Morgunblaðið - 10.04.1981, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 10.04.1981, Blaðsíða 32
dí^Síminn á afgreióslunni er 83033 JtUrgunbtaltid JltagmiHiifeife Síminn á afgreiðslunni er 83033 2R«r0unblnbi( FÖSTUDAGUR 10. APRÍL 1981 Gosið virtist færast í aukana í gærkvöldi „Nálægt ramma Heklu- gosa en ósköp lítiö“ - sagði Sigurður Þórarinsson jarðfræðingur „ÞETTA GOS er nálægt ramma Heklugosa, en ósköp lítið,“ sagði Sijfurður Þórarinsson jarðfræðinKur i samtali við Mbl. i gær um eldsumbrotin sem hófust í Heklu laust fyrir klukkan þrjú í fyrrinótt. Þejjar Morgunblaðsmenn flugu yfir Heklu siðdegis i gær stóð gosstrókur upp úr skýjaþykkni og náði i 12 þúsund feta hæð, sem er mjög litið, miðað við Heklugos.! gærkveldi rofaði til við fjallið og sást hraunstraumur renna niður hliðar fjallsins frá Ásólfsstöðum. Drunur heyrðust og virtist gosið vera að færast i aukana. Gosið er í Heklu nálægt Skjól- kvíahryggnum og einnig sáust eldsumbrot í sprungu nálægt toppgígnum. I fyrrinótt og í gærmorgun sáu menn bjarma bregða fyrir en hvergi hafði þá orðið vart við verulegt hraun- rennsli. „Það var hrein tilviljun að ég kom að Heklu í upphafi gossins," sagði Sigurður Þórarinsson, „en ég var að koma til landsins með Boeing-þotu Flugleiða og hafði ekki átt að koma fyrr en að kvöldi fimmtudags. Þetta gos er ósköp lítið en það jókst eitthvað um klukkan 10 til 11 í morgun en það hlýtur að vera eitthvert hraun- rennsli í þessu þótt skyggni hafi hamlað útsýni. Þetta er ákaflega líkt því og er Heklugos hafði náð sér á strik, og ég væri ekki hissa á því þótt þetta mallaði í einhvern tíma. Það má líklega telja þetta gos framhald af gosinu í ágúst sl. sumar, enda hefur orðið vart hita í Heklu framundir jól að minnsta kosti, þar sem hitastrókar sáust af og til við ákveðin veðurskilyrði. Hekla hefur því ekki verið orðin Heklu, og gæti þar verið um hraunrennsli að ræða, en eldstöðv- arnar virtust mér vera heldur sunnar en í Skjólkvíagosinu." Axel Björnsson jarðeðlisfræð-. ingur sem flaug yfir eldstöðvarnar í gær, sagði að hér væri um mjög lítið Heklugos að ræða, en þar sem erfitt væri að fylgjast með úr lofti vegna veðurs, og jafnframt erfitt að komast að eldstöðvunum land- leiðina, þá væri ekki hægt að segja nákvæmlega um stöðu gossins, eða spá fyrir um þróun þess. Sjá miðsiðu. I.jósmynd Mbl. Kristján. Gos hófst i norðausturhrygg Heklu i fyrrinótt rétt fyrir klukkan þrjú, en það var næturvaktmaður við Hrauneyjafossvirkjun, sem fyrstur varð var við gosið. Gosið að þessu sinni er mun minna en fyrri gos. Jarðvísindamenn telja þó að um eitthvert hraunrennsli sé að ræða. Þingmaður Alþýðubandalagsins: „Verði tillagan samþykkt, springur ríkisstiórnin" köld. Árið 1767—’68 lá gos niðri í Heklu frá águst ’67 til marz ’68. Áður en hlé kom á gosið hafði gosið í liðlega eitt ár, en eftir hlé var um smágos að ræða í tvo mánuði. Skjólkvíagosið 1970 og gosið 1980 skapa styzta hlé sem orðið hefur milli Heklugosa, en áður hafði slíkt hlé orðið í 15 Vfe ár, árin 1206 til 1222.“ Morgunblaðið ræddi við Sigur- jón á Galtarlæk í gær, en hann kvaðst hafa séð til eldstöðvanna upp úr hádeginu og heyrt til Heklu seinni hluta dags. „Það kom mökkur úr sprungu suður undir topp Heklu og ég sá öskugos í nokkrum gígum, en ekki verulega kraftmikil. Þetta er svona eins og eftir að fyrsta hrinan er um garð gengin. Einhver umbrot sá ég í vesturhlíðinni fyrir sunnan Litlu- „VERÐI tillagan um flugstöðv- arbygginguna samþykkt I neðri deild Áiþingis, er alveg ljóst að rikisstjórnin springur,“ sagði einn þingmanna Alþýðubanda- lagsins í samtali við Morgun- blaðið í gærkveldi. Svavar Gestsson sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að gengju einhverjir stjórnarþingmenn i lið mcð stjórnarandstöðunni, væri verið að brjóta grundvöll stjórnarsamstarfsins og yrðu þeir aðilar þá að bera ábyrgð á þvi. Lárus Jónsson alþingismað- ur, annar flutningsmaður tillög- unnar i efri deild, sem þar féll á jöfnum atkvæðum, kvað tillög- una verða endurflutta i neðri deild. í neðri deild Alþingis skiptast þingmenn þannig að 21 fylgja Stóríðja við Reyðarfjörð: Hugmyndum tekið fálega Á þingflokksfundi Alþýðu- handalagsins fyrir skömmu mun Hjörleifur Guttormsson hafa borið fram tillögu um að stefna skyldi að stóriðju í Reyðarfirði og átti þá við að þar yrði reist kísilmálmverksmiðja. Samkvæmt þeim heimildum, sem Morgunblaðið hefur aflað sér, mun þessari tillögu Hjörleifs hafa verið tekið með nokkru tómlæti og var hún hvorki samþykkt né felld. Morgunblaðið hafði samband við Hjörleif vegna þessa máls, en hann vildi ekki kannast við að hafa borið fram slíka tillögu, en sagði að auðvitað væru virkjun- armál og stóriðja tengd þeim alltaf til umræðu innan flokksins, en hann hefði í því tilefni ekki lagt sérstaka áherzlu á ákveðna staði. ríkisstjórninni, en 19 eru í stjórn- arandstöðu. Áðurnefndur þing- maður Alþýðubandalagsins full- yrti við Morgunblaðið í gær að Jóhann Einvarðsson myndi breyta með sama hætti og Ólafur Jó- hannesson í efri deild, þ.e. greiða tillögunni atkvæði. Eru þá at- kvæði jöfn. Jóhann sagði í samtali við Mbl. í gær, að hann léti ekki uppi afstöðu sína fyrr en við atkvæðagreiðsluna. Þá er heldur ekki vitað um afstöðu Eggerts Haukdal, sem vildi heldur ekki tjá afstöðu sína í gær. Albert Guðmundsson hefur lýst því yfir við Morgunblaðið að hann muni ekki stuðla að falli ríkisstjórnarinnar, nema hann viti hvað við muni taka í lands- stjórninni. Það virðist því sem einn þingmanna Framsóknar- flokksins muni greiða tillögunni atkvæði, en eins og þingmaður Alþýðubandalagsins sagði í gær, myndu flokksbönd halda öðrum þingmönnum Framsóknar. Sjá viðtöl og fréttir á bls. 2 og 3. Verkfall flugmanna bannað „Urskurðaraðilum“ falið að skera úr um í deilu flugmanna ALÞINGI samþykkti í gær að banna með lögum vinnustöðvun, sem Félag íslenskra atvinnuflugmanna hafði boðað til frá og með miðnætti i nótt er leið. Lögin, sem voru stjórnarfrumvarp, voru samþykkt með atkvæðum stjórnarþingmanna og þingmanna Alþýðuflokksins en þingflokkur Sjálfstæðisflokksins sat hjá við afgreiðslu málsins. í lögunum er kveðið á um, að Hæstiréttur skipi þrjá úrskurðaraðila í deilu um starfsaldurslista flugmanna Flugleiða hf. og að þeir skuli hefja störf ekki síðar en innan fjögurra vikna ef störf sáttanefndar bera ekki árangur fyrir þann tíma. Ákvarðanir þeirra um starfsaldurslistann eiga að vera bindandi fyrir hlutaðeigendur frá 15. mars sl. Samgönguráðherra, Steingrím- ur Hermannsson, mælti fyrir frumvarpinu og rakti þær deilur, sem hafa verið með flugmönnum um starfsaldurslistann og sagði, að reynt hefði verið til þrautar að finna lausn á málinu en án árangurs. Hann sagði, að lausn þessa máls væri hvort tveggja í senn forsenda fyrir kjarasamn- ingum við flugmenn og forsenda fyrir eðlilegum rekstri Flugleiða. Geir Hallgrímsson lýsti því yfir fyrir hönd þingflokks Sjálfstæðis- flokksins, að hann myndi sitja hjá við atkvæðagreiðslu um málið, enda hefði ekkert samráð verið við þingflokkinn haft fyrr en kl. 13 í gær. Geir sagði málið alfarið á ábyrgð ríkisstjórnar en með tilvís- an til þess, að hér væri um mikilvægt mál að ræða myndu þingmenn Sjálfstæðisflokksins ekki hindra framgang þess. Hann sagði, að einu afskiptin, sem þingflokkurinn myndi hafa af málinu, væri að leggja til, að það yrði nefnt sínu rétta nafni, þ.e. frumvarp til laga um gerðardóm, en ekki um úrskurðaraðila, sem hann sagði vera yfirdrepsskap og feluleik. Fyrir hönd þingflokks Alþýðu- flokksins lýsti Sighvatur Björg- vinsson yfir stuðningi við málið og vísaði til fyrri afstöðu Alþýðu- flokksins við svipaðar aðstæður og Svavar Gestsson lýsti fylgi Al- þýðubandalagsins við frumvarpið, sem hann sagði nauðsynlegt vegna þess að hér væri um að ræða deilur flugmanna innbyrðis en ekki kjaradeilu. Við aðra umræðu um málið var breytingartillaga þingmanna Sjálfstæðisflokksins felld og mál- inu vísað til þriðju umræðu og þaðan til efri deildar, sem sam- þykkti frumvarpið skömmu síðar. Sjá viðbrögð flugmanna á bls. 2.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.