Morgunblaðið - 31.05.1981, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 31.05.1981, Qupperneq 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 31. MAÍ1981 t Þorsteinn Guðmunds son, Skálpastöðum Einn mesti og merkasti búhöldur Borgfirðinga áttræður í dag Fyrsti bóndinn, sem við hjónin komust í kynni við í Borgarfirði, var Þorsteinn Guðmundsson á Skálpastöðum í Lundarreykjadal. Var það tvennt, sem þessu réði. Annað var það, að hinn farsæli kaupfélagsstjóri, Þórður Pálma- son sagði mér, að Þorsteinn væri annar tveggja þeirra bænda í héraðinu, sem mundu vera einna mestir framkvæmdamenn um ræktun og fyrirmyndar búsýslu, en auk þessa kom það til, sem ekki var iéttvægara, að ég vissi, að hann var kvæntur vestfirzkri konu, rómaðri að mannkostum og dugnaði, enda af góðu fólki og vönduðu í báðar ættir. Þau fágætu kynni, sem hófust með okkur hjónum og Skálpastaðaheimilinu, hafa síðan enzt þann rúman fjórð- ung aidar, sem liðinn er frá því að þau hófust, og vissulega hef ég við hverja komu þangað glaðst yfir að sjá þar sífellt aukast ræktun og aðrar framkvæmdir. Og þá hefur það ekki síður verið okkur hjónum ánægjuefni, að vita þar á seinustu áratugum lánast gæfuríkt sambýli gömlu hjónanna og fjölskyldna tveggja sona þeirra, sem eru engir eftirbátar föður síns að hagsýni og dug til framkvæmda í samræmi við breyttar og viðsjálar aðstæður í þjóðfélaginu. Þorsteinn fæddist að Syðri- Fossum í Andakíl í Borgarfirði 31. maí 1901. Foreldrar hans voru Guðmundur Auðunsson og kona hans, Guðbjörg Aradóttir. Þau bjuggu víðar í Borgarfirði, unz þau fluttust að Skálpastöðum, en ungur var Þorsteinn þegar þangað kom. Foreldrar hans voru greind og vel metin og bjuggu góðu búi að þeim hætti, sem þá tíðkaðist. Guðmundur hafði mikinn áhuga á jarðabótum og vandaði svo til þeirra, að sumar eru enn óhreyfð- ar í hinu á að gizka hundrað hektara túni, sem nú breiðir úr sér drjúgan spöl til austurs og vesturs frá bænum og allt niður að hinni fögru og gjöfulu Grímsá. Bæði voru bókhneigð og Guðbjörg unn- andi fagurra ljóða, og er óhætt að segja, að Þorsteinn hafi tekið Ijóðástina að erfðum og hún kostaði hann marga vökustund, jafnvel eftir erfiða vinnudaga, enda kona hans sama sinnis um bókhneigð og ást á ljóðum í hefðbundnu formi íslenzkra menningarerfða. Þorsteinn stundaði nám í ung- mennaskóla séra Sigtryggs á Núpi frá 1919 til ’21, og síðan nam hann búfræði á Hvanneyri og tók þaðan brottfararpróf 1923. Hann var síðan um skeið heima, en gerðist svo sjómaður á Akranesi, var meðal annars á togara. Honum féll vel sjórinn, og ef hann hefði þar haldið áfram, hefði hann áreiðanlega orðið skipstjóri og mikill aflamaður. Á Akranesi lágu á ný leiðir þeirra saman, hans og skólasystur hans frá Núpi, Þór- unnar Vigfúsdóttur, bónda og bátasmiðs Eiríkssonar, í Tungu í Valþjófsdal í önundarfirði. Og nú tókust með þeim ástir og árið 1929 voru þau gefin saman í hjónaband. Upp úr því — eða árið eftir — bauðst þeim að taka við búi og jörð á Skálpastöðum, og þar bjuggu þau þangað tii Þorsteinn varð sjötugur, að synir hans tveir tóku við. En á Skálpastöðum hafa gömlu hjónin dvalið og hyggjast ekki flytja fyrr en að ber það, sem enginn fær umflúið. Þau hafa eignazt sex börn, eitt þeirra hafa þau misst, efnisdreng á fimmta ári. Hann hét Vigfús Önundur. Hin börnin eru þessi: Guðbjörg, gift sænskum manni, sem á heima á eyjunni Öland. Þau hjón eiga tvær dætur. Þá er Þorsteinn, bóndi á Skálpastöðum, kvæntur Ásdísi Þorsteinsdóttur frá Úlfsstöðum í Reykholtsdal. Börn þeirra eru fjögur, þrjár dætur og einn sonur. Þriðja að aldri er Guðrún Kristín, gift Valgeiri Jónssyni, bónda á Þver- spyrnu í Hrunamannahreppi. Þar eru börnin fimm, fjórir synir og ein dóttir. Næstyngstur er Guð- mundur bóndi á Skálpastöðum, kvæntur Helgu Bjarnadóttur, sá Bjarni frá Hraunsási í Borgar- firði. Þau eiga tvær dætur og tvo syni. Svo er þá yngstur Vigfús, læknir á Landspítalanum, kvænt- ur Auði Sigurðardóttur, börn þeirra eru þrjú, ein dóttir og tveir synir. Það voru gáfuð, hagvirk, ötul og viljaföst hjón, sem hófu búskap á Skálpastöðum fyrir um það bil hálfri öld, en þó að milli þeirra ríkti samhugur og samlyndi um heimilishætti og framkvæmdir, eru þau að ýmsu ólík. Þorsteinn er skapmikill og næstum áhuga- maður um skör fram, þó að ekki skorti hann greind og glögg- skyggni á almenn mál frekar en á möguleikana til framkvæmda, konan mjúklynd yfirleitt hæglát, þó að verk gengju henni fljótt frá hendi — og auga hefði hún fyrir hvers konar gagnsemi. En Þor- steinn hefur margsagt mér, að hún hafi frá því fyrsta haft á hann mannbætandi áhrif, og þegar ég hef undrast hagsýni hans og framkvæmdir, hefur hann þegar í stað tekið það fram, að það sem gerzt hafi á Skálpastöðum til gagns og aukinnar velsældar, sé jafnvel að meira en hálfu leyti konu sinni að þakka. Og vissulega kann hann og vel að meta fagur- skyn hennar og listfengi um heim- ilisprýði, en það í eðli hennar hefur og komið fram bæði í ljóði og litum. Og víst er um það, að samhugur þeirra hjóna og vökul elja hefur þorið árvissan og furðu skjótan árangur til aukinnar ræktunar og reisnar staðarins, og það þegar frá upphafi búskapar þeirra. Árið 1949 var reist á Skálpastöðum einlyft steinhús, stórt að grunnfleti og risið þannig, að þar gæti orðið til rúmgóð og hagkvæm íbúð. Var þar sem í öðru höfð framtíðin í huga. Þá höfðu verið ýmist bætt eða byggð úti- húsin á jörðinni. Nú vík ég máli mínu yfir á annan vettvang í bili. Þar á ég við trúnaðarstörf Þorsteins. Vorið 1933 var hann skipaður hrepps- stjóri og sama ár kosinn í hrepps- nefnd. Það ár varð hann og deildarstjóri Kaupfélags Borgfirð- inga í Lundarreykjadal og einnig valinn formaður búnaðarfélags sveitar sinnar. Þá var hann og forystumaður garðyrkjufélags Lunddæla. Einnig var hann svo kosinn af þeirra hálfu í bygging- arnefnd barnaskólans á Klepp- jámsreykjum, sem að standa fjór: ir hreppar Borgarfjarðarsýslu. í sýslunefnd var svo Þorsteinn val- inn árið 1958. Ekki hef ég annað heyrt en að hann hafi gegnt öllum þessum trúnaðarstörfum með sóma, en nú hefur hann látið af þeim öllum nema hreppsstjóra- starfinu, sem hann hefur sagt mér, að ekki hafi verið tímafrekt. Hann gat þess einhverntíma við mig, að síðan hann kom fyrst að Skálpastöðum hafi ekki þurft að birta neinum Lunddæla stefnu. Hann hefur í fórum sínum sátta- nefndarbók, þar sem öll blöðin eru auð ... En þess vegna get ég þessara trúnaðarstarfa áður en ég greini frekar en hér að framan frá búskapnum, að nærfellt öllum nefndra aukastarfa gegndi Þor- steinn meðan þungi framfara og búskaparvanda hvíldi' enn með öllum sínum þunga á herðum hinna eljumiklu og samhuga hjóna ... En þegar ég hafði mín fyrstu kynni af Þorsteini, voru þrjú af börnunum orðin virkir og góðir og gildir þátttakendur í búskap og heimilisstörfum. Þorsteinn yngri vel tvítugur, Guðrún litlu yngri og Guðmundur átján ára. Öll voru þau vinnufús og höfðu tekið að erfðum hagar hendur, en slíkra var einmitt mikil þörf, því að komin voru til sögunnar margvís- 31. maí til 5. júní Nú bjódum við ykkur að líta við í versluninni um helgina bæði laugardag og sunnu- dag og kynnast nýjustu tækni í sambandi við mat- reiðslu í örbylgjuofnum. Einnig verður boðið upp á pizzur og Seven-Up, sem ætti að renna Ijúflega niður. VIÐ BJÓÐUM YKKUR AÐ HEIMSÆKJA VERSLUN KALMAR-INNRÉTTINGA H/F í SKEIFUNNI 8, REYKJAVÍK NÚ UM HELGINA OG NJÓTA ÞESSARA ELDHUSDAGA OKKAR. Einar Farestveit h/f kynnir tffýshilm örbylgjuofna hjá okkur í versluninni í dag, laugardag, kl. 14—16 og sunnu- dag kl. 15—17. Dröfn Farestveit kynnir þá nýja tækni í matreiöslu meö notkun örbylgjuofna frá TOSHIBA. Halti haninn gefur okkur aö smakka á pizzum bæöi laugardag og sunnudag og Sev- en-up frá Sani- tas hjálpar okkur svo aö renna þessu niöur. c ískalt Seven up. i 'mjM&M MI ■ÍÍSii ■ : . ■ T9f hressir betur. í ir* mmvm Opið laugardag kl. 10—16 og sunnudag kl. 13—17. M ka|mar Innréttingar hf. » WtVKJAVm M— MH1. n EINAR FARESTVEIT 6. CO HF IIRGSTAOASTRAT' I0A SlMI |6f«« Halti nin Sanitas

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.