Morgunblaðið - 10.04.1981, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. APRÍL 1981
3
Geri ráð fyrir
að standa með
stjórninni
„Ég geri ráð fyrir að ég standi
með ríkisstjórninni í þessu rnáli,"
sagði Pálmi Jónsson landbúnaðar-
ráðherra.
— Urðu miklar deilur innan
ríkisstjórnarinnar um málið fyrir
atkvæðagreiðsluna í efri deild?
„Nei, það er allt í sátt og
samlyndi um málið þar.“
Friðjón Þórðarson:
Geri ekki ráð fyrir
að styðja tillöguna
„NÁTTURULEGA kemur þetta í
ljós við atkvæðagreiðsluna, en ég
geri ekki ráð fyrir á þessu stigi
málsins að ég styðji slíka tillögu"
sagði Friðjón Þórðarson dóms-
málaráðherra. „Mér finnst greini-
legt að athuga þurfi nánar ýmis-
legt betur um þessa byggingu,
áður en samþykkt verður lánsfjár-
heimild til hennar" sagði hann.
Albert Guðmundsson um flugstöðvarmálið:
Verði tillagan samþykkt fer
Alþýðubandalagið úr stjórn
- Styð slíka tillögu, ef framhald er tryggt í stjórn landsins
„SAMKVÆMT þeim upplýsingum sem ég tel mig hafa mun Alþýðubanda-
lagið ganga úr rikisstjórn. ef breytingartillaga við lánsfjárlögin yrðu
samþykkt,“ sagði Albert Guðmundsson m.a. um afstöðu sina til
væntanlegrar breytingartillögu sjálfstcðismanna i neðri deild við
lánsfjárlagafrumvarpið en það fæli i sér lánsfjárheimild til byggingar
flugstöðvarinnar á Keflavikurflugvelli.
„Tillagan hefur ekki komið fram i
neðri deild, svo ég hef að sjálfsögðu
ekki tekið afstöðu," sagði Albert.
„Afstaða mín mun ekki verða til þess
að stjórnarsamvinnan slitni, án þess
að tilbúin sé önnur ríkisstjórn til að
taka við.“
— Reiknarðu þá með að ríkis-
stjórnarsamvinnan slitni, ef tillaga
þessi yrði samþykkt í neðri deild?
„Verði þessi tillaga samþykkt í
neðri deild fer frumvarpið aftur til
efri deildar og þar mun efri deild
eflaust fella á jöfnum atkvæðum að
taka samþykkt neðri deildar út úr
frumvarpinu aftur og samkvæmt
þeim upplýsingum sem ég tel mig
hafa, mun Alþýöubandalagið þá
ganga úr ríkisstjórn. Þeir mundu
líta á þessa afgreiðslu sem brot á
stjórnarsáttmála. Ég er ekki til-
búinn til þess að skapa þann vanda
sem af stjórnarkreppu leiðir. Ef fella
á ríkisstjórnina verð ég að hafa
nákvæmar upplýsingar um hvað
tekur þá við í íslenzkum stjórnmál-
um.“
Vegna þessara ummæla Alberts
Guðmundssonar benti blm. Mbl.
honum á, að í ræöu utan dagskrár á
þingi 26. mars sl. hefði hann sagt, að
hann teldi fráleitt, að minnihluti
alþingismanna, þ.e. Alþýðubanda-
lagið, hefði neitunarvald í flugstöðv-
armálinu. Hann sagði það fráleitt,
að minnihluti þingmanna tæki ráðin
af meirihlutanum og bætti þvi við,
að ef ríkisstjórnin kæmi ekki fram
með málið á þingi, þyrftu þeir
þingmenn, sem væru óbundnir og
óháðir, að flytja málið og fylgja því
eftir. Kvaðst hann mundu styðja
slíkt frumvarp.
Albert svaraði þessu og sagði, að
með þessari tillögu væri ekki gengið
nógu langt, ekki verið að taka neitt
neitunarvald af Alþýðubandalags-
mönnum, þetta væri bara heimild
fyrir ríkisstjórnina og að ekkert yrði
gert nema með samþykki allra
ráðherra. Hann sagði, að ef menn
vildu fella stjórnina yrðu þeir að
koma með frumvarp um að ríkis-
stjórnin tæki málið upp.
Albert sagði, að Ólafur Jóhannes-
son væri bara að storka stjórnar-
sáttmálanum án þess að vilja stíga
skrefið til fulls. Þetta væri því bara
sýndarmennska vegna þess, að Al-
þýðubandalagið hefði nákvæmlega
sama neitunarvald áfram. Það væri
ekki nóg að fella ríkisstjórn bara til
að fella hana, það yrði að vera
eitthvert framhald.
Endurflytja tillög-
una í neðri deild
„VIÐ MUNUM endurflytja tillög-
una i neðri deild“ sagði Lárus
Jónsson. varaformaður þing-
flokks Sjálfstæðisflokksins i gær.
Lárus var að þvi spurður, hvort
breytingartillagan við lánsfjár-
lagafrumvarpið um lánsfjárheim-
ild til byggingar flugstöðvar á
Keflavikurflugvelli yrði flutt i
neðri deild við meðferð frum-
varpsins þar.
Lárus sagði einnig að hann
reiknaði með að tillagan yrði
óbreytt frá því sem hún var í
endanlegri gerð i efri deild.
Verði flugstöðvarbyggingin samþykkt er
grundvöllur ríkisstjórnarinnar brostinn
— segir Svavar Gestsson, formaður Alþýðubandalagsins
Pálmi Jónsson:
„EF að bygging flugstöðvar á
Keflavikurflugvelli yrði sam-
þykkt með atkvæðum stjórnar-
andstöðunnar og einhverjum
hluta stuðningsmanna rikis-
stjórnarinnar, þá er náttúrlega
alveg Ijóst, að þar með væri verið
að brjóta grundvöll stjórnarinn-
ar og þeir yrðu að bera ábyrgð á
þvi, sem að slíkt gera,“ sagði
Svavar Gestsson, formaður Al-
þýöubandalagsins er Morgun-
blaðið spurði hann hvort Alþýðu-
bandalagið segði sig úr stjórn
yrði bygging flugstöðvarinnar
samþykkt á alþingi.
„Það liggur alveg fyrir staða
Alþýðubandalagsins í þessu máli,“
sagði Svavar,„ í fyrsta lagi að við
erum andvígir því að reisa flug-
stöð fyrir ameríska peninga. Við
höfum alltaf verið á móti slíku
fyrirkomulagi, við mundum til
dæmis aldrei taka við amerískum
peningum í Þingvallaveginn, svo
ég nefni dæmi, sem teljast mætti
hliðstætt. Nú í annan stað er í
stjórnarsáttmala núverandi ríkis-
stjórnar ákvæði um það, alveg
ótvírætt, að það þurfi að ná
samkomulagi á milli allra stjórn-
araðila um byggingu flugstöðvar,
ef til kæmi og utanríkisráðherra
hefur raunar túlkað þetta þannig,
að hver og einn ráðherra geti
stöðvað þessa framkvæmd."
Hefur Alþýðubandalagið gefið
forsætisráðherra beina yfirlýs-
ingu um það, að það segji sig úr
stjórn verði flugstöðvarbyggingin
samþykkt?
„Ég hef rætt þessi mál og fleiri
við forsætisráðherra, bæði í ein-
stökum atriðum og almennt og ég
tel enga ástæðu til þess að gefa
skýrslu um það í Morgunblaðinu."
Eggert Haukdal:
Kannski er ég
með, kannski
á móti
„Þetta sézt bara þegar ég greiði
atkvæði. Ég segi einfaldlega ekki
neitt nú þegar," sagði Eggert
Haukdal.
— Hefur þú þá ekki tekið
ákvörðun um hvernig þú ætlar að
greiða atkvæði?
„Það getur vel verið að ég sé
með tillögunni og vel verið að ég
sé á móti. Það kemur bara í ljós.“