Morgunblaðið - 09.07.1981, Side 1
48 SIÐUR
150. tbl. 68. árg.
FIMMTUDAGUR 9. JÚLÍ1981
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Sovésk sókn
í Kunardal
Islamahad. 8. júlí. AP.
SOVÉSKIR og aíganskir
stjórnarhermenn hafa nú
hafið sókn í Kunar-dal,
sem er um 200 kílómetra
norðaustur af Kabúl, höf-
uðborg Afganistans en
skæruliðar náðu hernaðar-
lega mikilvægum stöðum í
dalnum á sitt vald í síð-
ustu viku. Sókn Sovét-
manna er studd skriðdrek-
um og orustuþotum. Að
siign vestrænna diplómata.
hafa Sovétmenn ekki mætt
neinni andspyrnu. Skæru-
liðar eru sagðir hafa hörf-
að undan ofureflinu.
Hins vegar hafa skæruliðar
Pech-dalinn á sínu valdi. Að sögn
fransks læknis, sem dvaldist ný-
lega með skæruliðum, náðu þeir
dalnum á sitt vald um miðjan júní
og halda honum enn.
Síldveiðikvóti
í Norðursjó
ákveðinn
Frá Jan Erik Laurie. fréttaritara Mhl.
í OnIó. 8. júli.
ALÞJÓÐA hafrannsóknarráðið
situr nú á fundum i Kaupmanna-
höfn. Ráðið hefur heimiiað veiðar
á 20 þúsund tonnum af Norður-
sjávarsíld. Jafnframt hefur ráðið
heimilað veiðar á 65 þúsund
tonnum af síld vestur af Skot-
landi.
Norðmenn munu um miðjan júlí
hefja viðræður við Efnahags-
bandalag Evrópu um heimild til
síldveiða en síldin sem um ræðir
veiðist í suðurhluta Norðursjávar.
Norðmenn halda því fram að hér
sé um að ræða sameiginlegan
síldarstofn Norðmanna og EBE.
Norðmenn hafa einnig sýnt áhuga
á að veiða síldina vestur af
Skotlandi og er búist við að
samningar takist um gagnkvæmar
veiðar Norðmanna og ríkja EBE.
Carrington lávarður hélt í dag
ræðu á Evrópuþinginu í Stras-
bourg. Hann sagði, að ekki kæmi
til greina að taka upp eðlileg
samskipti við Sovétmenn eftir hin
neikvæðu viðbrögð sovéskra
stjórnvalda við tillögum Efna-
hagsbandalags Evrópu um ráð-
stefnu um Afganistan.
Svíi hefur
verið 37
daga í mót-
mælasvelti
Stukkhólmi. 8. júli. AI>.
SÆNSKI guðfræðistúdent-
inn Bengt Anderson hefur
nú verið í 37 daga mót-
mælasvelti í Ilarlanda-
fangelsinu í Gautaborg.
Anderson afplánar fjög-
urra mánaða fangelsisdóm
fyrir að neita að gegna
herþjónustu og með svelti
sínu vill hann mótmæia
dóminum. Anderson hefur
farið fram á náðun og
sænska ríkisstjórnin mun
fjalla um beiðni hans á
ríkisstjórnarfundi á morg-
un.
Fyrir neitun sinni ber And-
erson við fimmta boðorðinu.
Hann hóf mótmælasvelti dag-
inn sem hann var færður í
fangelsi, þann 2. júní, til að
„undirstrika hve rangt það er
að þjálfa fólk í að drepa," eins
og hann komst að orði við
fréttamann. Anderson var á
sínum tíma boðið að gegna
þjónustu án þess að bera vopn
en hann neitaði á þeim for-
sendum að í raun væri enginn
munur þar á.
Árlega eru um 50 þúsund
Svíar kallaðir í herinn og
nokkur hundruð eru fangelsað-
ir fyrir að neita að gegna
herþjónustu.
Slökkviliðsmenn vinna að
því að slökkva elda í
Manchester, en á neðri
myndinni er stund milli
stríða; löKreglumenn í Liv-
erpool hvílast eftir átök
við unglinga. S(mamynd AIV
Óeirðir berast
til Manchester
Lundúnum. Manchcster, 8. júli. AP.
HUNDRUÐ unglinga, einkum þeldökkir, köstuðu grjóti
og benzínsprengjum að lögreglumönnum í Manchester á
Englandi og þar með höfðu óeirðirnar, sem undanfarið
hafa geisað i Lundúnum og Liverpool, borizt til þriðju
stórborgarinnar á Englandi. Unglingarnir kveiktu í
húsum og rændu verzlanir í Moss-hverfinu í Manchest-
er. Þegar slökkviliðsmenn komu á staðinn, köstuðu
unglingarnir grjóti að þeim og einnig köstuðu þeir
benzínsprengjum að lögreglu.
Að sögn lögreglunnar urðu ekki
alvarieg meiðsli á fólki. James
Anderton, lögreglustjóri Man-
þess að skapa fleiri atvinnutæki-
færi fyrir ungmenni. Sagði að
slíkt hefði aðeins í för með sér
aukið atvinnuleysi og hækkað
verðlag. Ekki stoðaði að prenta
seðla, það væri engin lausn. Vinna
yrði bug á efnahagsvanda lands-
manna hið bráðasta.
Verkíall í hafnar-
borgum Póllands
Varsjé, 8. júli. AP.
HAFNARVERKAMENN í Gdansk, Gdynia, Stettin og Kolobrzeg
efndu I dag til klukkustundarverkfalls til að leggja áherzlu á kröfur
sinar um bætta vinnuaðstöðu, bónusgreiðslur og eftirlaunagreiðslur.
Verkfall hafnarverkamanna hófst eftir að samningaviðræður fóru út
um þúfur i morgun en talsmaður verkamanna sagði, að stjórnvöld
hefðu hafnað málamiðlunartillögu.
Alls tóku um 46 þúsund hafnar-
verkamenn þátt í verkfallinu, sem
er hið fyrsta í Póllandi síðan í
marz síðastliðnum þegar milljónir
Pólverja lögðu niður vinnu til að
mótmæla barsmíðum á þremur
verkamönnum í Bydgoszcz.
í næstu viku hefst þing pólska
kommúnistaflokksins. Búizt er við
að Stanislaw Kania verði endur-
kjörinn flokksleiðtogi. Þá er fast-
lega reiknað með, að þingið muni
leggja blessun sína yfir hinar
margvíslegu félagslegu og efna-
hagslegu umbætur, sem stjórn-
völd hafa samið um við Samstöðu,
hin óháðu verkalýðsfélög í land-
inu.
Embættismenn í Varsjá létu í
ljósi ugg um, að verkföllin kynnu
að styrkja harðlínumenn. Prag-
útvarpið gagnrýndi í dag harðlega
verkfallsmenn og ásakaði verka-
menn um óraunhæfar kröfur. Þá
birti Trybuna Ludu, málgagn
kommúnistaflokksins, greinar í
dag eftir harðlínumenn, sem
gagnrýndu „andsovésk öfl“ í land-
inu og einnig „undanlátssemi
stjórnvalda".
Starfsmenn ríkisflugfélagsins
LOT munu efna til verkfalls á
morgun, fimmtudag. Þeir eiga nú í
deilu við stjórnvöld um skipan
framkvæmdastjóra flugfélagsins.
Starfsmenn samþykktu að mæla
með Bronislaw Klimaszewski sem
framkvæmdastjóra LOT en
stjórnvöld gátu ekki sætt sig við
það og skipuðu tvo hershöfðingja í
embætti framkvæmdastjóra.
chester, sagði að ekki hefði verið
um kynþáttaóeirðir að ræða, held-
ur virtist sem helsta markmið
unglinganna hefði verið að ræna
og eyðileggja.
Þá kom til óeirða í Lundúnum í
nótt, sjötta daginn í röð. Hundruð
unglinga, einkum þeldökkir, fóru
um stræti verzlunarhverfisins
Wood Green í norðurhluta Lund-
úna. Þeir brutu rúður í verzlunum,
köstuðu grjóti og benzínsprengj-
um að lögreglu. Til harðra átaka
kom. Fjórir særðust, einn þeirra
var skorinn á háls, annar stung-
inn, en þrátt fyrir það eru þeir
ekki taldir í lífshættu. Lögreglan
handtók 50 manns.
„Þeir voru kolvitlausir. Þetta
voru engar kynþáttaóeirðir, held-
ur hreint og klárt ofbeldi. Ungl-
ingarnir vilja eyðileggja; vilja
eitthvað æsandi," sagði einn sjón-
arvotta við fréttamann AP.
Margrét Thatcher, forsætisráð-
herra Bretlands, ávarpaði þjóð
sína í kvöld. Hún hvatti foreldra
til að kenna börnum sínum að
virða landsins lög. „Frjálst sam-
félag fær því aðeins staðizt, að
þegnar þess virði lögin. Þess vegna
verður að binda enda á óeirðir í
borgum okkar,“ sagði Thatcher
m.a. Hún sagði, að ekki kæmi til
greina að hækka fjárframlög til
Flýði í
MIG-17
þotu til
S-Afríku
Hoedspruit. 8. júlí. AP.
MÓZAMBÍSKUR orustuflug
maður flýði í dag í MIG-17-
orustuþotu sinni til S-Afríku.
Flugmaðurinn, Adriano
Bomba. lenti flugvél sinni á
Hoedspruit-flugstöðinni i
S-Afríku eítir að tva'r s-afr-
ískar orustuþotur höfðu farið
til móts við hann og vísað
honum leiðina til flugstöðvar-
innar. Bomba hefur beðið um
hæli í S-Afríku sem pólitiskur
flóttamaður.
„Ég flýði til S-Afríku vegna
þess að ég er andvígur stefnu
Frelimo í landi mínu. Ekkert
hefur breyst í Mózambik þau
sex ár sem Frelimo hefur verið
við völd. Þvert á móti; ástandið
fer stöðugt versnandi," sagði
Bomba við fréttamenn.
Mózambísk yfirvöld hafa stað-
fest flótta Bomba.