki
hógværar yfirlýsingar sínar um
ástandið i landinu.
Leiðtogar Samstöðu, samtaka
frjálsra verkalýðsfélaga í Pól-
landi, hittust í Gdansk skammt
frá skipasmíðastöðinni, og ræddu
nýjar reglur um kjör leiðtoga í
samtökunum og hvort sjónvarpa
skuli næstu viðræðum þeirra við
fulltrúa ríkisstjórnarinnar.
Dregið hefur úr spennu í Pól-
landi, en fréttir sem borizt hafa
til Vesturlanda bera þó með sér,
að ýmis búnaður, sem sovézki
herinn hefur komið fyrir við
pólsku landamærin sé þar enn og
að innrás megi nú gera með mjög
stuttum fyrirvara.
Utanríkisráðherra Tékkóslóv-
akíu, Bohuslav Chnoupek, sagði í
dag á blaðamannafundi í Prag, að
Varsjárbandalagsríkin hefðu
ekki í hyggju að grípa í taumana
í Póllandi að svo stöddu og væri
hann sannfærður um að þarlend-
ir menn gætu leyst vandamál sín
sjálfir. Hins vegar benti ráðherr-
ann á að mjög margt væri líkt
með ástandinu í Póllandi nú og
því sem ríkti í Tékkóslóvakíu árið
1968. Fór hann hörðum orðum
um Samstöðu og afskipti hennar
af landsmálum.
Gustav Husak var í kvöld
endurkjörinn formaður tékkn-
eska kommúnistaflokksins.
Fækkar
Norðmönn-
um í 3,3
milljónir?
Osló. 9. apríl. Frá Jan-Erik
Lauró. fréttaritara Mbl.
IIÆTTA er á því, að Norð-
mönnum muni eftir næstu alda-
mót fara fækkandi, að þvi er
fram kemur i langtimaáætlun
norsku rikisstjórnarinnar.
Norðmenn eru nú um fjórar
milljónir og verða væntanlcga
4,2 milljónir árið 2000, en haldi
núverandi þróun áfram kann
svo að fara, að í Noregi verði
aðeins 3,3 milljónir manna árið
2050.
Nú fæða norskar konur 1,7
börn að meðaltali, en þessi tala
verður að hækka í 2,2 eigi
norska þjóðin að vaxa með
eðlilegum hætti að mati stjórn-
arinnar. Stjórnin hefur ákveðið
að skipa sérstaka nefnd til að
finna leiðir til lausnar þessum
vanda.
I langtímaáætlun norsku
stjórnarinnar kemur einnig
fram, að á árunum 1982—85
megi búast við minni hagvexti í
Noregi, en landsmenn eiga að
venjast og að afleiðingin verði
sú, að fáir þjóðfélagshópar fái
kjarabætur, þrátt fyrir gífur-
legar tekjur Norðmanna af olíu-
vinnslu.
Upplýst um mikinn
f járdrátt i Noregi
Geimskutlan
á loft í dag
Capc Canaveral. Florida.
9. apríl. AP.
FYRSTU handarísku geim-
skutlunni, Columbiu, verður
skotið á loft í býtið í fyrramál-
ið með tveimur mönnum innan-
borðs. í kvöld var allt eftir
áætlun. veðurspá góð og útlit
fyrir vel heppnað geimskot.
Um borð í geimskutlunni verða
geimfararnir John Young og
Robert Crippen og er ráðgert
að þeir verði á lofti í 54,5 tíma
og fari 36 sinnum umhverfis
jörðina áður en þeir lenda
skutlunni.
Þessi ferð er hin fyrsta af
fjórum reynsluferðum, sem
farnar verða á næstu 12—15
mánuðum áður en reglubundn-
ar ferðir skutlunnar geta hafizt,
en þegar hafa 70 slíkar ferðir
verið ráðgerðar.
Young og Crippen komu í dag
í stutta heimsókn í geimskutl-
una og gerðu síðustu prófanir á
tækjum. Þeir fóru síðan yfir
allar flugáætlanir með starfs-
mönnum NASA á Canaveral-
höfða en gengu til hvílu síðdeg-
is. Þeir verða vaktir kl. 2 í nótt
að staðartíma og halda væntan-
lega út í geiminn kl. 6.50 (11.50
að ísl. tíma).
Öslú. 9. aprll. Frá Jan-Erlk
Lauré, fróttaritara Mbl.
UPP HEFUR komist um stærsta
fjárdrátt. sem sögur fara af í
Noregi. Fjármálastjóri hjá bif-
reiðaverzlun í Ósló hefur viður-
kennt að hafa dregið sér 10
milljónir norskra króna (rúmlega
12 milljónir nýkróna), en lögregl-
an telur að upphæðin sé helmingi
meiri.
Peningana hefur maðurinn notað
til að fjárfesta í húseignum,
skartgripum og til útlána á pen-
ingamarkaði í Noregi. Hann sagði
upp starfi sínu í fyrra, þegar
fyrirtækið, sem hann vann hjá, bar
fram spurningar um fjármál hans.
Meðal eigna mannsins er glæsilegt
einbýlishús, talið 5 milljón norskra
króna virði, en þegar maðurinn
hugðist selja húsið og flytja til
Spánar, greip lögreglan í taumana.
Rannsókn hefur nú leitt í ljós, að
í bankahólfi fjármálstjórans voru
geymdar þrjár milljónir norskra
króna og í öðru hólfi gimsteinar að
andvirði fimm mílljónir króna.
Nokkrar milljónir höfðu verið lán-
aðar til ýmissa aðila innanlands á
háum vöxtum.
Bílaverzlunin hefur ákveðið að
hreyfa ekki við lánum fjármála-
stjórans heldur ganga inn í samn-
inga hans. Hús hans og skartgripir
hafa hækkað í verði og er ekki talið
að fyrirtækið skaðist á því að
yfirtaka þær eignir. Svo virðist,
sem verzlunin kunni að hagnast á
fjárdrættinum, þar eð maðurinn
hefur litlu eytt á sjálfan sig og
fjölskyldu sína, heldur lagt sig
fram um að ávaxta féð.
Fjármálastjórinn dró sér féð
með því að stinga í eigin vasa þeim
peningum, sem norska stjórnin
greiddi fyrirtæki hans til að greiða
niður verð á Mercedes Benz bifreið-
um til leigubílstjóra í Ósló. Þessa
iðju hafði hann stundað í 10 ár.
Geimrúbla
gefin út
Moskva. 9. aprll. AP.
TASS-fréttastofan greindi frá
því í dag að nýr rúblupeningur
yrði sleginn til að minnast þess
að tuttugu ár séu liðin frá
fyrstu mönnuðu geimferðinni,
sem Yuri Gagarin fór. Öðru
megin á peningnum verður
skjaldarmerki Sovétríkjanna
en hinum megin mynd af
Gagarin og geimfari. Það er
nk. sunnudag sem 20 ár eru
liðin frá geimferð Gagarins.