Morgunblaðið - 09.07.1981, Page 23

Morgunblaðið - 09.07.1981, Page 23
MORGUNBLAÐjÐ, FIMMTUDAGUR 9. JÚLÍ1981 23 Pólitísk réttarhöld í frétt- um í fyrsta sinn í Póllandi FJÖLMIÐLAR í Póllandi Kreina þessa dagana itarlega írá réttar- höldum, sem hófust 15. júni <>k standa enn, yfir Leszek Moczulski. formanni Samtaka um óháð Pól- land (KPN). oj? þremur flokks- bra'ðrum hans. Þeir sátu í varð- haldi svo mánuðum skipti. áður en mál þeirra var tekið fyrir dóm- stólana. en var sleppt 10 dóKum. áður en réttarholdin hófust. Áheyrendapallar í dómsalnum eru ávallt fullskipaðir fólki. en litill áhuKÍ virðist þó vera meðal al- menninKs á Kótum úti. á máli fjórmenninKanna. Moczulski hefur einn svarað spurningum saksóknara hingað til. Hann er sagnfræðingur og fyrrver- andi blaðamaður. Hann var hand- tekinn ásamt félögum sínum síð- astliðið haust, eftir að hann sagði í viðtali við þýzka tímaritið Der Spiegel, að sá dagur kynni að renna upp, að Pólland segði sig úr Var- sjárbandalaginu. Hann gagnrýndi einnig forystu pólska kommúnista- flokksins í viðtalinu Samtökin um óháð Pólland eiga sér fremur fáa fylgismenn, en þeir eru duglegir að mæta í réttarsaln- um. Þegar saksóknari vitnaði í orð Moczulski um pólska leiðtoga og sagði: „Þeir eru hvorki pólskir né leiðtogar," brutust mikil fagnaðar- læti út í salnum. Það var ekki, fyrr en dómarinn hótaði að hreinsa salinn, að áheyrendur þögnuðu og hættu klappinu. Verkföll í Póllandi í fyrra komu því til leiðar, að yfirheyrslur í dómsmálum eru nú opnar almenn- ingi. Áður fóru þær fram fyrir luktum dyrum og lítið sagt frá þeim í fjölmiðlum. Samstaða, sam- tök sjálfstæðra verkalýðsfélaga, studdi kröfur Samtakanna um, að fjórmenningarnir yrðu látnir lausir í vor. Þó var þess vandlega gætt að taka fram, að Samstaða styður ekki stefnumál Samtakanna. Stúdentar fóru í miklar mót- mælagöngur í vor vegna fangavist- ar fjórmenninganna og 26 meðlimir í Samstöðu fóru í mótmælasvelti víðsvegar um Pólland. Þegar fjór- menningarnir voru loks látnir laus- ir 5. júní, sagði Mieczyslaw Rak- owski, aðstoðarforsætisráðherra, sem þykir heldur frjálslyndur, að þeir hefðu verið látnir lausir eftir að „ótrúlega stór“ herferð var farin fyrir þeirra málstað og nú væru þeir frjálsir til að flækjast um landið og rægja „hugsjónir komm- únista og Sovétmanna". Andófsmennirnir fjórir i réttarsalnum í Varsjá. Þeir eru talið frá vinstri: Leszek Moczulski, Roman Szeremietiew, Tadeusz Stanski og Tadeusz Jandziszak. Þeir eru ákærðir fyrir undirróðursstarfsemi gegn ríkinu. Óeirðir á N. írlandi á hæla láts McDonnells Holíast. 8. júlí. AP. JOE McDonnell, írski hermd- arverkamaðurinn, sem var i mót- mælasvelti í 61 dag, lést á mið- vikudagsmorgunn. Ilann er fimmti írski lýðveldissinninn, sem deyr í hungurverkfalli i Norður írlandi á fjórum mánuð- um. McDonnell var 30 ára. Ilann sat í 14 ára fangelsi fyrir að hafa skotvopn undir höndum. Miklar óeirðir brutust út í Belfast og Londonderry, þegar fréttir af láti McDonnells spurð- ust út. Einn unglingur lést í átökunum og sex slösuðust. Kaþ- ólskar konur gengu um götur Belfast, blésu í flautur og börðu á sorptunnulok, en það hefur löng- um verið merki um hættu sem steðjar að mönnum þeirra. Bresk- ar hersveitir skutu á vörubíl fullan af mönnum og unglingum, sem höfðu ráðist að hermönnum og varpað á þá bensínsprengju. Breska stjórnin sagði sjö hermdarverkamönnum, sem eru enn í mótmælasvelti í Maze- fangelsinu, að hún gæti ekki gengið að skilmálum þeirra nema þeir hættu aðgerðunum. Talsmað- ur stjórnarinnar sagði, að McDonnell hefði framið sjálfs- morð með því að neyta hvorki votts né þurrs. Talsmaður Sinn Fein-arms, írska lýðveldishersins, sagði hins vegar, að breska ríkis- stjórnin hefði myrt McDonnell, af því að hann neitaði að afsala réttindum sínum sem írskur lýð- veldisþegn. Veður víða um heim Akureyri 7 alskýjað Amsterdam 24 heiöskírt Aþena 29 heiöskirt Barcelona 28 heiöskirt Berlín 28 heiöskírt Brússel 30 heiöskírt Chicago 34 heiöskirt Denpasar 29 rigning Dublin 19 skýjaö Feneyjar 27 lóttskýjað Frankfurt 26 heiöskírt Fasreyjar 9 súld Genf 26 heiöskírt Helsinki vsntar Hong Kong 30 heiöskirt Jerúsalem 28 heiöskirt Jóhannesarborg 17 þoka Kairó vantar Kaupmannahöfn 22 heiöskirt Las Palmas 24 skýjaö Lissabon 25 heiöskirt London 26 skýjaö Los Angeles 32 heiðskírt Madrid 34 heíöskírt Malaga 25 skýjaö Mallorka 31 hálfskýjað Mexicoborg 22 heiðakírt Miami 30 skýjaö Moskva 27 heiðskfrt Nýja Dehll 36 skýjaö New York 35 heiöskírt Osló 20 skýjaö París 28 heiöskirt Perth 19 heiöskfrt Reykjavik 13 skýjaö Rió de Janeiro 22 heiöskirt Rómaborg 31 heiöskirt San Francisco 24 heiöskfrt Stokkhólmur 22 heiðskfrt Sydney 17 heiöskirt Tel Aviv 28 heiöskfrt Tókýó 31 heiöskfrt Vancouver 19 heiöskfrt Vínarborg 26 skýjaö Begin hættir næst Tel Avlv. 8. júlí. AP. MENACHEM Begin. forsætisráð- herra ísraels. sagði i dag að hann hefði i hyggju að láta af émbætti. eftir að hann hefði myndað nýja ríkisstjórn og setið út næsta kjörtímabil. Sagði Begin þetta í viðtali við hlaðið Yedioth Zahron- oth í dag. Tíðindi þessi koma ekki á óvart, enda er Begin nærri sjötugu og hefur lengi verið veill fyrir hjarta. Begin sagðist vera sannfærður um að sá leiðtogi sem Likud veldi eftirmann sinn myndi leiða bandalagið til sigurs þriðja sinni. Hann gaf ekki í skyn hvort einhver ákveðinn kandidat væri að koma fram á sjónarsviðið sem væntanlegur arftaki hans. Þá segir í fréttum frá Tel Aviv í dag að Begin hafi ákveðið að láta sem vind um eyru þjóta mikla andstöðu innan Likud og skipa Ariel Sharon næsta varnarmála- ráðherra í ríkisstjórn þeirri sem hann myndar að líkindum næstu daga. Sharon hefur sl. tvö ár sótt fast að fá að gegna þessu embætti, en það telst næst valdamesta ráðherraembættið á eftir forsæt- isráðherrastarfinu. Begin hefur sjálfur gegnt embætti varnar- málaráðherra síðan Ezer Weiz- man sagði af sér fyrir 14 mánuð- um vegna ágreinings við Begin. Sharon er 53 ára og hann stjórnaði hersveitum ísraela sem fóru yfir Súez-skurð 1973 og inn í Egyptaland og framganga hans og manna hans skipti að mörgu leyti sköpum í stríðinu. Sharon er mjög afdráttarlaus harðlínumaður og að margra dómi ekki líklegur til að verða samningslipur við Araba. Frændi Carters enn í klandri Chico. Kalifornía. 7. júlí. AP. WILLIAM Carter Spann, syst- ursonur Carters fyrrverandi Bandaríkjaforseta, hefur verið fangelsaður meðan rannsakað er þjófnaðarmál sem hann er talinn aðili að. Spann lýsti sjálfum sér fyrir nokkrum árum sem „svarta sauðnum“ í Carter-fjölskyldunni, enda hef- ur hann átt í útistöðum við lögin í meira en áratug og hvað eftir annað fcngið dóma. Að þessu sinni var Spann hand- tekinn ásamt konu sinni er þau voru að forða sér í fáti eftir að brotizt hafði verið inn í hús sem þau voru í, og ýmsum verðmætum stolið. Isabel Peron til Spánar Bucnos Aircs. 8. júlí. AP. ISABEL Peron, fyrrverandi for- seti Argentínu sem var á dögun- um látin laus úr stofufangelsi sem hún hefur mátt dúsa í siðustu fimm ár, mun hafa i hyggju að flytja búferlum til Spánar og mun hafa pantað flugmiða og viljað komast á brott hið fyrsta. Ilefur hún í hyggju að fara með Iberia til Madrid. á fimmtudagskvöld. Ásamt henni hafa átta manns aðrir pantað far með sömu vél, þar á meðal er lögfræðingur hennar, Julio Arriola. Um hríð hafði verið búizt við því að hún yrði ekki látin laus og þaðan af síður að hún færi úr landi, en annar lögfræðingur hennar sagði í dag, að það væri aðeins formsatriði fyrir hana að fá brottfararleyfi. Hert varsla við lancja- mæri Tyrklands og Irans 70 frambjóðendur ti Bclrut. 8. júlí. AP. í FRÉTTUM frá Teheran í kvöld sagði að íranir hefðu stórlega eflt landamæravörzlu við austur- landamærin sem liggja að Tyrk- landi til að koma i veg fyrir að Bani Sadr, fyrrverandi forseti, komist úr landi. Það var talsmað- ur islömsku byltingarlögreglunn- ar, sem kunngerði þetta í dag. Ilann sagði að stjórnvöld teldu sig hafa örugga vissu fyrir því að fréttir um að Bani Sadr leyndist i Kúrdistan væru réttar. Talsmað- urinn minnti á að Bani Sadr hcfði haft tengsl við Rahman forseta? Ghassemlou. leiðtoga lýðræðis- flokks Kúrda. sem er bannaður. og Massoud Rajavi, sem er for- svarsmaður marxistasamtak- anna Mujahedeen Khalq. Tals- maðurinn sagði einnig að stuðn- ingsmenn Bani Sadr væru farnir að hafa hægar um sig en áður, vegna þess þeir gerðu sér ljóst að fólk myndi drepa þá hvar sem til þeirra næðist. Sagði hann að dómstólar hefðu sætt nokkurri gagnrýni fyrir þá linkind og ga'zku sem stuðningsmönnum Bani Sadr hefði vcrið sýnd að undanförnu. Nýskipaður utanríkisráðherra írans, Mir Hussein Musavi, sagði í viðtali við útvarpið í dag að hann myndi leggja sig alian fram við að treysta bræðrabönd við Asíuþjóð- ir og múhameðstrúarlönd og láta samskipti við Vesturlönd sitja á hakanum ef svo æxlaðist. Þær fréttir bárust frá innanrík- isráðuneyti írans í dag að um sjötíu manns hygðust bjóða sig fram í forsetakosningunum nú 24. júlí. Fyrr í dag var vitað að 40 manns hefðu tilkynnt framboð sitt. Nú mun byltingarráðið kanna þessi framboð áður en ljóst verður hvort stjórnvöld leggja blessun sína yfir þau.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.