Morgunblaðið - 09.07.1981, Side 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. JÚLÍ1981
Stiörnur fyrri ára leika
í Hafnarfirði í kvöld
Pétur Pétursson tekur þátt í vítaspyrnukeppni í hálfleik
Vígsluleikur hjá Haukum
í kvöld kl. 20 íer fram vigsluleikur nýja grasvallarins hjá Haukum
á Hvaleyrarholtinu. Þó svo völlurinn hafi nú verið í notkun i hartnaer
heilt ár hefur enn ekki farið fram opinber vigsluleikur. Knattspyrnu-
félagið Haukar átti 50 ára afmæli i aprilmánuði og þvi þótti tilvalið að
setja leikinn á í tengslum við þann merkisatburð.
Liðið. sem mætir Haukum á fimmtudag, er skipað valinkunnum
knattspyrnumönnum, sem allir eiga það sameiginlegt að hafa verið á
hátindi ferils síns á árunum um og upp úr 1970. Þessi kjarni
leikmanna náði m.a. markalausu jafntefli við Dani hér heima á
Laugardalsvellinum 1970 og síðan lagði það Norðmenn að velli 2—0.
Útvarpsmaðurinn snjalli, Hermann Gunnarsson, skoraði bæði mörk
íslands i þeim leik.
t H.ltsrk drr <\t .. J ' /'(/V i/l' ...
Vítaspyrnusérfræðingurinn Pétur Pétursson.
Unga kynslóðin
fær góo tækifæri
Það er einmitt Hermann, sem
hefur valið þetta lið, sem þessa
dagana gengur undir nafninu
„Stjörnulið Hemma Gunn“. Flest-
ir munu kannast við nöfnin, sem
hér fara á eftir, en leikmenn eru
eftirtaldir: Þorbergur Atlason,
Fram, Sigurður Dagsson, Val,
Hermann Gunnarsson, Val, Ellert
B. Schram, KR, Þorsteinn Frið-
þjófsson, Val, Jón Stefánsson,
IBA, Skúli Ágústsson, ÍBA, Kári
Árnason, ÍBA, Elmar Geirsson,
Fram, Magnús Torfason, ÍBK,
Einar Gunnarsson, ÍBK, Karl
Hermannsson, ÍBK, Guðni Kjart-
ansson, ÍBK, Björn Lárusson, ÍA
og Anton Bjarnason, Fram.
Auk þessa stórleiks verður boð-
ið upp á merkisviðburð í leikhléi.
Þa mun knattspyrnusnillingurinn
Pétur Pétursson hjá Anderlecht
etja kappi við „vítakóng Austur-
lands", ólaf Jóhannesson, þjálfara
og leikmann Einherja og fyrrum
Haukamann. Þetta er einstakt
tækifæri til að sjá Pétur Péturs-
son áður en hann byrjar að leika
með sínu nýja félagi.
Haukavöllurinn skartar nú sínu
fegursta og er vafalítið einhver
glæsilegasti grasvöllur landsins
um þessar mundir og er ekki að
efa að margir munu leggja leið
sína á Hvaleyrarholtið á fimmtu-
dag. Aðgangseyrir er sá sami og er
í 2. deildinni.
í Knatlspyrna |
Stjörnuliöið
50 ÁRA afmælisleikur
Hauka og vígsluleikur gras-
valiarins á Hvaleyrarholti,
fimmtudaginn 9. júlí 1981,
kl. 20.
Haukar gegn stjörnuliði
Hemma Gunn (landsliðs-
kappar fyrri ára). Þeir
gerðu garðinn frægan á ár-
unum 1%5—1970, gerðu
m.a. jafntefli 0—0 við Dani á
Laugardalsvellinum 7. júli
1970 og sigruðu Norðmenn
þar 13 dögum siðar 2—0.
Liðið sklpa eftirtaldir:
Hermann Gunnarsson
Sigurður Dagsson
Þorsteinn Friðþjófsson
Ellert B. Schram
Anton Bjarnason
Þorbergur Atlason
Jón Stefánsson
Skúli Ágústsson
Kári Árnason
Eimar Geirsson
Björn Lárusson
Einar Gunnarsson
Guðni Kjartansson
Magnús Torfason
Karl Hermannsson
Vítaspyrnukeppni í hálf-
leik milli Péturs Péturssonar
og vítaspyrnusérfræðings
Au8tfjarða, óla Jó, Hauka-
mannsins og Einherjans.
Til rnikils að vinna
fyrir þá yngstu
HVAÐ sem ölium afreksiþróttum
og afstöðu fólks til þeirra liður,
þykir það viðeigandi að böm og
unglingar hafi að einhverju
ákveðnu marki að keppa. fyrir
utan aðalmarkmiðið, sem er að
taka þátt og stæla likama og sál i
heilbrigðu iþróttastarfi.
Frjálsíþróttasambandið hefur
leitast við að koma á auknum
samskiptum við Norðurlandaþjóð-
irnar í þessu tilliti og orðið
nokkuð ágengt.
Síðar í sumar, nánar tiltekið í
endaðan ágúst og byrjun septem-
ber fá best krakkarnir tækifæri til
að spreyta sig í eftirtöldum mót-
um:
21.—23. ágúst Andrésar and-
ar-leikarnir í Hróarskeldu i Dan-
mörku. Þangað munu fara tvær
stúlkur og tveir drengir, fædd
1969 og 1970 ásamt fararstjóra.
Danir greiða allan uppi-
haldskostnað.
5.-6. september Donald
Duck-leikarnir í Kongsberg í Nor-
egi. Þangað er boðið fjórum þátt-
takendum á aldrinum 13 — 14 ára
ásamt fararstjóra. Norðmenn
greiða fargjald aðra leið fyrir
hópinn svo og uppihaldskostnað.
• Yngsti keppandinn i Alafosshlaupinu, sem fram fór um síðustu
helgi, fær sér hressingu þegar í mark var komið.
Enn um „rangstööumark" ÍBÍ
Katnandi manni er best að lifa
varð mér að orði þegar ég las
Athugasemdargrein J.J. á
íþróttasíðu Mbi., þar sem hann
reynir að draga í land og vigta að
nýju ómakleg ummæli sin um
dómara leiks Reynis og ÍBÍ,
Grétars Norðfjörð, með því að
vitna til umsagnar minnar i DB.
og spyr hvort nokkur munur sé
þar á. J.J. er með öðrum orðum
að iæða þvi að lesendum að við
séum sammála um dómgæzlu
Grétars, — en best er að láta
úrklippurnar tala og leggja f mat
lesenda, hvort J.J. fari alls kostar
heiðarlega að.
Mbl:
„Domari leiksins var Grétar
Norðfjörð og setti hann mikinn
svip á leikinn með ofnotkun á
flautunni. Flautaði hann nánast i
tíma og ótima, oft þannig. að sá
hrotlegi hagnaðist á dómnum, er
til dæmis upphlaup voru stöðv-
uð.“
DB:
„Nokkur harka færðist i leik-
inn við markið, en Grétar Norð-
fjörð dómari blés óspart i flautu
sína, — bældi niður hörkuna."
Jæja, sjáið þið muninn?
En svo er J.J. karlinn mér alveg
ósammála á öðrum stað. Það er
varðandi markið sem ÍBÍ skoraði,
en það er vegna þess að ég var
sjálfur á línunni og því ekki við
öðru að búast. Skarplega athugað.
Já, í því liggur munurinn, — ég
var í eins góðri aðstöðu og hægt
var, fylgdi aftasta manni varnar-
innar eftir,— eða öllu heldur stóð
kyrr eins og hann og gat því
auðveldlega séð að um rangstöðu
var ekki að ræða. Athugum svo
hvernig þú, J.J., lýsir aðdragand-
anum að markinu. „... að gefin
var löng sending þvert yfir völlinn
og fram á Harald Leifsson, sem
var inn undir markteig Reynis og
skallaði hann í bláhornið uppi“.
Sem gamall út- og miðherji
Reynis ætti J.J. þótt ekki sé hann
kominn á raupaldurinn að muna
hve oft hann skaust inn fyrir
varnarmennina, á meðan LÖNGU
sendingarnar voru á leiðinni.
Mörk J.J. voru gild, vegna þess að
hann hafði tvo mótherja milli sín
og endamarkanna, þegar knettin-
um var spyrnt, rétt eins og
Haraldur Leifsson í umræddu
atviki. Rangstöðureglurnar hafa
ekki breyst síðan J.J. var og hét,
spilandi í Reyni.
Mig furðar mikið, að jafn sann-
ur, réttsýnn, hlutlaus og heiðar-
legur íþróttaskrifari og J.J. er að
eigin mati, skuli ekki hafa fundið
hvöt hjá sér til að spyrja dómara
eða línuvörð um atburðarásina,
fyrst hann efaðist um hvort mark-
ið væri löglega skorað. Heldur
lætur hann nægja að ganga í raðir
áhorfenda, „sem voru í hvað bestri
aðstöðu" og lætur svör þeirra
gilda sem hið eina rétta svar.
Undarlegt hvað J.J. hittir á alla
sammála, en sjálfur hefur hann
enga skoðun á málinu. Var til-
gangurinn kannski aðeins sá að fá
fram skoðanir sem voru til þess
fallnar að koma höggi á starfs-
menn leiksins?
Hafi J.J. verið sárt um að
Reynisliðið fengi á sig mark, átti
hann að leita að mistökunum í
varnarleik, en ekki í störfum
dómara og línuvarða. Rætur
meinsins liggja þar. Honum væri
nær að taka í hnakkadrambið á
v-bakverðinum sem hafði yfirgefið
sitt athafnasvæði og miðverðinum
og tugta þá til fyrir að fylgjast
ekki með Haraldi svo að honum
gafst tóm til að skora, — en
hrópuðu rangstaða, til að reyna að
bjarga sínu skinni. Undir hrópin
tók J.J. síðan, á sinn hátt og
sumar setningar hans eru bergmál
þess Reynismanns sem verst lét
bæði í og eftir leik, vegna um-
rædds atviks.
En mitt í allt hlutleysi og
réttsýni J.J. gerast nokkrir áhorf-
endur svo djarfir að efast um
niðurstöður J.J. og falslausar
dyggðir sem íþróttaskrifara, þá
ætlar hann alveg að ærast, sem og
„Sandgerðingur" einn á lesenda-
síðu Mbl. Þau skrif dæma sig
reyndar sjálf og eru talandi dæmi
um menn sem félagsástin hefur
svipt allri dómgreind.
Að endingu vonast ég til þess að
sjá þig J.J. á næsta leik Reynis.
Stígðu þá út úr bílnum í brekk-
unni, — taktu ofan gleraugun, þú
veist, — síðan skulum við stilla
okkur upp í albestri aðstöðu og
horfa á leikinn frá sama sjónar-
horni. Verði ég hins vegar á
línunni veit ég að þú stendur á bak
við mig, því hver er ber að baki
nema sér bróður eigi.
Magnús Gislason. — emm
12.—13. september Kalle
Anka-leikarnir í Karlstad í Sví-
þjóð. Þangað fer ein stúlka og einn
drengur, fædd á árunum 1967 eða
1968 ásamt með fararstjóra. Svíar
greiða fargjald aðra leið og uppi-
haldskostnað.
í þessum þrem ofantöldu mót-
um má hver keppandi taka þátt í
tveimur keppnisgreinum. Þátttak-
endur af Islands hálfu verða
valdir um næstu mánaðarmót að
loknu MI 14 ára og yngri, sem
haldið verður á Selfossi 25.-26.
júlí nk.
Aðalfundur
HK
Ilandknattleiksfélag Kópa-
vogs heldur aðalfund sinn
þriðjudaginn 14. júlí 1981,
kl. 20.00 að Hamrahorg 1.
Dagskrá: Venjuleg aðalfund-
arstörf.
Stjórnin