Morgunblaðið - 08.05.1981, Síða 28

Morgunblaðið - 08.05.1981, Síða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. MAÍ1981 COSPER Gallinn er, skal ég segja þér, að útiíjoldin eru dagleg, en tekjur þínar mánaðarlegar! ást er... ... ad geta haldib á sér hita meb fabmlögum á kbldu vorkvöldi. TM Reg U S Pat CM -aa rlghta raaarvad • 1978 Loa Angatas Timaa Syndlcala Uarftu endileKa að taka ofan i hvert skipti sem þú mætir einhverjum sem þú þekkir? HÖGNI HREKKVÍSI <-f C 1981 McNaught Synd . Inc Ckanffs fiíd' frjeaa , lATm ÖKKUK SJ'A ..HTT! CR fORMTTVRlNN, Þzm miKírmmi \>ítw ..." .f'/.? 51: pM, 'í ‘d f*í fl \ •; ‘ ú , ! l íaepin laga- fsetning Víðförull hringdi og hafði I eftirfarandi að segja. — Nú er l talað um að lögleiða bílbelti. Ég er fylgjandi notkun þeirra og mér fin'nst sjálfsagt að reka sterkan áróður til þess að þau ' verði almennt tekin í notkun, en lagasetning í því skyni er að i mínum dómi afar hæpin, þó £tæðu_ Ef slys verð- ur vegna notk- unar bílbelta Hver ber þá ábyrgðina? Bíleigandi skrifar: „Kæri Velvakandi. Mig langar til að taka undir með „Víðförla" sem skrifar í dálka þína 23. apríl sl., um lögbindingu bílbelta- notkunar. I því sambandi langar mig til þess að spyrja um það, hver bera muni ábyrgð atslysum, sem kunna að verða eingöngu vegna notkunar bílbelta. Verður það ríkið? Ekki öfundaði ég þá, sem greiða slíku frum- varpi atkvæði sitt, ef þeir svo stæðu frammi fyrir þeirri staðreynd, að illa hefði farið, eingöngu vegna þess að viðkomandi ökumaður var njörvaður niður í sæti sitt.“ Fyrst og fremst: Endursýn- ið myndina með Bay City Rollers „Ilerra Flinkur“ skrif- ar: „Kæri Velvakandi. Fyrsta maí (föstudag) fengu sjónvarpsáhorfend- ur að sjá lúðrasveit Reykjavíkur, á laugar- dagskvöld lék svo Vínar- sinfónían létt( ?????)- klassíska tónlist í einn og hálfan tíma og á sunnu- dagskvöld fengu Jón Múli og félagar klukkutíma langan þátt með jazzist- anum Stan Getz. Því spyr ég eins og flestir aðrir: Hvenær fáum við popp- þátt í sjónvarpið? Nú er liðinn vel drjúgur mánuð- ur síðan popp sást síðast á skjánum (í Skonrokki). Hve lengu gengur þetta svona? Mig langar ein- dregið til að styðja þá tillögu sem gerð var í dálkinum fyrir um hálf- um mánuði um að endur- sýna þáttinn með Bay City Rollers sem var á dagskrá 17. júní 1978. Einnig mætti endursýna aðra þætti svo sem þætt- ina með A1 Stewart, Blondie, Boomtown Rats og fleiri. En fyrst og fremst: Endursýnið Bay City Rollers. Veitir ekkert af öllu mínu Einn I hjólastól skrifar: „Kæri borgari. •' Ég vil gjarnan lýsa þakklæti mínu fyrir hugulsemi þína, þrátt fyrir að hún orki tvímælis. Þannig er mál með vexti, að fyrir allnokkru síðan varð konan mín fyrir því óláni að gleyma seðlaveskinu mínu á búðarborð- inu í búsáhaldaverslun Þorsteins Bergmanns við Skólavörðustíg 36. Er við komum heim urðum við þess vör, að veskið hafði orðið eftir, og snerum við því tafarlaust til baka. Er kona mín kom svo aftur í búðina, að u.þ.b. 20 mínútum liðnum, til að at- huga um veskið, var það horfið, og hafði afgreiðsludaman ekki orðið þess vör. Gjarnan viljað greiða þér fundarlaunin sjálfur Nú hefði ég að sjálfsögðu orðið þakklátur, ef veskinu hefði verið skilað strax rétta boðleið, þ.e.a.s. til afgreiðslukonunnar eða lög- reglunnar, því að nægjanleg skilríki voru í veskinu til þess að hægt væri að koma því til skila. að vísu var það mér mjög mikils virði að fá veskið með skilríkjun- um, en gjarnan hefði ég nú viljað greiða þér fundarlaunin sjálfur. Þú valdir hins vegar þann kost- inn að skammta þér þau sjálf(- ur), því að af 3300—3400 nýkrón- um, skildir þú aðeins eftir kr. 37,84 sem voru í veskinu, þegar það fannst í Hraunbæ sama dag og skilvís kona fór með það til lögreglunnar í Árbæ. Verður það ekki að teljast búðahnupl að taka eitt og annað ófrjálsri hendi í verslunum. Örorkubæturnar ekki allt of háar Nú eru það tilmæli mín, í tilefni árs fatlaðra (en ég er lamaður og bundinn hjólastól varanlega), að þú sjáir þér fært að gera yfirbót og senda mér helst alla upphæðina, eða þá sem svarar frádregnum sanngjörn- um fundarlaunum. Það má gera á þann hátt að senda ávísun í bréfi með nafninu mínu innan í, ef þú manst það, og senda það merkt gjaldkera Sjálfsbjargar, Hátúni 12, Reykjavík. Því að eins og þú e.t.v. veist, eru örorkubæturnar ekki allt of háar og veitir mér ekkert af öllu mínu.“ Þessir hringdu . . . Skrifað í fljótræði 8934-2007 hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Mig langar til að taka undir sumt sem Ágústa Ágústsdóttir segir í pistli sínum um hávaða frá kallkerfi Breiðholtssundlaugar- innar, en hún hlýtur hins vegar að hafa skrifað þetta í nokkru fljótræði, því að ónákvæmni gætir í frásögn hennar. í fyrsta lagi talar hún um að popp- hljómlist glymji um nágrennið í tíma og ótíma, þó mest á þriðjudagskvöldum og um helg- ar. Þetta er alrangt, það er aðeins á mánudagskvöldum, sem popp heyrist þar að nokkru ráði, einfaldlega vegna þess að þá er poppþáttur í útvarpinu. Þá talar hún um, að friðurinn sé úti kl. 8 á morgnana. Þetta er ekki rétt, því að það er ekki opnað fyrir hátalarakerfið fyrr en kl. 9. Ég bý í næsta nágrenni við laugina og er þar tíður gestur. Kann ég því alveg sérstaklega vel að hafa þar hljómlist og finnst það upplífgandi. Hins vegar finnst mér það heldur hvimleitt, að heyra köllin og hrópin í sundkennurunum í gegnum þetta öfluga magnara- kerfi. Því ætti hins vegar að vera auðvelt að kippa í liðinn. Eitt skyggir á Átfústa Áiíustsdóttlr skrifar: „Velvakandi! Alveg er það með eindæmum, hvað fólki er boðið upp á í okkar tæknivædda þjóðfélagi. Ég sé t.d. ekki betur en allt leggist á eitt um að gera Breiðholtið óbyggilegt öðrum en vélmennum. | í gangi allan daginn Hér er loks komin hin lang- þráða sundlaug, sem er bæði j falleg og fullkomin. En eitt skygg- |ir verulega á. Hátalarakerfi eitt ■ firnavoldugt er þarna í gangi [allan datrinn og notað'í tíma og ótíma bæði við kennslu og eftirlit. Sjálfsagt auðveldar þetta starfs- fólki störfin við eftirlit á staðnum, en gagnvart íbúum nærliggjandi húsa er þetta óafsakanlegt. Tekur út yfir á þriöjudags- kvöldum og um helgar Hávaðinn frá þessum ófögnuði þrengir sér inn í hvert herbergi hér við Austurbergið a.m.k., alveg frá því kl. 8 á morgnana. Það er varla næði til eins eða neins. Kannski halda þeir sem þessu ráða, að fólk sé hér ekki nema yfir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.