Morgunblaðið - 09.07.1981, Page 33
í dag, fimmtudaginn 9. júlí, er
Halldór Bech, fyrrverandi flug-
stjóri hjá Loftleiðum, og nú bif-
reiðarstjóri, Víðinesi, Kjalarnesi,
60 ára. Ég hef átt þess kost
gegnum árin að kynnast mðrgu
góðu fólki en ég held að sjaldan
eða aldrei hafi ég verið jafn
lánsamur og þegar ég kynntist
Halldóri fyrir um 7 árum, og
stuttu síðar kynnist ég eiginkonu
Halldórs — Láru Bech — hinni
mestu sómakonu, og má segja að
síðan hafi ég verið hálfgerður
uppeldissonur þeirra.
Þau eiga tvö börn, sem bæði eru
uppkomin — Guðnýju og Þórarin
— sem einnig hafa reynst mér
mjög vel. Svo eru barnabörnin —
Anna sem er 11 ára og þeim þykir
Sextugur:
Halldór
mjög vænt um og litli sólargeisl-
inn þeirra, Halldór Bech yngri,
sem er aðeins tæplega 2ja ára.
Halldór er þeim góðu eiginleik-
um gæddur að vera alltaf léttur í
lund og í góðu skapi, þannig að
þeir sem umgangast hann komast
ósjálfrátt í gott skap.
Þegar það hefur staðið illa á hjá
mér, hefir hann ætíð komið mér
til hjálpar, og ég vona að einhvern
tímann þegar lánið og gæfan er
mér hliðholl, komi sá tími að ég
geti launað honum það.
Með þessum fátæklegu orðum
vil ég þakka Halldóri og Láru
fyrir okkar góðu kynni, og allt það
sem þau hafa gert fyrir mig.
Styrkir til
menningar- og
vísindastarfs
Dan.sk-íslenski sjóðurinn
(Dansk-Islandsk Fond) ákvað á
fundi sinum þann 19. mai síðast-
liðinn að veita framlög og styrki
til menningar- og vfsindamálefna
að upphæð 14.500 nýkrónur.
Eftirtaldir aðilar hlutu styrki:
Danska þjóðminjasafnið, til út-
gáfu á rímnakveðskap, að upphæð
krónur 5.000.-. Sex kvensagnfræð-
ingar hlutu styrk til að taka þátt í
norrænni ráðstefnu í Reykjavík,
að upphæð krónur 3.600.-. Félags-
samtökin Theophrastos hlutu
styrk til að senda 25 meðlimi
félagsins í rannsóknarferð til ís-
lands, nemur styrkfjárhæðin
krónum 6.000.-.
Danadrottning
sæmir
íslenska
konu Danne-
brogsorðunni
í fréttatilkynningu frá
danska sendiráðinu segir,
að Margrét Danadrottning
hafi veitt frú Grethe Hjalte-
sted, Ásvallagötu 73 í
Reykjavík, Dannebrogsorð-
una.
Frú Grethe Hjaltested hef-
ur verið meðlimur í Danska
kvennaklúbbnum á íslandi í
mörg ár auk þess sem hún
hefur verið formaður þess
félagsskapar.
Það var sendiherra Dana á
Islandi, herra Janus Palu-
dan, sem veitti frú Grethe
Hjaltested orðuna við hátíð-
legt tækifæri þann 25. júní
síðastliðinn.
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. JÚLÍ1981 3 3
Sjötugur:
Ólafur Jónsson
fv. umdæmistemplar
Bech
Hjartanlega til hamingju með
afmælið Halli minn og Guð og
gæfan fylgi þér og þinni fjölskyldu
um ókomna framtíð.
Þinn vinur,
Daniel Benjamínsson
Ólafur Jónsson er fæddur í
Auðkúlu í Arnarfirði. Foreldrar
hans voru hjónin Jón Bjarni
Matthíasson og María Gísladóttir.
Systkini hans voru 9, þar af munu
nú 4 á lífi. Frá Arnarfirði fluttist
fjölskyldan til Þingeyrar en 1931
settst Ólafur að í Hafnarfirði og
þar hefur hann búið æ síðan.
Fyrst í stað vann Ólafur sem
verkamaður. Fljótt kom í ljós
mikill félagsmálaáhugi hjá þess-
um unga Vestfirðingi. Samfellt
frá 1937 til 1954 sat Ólafur í stjórn
verkamannafélagsins Hlífar í
Hafnarfirði, ýmist sem ritari,
gjaldkeri, varaformaður eða for-
maður. Síðar vann Ólafur nokkur
ár hjá bróður sínum, Páli, í
trésmiðju hans í Kópavogi. En
síðasta áratuginn hefur hann ver-
ið starfsmaður á pósthúsinu í
Hafnarfirði.
í mörg ár hefur Ólafur verið
einn af burðarásum bindindis-
hreyfingarinnar á íslandi. Hvar
væru bindindismótin um verslun-
armannahelgar á vegi stödd, ef
Ólafs hefði ekki notið við? í 12 ár
eða þar um bil var Ólafur um-
dæmistemplar umdæmisstúku
Suðurlands. Mörg sumur hefur
Ólafur dvalið í fríum sínum uppi
við Galtalæk við margvíslega
vinnu þar. í sinni heimabyggð,
Hafnarfirði, hefur hann lagt
ótrúlega mikið af mörkum til
æskulýðsmála. Kemur mér þá
fyrst í hug starf hans við barna-
stúkuna Kærleiksbandið og stúk-
una Danielsher.
Fyrir um það bil tuttugu árum
lágu leiðir okkar Ólafs saman og
frá því samstarfi á ég margar
skemmtilegar minningar. A þess-
um tímamótum munu margir
þakka Ólafi samstarf á liðnum
árum. Persónulega langar mig að
þakka vináttu hans og holl ráð.
Hilmar Jónsson
er
ekk\ émunQ'S n|^dPautaB^
\eQU P'°tu be rra
.18«««'y*
18a8H«
aöe'ós
^uum'
He«Vd*ö'udTe* xJt