Morgunblaðið - 09.07.1981, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. JÚLÍ1981
19
Annað mál er svo það, að
rómversk-kaþólskir menn eru án
efa alla daga velkomnir í Skálholt,
— enda veit ég ekki betur en
biskupinn í Landakoti sé hingað
boðinn til opinberrar þátttöku í
hátiðahöldum á kristniboðsári nú
innan fárra vikna. Við það tæki-
færi munu þær taka höndum
saman á helgri jörð, hin evangel-
isk-kaþólska kirkja og systur-
kirkjan rómversk-kaþólska á Is-
landi. En þá er líka rétt, að báðir
aðilar geri sér fullnaðargrein fyrir
því, hvar þeir standa, og virði
undanbragðalaust trúarviðhorf,
erfðir og aðstöðu hvers um sig,
eins og góðum grönnum sæmir.
Umræðugrundvöllur
í síðast greindu tilliti er ástæða
tilað nefna sérstaklega hugtakið
„postullega erfðaröð". Halldór
Laxness skopast að „íslenzkum
mótmælendaklerkum" og beitir til
þess dálítið grautarlegri skírskot-
un til postullegrar erfðaraðar.
Ekki sér biskupinn í Landakoti
ástæðu til að unna trúbræðrum
sínum innan Þjóðkirkjunnar
sannmælis og gera athugasemd
við hnýfilyrði skáldsins. Þó hlýtur
biskup að vita það, sem Laxness
virðist aldrei hafa heyrt: Postulleg
erfðaröð er engin séreign róm-
versk-kaþólskra manna. Margar
aðrar kirkjur búa að henni, og
íslenzka Þjóðkirkjan er í þeirra
hópi.
Postulleg erfðaröð er hins vegar
lögð út á mjög mismunandi vegu.
Við höfum allt aðra skilgreiningu
á þessu fyrirbæri en páfinn í Róm.
Skal ekki tafið við það efni hér, en
á hitt bent, að íslenzkir mótmæl-
endur hafa mér vitanlega ekki
lagt það í vana sinn að skopast að
prestsvígslu Rómarkirkjunnar, —
þótt okkur greini á við hana um
skilning á postullegri erfðaröð.
Veit ég vel, að rómverskir hafa
lengi haft tilhneigingu til að
lítilsvirða eða hafa að engu prests-
vígslur annarra en sjálfra sín, og
þá gjarnan m.a. skírskotað til
þess, að þeirra útlistun á postul-
legri erfðaröð væri ein rétt. Þetta
héldu menn hins vegar, að Róm-
arkirkjan hefði lagt af eftir til-
komu Jóhannesar páfa XXIII og
þings þess, sem hann kom af stað.
Nú gerist Halldór Laxness til þess
að sproksetja íslenzka presta, eins
og umrætt þing aldrei hefði verið
haldið. Honum er vorkunn. Hann
veit ekkert, hvað hann er að segja.
Biskupinn í Landakoti ætti hins
vegar að vita það. Úr því að til
hans var leitað, bar honum að
leiðrétta þá misfellu, sem skopraði
úr penna rómversk-kaþólska
nóbelsverðlaunahafans að
Gljúfrasteini.
Biskupinn í Landakoti ýjar að
ekumeniskum viðræðum. Vilji
rómversk-kaþólskir prestar og
biskupar við okkur tala í alvöru,
ættu þeir að byrja á því að
viðurkenna opinskátt prestdóm
íslenzkra þjóðkirkjumanna, vígsl-
ur allar og hefðir. Sjálfir erum við
þess albúnir að virða erfðaröð
þeirra, — viðurkenna hana sem
þeirra hátt, skilning og atferli.
Við hljótum að krefjast sömu
viðurkenningar á okkar eigin arfi.
Að öðrum kosti sé ég ekki, að um
margt sé að tala.
Hér fyrir utan mætti margt
skemmtilegt skrifa af framan-
greindu tilefni um Kiljan þann, er
forðum tók skírn til rómversk-
kaþólskrar trúar. Hann vitnar í
orð Hamlets: „To be or not to be,
that is the question". Ekki tekst
honum betur en öðrum að þýða
þau orð. En merking málsgreinar-
innar er næsta ljós, — og Kiljan
verður dálítið spaugilegur í því
ljósi. Um það mun ég hins vegar
ekkert skrafa, nema frekara til-
efni gefist til.
Skálholti i júlíbyrjun 1981.
Reykjaskóli:
Ólafur hættir —
Bjami tekur við
Staðarbakka. 7. júli.
REYKJASKÓLI í Hrútafirði á 50
ára starfsafmæli á þessu ári. Sið-
astliðin 25 ár hefur ólafur H.
Kristjánsson verið þar skólastjóri.
Ilann lætur nú af störfum. en við
tekur Bjarni Aðalsteinsson, sem
verið hefur kennari þar i mörg
siðastliðin ár.
í tilefni þess að þau hjón, Ólafur
og Sólveig Kristjánsdóttir, kona
hans, munu nú flytja burt úr héraö-
inu, héldu sýslunefndir Vestur-
Húnavatnssýslu og Strandasýslu
þeim kveðjusamsæti í Reykjaskóla
síðastliðinn sunnudag, 5. júli, þar
sem mættir voru sýslunefndarmenn
úr báðum sýslunum ásamt skóla-
nefnd og nokkrum fleiri gestum.
Auk skólastjórnar hefur Ólafur
gegnt ýmsum fleiri trúnaðarstörf-
um, verið sýslunefndarmaður í tvo
áratugi, verið formaður byggða-
safnsnefndar og fleira.
í skólastjórnartíð hans hefur skól-
inn tekið stórstígum breytingum.
Aðsókn að skólanum hefur oftast
verið miklu meiri en hægt hefur
verið að fullnægja og sýnir það bezt
hvert álit hann hefur sem mennta-
stofnun. Uppbygging á staðnum hef-
ur verið mikil og frágangur og
umgengni í bezta lagi.
Það kom glöggt fram í ræðum
manna í kveðjusamsætinu hve al-
mennra vinsælda þau hjón njóta í
héraðinu og fólk kann vel að meta
framlag þeirra til félags- og menn-
ingarmála. Með bezta þakklæti fyrir
mikið og árangursríkt starf og
árnaðaróskum um gæfuríka framtíð
var þeim hjónum færð bók að gjöf,
er var árituð af sýslunefndar-
mönnum. Veitingar voru framreidd-
ar af Eddu-hótelinu á staðnum.
Benedikt
Jógastöðin Heilsubót kynnir
austrænar alþýðulækningar
Næstkomandi laugardag, eða
þann 11. júli, verður haldin kynning
á austrænum alþýðulækningum i
jógastöðinni Heilsubót við Hátún,
klukkan 9—5.
Kynninguna annast Soffia Karls-
dóttir og Bruce Wilson frá The
Community Health Foundation i
Iondon. En sú stofnun vinnur að
fyrirbyggjandi aðgerðum á heilsu-
sviði og hefur starfað siðan 1977.
Segir í fréttatilkynningu frá að-
standendum kynningarinnar að þó
stofnun þessi sé ung að árum, þá
hefur hún látið mjög til sín taka á
sviði heilsumála. Hún hefur rekið
skólann, The Kushi Institute, til þess
að mæta vaxandi þörf á ráðgjöfum
og kennurum í þessari grein.
Fræði þau sem fjallað verður um á
kynningardegi þessum, hafa breiðst
út á vesturlöndum sem öðrum eins og
segir í fréttatilkynningunni. Eru
þessi fræði kölluð Makrobiotik eða
Macrobiotics á ensku, sem mætti
þýða: „Líf eða tilvera í víðara sam-
hengi, það er að segja, það er ekki
einungis tekið mið af líffræðilegum
grunni, heldur einnig andlegum- fé-
lags- og sálfræðilegum þáttum.“
Þessi fræði, og sá skóli sem kennir
þau, hafa það að markmiði að
sameina vestræna vísindaþekkingu
annars vegar og austræna heimspeki
og hefðbundna læknisfræði hins veg-
ar, sem nota má við vestrænar
aðstæður.
INSTANT ÁLVINNURALLAR
& SMNDECK BURDARPALLAR
Reynist rosalega vel. Léttur í meðförum. Fljótlegt ad
setja upp og taka niður. Reynist mjög vel í notkun.
Ragnar Hafliðason, málarameistari Hafnarfirði:
Öruggur og þægilegur, vegna léttleika auðveldur (
uppsetningu, fyrirferðarlítill I geymslu. Hvereining
aöeins 25 kg. Notkunarstaðir allar húsaviðgerðir stórir
salir. Aukin vinnuafköst um 40—50%.
Allar nánari upplýsingar hjá
RÁLMASON &VALSSON HF.
KLAPPARSTÍC 16 S. 27745