Morgunblaðið - 09.07.1981, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9.-JÚLÍ 1981_
Kirkja Islands varðveitir
Skálholt — nú sem þá
eftir séra Heimi
Steinsson
Upp er komin lágvær senna en
óvenjuleg. Svo er að sjá sem hún
snúist um eignarhald á Skálholti.
Teflt er fram sögulegum rökum og
tæpt á lagarétti. Enginn fer sér þó
tiltakanlega óðslega, og er það vel.
Upphafi máls veldur Halldór
Laxness. Hann skrifar grein í
Morgunblaðið sunnudaginn 28.
júní og virðist gera kröfu til
Skálholts fyir hönd rómversk-
kaþólsku kirkjunnar. Framhaldið
er m.a. að finna í samtali blaða-
manns og rómversk-kaþólska
biskupsins í Landakoti. Hinn síðar
nefndi tekur í streng með Hall-
dóri, en fer varlega.
Nú er það ekki tiltökumál, þótt
Halldór Laxness skrifi nokkuð við
eigin tón um kirkjuleg efni. Hann
hefur lengi klappað undarlega
steina í þeirri smiðju, enda er
maðurinn skáld og fékk þá veg-
semd staðfesta sér til óbóta fyrir
hartnær þremur áratugum. Raun-
ar tekur hann upp í sunnudags-
grein sinni völur, er liggja við
hvers manns götu og fágar þær
með leyfi að segja litlum mun
hönduglegar en gerist og gengur.
Allt að einu má með góðum vilja
vista ritsmíð hans einhvers staðar
á þeim mörkum gamans og alvöru,
veruleika og hugaróra, sem stund-
um einkenna þokkalegan skáld-
skap.
Hitt er meiri athygli vert, þegar
biskup Rómarkirkjunnar á Islandi
fetar seint og skynsamlega í
fótspor skáldsins og lýsir því yfir,
að ekki sé það „ríkiskirkjan, sem
ætti að vera“ í Skálholti, en
klykkir út með vangaveltu þess
efnis, að nú sé „auðveldara að
leysa þennan vanda með Skálholt"
en löngum fyrr. Hér talar maður,
sem hvorki getur skotið sér bak
við skáldaleyfi né heldur er öld-
ungis einn á ferð. Hann er á kreiki
í umboði voldugustu kirkjudeildar
veraldar. Og þótt hógværlega sé
barið að dyrum, mun merking
þeirra orða, sem eftir biskupi eru
höfð, vera nokkuð ótvíræð.
Ummæli hins rómversk-kaþ-
ólska biskups koma undirrituðum
raunar töluvert á óvart. Satt að
segja var mér ekki kunnugt um
það, að hann og lagsmenn hans
byggju yfir þeim draumi að
heimta Skálholt í eigin hendur. En
nú kemur þessi hugsmíð á loft,
þótt hóglega sé að verkinu unnið.
Punctum saliens
í rauninni er ástæðulaust að
orðlengja um þetta mál. Þó tel ég
óhjákvæmilegt að undirstrika ein-
falda staðreynd: Kirkja íslands í
dag er Þjóðkirkjan. Hennar flokk
fyllir allur þorri landsmanna. Sé
um það að ræða, að íslenzk kirkja
eigi tilkall til staða eða annarra
góðra hluta, hlýtur sú kirkja að
vera Þjóðkirkjan um aðra söfnuði
fram. Með þessu er ekkert mis-
jafnt sagt um rómverska kristni,
Heimir Steinsson
— þaðan af síður um enn aðrar
kirkjudeildir og miður steigurlát-
ar. Hér er einfaldlega höfðað til
ástands mála eins og það er.
Samkvæmt þessu kemur Skál-
holt í hlut íslenzku Þjóðkirkjunn-
ar, — ef það á að vera í höndum
einhverrar kirkju yfirleitt. Sam-
kvæmt þessu var staðurinn og
afhentur Þjóðkirkjunni með lög-
um árið 1963. Þessi tilhögun mála
verður varla véfengd af neinum
þeim, er á annað borð fellst á
löggjafarvald Alþingis og sjálf-
stæði Lýðveldisins íslands.
Eríðir og saga
En hér má fleiru við auka, — og
sjálfsögð sanngirni að varpa ljósi
á aðrar hliðar máls: Það er hverju
orði sannara, að Gissur Isleifsson
afhenti Skálholtsstað þeirri ís-
lenzku kirkju, sem á hans dögum
laut valdi Rómar. Slíkan skóla-
bókalærdóm er raunar óþarft að
taka fram. Öðrum kirkjudeildum
var tæpast til að dreifa á Vestur-
löndum í þann tíma. Það er jafn
satt, að íslenzka miðaldakirkjan
lagði grundvöll þeirrar hámenn-
ingar, sem um allar aldir er
bakfiskurinn í tilveru lands-
manna. Síðast en ekki sízt er það
óvéfengjanlegt, að siðbreyting-
unni var komið í kring á íslandi
með þeim hætti, að tæpast mun
nokkur nútímamaður fást til að
skrifa undir starfsaðferðirnar:
Hrakningar Ögmundar biskups og
morðin í Skálholti 7. nóvember
1550 eru einhverjir myrkustu
skuggarnir í sögu þessa lands.
Eignaupptaka og skefjalaus yfir-
gangur framandi konungsvalds
eru af sama toga spunnin. Ekkert
af þessu verður varið, og mér er
ekki kunnugt um, að íslenzkir
kirkjumenn síðari alda hafi lagt
sig fram við að réttlæta þau
ósköp.
En hitt má þá miklu síður
gleymast, er eftir fór: Blóðug og
beygð rís íslenzk kirkja upp og
réttir við eftir rothögg. Guðbrand-
ur Þorláksson leggur grundvöllinn
að íslenzkri menningu næstu alda.
Hallgrímur Pétursson og meistari
Jón leika á þá hörpu, sem lands-
trúin stillir. Séra Jón Steingríms-
son leiðir fátæka menn um dimm-
an dal. Prestar 19. aldarinnar eru
framarlega í flokki í baráttu fyrir
endurheimt landsréttinda. Séra
Matthías kveður samlöndum sín-
um trú og kjark á þann veg, að
ekki verður betur gert um hríð.
Tuttugasta öldin lítur kirkjuna í
nýrri og lifandi mynd umbreyttra
tíma.
Fleira mætti telja. En skyldu
ekki þessi dæmin nægja til stað-
festingar því, að sú íslenzka Þjóð-
kirkja, sem við nú búum að, er í
senn að sínu leyti handhafi ís-
lenzkrar menningar og viðunandi
fulltrúi landsmanna upp til hópa,
en þar með í öllum efnum löngu
komin í stað þeirrar kirkju, sem
Gissur ísleifsson stýrði og þjón-
aði.
Ef við sleppum hvoru tveggja,
sögulegum skírskotunum og laga-
rétti, en látum trúna eina tala, er
hinn forni helgistaður, Skálholt,
eign Jesú Krists. Kirkja íslands
varðveitti þessa eign á elleftu öld.
Og kirkja Islands varðveitir sömu
eign enn þann dag í dag.
Tímaskokkja
Hefði grein Halldórs Laxness
birzt í Morgunblaðinu þann 8.
nóvember 1550 — fimmtán hundr-
uð og fimmtíu — væri hún orð í
tíma talað. Núna er hún nokkuð
seint á ferð, og ummæli róm-
versk-kaþólska biskupsins í
Landakoti hið sama. Það þarf
meira til að róa vík á kirkju þeirra
Guðbrandar, Hallgríms, meistara
Jóns og Matthíasar en vindhögg
fyrrverandi skáldsnillings eða
frómar óskir fyrirliða lítils safn-
aðar í Reykjavík — þó aldrei nema
hinn síðar nefndi fari með páfa-
legu umboði.
JíeUrJJorkStmeð
Baráttan við blóðþrýstinginn
Minna salt
í matvælum
Ritstjórnargrein
Þegar saltið hverfur
Eftir Karen de Witt
Washington — N.Y.T.
Umræðuefnið var matarsalt,
og vandamálið það, hvort unnt
væri að draga úr saltmagni i
matvæium án boða og banna.
Á undanförnum árum hafa
fulltrúar neytenda, opinberra
aðila og matvælaiðnaðarins
margsinnis deilt um matarsalt
og áhrif þess á háan blóðþrýst-
ing. Nú fyrir skömmu gerðist
það hinsvegar i fyrsta sinn að
starfsmenn matvæia- og lyfja-
ráðuneytis Bandaríkjanna
buðu um 200 fulltrúum mat-
vælaiðnaðarins til viðræðna um
það, hvernig minnka mætti salt-
magnið í matvælum.
„Þegar rætt er um að draga úr
saltmagni í unnum matvælum,
álít ég að iðnaðurinn sé í beztri
aðstöðu til að gera áhrifaríkar
ráðstafanir," sagði Richard S.
Scheiker heilbrigðismálaráð-
herra. „Því það eruð þið, sem
eruð í nánustum tengslum við
eldhúsin." Við opnun ráðstefn-
unnar, sem hann kallaði „sam-
ræður“, sagði Scheiker að 60
milljónir Bandaríkjamanna
þjáðust af of háum blóðþrýst-
ingi, sem gæti leitt til heilablæð-
inga og hjartaáfalla. Hann benti
á að verulega mætti draga úr
blóðþrýstingi með minnkaðri
neyzlu matarsalts.
Samtök neytenda hafa um
langt skeið bent á að sambandið
milli saltneyzlu og of hás blóð-
þrýstings gæfi fulla ástæðu til
aðgerða af hálfu opinberra aðila,
sem ættu að krefjast þess að
saltmagns yrði getið í merkingu
matvæla. Bæði Schweiker og
Arthur B. Hayes, fulltrúi ráðu-
neytisins sem hefur eftirlit með
matvælum, sögðu að þeir vildu
frekar að iðnaðurinn gerði af
sjálfsdáðun ráðstafanir til að
draga úr saltmagninu, í stað
þess að setja einhverjar opinber-
ar reglur í því skyni. Sagði
Schweiker að iðnaðurinn og rík-
isstjórnin ættu að vera „sam-
starfsaðilar, ekki andstæðingar"
í þessu máli. Hayes notaði orðið
„dótturfyrirtæki" um samband-
ið, sem ráðuneytið óskað eftir
við matvælaiðnaðinn til að koma
á merkingu á saltmagni í mat-
vælum. Sagði hann það stefnuna
að fá þann aðilann, sem bezt
væri hæfur til að leysa vandann,
til að gera það.
„Þið, sem vinnið matvælin og
merkið þau, eru í beztri aðstöðu
til að ná þessu merka heilbrigð-
ismarki,“ sagði Hayes, og bætti
því við að matvæli með litlu
saltinnihaldi gæfi “fleiri kosta
völ á markaðnum."
Hayes, sem var forstöðumaður
sérstakrar deilda fyrir blóð-
þrýstingsvandamál við Hershey
læknamiðstöðina í Pennsylvaniu
áður en hann var skipaður í
embætti við ráðuneytið, sagði að
í sínum augum væru minnkun
saltmagns og merkingar á salt-
innihaldi áríðandi mál, þar sem
hann hefði sjálfur unnið með
sjúklingum, sem þyrftu á þess-
konar matvörum að halda.
Nokkrum dögum fyrir þessa
ráðstefnu lögðu tveir af þing-
mönnum demókrata í Fulltrúa-
deildinni, þeir Albert Gore frá
Tennessee og Neal Smith frá
Iowa, fram frumvarp á þingi þar
sem þess er krafizt að matvæla-
framleiðendur geti þess á
merkimiða ef saltmagnið í vör-
unni fer yfir ákveðin takmörk.
Einnig hafði Gore efnt til
tveggja daga könnunarviðræðna
í fyrra mánuði um saltmerking-
ar.
Um 80% allrar unninnar mat-
vöru heyrir undir eftirlit mat-
væla- og lyfjaráðuneytisins.
Fulltrúi landbúnaðarráðuneytis-
ins á viðræðufundinum á dögun-
um, bætti því við að ráðuneyti
hans hefði í hyggju að mæla með
upplýsingamerkingu varðandi
saltmagn þeirra kjötvara, sem
lytu eftirliti landbúnaðarráðu-
neytisins á svipaðan hátt og
matvæla- og lyfjaráðuneytið
væri að undirbúa. Hayes sagði
að hættan á of háum blóðþrýst-
ingi virtist fara vaxandi og
óskaði eftir því að fulltrúar
iðnaðarins létu frá sér heyra.
Spunnust allmiklar umræður
um málið, og margar spurningar
fram bornar, meðal annars um
það hvernig ætti að skilgreina
lítið saltmagn í fæðu, hve langan
tíma iðnaðurinn hefði til að-
gerða, hvort fulllnægjandi sann-
anir væru fyrir sambandi salt-
neyzlu og hás blóðþrýstings, og
hvort saltmerking matvæla
kæmi að nokkru meira gagni en
hættumerkingar á sígarettum.
Fram kom að matvæla- og
lyfjaráðuneytið hefur samið
drög að reglugerð, sem skyldar
framleiðendur til að saltmerkja
vörur sínar, en til að öðlast gildi
þarf reglugerð staðfestingu
stjórnunar- og fjárhagsskrif-
stofu Hvíta hússins.
Daginn sem við lesum um
það að matvæla- og lyf jaráðu-
neytið óski eftir því að ma't-
vælaiðnaðurinn dragi úr
saltnotkun við vinnslu mat-
væla, og skýri frá saltmagni i
fæðu á merkimiðum, snæðum
við hádegisverð með vini
okkar, sem fylgir eindregið
reglum um litla saltnotkun í
mataræði sínu.
„Þegar læknir minn tjáði
mér að ég gæti lækkað blóð-
þrýstinginn með því að skera
niður saltneyzlu," sagði hann
og hellti svolitlu ediki yfir
salatið sitt, „var hálfgerður
vonleysistónn í rödd hans.
Hann veit að flestum finnst
erfitt að minnka saltmagnið
nægilega til að það lækki
blóðþrýstinginn — og það ekki
vegna viljaskorts. „En eftir
svo sem eina viku án salt-
stautsins, saknarðu ekki
bragðsins. Þvert á móti, þú
kemst að raun um að venju-
legur matur bragðast enn bet-
ur en þig grunaði.
Ástæðan fyrir því hve erfitt
það er að minnka saltneyzluna
er sú, að salt er svo víða
ofnotað. Salti er yfirleitt bætt
út í niðursoðið grænmeti —
niðursoðnar súpur eru hrein-
asta hörmung. Gleymið sinn-
epi, tómatsósu og majonesu —
pylsur, niðurskorið álegg og
ostur eru bannvara — pikkles
er banvænt. Kökur, smákökur
og kex senda saltmagnið upp
úr öllu, því bökunarger er
engu betra en borðsalt. Það
fæst ekki einu sinni brauð,
sem er öruggt. „Svo læknirinn
varð undrandi þegar blóð-
þrýstingurinn féll án nokkurr-
ar lyfjatöku, sem getur haft
leiðinlegar hliðarverkanir. Og
ég borða prýðismat."
Lausnin er að framreiða
saltlausan mat, rétt blandað-
an til að draga fram eðlilegt
bragð, og læra að þekkja ýms
krydd og kryddjurtir. Þú verð-
ur að lesa heima bækur, þar
sem skýrt er frá saltmagni og
gefnar upp saltlausar matar-
uppskriftir. Craig Clayborne
hefur fundið aðferðir til að
búa kræsingar úr saltlausum
mat. Og þú verður að leggja
hart að þér — ég baka mitt
eigið brauð og bý til mitt
sinnep. Satt að segja á ég ekki
í neinum vandræðum með að
láta saltið eiga sig — vand-
ræðin eru fyrirhöfnin."
„Og ég á bágt með að skilja
hversvegna ríkisstjórnin ætti
að þurfa að leggja hart að
iðnaðinum til að fá þá til að
draga úr saltmagni og salt-
merkja vörurnar. Eru ekki
miklir markaðsmöguleikar
hjá þeim 50 milljónum, sem
hafa of háan blóðþrýsting?
Sumsstaðar fást matvæli með
litlu saltmagni. En þau eru of
hátt verðlögð, og erfitt að
finna þau. Af hverju geta ekki
þeir, sem gáfu okkur kost á
„Rice-a-roni“ og „Froot Loops"
gefið okkur mat á borð við
það, sem ég verð að malla í
eldhúsinu mínu, og kalla það
sætt spaghetti eða saltlausa
kássu? Hvað hefur orðið um
framtaksandann?"