Morgunblaðið - 09.07.1981, Side 34

Morgunblaðið - 09.07.1981, Side 34
34 Lífríki oií lífsha'ttir IAIN MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. JULI 1981 Jón I>. Árnason: Röskir sveinar á útrýminKarvfKstöðvunum ,yelferð“ og helferð Fækkun um 150.000 líf- verutegundir til aldamóta Spumingin er: Hversu lengi enn telja atvinnulýð- rœðismenn sér stætt á að fóðra fylgi sitt á fyrirheit- um úr froðu nær eingöngu? Kenningar í fjölbreyttu úrvali, einkum albatakenningar á sviði efnahags- og stjórnmála, hafa alllengi verið ofarlega á lista yfir þær afurðir flokksmanna, sem nægjanlegt framboð hefir verið á. Eftirspurnin hefir einn- ig verið mikil, en þó farið þverrandi og með þeim afleið- ingum, að tilfinninanlegt verð- fall hefir gert vart við sig. Því mun að mestu hafa valdið, að gæði söluvarningsins hafa reynzt eftirtakanlega rýrari en auglýsingar gáfu til kynna. Naumast leikur umtalsverður efi á, að kommúnisminn og liberalisminn, hinar markaðs- ríkjandi allrameinabætur, sem ■ allir heimilisfastir í hugmynda- rústum liðins tíma kjósa nú upp á síðkastið að nefna félags- hyggju og frjálshyggju — vænt- anlega af brýnum þrifnaðar- ástæðum — hafa hlotið þyngsta dóma og refsingar reynslu og raunveruleika. Kant um kenningar Hirtingarnar voru fyrirsjáan- legar og því verðskuldaðar. Báð- ar snældurnar snerust um sömu kórvillurnar: Að hugsanlegt væri, jafnvel tiltölulega auðvelt, að uppræta alla eymd, volæði og örbirgð; rangsleitni, hungur og kúgun hvarvetna í heimi — með skipulagskúnstum einum saman, helzt „réttlátri tekju- og eigna- skiptingu" (kommúnistar) og/ eða „eðlilegri verðmyndun og fjölskrúðugu vöruvali" (liberal- istar). Allir fagnaðarboðendur voru sannfærðir um, að sin kenning væri altæk, engin ástæða væri til að gefa mismunandi lands- og lífsháttum sérstakan gaum, hún fengi staðizt hvar og hvenær sem væri, jafnt í Hong Kong sem á Húsavík, Chicagolandi sem Sviss, árið 1930 ekki síður en árið 2030. Erfitt hefði verið að staðfesta rækilegar í reynd þá sannfær- ingu prússneska heimspekings- ins Immanuel Kant (1724— 1804), að manneskjan sæki kenn- ingar sínar ekki í bók náttúr- unnar, heldur klambri sér þeim saman úr eigin óskatimbri og rembist síðan við að þröngva upp á náttúruríkið. Þarna munu að vissu leyti liggja skýringar á því, að botninn datt úr kapítal- ismanum fyrr en þurft hefði að verða, aðallega sökum þess að viðnámslokur hans biluðu. Botn- inn í sósíalismann hefir alltaf vantað og hann hefir aldrei fundizt. Ég efast mjög um að Kant hafi haft raunvísindamenn í huga, þegar hann lét greinda skoðun í ljós; til þess að vera dómbær í því efni veit ég alltof lítið um rökstuðning hans og myndi auk þess ekki dirfast að gagnrýna hann þó að ég vissi margfalt meira. Hins vegar tel ég fyrst um sinn enga fífldirfsku vera að benda á, að raunvísindamenn eru yfirleitt ófeimnir við að varpa haldlausum kenningum út í buskann og leita nýrra, gagn- stætt „stjórnmálamönnum", sem halda gagnrýnislaust af þræls- legu trúarofstæki í einhvern „isma“ eða „hyggju" löngu eftir að fánýtið varð degi ljósara og gat því aðeins orðið að gagni í hlutverki varnaðarvítisins. Töfraárið 2000 En það er gömul raunasaga sér á blaði, sem reyndar alltaf er ný, að leiðir vilja lifa allra manna lengst eftir að þeir eru dauðir. I því skyni leitaði félags- . hyggjufólk og frjálshyggjusinn- ar sér skjóls í samrunakerfi sósíalisma og kapítalisma, er þeir nefndu velferðarríki. „Vel- Kenningar úr pappírskörfunni. ferðarríkið" reyndist undrafljótt vera villuljós, og telst því naum- ast furða, að þeir, sem elta villuljós, ráfi villigötur. Af samrunasáttum hefir leitt, að við „velferðinni" má ekki hrófla, um hana má ekki segja neitt ljótt, enda þótt fátt sé augljósara en að hús, sem að hálfu er reist fyrir eignir for- eldranna og að hálfu fyrir skuld- ir barnanna, hljóti að verða bústaður bölvunar. Um það hugsar jöfnunarkynslóðin ekki. Hún hefir látið æru sína í skiptum fyrir stundarmakindi. Hana skortir dirfsku og þrek til að takast á við skyldug verkefni nútíðar og framtíðar. Henni finnst enginn skúti of skítugur að ekki sé hann betri en að berjast úti. Afturhvarf frá heilbrigðum lífsháttum á ekki sízt rætur að rekja til þess, að lýður og leiðtogar hafa látið heillast af freistingum vélknúinnar efnis- hyggju. I draumum sínum og vonum lætur fjöldinn stjórnast af mætti vísinda og tækni, en ekki lengur af skynsamlegri til- lits- og ræktarsemi við upphaf og endi allra tilvistarmöguleika, náttúruríkið sjálft, né virðir heldur lífshætti á grunni fornra dyggða, sem um aldaraðir voru leiðarljós í umhverfi, er sköpun- arverkið hafði búið úrvali en ekki úrtíningi. Þess í stað gerir hann sér himnahallir úr glamur- yrðum og loforðaskvaldri flokks- málamanna. Hin nýju trúar- brögð hvíla á fullvissunni um óendanlegar tæknibyltingar — og þau rækir hann svikalaust. Siík lífsviðhorf hljóta að eiga sér endi eins og allt annað. Náttúruríkið tekur í taumana fyrr eða síðar. Líkur benda til, að það muni fremur verða fyrr en síðar. Einmitt í því er lán eða ólán mannkynsins fólgið. Nátt- úruránskapurinn getur ekki stigmagnazt miklu lengur en þegar er orðið. Þetta vita ýmsir með vissu, en fleiri finna það þó á sér. M.a. af þeim ástæðum stara mýmargir stjarfir á ártalið 2000, en þangað til eru tæp 19 ár. Marglofaður hagvöxtur, sem raunar þýðir aukinn bruðlmáttur, og allur lýður mænir uppnuminn á, var aðeins tímabundinn og hafði því aldrei skilyrði til að verða var- anlegur, því að allt eyðist, sem af er tekið. Jafnvel hyggjumönnum í frjálslyndi og jöfnunarbjástri, svo og ýmsum öðrum óreiðusinn- um, hlýtur t.d. flestum að skilj- ast mjög bráðlega, að útrýming dýra- og jurtalífs getur ekki gefið óendanlegan gróða af sér eða stuðlað að kauphækkunum þeim til handa, sem minnstir eru fyrir sér. ÚtrýminKarstríð, sem um munar Þótt manneskan hafi framið mörg og mikil heimskuleg her- hlaup með grátlegum árangri, er ósannað að nokkurt níðingsverk hafi komizt í hálfkvisti við útrýmingarstríð hennar gegn samþegnum okkar í lífríkinu. Tökum nú vel eftir og leggjum fast á minnið, alveg sérstaklega þeir fáu úr ofátsfylkingu hrað- gróðamanna og verkalýðsrek- enda, sem kynnu að reka nefið í þetta greinarkorn: A fyrstu 18 öldum frá upphafi tímatals okkar varð að meðaltali ein dýrategund aldauða á 55 ára fresti, en á árunum 1900—1975 ein árlega. Síðan- hefir sókin verið margefld. German J. Krieglsteiner staðhæfir (í bók sinni, „Fúnf Sekunden nach Zwölf", Freiburg 1979), að nú útrými manneskjan 5 dýrateg- undum daglega. Krieglsteiner telst ennfremur svo til, að ef æðri og óæðri jurtir sveppir, einfrumungar og aðrar óþroskaðri lífverur eru taldar með, hverfi 20 tegundir sérhvern sólarhring óafturkallanlega af jörðinni í gin hagvaxtar- og kjarabótarisans, eða nálægt 7.300 á ári hverju. Ef svo heldur áfram eins og allar líkur benda til að verða muni, verður lífríkið um 150.000 lífverutegundum fá- tækara töfraárið 2000. Þannig tekst „æðstu skepnu jarðarinn- ar“ að 3.000 falda eðlilegan úrtíningshraða. Varalið er nán- ast ekkert, blátt áfram af því að náttúrlegri þróun og nýsköpun verður ekki hraðað, hvað svo sem kröfum og þörfum verka- lýðshreyfingar og vanþroska- þjóða líður. Það er hægt að misþyrma, jafnvel tortíma nátt- úruríkinu, en aldrei nema „kór- óna sköpunarverksins" gjaldi fyrir eða fylgi með. Líklega fallast flestar viti- bornar manneskjur á, að í þess- um tengslum hljóti sérhvert fordæmingarorð að nálgast smekkleysu. En framangreint er þó ekki nema brotabrot úr sögu óhemjuskapar veraldar undir vinstrifánum. Af völdum stór- virkrar framleiðslutækni og nær takmarkalausra sóunarhneigða, eykst áníðslan dag frá degi. Fyrir nokkrum árum áætlaði Aurelio Peccei, stofnandi og nú- verandi forseti The Club of Rome, að notkun málma og annarra hráefna til iðnaðar myndi hafa 70faldast árið 2000 úr því sem hún var árið 1900. Síðar, eða eftir að takmörk vaxtar, sem framleiðslu- og viðskiptalíf rekur sig sí og æ á, urðu sýnilegri en áður, endur- skoðaði hann útreikninga sína og taldi 40földun sennilegri. Niðurstaðan varð samt sem áður meira en nógu ógnvekjandi: í aldarlok yrði eftirspurnin ekki minni en 60.000.000.000 manna hefði verið árið 1900. Af svo góðu gefst meira. í nýútkominni bók sinni („Cent pages pour l’avenir", þ. útg. Wien-Munchen 1981) vitnar Peccei í nokkra fróðleiskþyrsta lærdómsmenn, sem hann telur fara nærri réttu, þegar þeir áætluðu, að frá því að homo Ofátí algleymingi. sapiens hóf göngu sína, hafi rúmlega 70.000.000.000 lifað á jörðinni. Ef þessi ágizkun hefir við alltraust rök að styðjast, er auðvelt að sjá að núlifandi íbúa- fjöldi jarðar, um 4.500.000.000, nemi röskum 6,42% allra manna, sem hafa prýtt og lýtt hana með veru sinni frá upphafi vega. „Og ef gert er ráð fyrir“, bætir Peccei við, „að nútíma- maðurinn lifi að meðaltali tvisvar sinnum iengur en íor- genglar hans og að hann eyði árlega tiu sinnum meira af auðæfum nátturunnar og báðar tilgáturnar hafa við talsvert að styðjast — , þá verður niður- staðan öldungis yfirgengileg: Bara núlifandi jarðarbúar munu á lifsskeiði sinu eyða meiru af náttúruauðæfum jarð- ar en allar gengnar kynslóðir samanlagt hafa nýtt á milljón árum.“ Ekki fer á milli mála, að Aurelio Peccei er óttasleginn. Það eru og flestir aðrir vísinda- menn, sem um ástand og horfur fjalla af þekkingu og samvizku- semi, þó að þeir fari yfirleitt ekki fram með hávaða. Hins vegar ber meira á þeim, sem telja öllu óhætt. Það eru mennirnir, sem eiga kenning- arnar og stefnuskrárnar, og halda ræðurnar sínar mörgu og löngu, og framleiða ályktanirnar og samþykktirnar, framámenn Sameinuðu þjóðanna og annarra heimsbjörgunarfyrirtækja; menn svipaðra burða og Willy Brandt, Þórarinn Þórarinsson, Olof Palme og Ólafur R. Gríms- son. En þeir, sem þurfa endilega að svala þorsta sínum af upp- sprettugosi slíkra vizkubrunna, hefðu ekki verða af að hugleiða við og við, að munurinn á vísindamönnum og vellukjömm- um verður aldrei nákvæmlega mældur á kvarða metrakerfis- ins. Hann er stjarnfræðilegur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.