Morgunblaðið - 10.04.1981, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. APRÍL 1981
17
Frá aðalfundi Eimskips í gær: Stjórn félagsins ásamt fundarritara, fundarstjóra og forstjóra. Talið frá vinstri: Halldór E. Sigurðsson, Indriði
Pálsson, Thor R. Thors, Pétur Sigurðsson, Ingvar Vilhjálmsson, Guðmundur Benediktsson, Axel Einarsson, Hendrik Sv. Björnsson, Halldór H.
Jónsson og Hörður Sigurgestsson.
Ljósm.: Ólafur K. Ma({nú:is<)n
Fiölgað um tvo í stjóm Eimskips
SAMKVÆMT nýjum lögum fyrir Eimskipafélag íslands, sem endanlega
voru samþykkt á aðalfundi félagsins í gær, var fjölgað í stjórn félaesins
úr sjö í níu. Kosnir voru fjórir menn í stjórn í stað tveggja áður, vogna
þessara breytinga, og hlutu eftirtaldir einróma kosningu: Halldór H.
Jónsson, Ingvar Vilhjálmsson, Pétur Sigurðsson, Jón H. Bergs og Hjalti
Geir Kristjánsson. Þeir Hjalti og Jón Bergs eru nýir í stjórn. Halldór E.'
Sigurðsson fyrrum ráðherra hefur verið tilnefndur sem fulltrúi ríkisins
áfram fyrir næsta ár.
Fyrir voru í stjórninni auk þeirra er voru endurkjörnir, þeir Axel
Einarsson, Thor R. Thors og Indriði Pálsson.
Deilur um hlutafé Eimskips í Flugleiðum:
Ástandið væri nú annað hjá Flug-
leiðum ef Eimskip réði þar meiru
— sagði Halldór H. Jónsson
TIL SNARPRA orðaskipta kom á aðalfundi Eimskipafélags íslands i
gær, vegna tillögu frá Kristjönu Millu Thorsteinsson, um að Eimskip
seldi hlutafé sitt í Flugleiðum hf. í tillögu sinni sagði Kristjana, að
með tilliti til þess, að Eimskip ætti nú við fjárhagsörðugleika að
stríða, væri fé þess betur varið í að styrkja eigin starfsemi en að liggja
sem óarðbær fjárfesting i Flugleiðum. Kristjana sagði einnig, að
óeðlilegt væri, að Eimskip ætti á þennan hátt hlut i öðru
flutningafyrirtæki, og væri slíkt bannað i fjölmörgum löndum, svo
sem í Bandarikjunum.
í yfirlitsræðu sinni á aðalfundin-
um sagði Halldór H. Jónsson, for-
maður stjórnar Eimskipafélagsins,
að þótt oftast væri um sömu, örfáu
aðila að ræða, sem ræddu hluta-
bréfaeign Eimskips í Flugleiðum,
væri ástæða til að fara um málið
nokkrum orðum. Sagði hann félagið
fyrst hafa eignast hlut í Flugfélagi
íslands árið 1940, og síðan hefði það
keypt hlutabréf á ný árin 1945, 1946
og 1948. Alltaf hefði þetta gerst að
ósk Flugfélagsins, en ekki fyrir
frumkvæði Eimskips. Fyrir Eim-
skipafélaginu hefði á hinn bóginn
vakað að styrkja flugið, sem væri
framtíðarverkefni og brautryðjenda-
verk í íslenskum samgöngumálum.
Síðar tók Kristjana Milla til máls,
og ræddi frekar um hiutafjáreign
Eimskips í Flugleiðum, og sagði
meðal annars, að athyglisvert væri,
að Eimskip væri nú að hefja sigling-
ar til New York, á sama tíma og
Flugleiðir væru að draga úr umsvif-
um sínum þar. Mergurinn málsins
væri sá, að flugfélag og skipafélag
ættu að starfa og fá að njóta sín
hvort á sínu sviði.
Halldór H. Jónsson sagði að lok-
inni ræðu Kristjönu, að málflutn-
ingur hennar bæri vott um þekk-
ingarleysi, auk rangtúlkana og mis-
skilnings. Sagði hann stjórnarmenn
Eimskips í Flugleiðum ekki ráða þar
miklu, en væru áhrif þeirra eins
mikil og Kristjana vildi vera láta,
væri ástandið örugglega annað en
raun bæri vitni hjá Flugleiðum nú.
Halldór sagði það vera miður, að
Loftleiðir og Flugfélag íslands hefðu
í rauninni aldrei sameinast að fullu,
og ef til vill ætti sá þrýstihópur, er
Kristjana væri fulltrúi fyrir, stærst-
an þátt í því. Eitrað andrúmsloft og
niðurrifsstarfsemi þessa hóps sagði
hann vera mikilvæga ástæðu fyrir
erfiðleikum Flugleiða, ásamt utan-
aðkomandi ástæðum eins og olíu-
verðshækkunum.
Halldór sagði alrangt, að víðast
erlendis væri flutningafyrirtækjum
bannað að eiga hluti hvert í öðru,
þvert á móti væri sú einmitt raunin í
flestum nágrannalöndum okkar, og
unnið væri að breytingum á lögum
þar að lútandi í Bandaríkjunum.
Halldór lagði að lokum til, að
tillögu Kristjönu yrði vísað til
stjórnar Eimskipafélagsins.
Á eftir Halldóri talaði örn 0.
Johnson, stjórnarformaður Flug-
leiða, og sagðist hann fagna fram
kominni tillögu Kristjönu, því ein-
mitt á aðalfundi Eimskips ætti að
ræða hana. Tók hann undir ræðu
Halldórs H. Jónssonar, er hann
skýrði frá tildrögum þess, að Eim-
skip eignaðist hlut í Flugfélaginu, og
sagði Eimskip þá hafa veitt mikil-
væga aðstoð, bæði í hlutabréfakaup-
um og lánafyrirgreiðslu. Þetta hefði
félagið gert í stað þess að hefja
samkeppni í flugsamgöngum, sem þó
hefði verið því í lófa lagið. Kvaðst
hann ekki skilja hvað fyrir Krist-
jönu vekti með þessum málflutningi,
sem hefði skaðað Flutleiðir, og gaf
hann í skyn að Kristjana hefði
staðið fyrir óheppilegum skrifum í
blöð um Flugleiðir undir dulnefni.
Sagði hann Kristjönu og fjölskyldu
hennar vera fjórða stærsta hluthaf-
ann í Flugleiðum, og væri vandséð
hvað fyrir henni vekti, en tillagan
væri móðgun og nánast eins og
blautur klútur framan í forráða-
menn Eimskips, sem brugðist hefðu
drengilega við vanda flugfélagsins á
sínum tíma.
Óttarr Möller, fyrrum forstjóri
Eimskips, tók einnig þátt i umræð-
unum og kvaðst ekki skilja rök
Kristjönu. Vonandi lærði hún þó
eitthvað af þessum umræðum, til
dæmis það, að friður gæti verið í
fyrirtækjum, þótt svo væri ekki í
Flugleiðum. Málflutning hennar
sagði hann hafa skaðað tvö stór-
fyrirtæki og væri nú mál að linni.
Einnig vék hann að þeirri röksemd
að óeðlilegt væri, að flutningafyrir-
tæki ættu eignir hvert í öðru, og
sagði það einkennilegt, að ekki hefði
verið vakið máls á því fyfr' af
Kristjönu Millu, til dæmis hvað
snerti Loftleiðir og síðar Flugleiðir
sem ættu dótturfyrirtæki.
Til máls tóku einnig Árni Jó-
hannsson, Markús B. Þorgeirsson og
Anna Þórhallsdóttir. Hörmuðu þau
óeiningu um þessi mál, og Árni sagði
leitt að heyra á hvern hátt forráða-
menn fyrirtækjanna hefðu tekið
máli Kristjönu, menn ættu að geta
rætt þessi mál af ískaldri ró og án
þess orðbragðs er þeir hefðu viðhaft.
Kristjana tók einnig til máls og
kvaðst harðneita því, að hún hefði
skrifað greinar í blöð undir dulnefni,
hún hefði jafnan staðið við það er
hún hefði til málanna að leggja.
Atkvæðagreiðsla um málið fór
síðan þannig, að samþykkt var að
vísa tillögu Kristjönu til stjórnar.
Voru um 2.3 milljónir atkvæða því
fyigjandi, um 589 þúsund á móti, um
5 þúsund seðlar voru auðir og 126
þúsund ógildir. Tillaga Kristjönu um
að Eimskip seldi hlut sinn kom því
ekki til atkvæða.
Markaðs-
verðmæti
JT
skipa EI
6 milljaðar-
ar g.kr.
EIMSKIPAFÉLAG ís-
lands seldi fimm flutn-
insaskip sín á árinu 1980,
og varð söluhaRnaður af
þeim samtals 432 milljón-
ir króna, að því er fram
kom á aðalfundi félagsins
í gær. Skipin voru seld í
framhaldi af mótun nýrr-
ar flutningastefnu félags-
ins, sem felur m.a. í sér
endurnýjun skipastóls
með fjölskipum, svoköll-
uðum, og/eða ekjuskip-
um.
Þau skip, sem seld voru
af þessum sökum, voru
Kljáfoss, Álafoss, Reykja-
foss, Skógafoss og Brúar-
foss. Á árinu tók Eim-
skipafélagið á leigu tvö
skip, er gefið var nafnið
Álafoss og Eyrarfoss.
I janúarlok í fyrra var
einnig gengið frá samn-
ingi um að Eimskipafélag-
ið keypti allt að 100%
hlutafjár í Skipafélaginu
Bifröst. Jafnframt keypti
Eimskipafélagið meiri-
hluta hlutafjár í íslenzk-
um kaupskipum, eða hluta
Bifrastar í því félagi.
Bókfært matsverð skipa
Eimskipafélags íslands,
en þau eru alls 19 að tölu,
eru 12,3 milljarðar
gkróna. Félagið hefur
kannað hve raunhæft
þetta matsverð er með því
að fá til samanburðar mat
útlends skipamiðlara á
áætluðu markaðsverði
þessara skipa. Var það
niðurstaða þessara skiþa-
miðlara, að markaðsverð-
mæti skipa Eimskipafé-
lags íslands um síðustu
áramót væru 16 milljarð-
ar gkróna, eða 3,7 millj-
örðum hærra, en tilgreint
er í reikningum.
Á aðalfundi Eimskipafélags tslands i gær: Halldór H. Jónsson
stjórnarformaður í ræðustól, en nær situr Hörður Sigurgestsson
forstjóri. Ljósm.: Ólafur K. Magnússon
Rekstrartap Eimskipafélags-
ins rúmir 2,5 miljarðar í fyrra
SAMKVÆMT rekstrarreikningi Eimskipaféíags ís-
lands fyrir árið 1980, nam rekstrartap félagsins 2.500
milljónum gkróna að meðtöldu rekstrartapi dótturfé-
laga. Heildartekjur félagsins á árinu 1980 námu 35.782
milljónum gkróna. Hækkun tekna milli ára, eða
veltuaukning, nam 79%. Á árinu störfuðu að meðaltali
890 starfsmenn hjá Eimskipafélaginu og námu launa-
greiðslur samtals 9.130 milljónum gkróna. Árið 1979
varð tæplega 46 m. gkr. tap á rekstri félagsins.
I skýrslu félagsstjórnar og for- eða samtals 15.407 milljónir
stjóra, sem lögð var fram á
aðalfundi félagsins í gær, segir, að
mikill óstöðugleiki í verðlags- og
gengismálum á árinu hafi haft
veruleg áhrif á rekstrarafkomu
félagsins á árinu. Segir í skýrsl-
unni, að fjármagnskostnaður fé-
lagsins á árinu 1980 hafi verið
mun þyngri en árið áður, vegna
mikils ósamræmis milli geng-
isskráningar almennra verðlags-
breytinga.
Stærsti hluti tekna Eimskipafé-
lagsins, eða um 92%, voru af
farmgjöldum. Af gjöldum voru
ferðaútgjöld skipa félagsins hæst,
þ.e. kostnaður, sem hægt er að
skipta á einstakar ferðir þeirra,
svo sem lestunar- og losunar-
kostnaður, gámakostnaður og olía,
gkróna. Annar stærsti gjaldalið-
urinn voru föst útgjöld skipanna,
þ.e. laun skipshafna og launatengd
gjöld, viðhald þeirra o.s.frv., sam-
tals 12.387 milljónir. Afskriftir
námu á árinu 3.595 milljónum
gkróna, þar af 2.512 vegna skipa.
Gengistap á árinu nam 5.315 m.
gkr.
I skýrslu Eimskipafélagsins
kemur fram, að við gerð ársreikn-
ingsins 1980 hafi sömu reikn-
ingsskilaaðferð verið beitt og árið
1979, en það ár voru verulegar
breytingar gerðar á reikningsskil-
um félagsins, í samræmi við nýja
löggjöf um hlutafélög og tekju- og
eignaskatt.
Segir í skýrslunni, að hefði árið
1980 verið gert upp eftir hinum
gömlu reikningsskilavenjum,
hefði hagnaður ársins af rekstri
Eimskipafélagsins orðið rúmlega
800 milljónir króna.
Samkvæmt efnahagsreikningi
EÍ voru heildareignir félagsins í
árslok 1980 35.171 milljón króna.
Skuldir félagsins námu samtals
24.395 milljónum króna, og var því
eigið fé félagsins í árslok 10.776
milljónir króna. Bókfært verð-
mæti skipa félagsins, að loknu
endurmati, var 12.342 milljónir og
véla, flutningatækja og áhalda
2.835 milljónir. Fasteignir félags-
ins eru bókfærðar á fasteignamati
í ársreikningum og nema 6.635
milljónum króna.
Skattar félagsins til ríkis og
sveitarfélaga vegna rekstrar árs-
ins 1980 verða um 972 milljónir
króna. Eru stærstu liðirnir að-
stöðugjald og eignaskattur, sam-
tals um 409 milljónir króna og
ýmis launatengd gjöld 563 millj-
ónir króna. Söluskattur, aðflutn-
ingsgjöld og önnur óbein opinber
gjöld eru ekki talin með í þessum
fjárhæðum.
Heimilað hlutafé samkvæmt
samþykktum félagsins er 1.950
milljónir. Útgefið hlutafé í árslok
var 1.913 milljónir króna. Hlut-
hafar voru samtals 13.300 í árslok.