Morgunblaðið - 31.05.1981, Page 19

Morgunblaðið - 31.05.1981, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 31. MAÍ1981 19 „Lát engan líta smáum augum á æsku þína44 í dag verður önnur konan vígð til prestsstarfa á íslandi. Er það Dalla Þórðardóttir sem verða mun prestur Bílddælinga. Dalla er aðeins 23 ára að aldri og fær hún undanþágu frá aldursákvæðum til þess að vígjast. Verður hún þar með einn yngsti prestur okkar íslendinga, en slík undanþága hefur ekki verið veitt í aldarfjórðung. Foreldrar hennar eru séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir og Þórður Örn Sigurðsson lektor. Þess má geta að meðal vígsluvotta Döllu verður móðir hennar en hún var eins og öllum er kunnugt fyrsta konan til að taka prestsvígslu hér á landi. Af þessu tilefni brá blm. sér í heimsókn til þeirra mæðgna og átti við þær stutt spjall. „Dalla hefur þú orðið vör við að fólk hneykslist á því að kona skuli vera að vígjast til prestsstarfa?" „Nei, síður en svo, ég hef alls ekki orðið vör við neina fordóma gagnvart því. I Bibl- íunni er ekki neitt að finna sem kveður svo að kona geti ekki gegnt jprestsstörfum, síður en svo. I Fyrstu Móse- bók segir m.a. að karl og kona séu sköpuð til sömu verkefna. Jesús var ákaflega frumlegur á sínum tíma með því að ræða við konur um þau mál er þær voru yfirleitt ekki virtar viðlits á þeim tíma. Hvað varðar túlkun á orðum Páls postula þá hefur verið mismunandi eftir tíð- arandanum hverju sinni. Menn hafa alltaf mótast af uppeldi sínu og þeim viðhorf- um sem eru ríkjandi á hverj- um tíma. Þannig hafa menn sjálfsagt einhverntíma feng- ið þá hugmynd að konur væru síðri til þessara starfa en karlmenn." „Auður, nú varðst þú vör við mikla fordóma gagnvart því að kona skyldi ætla sér að verða prestur, þegar þú vígðist á sínum tíma. Hvern- ig lýst þér á þessa ákvörðun dóttur þinnar?" „Mér líst mjög vel á hana, og ég fagna að fleiri konur skuli nú sækja guðfræðinám en áður. Það kom mér mikið á óvart hve mótstaða var mikil hjá fólki en margir voru líka jákvæðir. í starfinu sjálfu hef ég ekki orðið vör við neitt slíkt, síður en svo. Ég er hrædd um að þessir fordómar gætu gosið upp Sr. Auður Eir Vilhjálmsdóttir. Dalla Þórðardóttir. aftur ef kona færi út í kosningar, þó svo að ég voni að svo verði ekki. Kirkjan hefur vitanlega þörf á starfs- kröftum kvenna sem karla í prestsþjónustu. Dalla: „Sem kona er ég hrædd um að ég hefði fallið í kosningum á móti nær hvaða karlmanni sem væri. Annars hef ég haft samband við nokkur væntanleg sóknar- börn mín og verið boðin velkomin. Ég hef því enga ástæðu til annars en að vera ánægð." „Myndir þú Dalla leggja það til við stúlkur á þínum aldri að leggja fyrir sig prestsskap?" „Hafi þær áhuga þá ættu þær ekki að vera að setja fyrir sig neina „prests- ímynd". Alls ekki að gera úlfalda úr mýflugu. Ég vil endilega hvetja allar þær, sem áhuga hafa á starfinu að fara út í þetta. Það er alls enginn bjánaskapur fyrir stúlkur síður en svo. „Ekki var upphaflega hug- myndin hjá þér að gerast prestur?" „Nei, upphaflega ætlaði ég út í tungumálanám, en það býður helst upp á kennslu, svo að ég sneri mér að guðfræðinni. í upphafi var ekki ætlunin að leggja fyrir sig prestsskap, en það verður að segjast eins og er að ég er ánægð með mitt hlutskipti. Þetta starf býður upp á miklu meiri möguleika en ég hafði gert mér grein fyrir. Það snertir nær alla þætti mannlegs lífs. Það krefst þess að maður gefi hluta af sjálfum sér þannig að það er hæpið fyrir þá sem hafa ekki trúarlega sannfæringu að leggja út í prestsskap. Ég vil að lokum gera orð Páls postula að mínum en hann segir í Fyrra bréfi til Timoteusar: „Lát engan líta smáum augum á æsku þína.“ „Andadrottning“ Flest bendir til að verðbólgan milli þessara ára verði að meðal- tali yfir 50%. Þetta þýðir því að lántökur, einkum erlendar, verða meiri en áætlunin gerir ráð fyrir, ef halda á í við framkvæmdamátt; en ella niðurskurð á raungildi framkvæmda. Lífskjara- ramminn Lifskjör þjóðar hvíla öðru frem- ur á tvennu: verðmætasköpun í þjóðarbúskapnum og viðskipta- kjörum við umheiminn. Þetta tvennt ræður þjóðartekjum, sem eru í raun lífskjararammi okkar. Þær undirstöður verðmæta- sköpunar sem tengjast sjávarút- vegi og landbúnaði, eru á ýmsan hátt fullnýttar. Þessar atvinnu- greinar verða áfram burðarásar í þjóðarbúskapnum, en þó er ein- sýnt að meira þarf til að koma, ef tryggja á vaxandi þjóð atvinnuör- yggi á næstu árum og áratugum (ekki færri en 25.000 ný atvinnu- tækifæri þurfa að verða til á næstu 20 árum) og auka svo á verðmætasköpun og þjóðartekjur að þær beri sambærileg lífskjör hér og í nágrannalöndum. Hvor- tveggja er nauðsynlegt. Fátt er hættulegra í íslenzkri byggð, ýtir meir undir landflótta, en það ef við drögumst að ráði aftur úr öðrum þjóðum lífskjaralega. Það er því að vonum að orku- mál, virkjanir og orkunýting, hafi skyggt á önnur þingmál síðustu vikur liðins þings. Fyrr í vetur höfðu sjálfstæðismenn borið fram tvö frumvörp, hið fyrra um skipu- lag og stefnumótum í orkubú- skapnum og hið síðara um þrjár stórvirkjanir á 10 árum, samhliða tillögu til þingsályktunar í stór- iðjumálum. Þingmenn Alþýðu- flokks fluttu og þingmál um sama efni og þessir flokkar sameinuðu síðan tillögur sínar í eina tillögu um stefnumótun í orkufrekum iðnaði. Ekkert þessara mála fékk framgang, enda ljóst, að orkuráð- herra kaus helzt að draga fætur í þessum þýðingarmikla mála- flokki, tvístíga í ákvarðanatöku, samhliða því sem hann beit í skjaldarrendur andspænis hvers- konar stóriðju. Hér sem í öðrum veigamestu málaþáttum þjóðar- búsins varð stefna Alþýðubanda- lagsins ofan á. Þó flutti ríkis- stjórnin sýndarfrumvarp, nánast til að breiða yfir aðgerðarleysi sitt, sem hlaut samþykki eftir óvenju harðar deilur í þinglokin. Frumvarpid er óraunhæft í nefndaráliti Þorvaldar Garð- ars Kristjánssonar (S), Egils Jónssonar (S) og Kjartans Jó- hannssonar (A), um þetta stjórn- arfrumvarp, sem lagt var fram í efri deild 25. maí sl., segir m.a.: „Frumvarp það, sem hér er fjallað um, verður að skoða í ljósi þess, hvernig það má þjóna fram- angreindum þörfum í orkumálum landsins. Á þann mælikvarða er frumvarp þetta léttvægt fundið. Það er ekki til þess fallið að stuðla að stórátaki í virkjunarmálunum. Það markar enga stefnu í orku- málunum, heldur ber vott um sýndarmennsku og vingulshátt." I frumvarpinu eru taldar upp nokkrar stórvirkjanir og virkjun- aráfangar, sem samtals mundu jafngilda stórátaki í virkjunum, ef til framkvæmda kæmi. En af frumvarpinu sjálfu verður ekki séð að mikil áherzla sé lögð á framkvæmdir þær, sem þar eru taldar upp. Kemur þar margt til. Engar afdráttarlausar heimild- ir er að finna í frumvarpinu til virkjunaraðila, svo sem venja er í heimildarlögum um virkjanir. Þótt frumvarpið yrði að lögum, þarf þannig sérstakt samþykki ríkisstjórnarinnar fyrir því, að Landsvirkjun mætti stækka Hrauneyjafossvirkjun og Sigöldu- virkjun og virkja við Sultartanga. Ríkisstjórnin áskilur sér stöðvun- arvald í þessum virkjunarfram- kvæmdum, þótt Alþingi veiti heimild til þeirra. Svo slæmt sem frumvarpið er varðandi framkvæmdir á núver- andi virkjunarsvæði Landsvirkj- unar tekur ekki betra við um þær virkjanir, sem ætlaðar eru utan þess svæðis. Þannig á ríkisstjórn- inni að heimilast að semja við Landsvirkjun um að reisa og reka Blönduvirkjun og Fljótsdalsvirkj- un. Ekkert er kveðið á um, hvað ske muni, ef þessir samningar ekki takast, rétt eins og þá ætti ekkert að verða af þessum fram- kvæmdum. Svo bögglingsleg laga- smíði er að sjálfsögðu til komin vegna þess að gefizt hefur verið upp við að lögfesta hlutverk Landsvirkjunar um allt land sem aðalorkufyrirtæki. Þetta ber vott um ráðleysi í skipulagsmálum orkuframleiðslunnar. í frumvarpinu er ekkert, sem kveður á um að undirbúningi að byggingu orkuveranna svo og framkvæmdunum sjálfum skuli hraðað svo sem kostur er. Af því má ætla, að hægagangur verði á öllu. Þess gerist heldur ekki þörf að fara geyst í framkvæmdir, ef orkunýtingarstefnan er sú að full- nægja einungis þörfum til heimil- isnota, húshitunar og almenns iðnaðar. Ef þetta er tilfellið er upptalning frumvarpsins á stór- virkjunum þeim, sem þar greinir, sýndarmennskan ein. Hins vegar er frumvarpið alger- lega óraunhæft, ef ætlunin væri að reisa á 10 árum eða svo þær stórvirkjanir, sem frumvarpið fjallar um. í frumvarpinu er ekki gert ráð fyrir stóriðju, svo sem nauðsyn er fyrir stórátaki í virkj- unarmálunum." Tekinn versti kosturinn Lokakaflinn í nefndarálitinu hljóðar svo: „Að svo miklu leyti sem frum- varpið markar nokkra stefnu, er þar tekinn versti kosturinn. Þar er ekki um að ræða framkvæmdir, sem er einungis sniðinn stakkur að almennum þörfum heimilis- notkunar, húshitunar og almenns iðnaðar. Þar er heldur ekki gert ráð fyrir stóriðju, sem er grund- völlur fyrir stórátaki í virkjunar- málum. Valinn er versti kostur- inn, sem er stórvirkjanir án nauð- synlegs orkumarkaðar, sem stór- iðjan ein getur skapað. Slík stefna eða réttara sagt stefnuleysi leiðir til sjálfheldu í orkumálum þjóðar- innar. Staðan í orkumálunum í dag blasir við þannig, að undirmál iðnaðarráðherra hindra virkjun Blöndu. Bein andstaða ráðherra við stóriðju kemur í veg fyrir Fljótsdalsvirkjun. Stjórnarsátt- málinn bannar Sultartangavirkj- un. Frumvarp ríkisstjórnarinnar boðar lögfestingu á aðgerðarleys- inu. Þannig svarar þetta frumvarp ekki þeim kröfum, sem til þess verður að gera, ef hugur á að fylgja máli um allt talið um hagnýtingu orkulinda landsins til að efla hagsæld og velferð þjóðar- innar. Við í minni hluta nefndarinnar viljum freista þess að koma fram lagfæringum á frumvarpinu og berum því fram ásamt öðrum þingmönnum stjórnarandstöðunn- ar breytingartillögur á sérstöku þingskjali. Ef þessar breytingar ná ekki fram að ganga, munum við greiða atkvæði gegn frumvarp- inu.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.