Morgunblaðið - 09.07.1981, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. JÚLÍ 1981
Bangalore:
212 dánir eftir að
drekka eitrað brugg
Nýju Delhi, 8. júM. AP.
í DAG létust 26 til viðbótar af völdum eitraðs heimabruggs sem þeir
höfðu neytt i borginni Bangalore á Suður-Indlandi og hafa þá 212
manns dáið af þessum orsökum. Fréttastofa Indlands sagði að 54
hinna látnu væru konur. Fimmtiu manns liggja á sjúkrahúsum eftir
heimabruggsdrykkju þessa, margir eru sagðir i lífshættu.
Þetta er mesta „heimabruggs- inn sem svaraði milli 600—700
slys“ sem orðið hefur í landinu
síðan í desember 1978, þegar 254
manns létu lífið.
Lögreglan í Bangalore segir að
44 meintir bruggarar hafi verið
teknir höndum fyrir að selja þetta
baneitraða brugg. Tilkynnt var að
aðstandendur hinna látnu myndu
fá í skaðabætur fyrir ástvinamiss-
krónum ísl.
Enda þótt sjaldgæft sé að svo
margir látist eftir heimabruggs-
drykkju er það algengara en ekki
að fólk deyi af þessum sökum.
Vínneyzla Indverja er ekki vel séð
og margir leita því á náðir brugg-
ara til að útvega sér vökvun.
Noregur:
Patty Butler, 24 ára gömul stúlka í Kaliforníu, sést hér fljúga um loftin blá í
svifdreka sínum og með kött sinn Krúsipús í sérstökum útbúnaði á bakinu.
Krúsipús og Patty eru óaðskiljanleg, því að Patty tekur köttinn yfirleitt með sér
í vinnuna. En samt finnst henni skemmtilegast þegar þær vinkonur fara að fljúga
saman.
O’Connor fyrsti bandaríski
kvenhæstaréttardómarinn
WashinKton. 8. júlí. AP.
ÞINGMENN beggja bandarísku
stjórnmálaflokkanna fögnuðu á
miðvikudag ákvörðun Ronald Re-
agans, Bandaríkjaforseta, að út-
nefna Söndru D. O'Connor i sæti
Stewart Potters, hæstaréttardóm-
ara. sem sagði af sér embætti á
föstudag. Öldungadeild þingsins
mun væntanlega samþykkja emb-
ættisveitinguna möglunarlaust,
þegar hún kemur fyrir þingið i
september.
Siðgæðispostular og hreyfingar
á móti fóstureyðingum gagnrýndu
útnefninguna og sögðust ætia að
berjast gegn því, að O’Connor tæki
sæti í hæstarétti. O’Connor vildi
ekki svara spurningum varðandi
fóstureyðingar á blaðamanna-
fundi, sem hún hélt að heimili
sínu í Phönix, Arizona, á þriðju-
dag. Larry Speakes, talsmaður
forseta, sagði, að hún væri líklega
á móti fóstureyðingum og Reagan
sagði, að hann væri sáttur við
skoðanir hennar á málinu.
O’Connors verður væntanlega
fyrsta konan til að taka sæti í
hæstarétti Bandaríkjanna. Þeir,
sem hafa kynnt sér starf hennar i
Arizona, segja, að hún sé íhalds-
söm í efnahagsmálum og ákveðin
varðandi afbrotamál.
Hert eftirlit með
fyrirtækjum erlendis
Osló 8. júlí.
Frá fréttaritara Mbl. J.E. Laurie
NORSK skattyfirvöld munu nú herða eftirlit með norskum fyrirtækj-
um sem reka starfsemi og eiga eignir erlendis. Ástæðan fyrir þessu nú
er mikið skattsvikamál sem komizt hefur upp i Noregi. Einn þekktasti
athafnamaður Noregs, Trygve Brudevold, var handtekinn í gær
grunaður um að hafa dregið stórar fúlgur undan skatti.
Brudevold er í þessar mundir færa á byggingarframkvæmd-
að byggja mörg hundruð íbúðir á
Lanzarote sem er ein Kanarí-
eyja, þ.e. 130 raðhúsaíbúðir, 19
lúxuseinbýlishús, veitingahús,
tennisvelli ofl.
Síðustu ár er talið
að Brudevold hafi greitt sem
svarar 5,6 miljónum norskra
króna of lítið í skatt, með því að
irnar tilbúna kostnaðarliði.
Það er norska ríkisstjórnin
sem hefur falið réttum yfirvöld-
um að kanna þetta mál í víðara
samhengi og leikur grunur á að
sama muni koma í ljós hjá fleiri
fyrirtækjum sem hafa starfs-
semi sína að meginhluta til utan
Noregs.
Sovétmenn ásaka Jap-
ani um fiskveiðibrot
Sandra D. O’Connor
Túkió. 8. júlí. AP.
SOVÉTMENN staðhæfa að 27
japanskir bátar, sem eru á lax-
veiðum, hafi stundað veiðar á
miðum, þar sem siikar veiðar eru
þeim bannaðar, suðaustur af
Kamchatka, að þvi er japanska
sjávarútvegsráðuneytið greindi
frá. Var sagt að Sovétmcnn segð-
ust hafa i fórum sínum myndir
sem sýndu að japönsku bátarnir
væru að veiðum á bannsvæðinu
þann 3. júlí. Aðrar upplýsingar
voru ekki gefnar í orðsendingu
ráðuneytisins.
Kyodo-fréttastofan japanska
sagði að Sovétmenn héldu því
fram að japanskir sjómenn hafi
greitt Sovétmönnum gífurlegar
upphæðir í bætur fyrir að hafa
verið að ólögmætum veiðum þarna
fyrr en tekið fram að enn hefði
ekki verið krafizt greiðslna fyrir
meint fiskveiðibrot nú.
Ferðamenn
slasast
LarisKa. (irikklandi. 7.júli. AP.
FÓLKSFLUTNINGABÍL með 29
erlendum ferðamönnum lenti í
árekstri við stóran vöruflutn-
ingabíl skammt frá Larissa í
Mið-Grikklandi í dag og slösuðust
allir sem í farþegavagninum
voru. Ixjgreglan sagði að þar á
meðal hefðu verið ellefu Hollend-
ingar, átta Frakkar, tveir Banda-
ríkjamenn og tveir Bretar. Voru
allir fluttir í sjúkrahús og hefur
ekki verið skýrt nánar frá slys-
inu, en enginn mun þó lífshættu-
lega slasaður. Við áreksturinn
skall bíllinn út af veginum og valt
ofan í á.
Bíllinn var á leið frá París til
Aþenu.
Gullverð komið
niður f yrir $400
GULLVERÐ heíur sigið mjög hratt á undanförnum
vikum og hraðar en það hefur gert síðan í nóvember.
I»að hrapaði um 36 dollara síðustu vikuna í júni og var
únsan á 425,50 dollara 1. júlí. Nú er gullúnsan komin
niður fyrir 400 dollara í fyrsta sinn í 19 mánuði, en
kaupsýslumenn telja, að verðið muni ekki hrapa öllu
neðar úr þessu. Gullverð hefur ekki verið eins lágt í
London síðan seinni hiuta árs 1979. Svona langvarandi
verðfall á gulli átti sér síðast stað á árunum 1975—76.
Þá lækkaði verðið stöðugt í 20 mánuði og það liðu tvö
ár, áður en gull var komið í sitt gamla verðgildi á
nýjan leik.
væntanlega standa eitthvað enn.
Dollarinn sjálfur hefur einnig
staðið traustum fótum undan-
farið og gull þurft að láta í
minni pokann fyrir honum.
Gullsmiðir og iðnfyrirtæki,
sem nota mikið gull í fram-
leiðslu, drógu mikið úr notkun
þess, þegar gullverð rauk upp úr
öllu valdi fyrir 18 mánuðum.
Gull, sem gefur ekkert af sér,
getur ekki keppt við himinháa
vexti í Bandaríkjunum. Kaup-
sýslumenn geta nú fengið 10%
ágóða með því að leika sér með
peningana á gjaldeyrismörkuð-
um eða með því að kaupa
verðbréf í Bandaríkjunum, þrátt
fyrir verðbólguna þar. Þessi
samkeppni gulls við vexti mun
Eftirspurn þeirra virðist ekki
ætla að aukast á næstunni þrátt
fyrir verðfallið. ítalir, sem fram-
leiða meira af skartgripum en
nokkur önnur þjóð, minnkuðu
framleiðslu sína um meira en
helming á árinu 1980, og hún
hefur ekki aukist neitt á síðustu
mánuðum.
Þeir, sem fara verst út úr
verðhrapinu, virðast vera seðla-
bankar heimsins og Rússar.
Rússar seldu í fyrra 90 tonn af
gulli, og allt bendir til, að þeir
þurfi að selja enn meira í ár til
að standa undir innflutningi
sínum á korni frá Vesturlöndum.
Það eru helst ríku olíuþjóðirnar,
sem nú kaupa gull. Áhugi þeirra
á málminum minnkar ekki þótt
verðið sé ótryggt og þær kunni
að tapa á viðskiptunum.
Ilpimildir AP og EconomÍNt.
Aþena:
Leitað
brennuvarga
Aþenu. 8. júlí. AP.
GRÍSKA lögreglan leitar nú dyr-
um og dyngjum að brcnnuvörg-
um, sem undanfarið hafa leikið
lausum hala i Aþenu og Pireus og
kveikt i stórverzlunum og hótel-
um og valdið hinu mesta eigna-
tjóni. Hringt var i dagblað i
Aþenu i dag og sagt að samtökin
„Ungmennaherdeildin" stæðu
fyrir þessum aðgerðum.
I dag kveiktu þessir aðilar í
tveimur verzlunum og nam eigna-
tjón um 600 milljónum dollara.
Brennuvargar þessir hafa verið
á stjái öðru hverju síðan í desem-
ber, en þá skildu þeir eftir eld-
sprengjur sem stilltar voru þannig
að þær sprungu að næturlagi
þegar engir voru í verzlununum.
Andreas Papandreu, leiðtogi
stjórnarandstöðunnar, gagnrýndi
stjórnvöld í dag harðlega og sagði
þau gersamlega óhæf um að halda
uppi lögum og reglu í landinu.
Sumir telja að með ræðu Pap-
andreu í dag, sem var óvenju
hvassyrt, hafi kosningabaráttan í
landinu raunverulega hafizt en
kosningar verða í Grikklandi í
haust og er búizt við mikilli
fylgisaukningu PASOKS, flokks
Papandreu.