Morgunblaðið - 09.07.1981, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 09.07.1981, Qupperneq 32
32 „ ___MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. JÚLÍ1981_ Brauð með appelsínusultu o.fl. Eftir Haflióa VUhelmsson Morgunverðarborðið minnir mig á Enid Blyton-sögurnar. Upp úr leirskálinni fyrir framan mig rýkur af gráum hafragrautnum og við hliðina er mátulega ristað brauð. Mjólk í penni könnu, ávaxtasaft og súrmjólk. Miðja borðsins er þétthlaðin staukum og baukum sem geyma alls slags hollar korntegundir sem fyrirtak er að sáldra út á grautinn. Ég vel mér dísætt hunáng út á grautinn. Sannleikurinn er sá að ég hef aldrei getað borðað hafra- graut. En nú verð ég að gleypa hann fyrir siðasakir. Ég vil ekki særa fjölskylduna sem sýnt hefur mér svo konunglega gestrisni síð- ustu tvo daga. Aukinheldur er ekki svo erfitt að kyngja hafra- grautnum þegar hunangið kæfir allt óbragð. Ég sit til borðs með C.J. Cole- man og fjölskyldu. Eiginkonan Shirley heldur á yngstu stelpunni í fanginu, henni hrokkinhærðu Alice. Til beggja hliða hjónanna eru systurnar Margarethe og Sarah, og bróðirinn John. Mjög svo falleg og þrifaleg fjölskylda sem alltaf biður borð- bænar eins og góðu foreldrarnir í unglingabókunum. Biður góðan guð að blessa matinn og vaka yfir fjölskyldunni þennan dag sem aðra. Einnig minnast þeirra sem búa við minna og hafa hvorki til hnífs né skeiðar. Blítt amen og við lyftum, niður- lútum höfðunum og tökum til matarins. Pass me the marmalade, please, fer húsbóndinn fram á við mig. Mister C.J. Coleman, eða ein- faldlega C.J. eins og hann er kallaður meðal vina, þessi hálf- fimmtugi, íþróttamannslegi hressi S-Afríkumaður sem keypti þetta land árið 1963 fyrir litla sjö hundruð dollara og hefur síðan byggt 1500 hektara jörðina sína af eljusemi og dugnaði. Þegar ég kom hingað var landið algerlega villt, bara búskur. Það var mikil vinna fyrstu árin að ryðja landið með berum höndun- um. Við áttum ekki neitt í þá daga, darling, mannstu að ég keypti ekki föt fyrstu fimm árin? Jú, segir Shirley, og lifðum á sadsa og dúfum sem við skutum hér í skóginum. Hún hlær við endurminningunni. En nú getum við sem betur fer borðað staðgóð- an morgunverð hvern einasta dag. Það er nauðsynlegt þeim sem vinna mikið. Jess, my darling love, tekur C.J. undir og mænir heimilislegum augum á eiginkonu sína. Ef ég fæ ekki minn porridge á hverjum morgni verð ég hreint ómögu- legur. Það er sennilegast mikill kraft- ur í þessum hafragraut ef mið má taka af starfsþreki bóndans. Á hverjum morgni fer hann á fætur við fyrsta hanagal og vippar sér á Hondu mótorhjólið sitt og þeysir til fundar við býkúpurnar sínar 800. Stundum gefur hann samt skít í fjaðraða verkjaraklukkuna og læðist út um fjögurleytið með haglabyssu í hönd, leysir veiði- hundana sína fimmtán og leggur í skóginn eða maísakrana til að fella villisvín. En hversdagslega snýst vinnan um maísinn. Maísinn er aðalbú- grein bóndans á Hill Grove Farm, meginhluti alls ræktaðs lands eða um 500 ha. er notaður fyrir maísinn. Að vísu dundar hann einnig við hveitirækt en hveitið er ekki eins arðsamt. Það er maísinn sem gefur peningana og J.C. getur glaðst yfir uppskerunni í ár. Hún var mikil í fyrra en þetta er metár. Fyrir hvert tonn af maísnum fær C.J. farmer Z$ 120 við afhend- ingu til Grain Marketing Board of Zimbabwe sem verðleggur upp- skeruna. Og þessi prís, 120 dollar- ar er mikið hærri en C.J. gæti fengið á frjálsum markaði, og hver segir að opinberar verðlags- nefndir séu einungis til ills? Enda eru bændur áhugasamir um ræktun mars og það er gert ráð fyrir að landsuppskeran nái nítján hundruð milljón tonnum í ár. Það þýðir að Zimbabwe mun hafa um 1,2 milljón tonn til að selja úr landi. En því miður er fyrirsjáanlegur skortur á hveiti. Bændum hefur mikils til láðst að sá hveiti, svo nú íhugar Grain Marketing Board að setja niður maísprísinn en hækka hveitiprísinn, í þeirri von að bændur muni eftir hveitinu að komandi ári. Þennan mánuðinn eru húskarl- ar og vinnumenn C.J. í óða önn að handplokka maisinn af háum stönglunum og setja í poka. Af hverjum hektara fær C.J. um áttatíu poka, sem vega að minnsta kosti sjö eða átta tonn samanlagð- ir. Þetta er ærinn starfi og streð- samur í brakandi þurrkinum en margar hendur vinna létt verk undir athugulli yfirstjórn C.J. sem sportar um land sitt í T-skyrtu með viðeigandi áletrun á magan- um: „I’m the Boss". Ég hef sextíu húsbóndaholla vinnumenn á launaskrá, segir C.J. og hellir sér súrmjólk í glas. Tuttugu lausamenn til staðar þeg- ar mest er um að vera. Er þetta ekki djöfulsins púl? spyr ég og sleiki hunangið úr munnvikunum. Væri ekki nær að notast við stórvirka vél, eins og ekta USA-bóndi? Ég feginn vildi, fullvissar C.J. mig og það birtist búmannslegt áhugablik í glaðværum augunum. En vélar eru dýrar, maður. Auk þess neyðist maður til að múta með að minnsta kosti þúsund dollurum ef vantar bíl eða mask- ínu. Þeir nýta sér gjaldeyrisskort- inn, þessir óprúttnu embættis- menn. Ég tek ekki þátt í svindli og svínaríi, segir C.J. og hristir höfuðið í hneykslan. Þá er handaflið betra, klykkir Shirley love út fyrir bónda sinn. Já, en daddy, kveður Sarah upp úr. Nítján ára, ögn búlduleg og heimóttaleg og sækir menntaskóla í Salisbury en hefur fullan hug á að leggja fyrir sig sígildan söng. Mér er tjáð að hún hafi efni- legustu söngrödd í Zimbabwe. Ef lágmarkslaun verkamannanna verða hækkuð einu sinni enn, verður langtum ódýrara að notast við vélar en handaflið, ekki satt? Þú hefur lög að mæla, elsku Sarah. C.J. verður hugsi á svipinn. Hnífurinn með appelsínusultunni staðnæmist yfir brauðinu sem hann er að smyrja, sultan dropar á glóðarsteikt brauðið. Svei mér þá, darling Sarah, segir C.J. og það birtir yfir andliti hans, sem var þó bjart fyrir. Þú hefðir átt að fara í landbúnað- arskólann, grínast hann og leggur sterklegan arminn fyrir flöskuaxl- ir dótturinnar. Þarna hafði Sarah óvart imprað á stórum sannleik í ródesískum landbúnaði, sem varla er landbún- aður í okkar skilningi á íslandi. Landbúnaður hvíta mannsins hef- ur alla tíð verið rekinn sem kapítalskt fyrirtæki, með tilheyr- andi styrkjum og góðum lánum sem vilja gleymast. Landsvæði í Zimbabwe var á nýlendutímanum skipt til helm- inga. Helminginn fengu hvítir, helminginn þeir sigruðu, þ.e. svörtu og þarf ekki að taka það fram að þeir voru í gífurlegum meirihluta. Sá hluti sem féll í hendur evrópskra var að sjálfsögðu frjó- samari hlutinn. Landið á háslétt- unni þar sem veðrið er guðlegt, temprað loftslag með hæfilegu úrfelli. Þessi svokölluðu evrópsku svæði (andstætt ættbálkasvæðum, þau lönd sem svartir fengu að halda, þar eru landgæði yfirleitt rýr og meiri hætta á langvarandi þurrkum) voru einnig vel útrústuð með nauðsynjar, eins og vegi og járnbrautir, mjólkurbú, sláturhús, áveitukerfi o.s.frv. Ættbálkasvæð- in fengu hins vegar að mestu að vera ósnert af mannvirkjum og öðru sem spillt gæti fegurð þeirra. Þetta grimmdarlega jarðrán nýlendutímans, sem linnti ekki fyrr en um og eftir 1970, þessi óforskammaða skipting landsins í góð svæði fyrir örfáa hvíta og ófrjósöm svæði fyrir innfædda sem telja milljónir, er líklega eitt stærsta og mikilsverðasta vanda- mál sem stjórn Mugabes hefur að glíma við núna. Árið 1979 töldust bóndabæir hvítra vera um sex þúsund talsins, meðalstærð hvers býlis um 2000 hektarar. Þessi býli eru setin af um það bil fimm þúsund fjölskyld- um og þessi búskapur þeirra notast við um það bil 40% af vinnuafli svartra í landinu. Þetta þýðir að um það bil 350.000 blakkir eru í illa launaðri vinnu á þessum sex þúsund býlum, að meðaltali hundrað og fimmtíu á hverjum bæ. Hins vegar kúldrast hálf fjórða milljón svartra smábænda á 165 svonefndum ættbálkasvæðum. Á jörðum sem eru svo rýrar að ródesíska stjórnin viðurkenndi í hitteðfyrra að ættbálkajarðirnar gætu aðeins brauðfætt um eina milljón manna af öllum þeim fjölda sem þar býr. Afleiðingin er sú, þeim hvítu til góða, að rétt um 10% svartra geta dregið fram lífið af landbúnaði sínum. Flestir karlmenn eða vinnufært fólk neyðist því til að sækja laun í vinnu hjá þeim hvítu, aðallega til búgarðanna eða þá í námurnar og verksmiðjurnar. Og þeim hvítu tekst að halda laununum við sultarmarkið vegna þess að framboð vinnuaflsins er meira en nokkurn tímann eftir- spurnin, og hingað til hafa svartir ekki verið skipulagðir í verkalýðs- félögum, hálfgert nítjándu aldar ástand í þeim málum. Vandamálið liggur ljóst fyrir. Svartir þarfnast jarðnæðis hinna hvítu. Auðvelt vandamál er lausn- in sýnist vera fjöllum ofar. Ekki eins auðfundin og lesandi spurði í lesendadálki Herald: „Af hverju hrifsum við ekki land þeirra hvítu? Um hvað var barist annað en jarðnæði, og hverjir unnu stríðið?" Þjóðnýting ætti samkvæmt öllu að vera auðveldasta leiðin út úr þeim ógöngum sem svartir eru í hvað varðar land til afnota. Sam- kvæmt pappírum finnst nægjan- legt land í Zimbabwe fyrir alla. Svo vill líka til að stór hluti jarðnæðis á „evrópsku" landsvæð- unum er alls ekki nýttur til ræktunar heldur fær að liggja eins og guð skapaði það en Darwin þróaði. Óbrotið land, leikvangur villidýranna. Bændasamtök hvítra, Comm- ercial Farmes Union, gaf upp fyrir ári að 38% af því landi sem er á „evrópsku" svæði væri ekki nýtt eða þá vannýtt. Stjórnin gæti byrjað á því að taka þetta land eignarnámi, því það myndi ekki skaða hvíta forréttindabændur á neinn hátt. En stjórnin er hikandi og hrædd að hreyfa við hvítum bændum. Samtakamáttur þeirra er mikill og þeir geta hótað að leggja niður framleiðslu, gera stræk, eða yfir- gefið landið í flokkum. Ef slíkt gerðist myndi matvælaframleiðsl- an falla niður úr öllu valdi. Nokkuð sem stjórn Zimbabwe hættir ekki á. Hvítir standa fyrir 90% af aliri framleiðslu, og þjóð- nýting ef yrði, myndi skaða fram- leiðsluna. Reynslan alls staðar frá sannar að þjóðnýting hefur í för með sér framleiðslufall fyrstu árin eftir að hún er gerð. Annað er, ef stjórnin vill þjóð- nýta þessi 38% lands sem hvítir gína yfir en rækta ekki, að hvergi í lögum finnst skilgreining á því hvað teljist ræktað land og hvað ekki. Til að úrskurða um það þyrfti að koma til dómur hæsta- réttar. Sá dómur yrði núverandi stjórnvöldum vægast sagt óhag- sstæður, því að í hæstarétti er aðeins einn svartur dómari. Af- gangurinn er hvítur, arfur frá Ian Smith og hans rasistísku stjórn. Og samkvæmt Lancaster House samkomulaginu um sjálfstæði Zimbabwe er ekki hægt að setja af dómara í hæstarétti. En þótt stjórnin léti til skarar skríða og þjóðnýtti þessi 38% af ó- og vannýttu landi hvítra myndi það ekki nægja til að leysa þá jarðnæðiskreppu sem svartir búa við. Ef allir svartir eiga að fá land undir sig þarf að minnsta kosti að taka 75% af „evrópsku" landsvæð- unum og gefa til þeirra svörtu. Hves vegna tekur Mugabe- stjórnin ekki á sig rögg og þjóð- nýtir allt það land sem svartir þarfnast? Svarið liggur í þessum alræmda Lancaster House samn- ingi, sem setur skilmála fyrir sjálfstæði Zimbabwe. Samkvæmt Lancaster House sáttmálanum verður stjórnin að greiða að fullu (þ.e. það verð sem eigandinn setur upp) og það í erlendum gjaldeyri ef þess er óskað, allt það land sem tekið er eignarnámi. Þar stendur dálkurinn í kúnni. Stjórnin hefur ekki það mikil auraráð að hún geti greitt fyrir stolið landið, og hvað svörtum einstaklingum viðkemur, sem kannski hefðu hug á að kaupa þessa sömu búgarða, er sömu sögu að segja. Stjórn Ian Smith nam árið 1977 þau lög úr gildi sem meinuðu svörtum að kaupa jarðir á „evr- ópskum“ landssvæðum. En samt sem áður hafa aðeins um fimmtíu svartir getað notfært sér þau réttindi, peningar eru einfaldlega ekki í buxnavösunum þeirra svörtu. En er þá engin leið út úr þokunni og gjörningaveðri Lan- caster House skilmálanna? Verður svarti meirihlutinn að horfa upp á það að hvítir hlakka yfir jörðum sínum, yfir meira landi en þeir komast yfir að nýta, meðan svart- ir bændur draga fram lífið á tólf til tuttugu hekturum? Stjórnin má ekki þjóðnýta og hún hefur ekki efni á að kaupa aftur sitt eigið land sem hvítir rændu frá íbúunum. Landbúnaðarráðherra Zim- babwe hefur sagt að ef stjórnin á að greiða fyrir allt það land, sem þörf er fyrir, það er um 75% af „evrópsku" landsvæðunum, þá sé lítið hægt að gera. En ráðherrann hefur ráð í pokahorninu. Að leggja þunga skatta á allt land sem ekki er nýtt, þannig að hvítir bændur yrðu fegnir að sleppa af því hendinni. Hitt er að útvega pen- inga, með erlendum lánum til dæmis, sem gera myndu stjórn- inni kleift að kaupa landssvæði þeirra hvítu. Þá væri hægt að útdeila landino ókeypis til fjölda þeirra svartra sem nú líða fyrir landsskort. En hvenær það verður er spurn- ing sem fjöldinn spyr og heimtar skýr svör frá stjórninni. Óþolin- mæðin er greinilega vaxandi. Fólk er óánægt með hvað breytingar eru seint á ferðinni. Zimbabwe heldur upp á eins árs sjálfstæði þann 18. apríl, en það er eins og ekkert hafi breyst, þrátt fyrir sigurinn yfir hvítum, bæði hern- aðarlega og við kjörborðið. Já, vandamálin eru mörg, verð- ur mér hugsað þarna við morgun- verðarborðið og gleypi síðustu skeiðina af hafragrautnum sem nú er hættur að rjúka. Því miður fæ ég hann óblandaðan upp í munn- inn, ekkert hunang, og ég á í erfiðleikum að halda aftur af grettunni sem hótar að brjótast fram í brosmilt andlitið. Segðu mér C.J., spyr ég upp úr þönkum mínum um landbúnað í Zimbabwe. Óttastu ekki að þessi búgarður sem þú hefur byggt upp í átján ár verði tekinn af þér? Þjóðnýttur? Ha, ha, hlær C.J. hrossalega eins og ég ímynda mér að Hem- ingway hafi hlegið á sínum karl- mennskuárum. Nei, ef þeir taka minn farm, verða þeir fyrst að taka alla hina. Þetta er ekki það stór búgarður. Ekki stór, segir hann. Ræktar maís fyrir þúsundir dollara, rekur þrifalega hunangsverksmiðju, heldur fimm hundruð fjár og þrjú hundruð nautgripa, fitar upp átta hundruð grísi og ræktar stóð sér og börnunum til skemmtunar. Notast við ótal dráttarvéla og hefur tvo vörubíla í þjónustu sinni. Ekki stór, og mér verður hugsað til Gríms frænda sem húkir í Vallholti með fimm hundruð fjár og tuttugu beljur, og telst mektar- bóndi í sinni sveit. Which do you prefer, coffe or tea? spyr húsmóðirin alveg eins og hún sé að lesa upp úr kennslubók Boga Ólafssonar. og Shirley hringir litlu silfurborð- bjöllunni. Kokkurinn, halti Thom- as, kemur innan úr eldhúsi og frúin skipar honum fyrir á Shona- máli. Thomas buktar sig og beygir í húsbóndahollri undirgefni og hverfur aftur. Meðan við bíðum eftir hressingunni, segir C.J. að ég geti látið James þvo þvottinn minn, en í fyrramálið eru villi- svínaveiðar á dagskrá hjá okkur. Ég halla mér makindalega aftur í bakháa stólinn og nýt tilverunn- ar. Virði fyrir mér þessa duglegu og myndarlegu fjölskyldu, ensk- asta af öllu ensku, þótt hún hafi aidrei litið Bretland augum. Ég teygi mig eftir appelsínu- marmelaðinu og nýt þess að ég skuli vera fæddur með mjólkur- hvíta og fallega húð, hérna kemur það sér aldeilis til góða. Endir. Heimur hvíta mannsins i Zimbabwe.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.