Morgunblaðið - 17.05.1981, Síða 20
60
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. MAÍ1981
Hjónaminning:
Ólafía Ragna Ólafsdóttir
og Vilhjálmur Hannesson
Fædd 22. júli 1905.
Dáin 14. mars 1981.
Fæddur 18. október 1895.
Dáinn 16. febrúar 1977.
Hinn 14. mars síðastliðinn and-
aðist amma mín, Ólafía Ragna
Ólafsdóttir, á sjúkrahúsinu á Sel-
fossi. Útför hennar fór fram í
Fossvogskapellu 20. mars í kyrr-
þey, að hennar ósk.
Hún var fædd 22. júlí 1905 á
Brekkustíg 7, Reykjavík. Foreldr-
ar hennar voru Ólafur Ólafsson,
bókbindari frá Leirum undir
Eyjafjöllum, og Ingibjörg Hró-
bjartsdóttir, frá Hæðarenda í
Grímsnesi. Hún átti eina systur
sem' heitir Sigurlaug Hólm og er
búsett í Reykjavík. Amma missti
móður sína þegar hún var sex ára
og systir hennar fjögurra ára.
Faðir hennar gifti sig aftur nokkr-
um árum síðar Sigurlaugu Jóns-
dóttur. Þau áttu tvo syni saman,
Halldór og Ólaf. Þeir fluttu ungir
til Kaupmannahafnar og hafa
búið þar síðan. Amma ólst upp á
Brekkustígnum og byrjaði
snemma að vinna. Hún vann
lengst á Landakotsspítala eða þar
til hún fór að búa. Þegar hún vann
á Landakotsspítala tók hún kaþ-
ólska trú og bætti nafninu Jó-
hanna við sitt skírnarnafn.
Afi minn, Vilhjálmur Hannes-
son, var fæddur 18. október 1895 í
Lækjarkoti, Borgarhreppi. For-
eldrar hans voru Hannes Vil-
hjálmsson, frá Þurustöðum, Borg-
arhreppi, og Sigríður Stefánsdótt-
ir, frá Litla-Fjalli, sama hreppi.
Afi átti tvö hálfsystkini frá fyrra
hjónabandi móður sinnar. Þau
hétu Ágústína Guðmundsdóttir og
Þorbergur Guðmundsson. Al-
systkini afa eru Stefán, sem býr í
Reykjavík, Valgerður, hún býr
einnig í Reykjavík, Rannveig, dá-
in, og Karl, sem dó ungur.
Foreldrar afa fluttu fljótlega að
Tandraseli í Borgarhreppi. Hann
ólst þar upp hjá þeim en fór ungur
í vinnumennsku á veturna og var
heima á sumrin. Hann vann á
Mosfelli í Mosfellssveit og einnig á
Álafossi við verksmiðjustörf.
Hann hafði mikla löngun til þess
að læra, en foreldrar hans voru
ekki svo vel stæð, að þau hefðu tök
á að senda hann í annað byggðar-
lag til náms.
1920 fór afi alfarinn að heiman
og fór að vinna á Álafossi. Hann
gifti sig um 1921 fyrri konu sinni,
Láru Sveinsdóttur. Þau áttu sam-
an einn son sem heitir Svavar.
Þau bjuggu í litlu húsi við Álafoss
sem hét Drift. Sumarið 1921
missti afi föður sinn og þá um
haustið flutti móðir hans til
þeirra að Álafossi. Afi og Lára
slitu samvistum eftir nokkurra
ára hjónaband og Svavar sonur
þeirra ólst upp hjá afa.
1930 fóru afi minn og amma að
búa á Brekkustíg 7. Þau áttu þrjár
dætur, en ein þeirra dó á fyrsta
ári. Dætur þeirra heita Ingibjörg,
sem er móðir mín, og Ólöf.
Afi vann við sjómennsku og
einnig á Elliheimilinu Grund við
viðgerðir. Þau byggðu fljótlega
hús í Skerjafirði, en bjuggu ekki
lengi þar, því afi hafði alltaf
sterkar taugar til æskustöðva
sinna, Borgarfjarðar. Árið 1942
keyptu þau jörðina Krumshóla í
Borgarhreppi og fluttu þangað.
Þar bjuggu þau til ársins 1959, en
þá fluttu þau í Borgarnes. Afi
vann hjá Kaupfélaginu og amma
vann fyrstu árin þegar vinna
gafst. Síðan fluttu þau til Reykja-
víkur 1976 og bjuggu á Ljósvalla-
götunni. Þau voru að færa sig nær
sínum dætrum og afkomendum
þeirra, sem bjuggu þá á Reykja-
víkursvæðinu.
Meðan þau bjuggu á Krumshól-
um áttu foreldrar mínir heima á
Hafþórsstöðum í Norðurárdal,
sem er innarlega í Borgarfirði. Þá
var alltaf gaman að heimsækja
ömmu og afa. Við fengum stund-
um að vera í nokkra daga hjá
þeim, þau gerðu þá allt sem þau
gátu til þess að heimsóknin yrði
okkur að sem mestri gleði. Amma
söng fyrir okkur og kenndi okkur
líka fjöldann allan af bænum, en
hún var mjög trúuð. Afi las
skemmtilegar bækur og sagði
okkur frá því þegar hann var
ungur.
Ámma var afar söngelsk og
söng millirödd í kirkjukór, en hún
fékk ekki tækifæri á sínum yngri
árum til að mennta sig á því sviði.
Hún var alla tíð viðkvæm og
hjartgóð kona, tók svo nærri sér
þegar aðrir áttu í erfiðleikum.
LEGSTEINAR
MOSAIK H.F.
Hamarshöfða 4 — Sími 81960
Vegna jaröarfarar,
BIRGIS KRISTJÁNS HAUKSSONAR,
verða skrifstofur og vörugeymsla lokaðar frá kl.
12 á hádegi, mánudaginn 18. maí.
Gudmundur Arason, heildverzlun,
Hafnarstræti 5.
Borgarsmidjan hf.,
Hafnarbraut 2, Kópavogi.
f KAUPMENN- VERSLUNARSTJÓRAR
AVEXTIR
IKUHHAR
Bananar — Ananas — Appelsínur Jaffa —
Appelsínur Marokkó — Epli raud — Epli græn —
Epli Granny Smith — Perur — Melónur —
Vatnsmelónur — Greipaldin Jaffa — Sítrónur
Jaffa — Sítrónur hálfkassar.
EGGERT KRISTJANSSON HF
Sundagörðum 4, simi 85300
Hún var einnig ákaflega fórnfús
og hugsaði fyrst og fremst um
aðra, leit á sjálfa sig sem aukaat-
riði, aðrir höfðu forgang. Þegar
við systkinin vorum veik þá kom
hún oft langa vegu að liðsinna
okkur. Hún sat þá löngum yfir
okkur og stytti okkur stundir. Hún
hafði jafnan eitthvað í pokahorn-
inu meðferðis til að gleðja okkur.
Eftir að þau fluttu í Borgarnes
var einnig gott að koma til þeirra,
þau voru svo innilega ánægð með
allar heimsóknir sem þau fengu og
gáfu sér góðan tíma fyrir gesti
sína.
Hjónaband ömmu og afa var
mjög gott, þau töluðu mikið sam-
an og voru einlægir vinir. Þau
voru bæði glaðlynd og skemmti-
leg, afi og amma.
Mér er ljúft að minnast síðustu
stundarinnar sem ég átti með afa
mínum. Eg var í heimsókn hjá
honum nokkrum dögum fyrir and-
látið, hann var svo hress og kátur
og lét eina skemmtilega frásögu
fjúka í lok heimsóknarinnar, ég vil
muna hann eins og hann var þá.
Eftir að afi dó fór amma til
móður minnar og var hjá henni
meira og minna síðustu árin,
einnig var hún hjá Ólöfu dóttur
sinni og á sjúkrastofnunum.
Núna, þegar þau eru bæði farin,
grípur mig viss tómleiki, það fyllir
enginn þeirra skarð. Ég á margar
góðar endurminningar um ömmu
og afa sem gleymast ekki. Þetta
eru fátækleg orð sem ég hef haft
um elsku ömmu og afa en þau eru
smá þakklætisvottur fyrir liðna
tíð.
Guðfinna Þorvaldsdóttir
Legsteinn er
varanlegt
minnismerkl
Framleiðum ótal
tegundir legsteina.
Allskonar stærðir og
gerðir. Veitum fúslega
upplýsingar og ráðgjöf
um gerð og val
legsteina.
S.HELGASONHF
STEINSMHUA
SKHMMUVEQl 48 SM 76677