Morgunblaðið - 08.05.1981, Blaðsíða 17
16
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. MAÍ1981
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. MAÍ1981
17
Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson.
'Ritstjórar Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guömundsson,
Björn Jóhannsson.
Fréttastjórar Freystemn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson.
Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar:
Aoalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033.
Áskriftargjald 70 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 4 kr. eintakiö.
Forsendan er
margbrostin
Alþýðubandalagið hefur haft á hendi pólitíska forystu í
tveimur ríkisstjórnum, að því er varðar kjara- og
launastefnu, eða allar götur frá haustinu 1978, ef undan er
skilin skammtímastjórn Alþýðuflokksins. Alþýðubandalagið
gekk til stjórnaraðildar með þá heitstrengingu á vörum að
koma sólstöðusamningum frá 1977 í gildi og verja kaupmátt
launa. Þessa heitstrengingu hefur Alþýðubandalagið fótum
troðið. Ef farið er ofan í saumana á kaupmáttarútreikning-
um Kjararannsóknarnefndar kemur í ljós, að sl. þrjú ár, ár
stjórnaraðildar Alþýðubandalagsins, hefur kaupmáttur
launa aldrei náð því marki sem hann komst í eftir maí-lög
ríkisstjórnar Geirs Hallgrímssonar 1978. Þá var hann 118,8
stig (miðað við 100 1971). í apríl 1981 er þessi kaupmáttur
kominn niður í 104,9 stig og í maí í 102,6 stig. Sama máli
gegnir með kaupmátt elli- og örorkulífeyris, að viðbættri
tekjutryggingu, sem var 198 stig 1978 en 188,5 stig 1980.
Þetta og margt fleira lærdómsríkt kemur fram í fróðlegum
greinum Guðmundar H. Garðarssonar um kaupmáttarþróun
í Mbl. undanfarna daga.
í þessu sambandi er fróðlegt að minna á ummæli Ragnars
Arnalds, fjármálaráðherra, í umræðu um stefnuyfirlýsingu
núverandi ríkisstjórnar á Alþingi í febrúar 1980. Þar sagði
hann m.a. orðrétt: „Þrátt fyrir fjölbreyttan tillöguflutning
úr ýmsum áttum í stjórnarmyndunarviðræðum síðustu
vikna, þar sem fram hafa komið tillögur um meiri eða minni
skerðingu lífskjara sem aðalaðferð í baráttu við verðbólgu,
er það niðurstaðan að meirihlutastjórn er mynduð sem ekki
mun beita lagaþvingunum til að rifta kjarasamningum
almennra launþega“. Þetta vóru orð ráðherrans, sem síðan
stóð að því, með og ásamt Svavari Gestssyni og Hjörleifi
Guttormssyni, að skerða umsamdar verðbætur á laun með
bráðabirgðalögum. Sú skerðing náði meðal annars til þá
nýgerðs kjarasamnings við BSRB, sem ráðherrann hafði
undirritað svo að segja samtímis því sem „kaupránið", svo
notuð séu orð Þjóðviljans frá 1978, var skipulagt í
ríkisstjórninni. Svo rækilega sviku alþýðubandalagsmenn
þann samning, sem kjósendur þess töldu sig hafa gert við þá
við kjörborðin 1978 og 1979. Og þingflokkur Alþýðubanda-
lagsins, með formann VMSÍ innanborðs, hefur staðfest
bráðabirgðalögin um skerðingu verðbóta á laun.
Hér skal það ekki gagnrýnt að sjálfvirkni verðbólgunnar
sé tekin að hluta úr sambandi með eftirgjöf verðbóta á laun,
ef það er liður í samvirkum, árangursríkum efnahagsaðgerð-
um, sem ekki er að heilsa nú. Það sem fyrst og fremst er
gagnrýnisvert er að þingmenn og stjórnmálaflokkur, sem
hrópuðu „kauprán" 1978 og stóð þá fyrir ólöglegu verkfalli og
útflutningsbanni, stendur 1981 fyrir enn grófari verðbóta-
skerðingu.
1978 náði verðbótaskerðingin ekki til lægstu launa. 1981 er
skerðingin hlutfallslega jöfn á lægstu laun og hæstu. 1977
hafði tekizt að ná verðbólgustigi, með samræmdum aðgerð-
um, niður í 26%. Núverandi aðgerðir sýnast hjakka í sama
50%-verðbólgufarinu, sem verið hefur fylgifiskur allra
vinstri stjórna, samtímis því sem kaupmáttur láglaunafólks
hefur fallið úr 118,8 stigum í 102,6 stig í stjórnartíð
A lþýðubandalagsins.
Alþýðubandalagsmenn sögðu það forsendu stjórríaraðildar
að ná kaupmætti sólstöðusamninga 1977 og verja hann. Þessi
forsenda er margbrostin. Áframhaldandi seta Alþýðubanda-
lagsins í ríkisstjórn, sem svo gjörsamlega hefur mistekizt
yfirlýst meginmarkmið sín á sviði verðþróunar og kjara-
mála, opinberar einfaldlega þá staðreynd, að kjarastaða
almennings var og er aukaatriði á bænum þeim. Hin „nýja
stétt“, sem nú ræður ríkjum á Möðruvöllum marxismans á
Islandi, hugsar í ráðherrastólum, metorðum og vegtyllum, en
ekki almannahag. Hún trónar nú í stjórnarráðinu, klædd
gegnsærri sýndarmennskunni, í skjóli furðulegustu uppá-
komu íslenzkra stjórnmála frá stofnun lýðveldisins. Og
gömlu slagorðin um kjarabaráttu, kauprán og samninga í
gildi eru horfin af síðum Þjóðviljans.
Davíð Ólafsson seðlabankastjóri:
Um greiðslu rekstrar-
og afurðalána til bænda
í Morgunblaðinu 6. þ.m. er skýrt
frá umræðum í Sameinuðu Alþingi
um fyrirspurn Eyjólfs Konráðs
Jónssonar um framkvæmd á þál. frá
22. maí 1979 þess efnis, að settar
verði reglur um rekstrar- og afurða-
lán landbúnaðarins, sem tryggi, að
bændur fái í hendur þá fjármuni,
sem þeim eru ætlaðir um leið og
lánin eru veitt.
Vegna mikils misskilnings, sem
fram kom í ummælum þingmanna,
eins og sagt er frá þeim í þingfrétt-
um blaðsins, þykir mér óhjákvæmi-
legt að greina frá afstöðu Seðla-
bankans til þessa máls.
Kemur hún bezt fram í bréfi
Seðlabankans til landbúnaðarráðu-
neytisins, dags. 15. janúar 1980, en
það hljóðar svo:
„Vísað er til bréfs Landsbanka
Islands til landbúnaðarráðuneytis-
ins, dags. 3. október sl., sem er svar
við bréfi ráðuneytisins, dags. 17. júlí
sl., þar sem óskað var tillagna um
framkvæmd á ályktun Alþingis frá
22. maí sl., þess efnis, að settar verði
reglur um rekstrar- og afurðalán
landbúnaðarins, sem tryggi að
bændur fái í hendur þá fjármuni,
sem þeim eru ætlaðir, um leið og
lánin eru veitt. Samhljóða svar mun
ráðuneytinu hafa borizt frá Búnað-
arbankanum. Einnig óskaði ráðu-
neytið eftir tillögum frá oss um
þetta mál.
Öll framkvæmd í þessum efnum
Davið Ólafsson
hlýtur eðli málsins samkvæmt að
vera í höndum viðskiptabankanna,
þar sem þeir eru lánveitendur en
endurselja Seðlabankanum síðan
hluta þeirra heildarlána, sem þeir
veita út á afurðir eða vegna rekstr-
ar, og töldum vér því eðlilegt að þeir
gerðu tillögur um framkvæmd
málsins. Vér áttum þess hins vegar
kost að fylgjast með allri athugun
málsins. Samkvæmt umsögn bank-
anna telja þeir á því mikla ann-
marka að stíga það skref til fulls, að
lán, hvort sem um er að ræða
rekstrár- eða afurðalán, verði veitt
beint til bænda, en það væri sú leið,
sem bezt næði þeim tilgangi, sem
þingsályktunartillagan stefnir að.
Mæla bankarnir með því, að slátur-
leyfishafar eða umboðsmenn þeirra
verði áfram lántakendur, líkt og
verið hefur, en andvirði lánanna
umfram það, sem færi t.d. til
greiðslu rekstrarlána, sem áður
hafa verið veitt, mætti ráðstafa
beint inn á reikning hvers bónda
hjá banka, sparisjóði eða öðrum,
enda hefði þá lántakandi í tæka tíð
lagt inn hjá bankanum skrá þar að
lútandi.
Verði þessi leið valin yrði jafn-
framt að gera til þess ráðstafanir að
kynna bændum vel þann möguleika,
sem þeir hefðu til að fá þau lán, sem
veitt eru út á afurðir þeirra eða til
rekstrar, til ráðstöfunar inn á
reikning hjá banka, sparisjóði eða á
annan hátt. Yrði frumkvæðið að
vera hjá hverjum bónda að óska
eftir slíkri ráðstöfun við sláturleyf-
ishafa eða vinnslustöð, sem sæi um
að koma því áleiðis til bankans, sem
veitir lánin, sbr. það sem áður segir
þar um.
Vafasamt verður þó að telja, að
með þessu væri tilgangi þingsálykt-
unartillögunnar náð. Til þess mætti
hugsa sér aðra leið. Bankar þeir,
sem veita rekstrar- og afurðalán til
bænda, tilkynntu þá bændum, að
þeim stæði til boða að taka lán sín
sjáifir, að uppfylltum þeim skilyrð-
um, sem bankarnir settu og stæði
þá þeim bændum, sem þannig væri
ástatt um, opið að taka lánin. Fyrir
hina, sem annað hvort ekki æsktu
þess eða gætu ekki uppfyllt sett
skilyrði, mundu sláturleyfishafar
eða vinnslustöðvar vera lántakend-
ur eins og nú er.
Hvor leiðin, sem farin yrði, er
þörf á verulegri kynningarstarfsemi
af hálfu bankanna.
Teljum vér eðlilegt, að ráðuneytið
taki þetta mál upp við viðskipta-
bankana hið fyrsta, þar sem lán-
veitingar vegna sauðfjárafurða
hefjast í raun með veitingu rekstr-
arlána síðari hluta vetrar og
hringnum er lokað með veitingu
lána út á sláturafurðir að haustinu,
en þá eru rekstrarlánin greidd upp.“
Þá er þess ennfremur að geta, að í
áliti nefndar, sem landbúnaðarráð-
herra skipaði 1978, er komið inn á
þetta mál, en nefndin skilaði áliti
13. febrúar sl., þar segir frá því, að
núverandi landbúnaðarráðherra
hafi í bréfi til nefndarinnar 20.
marz 1980 sagt svo:
„Jafnframt felur ráðuneytið
nefndinni að gera tillögur til ráðu-
neytisins svo sem fært þykir um
tilhögun afgreiðslu rekstrar- og
afurðalána landbúnaðarins, sem
tryggi, að bændur fái í hendur þá
fjármuni, sem þeim eru ætlaðir, um
leið og lánin eru veitt, sbr. ályktun
Alþingis dags. 27. maí 1979 um
beinar greiðslur til bænda.“
Enda þótt nefndin gerði ekki
tillögu um breytta tilhögun á veit-
ingu rekstrar- og afurðalána, eins
og tillagan gerir ráð fyrir, vakti hún
í lok nefndarálitsins sérstaka at-
hygli á þeirri leið, sem bent er á í
ofangreindu bréfi Seðlabankans og
lét bréf bankans fylgja nefndarálit-
inu.
Fékk bréf Seðla-
bankans fyrst í dag
- segir Tómas Árnason viðskiptaráðherra i tilefni
af ummælum seðlabankastjóra, Davíðs Ólafssonar
„ÞAÐ RÉTTA í málinu er það,
að þetta bréf Seðlabankans,
sem ég veit að Davíð ólafsson
ætlar að birta út af þessu
máli, hef ég ekki séð fyrr en í
dag, en það er frá 15. janúar
1980 og stílað til landbúnaðar-
ráðuneytisins. Það er ekki
hægt að ætlast til þess að ég
framkvæmi eitthvað sam-
kvæmt þessu bréfi, sem ég hef
ekki séð og ég hef í raun engu
við að bæta í Jiessu máli,“
sagði Tómas Arnason við-
skiptaráðherra í viðtali við
Mbl. í tilefni af ummælum
Davíðs Ólafssonar Seðla-
bankastjóra í Mbl. í gær þar
sem hann andmælir ummæl-
um Tómasar í Alþingi um að
Seðlabankinn hafi verið and-
vígur reglum um rekstrar- og
afurðalán bænda.
Þá sagði Tómas: „Ég vildi bara
segja það, að auðvitað álít ég að
ráðherra eigi að framkvæma vilja-
yfirlýsingu Alþingis. Hitt er annað
mál, að Alþingi hefur samþykkt
þingsályktunartillögur sem erfitt
er að framkvæma að mati þeirra
manna sem næst þessum málum
koma.
Það er erfitt að lána út á afurðir
sem eru komnar í vörzlu þriðja
aðila. Afurðirnar liggja hjá af-
urðasölufélögunum, kaupfélögun-
um eða Sláturfélagi Suðurlands,
en ekki hjá viðkomandi einstakl-
ingi og ef þeim eru borgaðir
peningar fyrir verðmæti sem eru
hjá öðrum aðila þá getur það
valdið erfiðleikum í sambandi við
veðsetningar og það hafa við-
skiptabankarnir bent á.
Ég mun taka til athugunar þetta
bréf frá Seðlabankanum og athuga
hvort það felur í sér lausn, einnig
hafa viðskiptabankarnir bent á
aðgerðir sem ég athuga. Ég vil
gjarnan vinna að því að reyna að
framkvæma þetta svona nokkurn
veginn, en hvort hægt er að gera
það alveg út í yztu æsar treysti ég
mér ekki til að segja um og er
aldeilis ekki einn um það.“
Björgun lætur gera við Sigurbáruna:
Dregin áleiðis til
Akureyrar í dag
„BJÖRGUN mun láta gera
við skipið. og ákvörðun um
hugsanlega sölu verður ekki
tekin fyrr en að þeirri við-
gerð lokinni,“ sagði Kristinn
Guðbrandsson forstjóri
Björgunar hf. í samtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi,
er hann var spurður hvað
ákveðið hefði verið um fram-
tíð Sigurbárunnar. Fyrir-
tækið náði skipinu sem
kunnugt er af strandstað á
sínum tíma, og hafa síðan
verið uppi bollaleggingar
um hverjir muni festa kaup
á því.
Að sögn Kristins Guð-
brandssonar mun björgun-
arskipið Goðinn draga Sigur-
báruna í dag, föstudag, áleiðis
til Akureyrar. Þar verður hún
tekin í slipp til viðgerðar hjá
Slippstöðinni hf. á Akureyri.
Kvaðst Kristinn búast við að
viðgerð lyki upp úr miðjum
ágúst í sumar, og þá yrði
hugsanlega farið að huga að
sölu. „Allt sem skrifað hefur
verið um sölu á skipinu í
blöðum að undanförnu er
hins vegar uppspuni, og á
ekki við rök að styðjast,"
sagði Kristinn. „Skipið fer
norður til viðgerðar, það eitt
er ákveðið."
Sigurbáran VE 249, þar sem hún liggur í fjöruborðinu á athafnasvæði Björgunar
við Sundin. I dag verður skipið dregið áleiðis til Akureyrar, þar sem gert verður
VÍð það. Ljósm.: Ólafur K. Magmisson.
Forsætisráðherrahjónin í Svíþjóð:
Snæða hádegisverð
með konungi í dag
Frá Guðíinnu RaKnarsdóttur. frétta-
ritara Mbl. í Stokkhólmi, 7. mai.
Forsætisráðherrann, Gunnar
Thoroddsen og frú Vala, komu i
opinbera heimsókn til Sviþjóð-
ar í dag. Sænski forsætisráð-
herrann. Thorbjörn Fálldin. og
kona hans tóku á móti islensku
forsætisráðherrahjónunum á
Arianda-flugvellinum og buðu
tii hádegisverðar. Eftir hádegið
átti Gunnar Thoroddsen viðræð-
ur við Thorbjörn Fálldin og
situr í kvöld boð ríkisstjórnar-
innar.
Stærsta morgunblað Svíþjóð-
ar, Dagens Nyheter, birti í dag
grein um heimsókn Gunnars
Thoroddsen og þar segir m.a. að
Gunnar Thoroddsen hafi sér-
stöðu hvað varðar stöðu þar sem
hann er forsætisráðherra en um
leið varaformaður stærsta
stjórnarandstöðuflokksins. Blað-
ið rekur þróun mála áður en
Gunnar Thoroddsen varð for-
sætisráðherra og segir að sem
þaulæfðum stjórnmálamanni
hafi honum tekist að sameina
hægri og vinstri í tiltölulega
stöðugri stjórn.
„Innan Sjálfstæðisflokksins
eru skoðanir skiptar um Gunnar
Thoroddsen," heldur blaðið
áfram. „Sumir telja að eigingirni
hafi ráðið löngun hans til að
mynda stjórn. Aðrir álíta að
hann hugsi fyrst og fremst um
heill landsins."
„En,“ segir blaðið að lokum,
„hann er ekki feiminn við að
notfæra sér stöðu sína sem
aðstoðarformaður í stjórnar-
andstöðunni og tekur þátt í
fundum og ráðagerðum innan
flokksins."
I dag, föstudag, mun forsætis-
ráðherránn hitta forseta þings-
ins, halda blaðamannafund og
borða hádegisverð með konung-
inum. Um kvöldið er svo boð hjá
íslensku sendiherrahjónunum,
Ingva Ingvarssyni og frú.
Frá kvöldverðarboði sænsku ríkisstjórnarinnar í húsakynnum sænska utanrikisráðuneytisins í gærkvöldi: Frá vinstri: Frú Solveig
Fálldin, Gunnar Thoroddsen, Thorbjörn Fálldin og frú Vala Thoroddsen. Simamynd: L«(tur ÁsKclrsson.
Dr. Gunnar Thoroddsen forsætisráðherra:
Milli Svíþjóðar og íslands
hefur alltaf ríkt einlæg
vinátta og samheldni
Ræða Gunnars Thoroddsen
forsætisráðherra í kvöldverðar-
boði sænsku forsætisráðherra-
hjónanna í Stokkhólmi i gær-
kvöldi:
Virðulegi forsætisráðherra,
Thorbjörn Fálldin og frú Solveig
Fálldin.
Góðir gestir.
Fyrir nálega níutíu árum
heimsótti íslenskur náttúru-
fræðingur Stokkhólm.
í minningabók sinni fer hann
aðdáunarorðum um sænsk vís-
indi, listir, dugnað og glæsileg
heimili, sem hann gisti.
Hann undraðist, að svo margir
gætu lifað svo góðu lífi sem raun
bar vitni.
En Svíi nokkur fræddi hann á
því, að ýmsir þeirra hefðu engin
efni á að búa eins vel og þeir
gerðu.
Þetta sjónarmið Svíans á
vissulega við um marga Norður-
landabúa í seinni tíð.
Ýmsir okkar, bæði einstakl-
ingar og samfélög, eyða meira en
aflað er.
Að ráða bót á þessum vanda er
ef til vill aðalverkefni flestra
okkar, sem þátt tökum í stjórn-
málum, verkefni, sem ekki er
ýkja vinsælt en nauðsynlegt.
Islenski vísindamaðurinn, sem
bjó mestan hluta ævi sinnar á
íslandi og í Danmörku, átti
Svíþjóð þakkarskuld að gjalda.
Fyrst af mörgum vottum um
viðurkenningu fyrir skerf hans
til vísinda var Linné-heiðursorð-
an, sem veitt var af Sænsku
vísindaakademíunni; og þegar
honum var af hálfu íslands
synjað um fjárstyrk til rann-
sóknarferða, hljóp sænskur
menningarunnandi í skarðið og
lagði fram fjármuni, sem nægðu.
I menningarsögu Svíþjóðar og
íslands gefur að líta fjölmarga
þætti, sem orðið hafa til sameig-
inlegs gagns fyrir báðar þjóðirn-
ar og oft með ánægjulegri gagn-
kvæmni.
Mig langar að nefna eitt
dæmi.
Úr fornum sögum íslenskum
fékk sænska stórskáldið Esaias
Tegnér kveikjuna að snilldar-
verki sínu um Ingibjörgu ' og
Friðþjóf.
Verk Tegnérs þýddi á íslensku
eitt af þjóðskáldum okkar.
I þessu formi endurheimti
þjóð vor Friðþjófssögu, og náði
hún feikna vinsældum.
Lítum enn lengra um öxl.
Sagnfræðingurinn og skáldið
Snorri Sturluson lýsir í Heims-
kringlu fornum konungum Svía,
og var Óðinn fremstur þeirra.
Að honum látnum töldu Svíar,
að hann vitraðist þeim fyrir
stórtíðindum.
Veitti hann þá ýmsum sigur,
en öðrum bauð hann tii sín, og
þótti hvortveggi kostur góður.
Óðinn, hinn sænski konungur,
og æðstur Ása, var mörgum
fágætum kostum búinn.
Það var ein af íþróttum Óðins,
að hann talaði svo snjallt og
slétt, að öllum er á heyrðu, þótti
það eina satt.
Og nú skulum við líta til
nútímans.
Grundvöllur norrænnar sam-
vinnu er traustur. Sameiginlegar
hugsjónir um mannréttindi, frið
og jafnrétti.
I norrænni samvinnu höfum
við náð miklum árangri á sviði
menningar- og félagsmála.
Á sviði efnahags- og atvinnu-
mála gegnir nokkuð öðru máli.
Náttúruauðlindir og atvinnulíf
eru ólík í hinum ýmsu löndum.
Til dæmis eru aðaláuðlindir
okkar íslendinga fiskimiðin,
vatnsorka, hverir og jarðgufa.
Varðandi virka samvinnu á
sviði efnahagsmála, orkumála og
atvinnulífs megum við vera við
því búnir, að torvelt kunni að
reynast fyrir Norðurlöndin öll,
að fást við sama verkefni og á
sama tíma.
Þar sem gefst samstarfsvett-
vangur, tveggja Norðurlanda eða
fleiri, getur verið um að ræða
mikilvæga norræna samvinnu.
í framhaldi af þessu má benda
á, að stofnun Norræna fjárfest-
ingarbankans er stórt skref í
þessa átt, þar sem hann getur
stutt verkefni með þátttöku
a.m.k. tveggja Norðurlanda.
Kæri forsætisráðherra og frú
Fálldin.
Kona mín og ég þökkum þetta
ágæta boð í opinbera heimsókn
til Svíþjóðar. Við lítum á það
sem heiður og vott um vináttu í
garð lands okkar og þjóðar.
Milli þessara þjóða hefur allt-
af ríkt einlæg vinátta og sam-
heldni.
Við óskum þess og vonum, að
þessi bönd megi eflast og styrkj-
ast í bráð og lengd.