Morgunblaðið - 17.05.1981, Síða 6

Morgunblaðið - 17.05.1981, Síða 6
46 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. MAÍ1981 nesi frá stofnun þess, og sneri ég mér til hans varðandi upplýsingar um fjárhagshlið saltverksmiðj- unnar og hversu dýrt verði að reisa saltverksmiðju er framleiði 40.000 tonn á ári. — I frumvarpi því, sem fram hefur verið lagt á Alþingi, er gert ráð fyrir að þegar í sumar verði hafist handa um byggingu 8.000 tonna áfanga og gæti byggingu hans verið lokið næsta vetur, sagði Finnbogi. Þannig er ráðgert að framleiða 8.000 tonn á ári þar til rekstur 40.000 tonna verksmiðju hefst — en það gæti orðið um áramótin 1984—1985. Með framleiðslu 8.000 tonna verksmiðjunnar gefst kostur á markaðsþróun sem er mjög æski- leg — einnig frekari þjálfun starfsmanna og síðast en ekki síst fæst nokkur viðbótarreynsla á hluta verksmiðjubúnaðar áður en til framkvæmda við 40.000 tonna áfangann kemur. Stofnkostnaður við fram- kvæmdir 1981, þ.e. 8.000 tonna áfanga o.fl., er talinn nema um 18 milljónum kr. Langmestur hluti þessara framkvæmda nýtist áfram í 40.000 tonna verksmiðj- unni, sem framleiða mun 38.000 tonn fisksalts, 2.000 tonn fínsalts, 250 tonn matarsalts, 9.000 tonn kalsíumklóríðs, 4.000 tonn kalí, 115 tonn bróm og 725 tonn af vítissóda og klór, miðað við 300 daga framleiðslu á ári. Þá er einnig gert ráð fyrir rafmagns- framleiðslu, miðað við 300 daga framleiðslu á ári. Stofnkostnaður er áætlaður 158 millj. kr. en árlegt söluverðmæti áætlað 35 millj. kr. Þess má geta að framkvæmdin er mjög hagstæð að því leyti að hægt verður að smíða meginhluta alls vélabúnaðar saltverksmiðj- unnar hérlendis og þarf því mjög lítið að flytja inn til hennar. Hvernig er samkeppnishæfni saltverksmiðju þarna háttað? — I áætlunum hefur verið gert ráð fyrir að fisksalt seljist á 490 kr. tonnið — jafnaðarverð á land- inu úr skipi. Er það svipað og verð innflutts salts við skipshlið. Samkeppnisaðstaða suðvestan- lands verður að teljast góð, en lakari með tilliti til þess magns sem flytja verður út á land. Gert er ráð fyrir að um helmingur saltframleiðslunnar seljist hér suðvestanlands. Innflutningur fisksalts nam á síðastliðnu ári u.þ.b. 100.000 tonnum. Mikil aukn- ing hefur orðið m.a. vegna breyttra aðstæðna í sölu sjávaraf- urða. Fram hafa farið margar fisk- söltunartilraunir með salt frá tilraunaverksmiðjunni og sýna þær að innlenda saltið er ekki lakara en hið innfl'utta. Undanfar- ið höfum við verið að þreifa okkur áfram með notkun mismunandi mikils magns kalsíumklóríðs í salti og gert frekari söltunartil- raunir. Er fiskur úr Reykjanes- salti losminni og ljósari en fiskur úr öðru salti. Ég held þó að eitt stærsta atriðið sé að Reykjanessaltið er roðagerlasnautt — en sem kunn- ugt er hafa roðagerlar í innfluttu salti valdið fiskverkendum og út- flytjendum ómældu tjóni á liðnum árum. Kalíumframleiðsla (4.000 tonn) er fyrirhugað að bjóða Áburðar- verksmiðjunni sem notar, að því er mig minnir, um 6.000 tonn af því á ári. Ég hygg að hentugustu markað- ir fyrir kalsíumklórið (9.000 tonn) séu í Noregi og Bretlandi, en þessi lönd fluttu inn um 70.000 tonn á árinu 1979 og alls nam útflutning- ur til þeirra landa sem næst liggja 150.0()0 tonnum árið 1979. Kalsí- umklóríð er mest notað til ryk- bindingar vega en einnig til íseyð- ingar. Notkunin innanlands hefur verið 4—5 hundruð tonn á ári. Varfærnislegar áætlanir sýna að hægt er að framleiða allar afurðir verksmiðjunnar á fyllilega samkeppnishæfu verði og að hún skili hagnaði. Hvernig verður fjármögnun framkvæmda við saltverksmiðj- una háttað? — Gert er ráð fyrir því að hlutafé verði a.m.k. 50 millj. kr. Auk þess er gert ráð fyrir að tekin verði lán sem nemi allt að 105 millj. kr. Ég hef áður bent á að ekki er talið að um erfiðleika verði að ræða við að selja afurðir verk- smiðjunnar. En hinu má ekki gleyma að bygging sjóefnaverk- smiðju á Reykjanesi er ótvíræður grundvöllur og okkur Islendingum hvati til frekari verkefna er byggja á afurðum saltverksmiðju. Eins og fram kemur í frumvarp- inu er slíkt fyrirtæki ákveðin lyftistöng fyrir ýmsan annan iðn- að. Má þar nefna vinnslu natríum- klórats, magnesíumklóríðs, kísils, lítíum o.fl. Þá gerum við okkur vonir um að unnt verði að selja rafmagn sem er umfram eigin þörf. Hve mikið það verður er ekki vitað með vissu, — til þess þarf frekari rannsóknir og þá hejst með borunum. Um rafmagnsframleiðslu verður þó ekki að ræða nema öðrum þáttum framleiðslunnar sé það að mein- lausu. Að lokum sagði Finnbogi: Und- irbúningsfélag saltverksmiðju á Reykjanesi hf. hefur verið starf- andi allt frá árinu 1977. Þar af hefur tilraunarekstur saltvinnslu verið starfandi á Reykjanesi á vegum félagsins um þriggja ára skeið. Málefni saltverksmiðjunnar hafa fengið mjög ítarlega meðferð m.a. hjá saltvinnslunefnd þeirri sem skipuð var af iðnaðarráðu- neytinu og unnið hefur gott starf. Að dómi þeirra sem um hafa fjallað er þetta fyrirtæki þjóð- hagslega þýðingarmikið. Til þess að menn nú ekki missi skrið er mjög nauðsynlegt að málið nái fram að ganga á þessu þingi. Ég vildi nota þetta tækifæri til að bera fram þá ósk til þingmanna, að þeir sjái til þess að svo verði þótt fullljóst sé að í mörg horn er að líta við þinglok. — bó. Félagsstarf eldri borgara í Reykjavík Sumarstarf 1981 Dagsferdir og orlofsdvalir Orlofsdvalir að Löngumýri hafa nú veriö ákveðnar eftirtalin tímabil: 22. júní til 3. júlí, 6. júlí til 17. júlí, 20. júlí til 31. júlí, 24. ágúst til 4. sept. Verö kr. 1000. Dagsferðir sumariö 1981 hafa einnig veriö ákveönar. Uppl. og pantanir í síma 86960 aö Noröurbrún 1. Sérstök 2ja daga ferö verður til Akureyrar og Mývatns dagana 14. og 15. júlí. Flogiö er fram og til baka og þarf aö panta þessa ferö sem fyrst. Verö kr. 780 meö ferðum, fæöi og gistingu. Prentuð dagskrá mun liggja frammi á næstunni aö Norðurbrún, Lönguhlíö og í Furugeröi. Félagsmálastofnun Reykjavíkur REPORT DE LUXE: LÚXUS FYRIR LÍTIÐ Rafritvél með fisléttum áslætti, áferðafallegri skrift, dálkastilli 28 eða 33 sm valsi. Vél sem er peningana virði fyrir jafnt leikmenn sem atvinnumenn. Fullkomin viögeröa- og varahlutaþjónusta. Leitió nánari upplýsinga. & gr r c w j 1 \ o Olympia KJARAINI HF [ ÁRMULI 22 - REYKJAVÍK - SÍMI 83022 Verðbréfamarkaðurinn auglýsir Höfum opnaö veröbréfa- og fyrirgreiðsluskrifstofu aö Hafnarstræti 20 R. (Nýja húsiö v. Lækjartorg.). Höfum kaupendur að 2ja og 3ja ára skuldabréfum og ennfremur vöruvíxlum. Vcnllircfa- áUniÍBMliiriim Lck|«tor|l 99 12222 ÞJÓNUSTUBÍLL FRÁ MERCEDES-BENZ FERUM LANDID Dagana 18/5-3/6 Hann fer norður og austur um. Þeir sem áhuga hafa á þessari þjónustu hafi samband við skrifstofu okkar sem fyrst. Verður þá reynt að haga ferðum bílsins samkvæmt því. RÆSIR HF. Skúlagötu 59 sími 19550

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.