Morgunblaðið - 09.07.1981, Page 45

Morgunblaðið - 09.07.1981, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. JÚLÍ1981 45 Jón Sigurðsson var ekki forseti lýðveldisins rKennari“ skrifar: Ég varð fyrir miklu áfalli þegar útvarpið spurði vegfarendur kringum þjóðhátíðardaginn okkar hver Jón Sigurðsson hafi verið og í ljós kom að svarendur höfðu varla hugmynd um það. Jú, þeir höfðu heyrt hann nefndan forseta og margir héldu hann hafa verið fyrsta forseta lýðveldisins. Af því svari mátti þá ráða, að svarendur höfðu heldur ekki hugmynd um hvenær íslendingar urðu lýðveldi og stofnuðu upp úr því til forseta- embættis, og ekkert um það hve- nær frelsisbarátta íslands var háð með Jón Sigurðsson í broddi fylkingar. Eg hefi síðan verið að hugsa um það af hverju þetta stafar, því ekki dugar hneykslunin ein. Þarna hlýtur að vera mikil veila í íslenzku fræðslukerfi. Ég held að ég megi segja, að þegar ég var í skóla (ég er um 50 ára), þá hafi þetta varla farið fram hjá okkur. Nú virðist mér að þessi svokallaða samfélagsfræði á kostnað ein- stakra greina, og svo auðvitað samvinnuverkefnin í skólunum, svo góð sem þau eru, skilji eftir óbætanleg göt í þekkingarforða barnanna. Það geti semsagt verið að eitthvert þeirra, sem áhuga hefur á, viti mikið um Jón Sig- urðsson, en önnur hreint ekki neitt. Þau hafa kannski tekið einhvern annan þátt í sameigin- lega verkefninu. Ég held að við kennarar þurfum að stanza við og hugsa okkar mál. Hitt er svo annað mál, að óvíst er að þarna hafi eingöngu verið um unga vegfarendur að ræða og kannski enga. Þá dettur mér í hug sem skýringu á því að fólki dettur í hug að Jón Sigurðsson hafi verið fyrsti forseti íslands, að á fyrstu þjóðhátíðardögunum okkar var alltaf stillt út í búðarglugga sam- an mynd af Sveini Björnssyni og Jóni Sigurðssyni og svo Asgeiri Ásgeirssyni og Jóni Sigurðssyni, og íslenzki fáninn á milli. Lítið var svo um myndaútstillingar í búð- argluggum eftir að Kristján Eld- járn varð forseti að mér virðist. En nú síðast veitti ég því athygli að mynd var af Vigdísi forseta einni, og farið að hafa hana ásamt mynd af kanadíska landstjóran- um, þegar hann kom í heimsókn. Það er nýr siður á Islandi og ekki að mínu skapi. Ég vil ekki of mikið auglýsingabragð af forsetaemb- ættinu. En kannski hafa fyrstu lýðveldisárin ruglað einhverja eldri. En þetta er alla vegana mikið umhugsunarefni, fyrir alla uppaiendur. A góðum sumardögum. eins og verið hafa að undanförnu, hefur ríkt i miðbæ Reykjavikur glaðværð og umstang. Eftir að göngugatan var gerð, sem sjálfstæðismenn fengu á sinum tíma ákúrur fyrir, í hita kosningabaráttunnar, hafa skapast möguleikar til útiveru þar. Útimarkaðsmenn hafa sannarlega nýtt það tækifæri, ásamt fjölda annarra. En því miður aðeins yfir hádaginn — vel mætti vera meira um að vera þarna á kvöldin og um helgar. Ekki endilega skipulagðar skemmtanir, heldur einkaframtak þeirra sem vilja njóta lífsins, sýna sig og sjá aðra. Myndina tók ól.K.MaK- Hundar og menn „Morgunblaðslesandi skrif- ar“: „Mig langar til að leggja orð í umræðurnar um opnunar- tíma verzlana. Ég hef lesið allt sem um það er skrifað. í blaðinu í gær rak ég svo augun í þau ágætu sannindi í mál- flutningi lokunarmanna til stuðnings, að reglur og samn- inga ætti að halda þangað til þeim er breytt. En hvernig stendur þá á því, að lögreglu er umsvifalaust sigað á okkur neytendur við búðardyr af því að reglur og samninga eigi að halda, en þegar um er að ræða hunda sem brjóta reglur, þá lætur lögregla og þeir sem vilja fylgja reglum og sam- þykktum eins og þeir sjái þá ekki? Ég horfi daglega á hunda hlaupa lausa um garða og götur borgarinnar, t.d. á Landspítalatúninu, án þess að nokkur lögregla skipti sér af því. Ég spyr gilda ekki sömu lög fyrir hunda og menn í Reykjavík. Hvað segja borg- arfuljtrúar um það? Og lög- reglan, sem á að framfylgja slíku? Af hverju gildir ekki sama fyrir hunda og menn?“ Farðu varlega V.S. skrifar: Vissulega er það hörmulegt þegar pólitík blandast inn í skákmót, og þegar um er að ræða heimsmeistaraeinvígi, er það raunalegt. Vissulega er það hörmulegt að kona og sonur Viktor Korchnois skuli ekki fá að fara úr landi, eins og okkur finnst slíkt einfalt og sjálfsagt mál, við sem erum svo lánsöm að búa í lýðræðisríki. En í Sovétríkjunum gilda þeirra lög, og eftir þeim verða allir borgar- ar Sovétríkjanna að fara, og hver sem brýtur þau lög, er ekki öfundsverður eftir það. Viktor Korchnoi braut þessi lög, og einnig sonur hans, og að áliti Sovétmanna eru þeir sakamenn, þó okkur finnist það fráleitt, og þess vegna vona ég að okkar ágæti Friðrik Ólafsson, forseti Fide, standi sig, en virði samt sjónarmið Sovétmanna eftir því sem við verður komið, því vissu- lega verður erfitt fyrir þá að kyngja því að lög þeirra eru harðneskjuleg og úrelt, vonandi skilja þeir þetta fyrr eða síðar. PERMA-DRI utanhúss- málningin sem endist og endist ARABIA IIREINLÆTISTÆKI BAÐVÖRURNAR FRÁ BAÐSTOFUNNI ]E)aðstofaFI ÁRMÚLA 23 - SÍMI 31810. Frá Júgóslavíu SMIÐJUVEGI6, SIMIU5U. Kjörgarður Laugavegi, sími 16975. ?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.