Morgunblaðið - 17.05.1981, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. MAÍ 1981
69
Fiat 127 árg. ’80 til sölu
Þ»essir hringdu . . .
Til fegurð-
arauka
Þröstur skrifar:
„Velvakandi minn.
Um daginn brá ég undir
mig betri vængnum og tók
flugið vestur yfir borgina
okkar góðu. Þá tók ég eftir
grænu svæði meðfram
Faxaskjólinu sem nauðsyn-
legt er að hreinsa og græða
upp, til fegurðarauka fyrir
alla þá er fram hjá fara.
Svæðið nær u.þ.b. frá núm-
er 72—94. Og svo kemur
fjaran, Grímsstaðavör, allt
að Lambhóli. Mig langar til
að fara fram á það við
borgarstjórn og borgarráð,
að þetta verði tekið til
athugunar."
Komum í veg fyrir
slys og þjáningar
Ómar Ragnarsson
Frábær Kverkfjalla-
myndin hjá Ómari
Náttúruunnandi hafði sam-
band við Velvakanda og lét í ljós
aðdáun sína á Kverkfjallamynd
Ómars Ragnarssonar og félaga: —
Hann Ómar var þarna allt í senn:
skemmtilegur ferðafélagi, rögg-
samur og fróður fararstjóri og
skáld. Hann er margreyndur og
víðförull ferðagarpur og þekkir
landið eins og lófa sína. Fyrir utan
það að vera vel glöggur á hann svo
létt með að koma frá sér því sem
máli skiptir. Mér finnst það í
rauninni furðulegt að hafa hvergi
rekist á neinar umsagnir um þessa
velheppnuðu Kverkfjallaferð
þeirra félaga. Þarna er þó sjón-
varpið á réttri leið og vona ég svo
sannarlega að áframhald verði á
því. Kærar þakkir.
En brjóttu ekki
í mér bein
Þórunn Kristinsdóttir hringdi
og sagði: — Þegar ég var barn að
aldri kom gamall maður oft í
heimsókn á foreldraheimili mitt.
Aldrei brást að hann hafði yfir
litla vísu, sem ég er viss um að
margir kannast við, en hins vegar
veit ég ekki hver ort hefur, hvort
fleiri vísur hafa fylgt þessari, né
hvert tilefnið hefur verið. Vísan er
svona:
Drottinn minn dýri.
draKÓu mÍK upp úr mýri;
Iukkóu mÍK á stein.
en brjóttu ekki í mér bein.
Gaman væri ef einhver lesenda
þinna gæti upplýst þessi atriði.
Ein sem ailtaí notar bílhelti
skrifar:
„Til Velvakanda.
I tilefni frumvarps um lög-
leiðingu bílbelta langar mig til
þess að leggja orð í belg. I
umræðum og umfjöllun fjöl-
miðla hefur að mínum dómi
verið gert allt of mikið úr því
hvort fólk heldur lífi fyrir til-
stuðlan beltanna eða ekki. En
minna hefur verið gert úr því
hve beltin geta dregið úr slysum
eða meiðslum.
Örin hverfa aldrei
Það þarf ekki mjög harðan
árekstur til þess að ökumaður
eða farþegi í framsæti skelli
með andlitið í rúðuna sem
stundum heldur undan þunga
höggsins og stundum ekki. Ef
framrúðan brotnar hlýtur við-
komandi í flestum tilfellum
skurð á andlitið. Ég þekki unga
stúlku sem er stórlega lýtt í
andliti vegna þess að hún er með
stóran skurð yfir kinnina og í
kringum nefið. Þessi stúlka var
farþegi í framsæti þegar bíll
sem hún var í lenti í árekstri við
annan bíl. Hún var beltislaus og
skall með andlitið í rúðuna.
Önnur meiðsl hlaut hún ekki og
heldur ekki bílstjórinn, ef frá
eru taldir marblettir eftir stýr-
ið. Það er fyrir löngu búið að
gera við bílinn og marblettirnir
eru horfnir, en örin í andlitinu
hverfa aldrei. Hvers vegna get-
um við ekki lært af reynslu
annarra þjóða og notfært okkur
hana til góðs? Erum við íslend-
ingar eitthvað öðruvísi en aðrar
þjóðir?
LöKleiðum notkun bílbelta
Ég las það einhversstaðar í
blaði að slysum með meiðslum
hefði fækkað um 30% í Finn-
landi þegar þeir lögleiddu notk-
un bílbelta. Af hverju getum við
Islendingar ekki fylgt fordæmi
þeirra? Umferðarslys eru alltof
mörg hér á landi og mörg þeirra
væri hægt að koma í veg fyrir
með notkun bílbelta. Ennþá hef
ég ekki komið auga á neitt í
skrifum manna sem sannar að
bílbeltin hafi frekar orðið til ills
en góðs. Sum slys eru þess eðlis
að enginn mannlegur máttur
getur þar bjargað, hvorki bíl-
belti né annað. En aftur á móti
eru mörg slys þess eðlis að
bílbelti geta bjargað. Þess vegna
segi ég: Lögleiðum notkun bíl-
belta og komum með því í veg
fyrir óþarfa slys og þjáningar."
FRl M\ \RI’ \N STKI'M MORKI N \R
Stefna hiks og
aðger ðarley sis
Svrrrtf llrri
I »« !.«).• \l|»-«.
1 •» >••!.
I lllnrlril I.MMIMM.. urkarrtk
TÍ’Í.tL.I 7 sagði Birgir
ísleifur
'ÍSí Gunnarsson
.1 itflfckwA. þ«*« >r|r md o,
o« þvl v»ri frumvarpaA >A þmu
Vísa vikunnar
Ef stjórnin velur stefnu hiks,
sem stofukommar vilja fara,
afleiðingar augnabliks
árum saman kunna að vara.
Ilákur
S^5 SIGCA V/öGA fi tíLVE^W
ekinn 11 þús. km.
Skipti möguleg á
ódýrari bíl.
Uppl. í síma 36361.
Orðsending
frá
Lífeyrissjóði verslunarmanna
Lífeyrissjóður verslunarmanna hefur sent yfirlit til
allra sjóðsfélaga um greiöslur þeirra vegna sjóðsins
á síöasta ári, 1980. Yfirlit þessi voru send á
heimilisfang, sem sjóöfélagar höfðu 1. desember
1980 samkvæmt þjóðskrá.
Þeir sjóðfélagar, sem fengiö hafa sent yfirlit, en
hafa athugasemdir fram að færa, svo og þeir
sjóðfélagar, sem telja sig hafa greitt til sjóðsins á
síðasta ári en ekki hafa fengið sent yfirlit, eru
beönir um að hafa samband við viðkomandi
vinnuveitanda eða skrifstofu sjóðsins.
Lífeyrissjódur
verslunarmanna
Hvitasunnuferðir
með kostakjörum og
sérstökum
f jöisky Iduafslaetti
Gullna ströndin
Lignano
22. maí. Verö fró kr.
4.760.-
Palma Nova — Magaluf
Mallorca
27. maí. Verð frá kr.
5.170.-
Portoroz
29. maí. Verö frá kr.
6.170.-
AUSTURSTRÆT117,
SÍMAR 26611 og 20100.
Feróaskrifstofan
ÚTSYN