Morgunblaðið - 09.07.1981, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. JÚLÍ1981
41
fclk í
fréttum
Furðu-
farar-
tæki
+ Nýlega efndi Honda-
-fyrirtækið til hug-
myndasamkeppni í
Japan. Þar komu fram
ótal hugmyndir og
voru margar þeirra
nytsamar og góðar en
aðrar settar fram mest
í gríni. Það síðar-
nefnda á líklegast við
um þetta furðufarar-
tæki sem myndin er af
en hraði þess er mæld-
ur í skrefum á klst. í
stað kílómetra á klst.
Neyðist til að
ganga nakinn
+ Þessi ungi drengur, Cristiano, á við
sjaldgæfan sjúkdóm að stríða, nefni-
lega ofnæmi fyrir fötum. Við að fara í
föt, sama úr hvaða efni þau eru,
bólgnar hann fyrst allur en fellur síðan
í yfirlið. Hann verður því að láta sér
lynda að ganga um á sérhannaðri
sundskýlu einni fata og jafnvel í henni
finnur hann til óþæginda. Hann kemst
þó allra sinna ferða því hann finnur
ekki fyrir kulda fyrr en um frostmark
en þá verður hann að halda sig
innandyra.
Læknar standa algjörlega ráðþrota
gagnvart þessum sjúkdómi og það eina
sem þeir geta gert er að bíða og sjá
hvort þetta eldist ekki af honum.
Cristiano hefur nokkurn veginn vanist
þessu og því að striplast um á meðan
skólafélagar hans eru dúðaðir í sín
hlýjustu föt á veturna. Hann, og ekki
hvað síst foreldrar hans, verða þó oft
fyrir óþægindum þegar til dæmis
ókunnugt fólk ræðst á þau og býðst til
að gefa þeim fyrir fötum á vesalings
barnið eða þegar hneykslunargjarnir
kalla á lögregluna þegar það sér hann.
Og það er kannski að undra því eins og
sést á meðfylgjandi myndum hlýtur
hann að vekja athygli meðal ókunn-
ugra hvar sem hann kemur.
RISA-ÍS
+ Elli litli, sem býr í Kaliforníu, fékk
þennan 100 kg frostpinna í afmælisgjöf
frá foreldrum sínum, en þeim fannst
þetta alveg tilvalið þar sem nú gengur
þar yfir hitabylgja. Ella fannst það
reyndar líka og bauð 30 gestum að
sleikja með sér ísinn.
Hestamót Snæfellings
veröur haldið á Kaldármelum 18. júlí og hefst kl.
13.30. Keppt verður í eftirtöldum greinum: 250 m
skeið, 250 m unghrossahlaup, 350 m stökk, 800 m
stökk, 800 m brokk. Ennfremur fer fram unglinga-
keppni félagsins, 12 ára og yngri og 13—15 ára.
Einnig gæðingakeppni, A og B flokkur. Þátttaka
tilkynnist í síma 93-8252 eða 93-6730 fyrir 14. júlí.
Hestamannafélagið Snæfellingur.
Nýtið
hitaveituna
Sundlaug í bakgarðinn, í kjallarann, fyrir félags-
heimilið eða bæjarfélagiö.
Sundlaugar úr áli eöa stáli, meö plastpoka er auövelt
aö koma fyrir og ódýr framkvæmd.
Sundlaug er samkomustaður fjölskyldunnar og
vinanna. Sund er heilsurækt.
Útvegum allt til sundlauga. Hreinsitæki, ryksugur,
forhitara, yfirbreiðslur, stiga, klór duft eða töflur,
plastpoka í gömlu eöa nýju steinsteyptu laugina.
Leitiö upplýsinga.
/
^gunnai k.f
Suðurlandsbraut 16, 105 Reykjavík
LAUGAVEGI 47 SÍM117575