Morgunblaðið - 09.07.1981, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 09.07.1981, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. JÚLÍ1981 29 smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar Pennavinir um allan heim, sendiö mynd, aldur, kyn, stööu áhugamál til: Rainbow Ridge Advertising Ag- ency, Box 1021, Honokaa, Ha- waii, 96727m USA. Ljósrítun — fjölritun Fljót afgreiösla Bílastæöi. Ljós- fell, Skipholfi 31, sími 27210. Dyrasímaþjónustan sími 43517 Uppsetning og viögeröir. 2ja herb. íbúð til leigu í vesturbænum. Uppl. og tilboö sendist augld. Mbl. merkt: .íbúö — 6330". Keflavík Til sölu 2ja hæöa einbýlishús í mjög góöu ástandi viö Lyngholt, ásamt bílskúr. Skipti á nýlegri 3ja herb. íbúö koma til greina. Vogar 3ja herb vönduö risíbúö ásamt bílskúr. Allt sér m.a. lóö. .Fasteignasalan Hafnargötu 27, Keflavík sími 1420. fHúsnæói ; óskast Húsnœöi óskast Rólyndur og reglusamur maöur á fimmtugsaldri í góöu starfi, óskar eftir herbergi eöa einstakl- ingsíbúö í Reykjavík. Uppl. ( síma 84756 á kvöldin. FERÐAFÉLAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU 3 SÍMAR1179S og 19533. Óska eftir aö kaupa kýr. Stefán Tryggvason, Skrauthól- um, Kjalarnesi, simi 66029. Helgarferöir 10.—12. júlí 1. Þórsmörk. Gist í húsi. 2. Landmannalaugar. Gist í húsi. 3. Hveravellir — Þjófadalir. Gist í húsi. 4. Þverbrekknamúli — Hrútfell (gönguferö). Gist í húsum. Allar upplýsingar og farmiöasala á skrifstofunni, Öldugötu 3. Feröafélag íslands Fíladelfía Guöspjónusta meö Rolf Karlson. Byrjar kl. 20.00. Hjálprœöisherinn General Arnald Brown talar ( Neskirkju fimmtudag og föstu- dag kl. 20.30. Kommandör Sol Haug og frú og Brigader Óskar Jónsson ásamt fleiri foringjum og hermönnum taka þátt í samkomunum. Mikill söngur og hljóöfærasláttur. Allir velkomnir. NLFR Grasferöir veröa farnar þ. 12. og 19. júlí. Þátttökutilk. í síma 16371. NLFR. Ljósaborg hf. er flutt aö Laugavegi 168, Brautar- holtsmegin. Ljósprentun — fjöl- ritun. Sími 28844. i.f). UTIVISTARFERÐIR Um næstu helgi Þórsmörk; gist (skála. Eiríksjökull; tjaldgisting. Eiríksjökull — Reykjavatn — Hveravellir; 6 dagar Grænland; vikuferö 16. júlí. Sviss; vikuferð 18. júlí. Hornstrandir; 3 feröir. Upplýsingar og farseölar á skrifstofunni, Lækjargötu 6A, sími 14606. Útivist Al't.l.VslN'i.ASIMINN KR: 22480 QjáJ JHerjjimblatiit) raðauglýsingar — raðauglýsingar — raöauglýsingar tilkynningar Grímseyjarferdir Drangs Föstudaga frá Akureyri kl. 15, til baka frá Grímsey kl. 12, laugardaga. Þriðjudaga frá Akureyri kl. 08, til baka frá Grímsey kl. 18 sama dag. Flóabáturinn Drangur. Hestur tapaðist Rauður hestur tapaðist úr Hafnarfiröi, 6 vetra gamall. Mark: lögg aftan hægra, fjöður framan, lögg aftan vinstra. Uppl. veittar hjá lögreglunni í Hafnarfirði og í síma 52951 og 44201. Handhafar lóðaloforða Bæjarráð Kópavogs óskar eftir að þeir aðilar sem hafa samningsbundin loforð um bygg- ingarlóðir í Kópavogi, leggi fram gögn þar um, eigi síöar en 24. júlí 1981. Bæjarstjórinn. Heimdellingar Viöverutími stjórnarmanna: Gunnar Þorsteinsson og Sverrir Jónsson veröa tll viötals viö ungt sjálfstæöisfólk í dag kl. 17—19 á skrifstofu Heimdallar í Valhöll. Síminn er 82098. Aðalfundur sjálfstæðis- félags Skagafjarðarsýslu veröur haldinn ( Sæborg Sauöárkcóki mánudaginn 13. júlí kl. 9 síðdegis. Dagskrá: 1. Venjuleg aöalfundarstörf. 2. Lagabreytingar. 3. Önnur mál. Félagar eru hvattir til aö mæta vel og stundvíslega. .... . Atvinnumálastefnan 1. fundur nefndar SUS um atvinnumálastefn- una til undirbúnings SUS-þings veröur hald- inn fimmtudaginn í dag kl. 17.30. Stjórnandi Jón Ormur Halldórsson. Stóru EF-in í umferðarmálum Eftir Svein ólafsson Ekki get ég látið hjá líða að flytja þakkir til Ólafs Guð- mundssonar fv. lögreglumanns fyrir athugasemdir hans og ábendingar í Morgunblaðinu hinn 23. júní um reiðhjólaakstur á gangstéttum sem nýverið hefir verið heimilaður með breytingum á umferðarlögum. Ég get ekki annað en tekið undir það sem hann segir þar um áhyggjur sínar í þessu efni. Ég verð að segja eins og hann, að mér finnst verða að setja stórt EF við það að þroski hjólreiðamanna sé slíkur að þeim megi treysta til að fara svo með gát í þessum efnum að þeir ekki gangi á rétt gangandi vegfarenda og skapi þar með hættu fyrir þá sem gæti orðið afdrifarík. — Tillitssemin er nú heldur ekki upp á svo marga fiska í umferðinni hér að manni gæti dottið allt í hug í því efni. — Reiðhjól eru ómerkt, og ef einhver fyrir beinan ruddaskap brýtur af sér, hvernig er þá hægt að koma yfir hann ábyrgð að lögum? — Ekki færi sá hinn sami væntan- lega að segja manni til nafns og heimilisfangs, eða finnst mönnum það líklegt? — Nei, það verður þá óhjákvæmilegt að skrásetja reið- hjól og hafa merkingar á númer- inu það greinilegar að auðvelt sé að „taka numerið" og kæra við- komandi. — Þetta er ekki hægt í dag. — Ég minnist nú í síðustu viku lítils dæmis sem því miður er alls ekki einsdæmi. Ég var að aka niður Laugaveg við Barónstíg. Þar voru tveir menn á hjóli og hjóluðu hlið við hlið og tepptu umferðina en fóru sér hægt. — Ég snerti flautuna til að gera þeim ljóst að þeir ættu að hafa annan akst- ursmáta, en það var bara litið á mann með furðusvip og engu breytt: þeir áttu veginn yjreinilega hreint alveg einir. — Ég veit að sönnu ekki hvort hér var um að kenna vankunnáttu, eða bara hreinni stífni, en á allri hegðun mátti þó frekar láta sér til hugar koma að fremur hefði hið síðara ráðið en hitt. Ef þessu er nú á þennan veg farið, hvernig ætli þetta verði þegar allir geta hjólað um gang- stéttir og farið að eigin geðþótta? Hvernig ætli verði hægt að hafa áhrif á þá, ef þeir bara „gefa nánast náunganum langt nef“? — Þeim væri auðvelt að gera slíkt, EF ekki er hægt með neinum Sveinn ólafsson hætti að auðkenna þá og koma yfir þá aga eða lögum, — þótt enginn óski slíks — vegna leiðind- anna og fyrirhafnarinnar. En svo getur keyrt um þverbak frekjan að fólki verði ekki annað fært, — því ákvæði um að gæta tillitssemi og varkárni stoði lítið. Það er augljóst mál, að skilyrð- islaus leyfi til að aka um gang- stéttir án skrásetningarnúmera til auðkenningar býður upp á þá hættu að óskammfeilnir hjólreiða- menn fari sínu fram og komist hömlulaust upp með hvað eina. Slíkt getur orðið alvarlegra vandamál en menn e.t.v. grunar í fljótu bragði, og ber því að víta það hugsunarleysi stjórnvalda, sem felst í þeirri fljótræðislegu og á margan hátt óyfirveguðu úr- lausn — ef úrlausn skyldi kalla — að leyfa hjólreiðar á gangstéttum, — nema með víðtækum varúðar- ráðstöfunum og ströngum skilyrð- um. Virðist hér hafa verið hrapað að úrlausn vandamáls, sem að vísu krefst aðgerða, en ljóst er að stundum er betra að flýta sér ekki um of. — Það er einnig ljóst að pláss fyrir reiðhjól í umferðinni hefir gleymst á undanfarinni hálfri öld. Þar er hinsvegar greini- lega um að kenna einnig íslenzku veðurfari þetta langa tímabil. — Hér hefir nánast vart verið hjól- reiðafært nema með höppum og glöppum allan þennan langa tíma, en við breytingar, sem á fáum árum hafa orðið á veðri hér, er þetta orðið allt annað. Og ekki hefir staðið á að reiðhjólin kæmi í tísku í þúsunda- og aftur þúsunda- tali. — Veðurfar á Suðvesturlandi var sífelld rokþemba þetta tíma- bil, og þótt breyting sé í bili, veit enginn hvað lengi það helzt. — Því er gleymskan nokkur vorkunn. Málið þurfti samt að leysa, en þessi lausn, að hleypa þessari umferð upp á gangstéttir, er vægast sagt varhugaverð og mikið áhyggjuefni. Þá er það og mikið áhyggjuefni að smábörnum eru nú gefin reiðhjól að því er virðist, af algjöru fyrirhyggjuleysi, og skap- ar þetta mikla hættu í umferðinni, sér í lagi. — Er undarlegt að yfirvöld og lögregla skuli ekki hafa sett skorður við svo hættu- legum hlutum, og er þetta eitt dæmi um andvaraleysi um öryggi í umferð, sem er vart skiljanlegt. Þetta ber að átelja um leið og vonandi er, að þarna verði tekið raunhæft og af fyrirhyggju á hlutunum til að afstýra sorglegum óhöppum, sem af þessu geta orsakast. — Þessi litlu börn sjást oft á fjölförnum götum og jafnvel stórum umferðaræðum gerandi kúnstir eins og að hjóla með hendur af stýri, og gera sér greinilega engan veginn ljóst að ekki þarf nema lítið útaf að bera svo illa fari, t.d. ef þau detta, sem hendir. . Því er þetta ekki tekið til meðferðar, t.d. í útvarpi og sjón- varpi auk þess sem gengið er eftir að reglum um umferð í þessu sé hlýtt og að nákvæm ákvæði verði sett um skynsamlegan lágmarks- aldur barna, sem mega vera á reiðhjólum á götum úti? — Ástæðan virðist ærin eins og Ólafur vekur athygli á, — og spyr sá sem ekki veit. Hér virðist yfrin ástæða fyrir lögreglu og umferðarnefndir til að skoða málin vandlega áðuren lengra er komið, því enn er eftir að breyta lögreglusamþykktum hinna ýmsu byggðarlaga og þar er enn tækifæri til að a.m.k. hefla eitthvað af verstu vanköntunum af þessum hlutum og um leið setja skorður til að tryggja almennt öryggi með skynsamlegum reglum og skilyrðum. Og síðast en ekki sízt verður eftirlitið að vera þann- ig að það sé í lagi og veiti meira en málamyndaaðhald. — Agann verður að tryggja. Sveinn Ólafsson Silfurtúni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.