Morgunblaðið - 17.05.1981, Side 8
48
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. MAÍ 1981
BLOM
UMSJON: AB
Gróðursetning
Meconopsis betonicifolia — er dáð fjölær pianta sem er
fremur auðveld í ræktun þó ekki verði hún að jafnaði mjög
ianglíf. Hún blómstrar í júií og ber himinbiá blóm, sem
mjög líkjast biómum valmúa, enda nefnd „blái valmúinn“
víða um lönd. Ilún þarf svipuð vaxtarskilyrði og valmúi:
rakan jarðveg biandaðan iífrænum efnum og vel unir hún
sér þar sem nokkurn skugga ber á. Blöðin eru grágræn og
sitja að mestu leyti í hvirfingu niður við jörð, en
stönguliinn er 50—80 sm hár. Það gctur verið gaman að
láta stöngulinn standa eftir blómgun, því jurtin þruskar
auðveldlega fræ og þar að auki er fræhúsið mjög
sérkennilegt, minnir næstum á austurlenska listsmíð og
sómir sér vel í vendi eða skreytingu með þurrkuðum
hlómum.
Ums.
Best er að gróðursetja
jurtina sem fyrst, svo rætur
nái ekki að þorna. Sé gróður-
sett i sólskini, skal varast að
láta sól skína á ræturnar, því
við það þorna þær og geta
eyðilagst á ótrúlega skömm-
um tíma. Gæta verður þess
að hafa holurnar sem gróð-
ursett er í nógu stórar svo
hægt sé að koma rótunum
fyrir og greiða úr þeim án
þess að hnoða þær saman.
Séu ræturnar mjög langar er
betra að stytta þær ögn,
frekar en böggla þeim ofan í
holuna. Losa þarf um mold-
ina í botni holunnar og
jafnvel blanda í hana áburði
eða safnhaugamold. Vökva
skal vel eftir gróðursetningu,
og sé sólskin eða hvassviðri
er gott að hvolfa einhverju
yfir jurtina fyrstu dagana,
t.d. fötu, kassa eða blóma-
potti, til þess að verja þær of
mikilli útgufun, einkum á
þetta við mjög blaðmiklar
plöntur.
Avallt skal setja jurtirnar
álíka djúpt og bær hafa
staðið áður, eða eilítið dýpra,
og ýta moldinni þétt að
rótunum, einkum ef jarðveg-
ur er léttur og sendinn.
Um fjarlægð milli jurta er
erfitt að gefa nokkrar al-
mennar reglur. Það fer að
sjálfsögðu eftir stærð og
vaxtarlagi jurtarinnar hve
mikið pláss hún þarf. Það
getur verið allt frá 10 sm upp
í einn metra. Þetta þurfum
Efnileg planta til gróðursetn-
ingar.
við að kynna okkur vel áður
en við hefjumst handa við
gróðursetninguna.
Sé jurtin ný fyrir okkur, er
sjálfsagt að stinga niður hjá
henni nafnspjaldi (en nafnið
getum við að sjálfsögðu feng-
ið í gróðrarstöðinni) á meðan
við erum að kynnast henni
betur. Því auðvitað verðum
við að þekkja allt okkar
heimafólk með nafni. Minna
má það nú ekki vera!
Næst verður sagt frá stað-
setningu jurta í garðinum.
BLÁSÓL
Nýkomiö:
Furugólfborö 10 og 22 mm 1. fl. sænsk vara.
Pílárar í handriö.
Vegg- og loftplötur.
Væntanlegt í vikunni:
Birkiparket algjörlega ný gerö. Lítiö í sýningar-
g!ugga.^^
Páll Þorgeirsson & Co.,
Ármúla 27 — Símar: 34000 og 86100.
ÚJgerðarmenn -
Utgerðarmenn
Hafiö þiö athugaö aö trollin
frá okkur eru vinir sjó-
mannsins og stórvinir ykkar.
Framleiöum allar geröir
trolla og dragnóta úr hinu
viöurkennda efni Hampiöj-
unnar. Kassatrollin viljum
viö helst afgreiöa meö bobb-
ingalengju og tilheyrandi.
Netagerðin Ingólfur,
Vestmannaeyjum,
símar 98-1309 — 98-1235.
Barnahúsgögn
kr. 500 út og
kr. 500 á mánuði
Geysilegt úrval - lægsta verö. ^
Myndalistar.
A-
r?
r>ca
Ul.«
BUdshöfða 20 - S (91)81410-81199
Sýningahöllinni - Artúnshöfða