Morgunblaðið - 09.07.1981, Síða 17

Morgunblaðið - 09.07.1981, Síða 17
MORGUNBLAtgÐ^BUVIMTUDAGUR 9. JULI 1981 17 veita einmitt þróunarhjálp sinni aðallega í gegnum starfsemi kristniboðsins. Einnig bárust fréttir um að formanni skipulags- nefndar þróunarhjálpar í Eþíópíu var sparkað vegna þess að hann tók ekki vel í tilboð frá Þjóðverj- um um aðstoð. Þetta sýnir, að stjórnvöldin vilja og þurfa á aðstoð að halda og þess vegna geta þeir illa amast mjög við kristni- boðunum. Hefur kristniboðum í heild fjölgað eða fækkað eftir bylting- una? — Þeir eru nú færri en þeir voru við upphaf byltingarinnar. Fyrst eftir hana var ástandið ótryggt og Norska lútherska kristniboðssambandið, sem ís- lendingar starfa náið með, ákvað að kalla kristniboða heim, en nú er jafnvel farið að senda nýja kristniboða til Eþíópíu. Hversu lengi verður kristniboða þörf í landinu? Nú hefur innlenda kirkjan starfað í allmörg ár, verður hún alltaf háð aðstoð? Áframhaldandi stuðningur nauðsynlegur — Mekane Yesus-kirkjan er sjálfstæð stofnun í Eþíópíu og hún fær að starfa sem slík. Kristniboð- ið hefur byggt upp starfsemi hennar og hún hefur yfirtekið eignir kristniboðsins, en til þess að reka alla starfsemi kirkjunnar þarf talsvert mikið fé. Landið er fátækt og því held ég að enn verði að koma til stuðningur frá kristni- boðinu um langa hríð. Ég held líka, að kristniboðið sjái frekar en kirkjan þörf þess að hefja starf á nýjum stöðum út um landið og þess vegna hefur kristniboðið enn verk að vinna í Eþíópíu þrátt fyrir að kirkjan sé orðin öflug stofnun. En hvað hefur annað breytzt með tilkomu nýrra stjórnvalda, eru menntamálum og heilsugæzlu- málum betur komið en áður var ? Minnkandi ólæsi — Heilsugæzlan hefur aukist, hún hefur færzt meira út í sveitir en áður var og sennilega nær hún því til fleiri manna og sama má segja um kennsluna, þeir eru fleiri sem njóta hennar nú, en gæðin eru kannski ekki að sama skapi mikil. En ég hef stundum undrazt hversu fljótt yfirvöld ná til fólksins. Þau geta nú komið hvers kyns upplýs- ingum á framfæri og þær ná til þjóðarinnar gegnum blöð og út- varp, enda hefur ólæsi í landinu stórlega minnkað. Kennarar eru nú skyldaðir til að kenna á sumrin og öðrum frítíma sínum og sama má segja um eldri nemendur barnaskóla, þeim er skylt að fara og kenna öðrum að lesa, skrifa og reikna. Þetta má telja lofsvert. Einnig nefnir Jóhannes Ólafs- son að með aukinni lestrarþekk- ingu fólksins gefist meiri tækifæri til að dreifa lesefni. Þess vegna hafi biblíufélögin lagt vaxandi áherzlu á að gefa út biblíuhluta á ýmsum tungumálum þjóðarbrota og hefur staðið yfir mikil vinna við þýðingar á mörg tungumál. Þar hefur m.a. bróðir Jóhannesar, Haraldur, komið við sögu, en á þessum sviðum er kristniboðið á undan öðrum. En hvað segir læknirinn um heilsufar og ástand fólksins og hvaða munur er að starfa sem læknir í Afríkulandi eða á Vestur- löndum? Smitsjúkdómar og hörgulsjúkdómar — Aðalverkefni okkar má telja hvers kyns smitsjúkdóma, en þó hefur það nokkuð breytzt seinustu árin. Með aukinni heilsugæzlu hafa yfirvöldin tekið að sér varnir við smitsjúkdómum og þannig erum við smám saman að snúa okkur að fleiri verkefnum. Hörg- ulsjúkdómar eru einnig mjög al- gengir. Við sjúkrahúsið í Arba Minch starfa 2 læknar og 5 hjúkrunar- konur auk innlendra starfsmanna, sem aðallega eru sjúkraliðar. Starfið gengur þannig fyrir sig að sjúkraliðarnir skoða fólkið í upp- hafi og flýta þannig mjög fyrir, en síðan athugum við hvað gera þarf fyrir sjúklingana. Við höfum 73 sjúkrarúm og þrátt fyrir að sjúkrahúsið sé það bezta á stóru svæði þarna er öll rannsóknarað- staða ófullkomin og þar er munur- inn e.t.v. mestur milli okkar og sjúkrahúsa á Vesturlöndum. Sjúkraskrár eru þó ekki eins ítarlegar, en í aðalatriðum er starfsemi á sjúkrahúsi í Afríku lík starfsemi á hverju öðru sjúkra- húsi. Um sérhæfingu er náttúr- lega ekki að ræða þar sem við erum aðeins tveir og skiptumst við á um vinnu á skurðstofu og við lyflækningar, en hlutfall sjúklinga í hvorum hópi er svipað. En hvernig eru heimamenn í stakk búnir til að taka við þessu verkefni sem kristniboðar hafa sinnt, sjúkrastarfinu? Ákveðin uppfræðsla — Heilbrigðisyfirvöldin taka smám saman við ýmsum og fleiri þáttum þessara mála og segja má að við höfum á þessu sviði gegnt ákveðnu uppfræðsluhlutverki. Nú sjá yfirvöld og almenningur að þörfin er brýn fyrir hvers konar læknishjálp og heilsugæzlu. Við höfum sýnt fram á að hægt er að hjálpa fólki með ýmsa sjúkdóma og lina þjáningar og þannig má segja að við höfum skapað ákveðna þörf eða eftirspurn hjá þjóðinni fyrir læknishjálp. En það verður einnig bið á að þjóðin geti tekið algjörlega við þessu starfi, enda lét heilbrigðisráðherra landsins þau orð falla við fram- kvæmdastjóra norska kristniboðs- ins í Eþíópíu, eftir heimsókn til okkar, að hann óskaði eindregið eftir að- við héldum áfram og fremur jykjum starfið en hitt. Jóhannes ólafsson og fjölskylda hans dvelja hérlendis fram eftir júlímánuði, en þau munu síðan setjast að í Kristiansand í Noregi. Þau dvelja um þessar mundir í Vestmannaeyjum og taka þar þátt í samkomum fimmtudags- og föstudagskvöld. jt hvert er ásigkomulag þeirra o.fl. Að lokum vill Ferðamála- ráð benda á það að á undanförnum árum hefur ráðið lagt fram stórfé, mið- að við fjárhagsgetu þess, til að koma upp hreinlætis- aðstöðu í svokölluðum Völ- undarhúsum víða um landið og hefur orðið af því nokkur bót. Hinsvegar er það áhyggjuefni Ferðamála- ráðs, hve það hefur lítið fé handa á milli til að bæta hreinlætisaðstöðu í óbyggð- um, en það stendur væntan- lega til bóta. Þá vill Ferðamálaráð geta þess að ráðið hefur látið gera kvikmynd til að vekja athygli á betri um- gengni um landið, birt hvatningar í útvarpi og bent á nauðsyn landvernd- ar með auglýsingum á mjólkurfernum auk fjölda auglýsinga í blöðum og tímaritum. Með framangreindum at- hugasemdum vill Ferða- málaráð koma á framfæri við landsmenn þeirri stað- reynd, að það hefur full- komlega staðið að málum eftir því sem fjárhagsgeta hefur leyft hverju sinni og lög segja til um að skuli vera í verkahring þess. „Gengur illa að fá stuðn- ing hins opinbera“ — segir Sturla Einarsson sem er að reisa tilraunahús Sturla Einarsson, bygginga- meistari, hefur ákveöið að hefja byggingu á sérstöku tiirauna- húsi sem er framhald tilrauna hans með „samlokuvegg". Rann- sóknaraðilar ásamt Sturlu eru Rannsóknarstofnun byggingar- iðnaðarins, Húsnæðismáia- stofnun ríkisins. Brunamála- stofnun ríkisins og ýmsir einka- aðilar. Af þessu tilefni átti Mbl. sam- tal við Sturlu og sagði hann að tilraunir væru fyrirhugaðar með stífar steinullarmottur til ein- angrunar í útveggjum í stað plasteinangrunar. Ætlunin væri að nota hitaþolin plaströr, svo- kölluð „pexrör" til notkunar í hitunar- og neysluvatnsiagnir, perslustein til einangrunar í þök og kæmi hann í stað innfluttrar glerullar. Þá sagði Sturla að meiningin væri að nota svokall- aða léttsteypu, þ.e. vikursteypu til steypu í útveggjum og að lokum, nefndi hann, verða notuð sérstök „plastik" og/eða „akryl- blönduð" teygjuþolin yfirborð- sefni til húðunar innan og utan húss, einkum væri það hentugt, sagði Sturla, á léttsteypuna. „Ætlunin er að reyna ýmsa nýja viðkvæma þætti og væri bygging þessa hús því algjör tilraunabygging. Mér hefur gengið illa að kom- ast af stað með bygginguna og hef ég engan styrk frá hinu opinbera fengið. Fyndist mér ekki óeðlilegt að það gerði eitt- hvað þar sem t.d. hitakostnaður i svona húsi yrði miklu minni vegna betri einangrunar. Það eru heimildarákvæði í lögum um Húsnæðismálastofnun ríkisins um að lána fé til tilraunabygg- ingar. En aðeins heimildarákv- æði og því er hætt við, sem er og raunin, að hún lánar ekki neitt. Ég er með bréf frá Iðnaðarráðu- neytinu þar sem mælt er með að fjármagn verði lánað, en það virðist duga skammt þegar „báknið" er annars vegar. Eg fæ að vísu sem og aðrir húsbyggj- endur framkvæmdalán en það dugar ákaflega skammt. Finnst mér það vera lítið til byggingar þegar vitað er að hitakostnaður í þessu húsi verður allt að 30% minni en í venjulegu húsi. Þá verður notað í þetta hús miklu meira af innlendu bygg- ingarefni en tíðkast hefur venju- lega við húsbyggingar hér á landi. Það er að mínu mati, og e.t.v. einhverra fleiri, hagkvæm- ara að skapa atvinnu hér á landi við framleiðslu byggingarefna í stað þess að láta gjaldeyri sem við eigum of litið af í kaup á hlutum sem við getum framleitt sjálfir. Það ætti hver heilvita maður að sjá nema að undan- skildum kerfisköllunum," sagði Sturla Einarsson, bygginga- meistari að lokum. FRÁ CHAMHON USA: sportíatnaöui í miklu úrvali lierra hiisió, 7.145

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.