Morgunblaðið - 10.04.1981, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. APRÍL 1981
Förum að lögum og jafnvel
ólögum eins og í þessu máli
— segir Kristján Egilsson, formaður Félags ísl. atvinnuflugmanna
_VIÐ ERUM loijhlýðnir menn oj?
höfum hugsað okkur að halda
áfram að fara eftir löKum og
jafnvel ólöKum, eins ok þeim, sem
samþykkt voru á alþingi í daj{,“
saiíði Kristján Egilsson formað-
ur Félags íslenzkra atvinnuflug-
manna, er hlaðamaður Morgun-
hlaðsins innti hann eftir því i
gær hver viðbröKð fluKmanna við
verkfallshanninu yrðu.
ÁÆTLAÐUR kostnaður við
flugstöðvarbygginguna 4 Kefla-
vikurflugvelli er 40 milljónir
dollara og auk þess er gert ráð
fyrir að stæði, akvegir og elds-
neytiskerfi kosti 25 til 30 milljón-
ir dollara.
Að sögn Helga Ágústssonar,
deildarstjóra í varnarmáladeild
utanríkisráðuneytisins mun
kostnaður við framkvæmdirnar
skiptast þannig að fast framlag
Bandaríkjamanna við byggingu
flugstöðvarinnar er 20 milljónir
dollara auk þess sem þeir taka að
F jöl brautaskólar:
Enn verkfall
hjá kennurum
öldungadeilda
VERKFÁLL kennara við
öldungadeildir fjölbrauta-
skólanna i Breiðholti og á
Akranesi stendur ennþá og
voru ekki í gær fundir með
deiluaðilum. Jón Ilnefill
Aðalsteinsson. formaður
Hins ísl. kennaraféiags,
tjáði Mhl. í gær að ekki
væri hoðað til funda í dag,
en verkföll þessi væru
ákvörðun kennaranna
sjálfra þótt félagið annað-
ist samningamál fyrir þá.
I áskorun nemenda í öld-
ungadeild Fjölbrautaskólans í
Breiðholti er skorað á Ragnar
Arnalds fjármálaráðherra að
beita sér fyrir lausn þessarar
deilu þar sem vinnustöðvun
kennara valdi því að skólavist
um 250 nemenda á vorönn
verði til einskis ef deilan leys-
ist ekki hið bráðasta.
Stjórn Félags íslenzkra at-
vinnuflugmanna sendi samgöngu-
málaráðherra, Steingrími Her-
mannssyni bréf í gær, þar sem
félagið neitaði að verða við þeirri
beiðni hans að fresta verkfallinu,
þar sem talið var að eðlilegasta
lausn málsins væri að leysa það
hjá ríkissáttasemjara. Þar var
einnig tekið fram, að félagið gæti
ekki sætt sig við þar vinnuaðferðir
sér gerð og kostnað akvega, stæða
og eldsneytiskerfa, sem áætlaður
er 25 til 30 milljónir.
NIÐURSTÖÐUR athugana á
ástandi sjávar og hafís í Austur-
fslandsstraumi eru i samræmi við
ályktanir hafisrannsóknadeildar
Veðurstofunnar um að hafiss sé
vart að vænta við landið það sem
eftir er vetrar. Jafnframt má
álykta að kaldur pólsjór muni
væntanlega ekki há lífinu i sjónum
á norðurmiðum á komandi vori eða
sumri að óbreyttu ástandi, segir 1
frétt frá sjórannsóknadeild Haf-
rannsóknastofnunar.
í fréttinni segir ennfremur:
í fréttatilkynningu 20. febrúar sl.
var sagt frá nokkrum niðurstöðum
sjórannsókna á rs. Árna Friðriks-
syni á hafinu umhverfis ísland í
febrúar 1981. Þar sagði m.a. að
kaldur pólsjór væri skammt undan
landi eins og hafísinn, en hitastigiö í
sjónum væri þó fyrir ofan frostmark
hans. ísinn var þá (4.-9. febrúar) á
um 67°N fyrir Norðurlandi. Síðan
rak hann norður fyrir 68°N í ein-
dreginni sunnanátt eins og t.d. í
fárviðrinu 16.—17. febrúar og hefur
hann ekki nálgast landið aftur þrátt
fyrir mikið kuldakast í mars. Isinn
hefur haldist í Austur-Grænlands-
straumi og borist suður um Græn-
landssund í norðaustanáttinni.
Síðbúnar seltumælingar frá sjó-
rannsóknunum í febrúar sýna nú
líka að seltan var tiltölulega há
djúpt í Austur-íslandsstraumi og
um nýísmyndun var ekki að ræða á
þeim slóðum. Straumurinn ber þá
heldur ekki beinlínis með sér ís eins
og Austur-Grænlandsstraumur.
Hafíshætta úr þeirri átt var því vart
Flugleiða að virða ekki kjara-
samninga, eins og talið er að þær
séu að gera nú með stöðubreyting-
um. Flugleiðir hafi skuldbundið
sig til að fara eftir gildandi
kjarasamningum þar til nýir hafi
verið gerðir. En með því að þvinga
flugmenn til starfa með lögum, sé
verið að samþykkja áðurnefnd
vinnubrögð Flugleiða, sem brjóti í
bága við hefðir, sem ríki á hinum
almenna vinnumarkaði og alþingi
hefur lögfest.
„Annars verð ég að segja það, að
ef alþingismenn kynna sér al-
mennt ekki betur þau mál, sem
þeir afgreiða, þá undrar mig alls
ekki hvernig komið er fyrir þjóð-
inni,“ sagði Kristján ennfremur.
„Ég hefði allavega haldið að sjálf-
stæðismenn, sem ættu að þekkja
vel hve innanflokks deilur eru
erfiðar, hefðu átt að kynna sér
málið betur. Ég vil einnig óska
Flugleiðum til hamingju með
þessi langþráðu lög og Steingrími
fyrir að hafa losnað við þau.“
fyrir hendi í vetur. Hins ber að gæta
að sjávarkuldi fyrir Norðurlandi öllu
var óvenju mikill í vetur, svo að
hafís, sem rekur undan vindi upp að
landinu eins og í febrúar, gæti e.t.v.
ílengst. Horfur á að slíkt endurtaki
sig eru þó ört minnkandi með
hverjum deginum sem líður á vorið.
Sjórinn fyrir Suður- og Vestur-
landi var í vetur einnig kaldari en
oftast áður sl. 10 ár að árinu 1976
undanskildu. Seltan í sjónum þar
var aftur á móti tiltölulega há eins
og á undanförnum árum nema 1976.
Hugsanleg áhrif þessa dálítið
óvenjulega ástands á lífið í sjónum
og framvindu þess verða könnuð
ítarlega í svonefndum klakrann-
sóknum á næstu vikum á rs. Bjarna
Sæmundssyni.
Sementið lækkar
Sementsverksmiðjan lækk-
aði í gær verð á sementi
samkvami fyrirmælum frá
verðlagsstjóra.
Eins og fram hefur komið í
fréttum, heimilaði ríkisstjórnin
10% hækkun á senienti, sem tók
gildi á mánudaginn. Það var
mat verðlagsstjóra að ríkis-
stjórnin hefði ekki heimild til að
veita slíkar hækkanir nema
Verðlagsráð hefði fjallað um
málið og gert tillögur til ríkis-
stjórnarinnar.
Nú liggur hjá Verðlagsstofn-
un beiðni frá Sementsverk-
smiðjunni um 19% hækkun á
sementi.
Flugstöðvarbyggingin:
Aætlaður kostnaður
um 70 milljónir dollara
Bandaríkjamenn borga rúman helming
Yart að vænta haf-
iss við landið i vor
Skipverjar og útgerð á Kap VE:
Gáfu 30 tonna afla
til Sjálfsbjargar
SKIPSHÖFN og útgerð á Kap
VE ákvað fyrir skömmu að
gefa Sjálfsbjörgu í Vcstmanna-
eyjum þann afla sem myndi
veiðast 8. apríl, og skyldi verja
hlutnum í tilefni árs fatlaðra i
upphyggingu verndaðs vinnu-
staðar í Vestmannaeyjum. Kap
fékk mikinn afla þann 8., tæp
30 tonn, og í gær afhentu
skipverjar 81.500 krónur (lið-
lega 8 m.gkr.) tii umrædds
verkefnis í Eyjum.
Morgunblaðið ræddi við Hildi
Jónsdóttur, talsmann Sjálfsbjargar
í Eyjum, og kvað hún stórkostlegt
að fá þessa höfðinglegu gjöf frá
sjómönnum og útvegsbændum á
Kap. Hildur sagði, að búið væri að
teikna 500—600 fermetra hús á
einni hæð, og yrði þar vinnuaðstaða
fyrir 20—30 manns, félagsaðstaða,
hvíldarstaður og góð kaffistofa.
Húsið verður byggt á 1.200 fer-
metra lóð við Faxastíg og Hlíðar-
veg, og er búið að samþykkja
byggingu hússins.
Kríuhólasjóður Rauða kross ís-
lands frá því í eldgosinu ’73 hefur
lagt fram um 400.000 krónur (40
m.gkr.), Lionsmenn í Eyjum hafa
gefið 10 þúsund krónur, og fleiri
hafa lagt málinu lið. Sjálfseignar-
félag verður stofnað um byggingu
og rekstur hússins, og aðilar að því
félagi verða m.a. Berklavörn,
Sjálfsbjörg og Rauði kross íslands,
og einnig hefur vinnuveitendum í
Eyjum og verkalýðsfélögum verið
boðin aðild að byggingunni. Hildur
kvað geysilegan áhuga fyrir þessu.
Svona litur nýi „Þórshafnartogarinn út, en þetta er systurskip hans.
Samið um nýjan
„Þórshafnartogara“
Kaupverð um 28 milljónir norskra króna
Útgerðarfélag Norður-Þingey-
inga hefur nú gert samning um
kaup á nýjum skuttogara í stað
Ingar Iversens, sem áður hafði
verið samið um, en síðan slitnað
upp úr aftur. Hér er um að ræða
skuttogara, sem er í smíðum og
afhenda á um næstu áramót i
Kristiansund i Norður-Noregi.
Skipið er 50,75 metra langt, 10,30
metrar á breidd og búið 2.2oo
hestafla aðalvéi af Wichman
gerð. Skipið er með kældum
lestum og tekur 200 tonn af
ísfiski i kössum og er að öllu leyti
vel búið tækjum. Kaupverð skips-
ins er 28 milljónir norskra
króna.
Að sögn Benedikts Sveinssonar,
milligöngumanns við togarakaup-
in er samningurinn gerður með
fyrirvara um samþykki stjórn-
valda hér á landi og þá mun þurfa
að færa ríkisábyrgðina, sem áður
hafði fengizt, yfir á nýsmíði, en
óljóst er hvort það verður og
sennilega verður að taka málið
upp að nýju. Benedikt sagði enn-
fremur að ef af þessum kaupum
yrði, væri endanlega leystur at-
vinnuvandi Þórshafnar og Raufar-
hafnar, auk þess, sem með þessum
kaupum leystist vandi vegna
skuldbindinga, sem þegar höfðu
verið gerðar um togvinduútbúnað
og ætlaður var til nota í Ingar
Iversen, þar sem búnaðurinn nýtt-
ist allur í nýja skipið.
Tældi litla
stúlku á
heimili sitt
FYRIR nokkru handtók
lögreglan í Keflavík ung-
an mann á heimili hans
þar í hænum, en maðurinn
hafði tælt 6 ára stúlku
heim til sín. Maðurinn,
sem er 27 ára gamall hefur
áður haft í frammi kyn-
ferðislega tilburði við
börn og hefur hann nú
verið sendur í rannsókn.
Samkvæmt upplýsingum lög-
reglunnar barst henni vitneskja
um að maðurinn hefði tælt
stúlkuna inn á heimili sitt. Fór
hún þegar á staðinn og barði að
dyrum en enginn svaraði.
Braust lögreglan þá inn í húsið
og kom að manninum fáklædd-
um og stúlkan var einnig klæða-
lítil eða klæðalaus. Maðurinn
var handtekinn og færður á
lögreglustöðina. Samkvæmt
framburði stúlkunnar, sem stað-
festist við læknisrannsókn,
hafði maðurinn ekki framið
kynferðisbrot gagnvart henni.
Jóhann Einvarðsson:
Geri það sem
flugstöðinni
er fyrir bestu
„Ég læt ekkert uppi fyrr en
við atkvæðagreiðsluna á al-
þingi," sagði Jóhann Ein-
varðsson um afstöðu sína.
Hann sagðist þó aðspurður
hafa tekið ákvörðun. „Eg geri
það sem verður flugstöðinni og
framtíð hennar fyrir beztu,"
sagði hann.
Hef ekkert um málið að segja
- segir Tómas Árnason um flugstöðvarmálið
„Ég hef ekkert um málið að
segja. Ég vísa aðcins til sam-
þykktar aðalfundar Framsóknar-
flokksins um málið og er fylgj-
andi því að byggð verði flugstöð
samkvæmt henni,“ sagði Tómas
Árnason, viðskiptaráðherra er
hlaðamaður Morgunblaðsins
spurði hann um afstöðu hans i
flugstöðvarmálinu.
Það vakti athygli að varamaður
Tómasar sat á þingi þegar greidd
voru atkvæði um lánsfjárheimild
vegna byggingar flugstöðvarinnar
þrátt fyrir það að Tómas væri
staddur á landinu. Um það sagði
Tómas, að það hefði fyrir löngu
verið ákveðið að hann færi til
London til samninga við BNOC
um þessar mundir og því hefði
varamaður hans verið boðaður á
þing. „Hann var kominn sam-
kvæmt fyrirfram ákveðnum tíma
og þetta var ekki í neinum tengsl-
um við ákveðin mál,“ sagði Tómas.