Morgunblaðið - 17.05.1981, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. MAÍ 1981
ITT ÍStgœðjafPStœk'
framtíðarinnar
Frá afhendingu 2000ustu Zetor-dráttarvélarinnar. Václav Hnizdil
(t.v.) afhendir Sigurgeiri Valmundsrsyni vandaðan tékkneskan
kristalsvasa að (íjof frá Motokov-verksmiðjunum, en við dráttarvélina
stendur Árni Gestsson. framkvæmdastjóri Glóbus hf. Ljósm. rax.
2000asta Zetor dráttarvélin seld:
Zetor mest seldu
dráttarvélar hér
TVÖÞÚSUNDASTA Zetor-dráttarvélin sem selst hefur hér á
landi var aíhent hjá Globus hí. sl. miðvikudag. Kaupandinn
var Sigurgeir Valmundsson bóndi að Fróðholti, Rangárvöll-
um, en viðstaddir afhendinguna voru Árni Gestssson,
framkvæmdastjóri Glóbus hf. og Václav Hnízdil, varaforstjóri
traktorsdeildar Motokov-verksmiðjanna sem framleiða þessar
dráttarvélar, ásamt fréttamönnum og starfsmönnum fyrir-
tækisins. Afhenti Hnízdil Sigurgeiri vandaðan tékkneskan
kristalsvasa að gjöf frá Motokov-verksmiðjunum við þetta
tækifæri.
Síðan 1969 hefur íslensk-
Tékkneska Verzlunarfélagið hf. —
Istékk — annast innflutning og
sölu á Zetor-dráttarvélum hér á
landi. ístékk er rekið í náinni
samvinnu við Glóbus hf. og í sömu
húsakynnum, enda eru eigendur
og stjórnendur fyrirtækjanna að
mestu leyti þeir sömu. Fyrstu
Zetor-dráttarvélarnar sem ístékk
flutti inn komu til landsins 1969
og voru þær 17 að tölu. Allar götur
síðan hefur innflutningur aukist
til muna og í mörg ár hefur Zetor
verið mest selda dráttarvélin hér-
lendis — árið 1980 voru 53 prósent
allra dráttarvéla sem fluttar voru
inn af Zetor-gerð.
Á þessu ári hófst innflutningur
á nýrri gerð er nefnd hefur verið
lúxúslínan frá Zetor. Eru það
þrjár mismunandi gerðir og
stærðir dráttarvéla: gerð 5011 sem
er tæp 50 hestöfl, gerð 7011 sem er
70 hestöfl og 7045 sem einnig er 70
hestöfl en með drifi á öllum
hjólum. Margvíslegur aukaútbún-
aður fylgir vélunum og fullyrða
innflytjendur Zetor að engin
dráttarvél hafi verið seld hér á
landi með eins fullkomnum útbún-
aði og þessar nýju dráttarvélar.
Til að gefa hugmynd um þennan
útbúnað ná nefna hljóðeinangrað
hús með miðstöð, útvarpi og öðr-
um nýtísku búnaði. Fullyrða að-
standendur Istékk að þessar nýju
Zetor-dráttarvélar séu að öllu
leyti sambærilegar við það bezta
sem framleitt er í Vestur-Evrópu.
Á síðasta ári hóf ístékk inn-
flutning á sláttuvélum frá Tékkó-
slóvakíu og voru fluttar inn 50
vélar en áætlað er að flytja 100
inn á þessu ári. Samhljóða álit
bænda sem reynt hafa þessar
sláttuvélar er að vinnugæði þeirra
séu mjög góð og vélin hlaut góða
dóma hjá Bútæknideildinni á
Hvannevri.
Bræóraborgarstíg1-Sími 20080- (Gengið inn frá Vesturgötu)
HÚSGAGNASÝNING
í dag frá14.00-17.00
Húsgaj’naverslun Gúðmundar
Smiðjuvegi 2, Kópavogi
Sími:45100
AUCLÝSINCASTOFA
MYNDAMÓTA HF