Morgunblaðið - 09.07.1981, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 09.07.1981, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. JÚLÍ 1981 47 Öruggur sigur Fram, í meistarakeppni KSI FRAM lagði Val að velli 1:0 í meistarakeppni KSÍ á Laugar- dalsvelli í gær eftir að hafa leitt leikinn í leikhléi. I>að var Marteinn Geirsson sem skoraði mark Fram úr vítaspyrnu á 16. mínútu leiksins eftir að Sævar Jónsson hafði stu^Kað óIonleKa við Halldóri Arasyni inni í vítateÍKnum. Framarar voru hetri aðilinn allan tímann ok léku oft á tiðum laKleKan sókn- arleik ok var sÍKur þeirra K«Kn slökum ok áhuKalitlum Vals- mönnum fyllileKa verðskuldað- ur þó mörkin yrðu ekki fleiri. Fyrri hálfleikur var ákafleKa tíðindalítill ef frá er skilið mark Fram og gott færi þeirra í lok hans. Á 16. mínútu leiksins kom há sending inn í vítateig Vals- manna og stukku þeir Sævar Jónsson og Halldór Arason upp, en Sævari varð það á að stugga við Halldóri og Magnús Pétursson dómari dæmdi þegar vítaspyrnu, sem Marteinn skoraði örugglega úr. Á 43. mínútu kom löng sending Fram Valur 1:0 inn á vallarhelming Valsmanna og tveir Framarar eltu knöttinn, en Ólafur Magnússon markvörður kom vel út á móti þeim og tókst að spyrna knettinum frá. Hann hrökk til Péturs Ormslev, sem skaut þrumuskoti að markinu, Ólafur varði, en náði ekki að halda knettinum, sem hrökk út til Hall- dórs Arasonar, en skot hans rat- aði í utanvert hliðarnetið. Á 54. mínútu skallaði Viðar Þorkelsson að marki Vals, en Ólafur náði að slá knöttinn í slá og yfir. Nokkru síðar átti Viðar svo góða stungu inn á Guðmund Steinsson, en Ólafur varði skot hans. Rétt á eftir skaut Njáll í hliðarnet Frammarksins úr þröngu færi og hinum megin skallaði Halldór naumlega fram- hjá og síðasta hættulega skot leiksins átti Magni Pétursson, en það geigaði eins og svo mörg önnur. Landsliðið á Húsavík VÖLSUNGAR úr 2. deild mæta íslenska landsliðinu i knatt- spyrnu i vináttuleik á Húsavik i kvöld og hefst leikurinn klukk- an 20.00. Guðni Kjartansson landsliðsþjálfari mætir með sterkasta kjarna sem völ er á úr hópi heimamanna. en Völsung- arnir styrkja hins vegar lið sitt með tveimur fyrrverandi Hús- vikingum, Helga Helgasyni og Kristjáni Olgeirssyni, Helgi frá Víkingi og Kristján frá ÍA. Asgeir mætti á sína fvrstu æfingu ÁSGEIR Sigurvinsson mætti á sína fyrstu æfingu með Bayern Miinchen, vestur þýska meistara- liðinu i knattspyrnu, á mánu- dagsmorguninn, en þá var þjálf- arinn Pal Csernai kominn með 23 manna hóp sinn i æfingarbúðir til Sonthofen í Ölpunum. Ásgeir gat litið beitt sér á æfingunni, aðeins skokkað léttilega með, enda ekki búinn að ná sér af meiðslum þeim er hann hlaut i hné í siðasta leik sínum með Standard Liege i vor. Marteinn Geirsson skoraði mark Fram úr vitaspyrnu. Framarar voru betri aðilinn og léku oft góðan sóknarleik, sem þeir Pétur Ormslev, Viðar Þor- kelsson og Steinn Guðjónsson áttu mestan þátt í. Þá var Marteinn Geirsson traustur að vanda. Með leik sem þessum virðist Framliðið á réttri leið og er greinilega óhætt að treysta ungu mönnunum. Valsliðið var á hinn bóginn óvenju slakt, sóknin ráðleysisleg og barátta með minnsta móti. Þeir Sævar Jónsson og Ólafur Magn- ússon voru þeir einu sem risu upp úr meðalmennskunni og verður liðið greinilega að fara að sækja sig ef það ætlar að ná einhverjum árangri í sumar. HG Utimótið í hand- knattleik á grasi! íslandsmótið i handknattleik utanhúss fer fram daganna 5—16 ágúst. að þessu sinni veröur mótið haldið á grasi og þykir mörgum það eflaust góð tilbreyting, en síðustu árin hef- ur mótið verið haldið á malbiki. bykir mörgum það heldur leiðir íþróttavellir fyrir utan þá hættu sem fylgir þvi að hrasa á slíkum velli. Mótið verður hald- ið einhvers staðar i Laugar- dalnum og mun landsliðið skip- að leikmönnum 21 árs og yngri sjá um framkvæmd þess. Munu þeir hirða ágóðann ef einhver verður til þess að fjármagna ferð til Portúgals i desember, en þar fer fram HM fyrir þann aldursflokk. Buið að brjota tæp- lega ársgamla reglugerð Útimarkaður Ilandknattleiksdeild FH gengst fyrir útimarkaði á apó- tekstúninu við Strandgötu á morgun, föstudag. Markaðurinn stendur yfir frá kl. 2 til 20.00. Margt eigulegra muna verður til sölu. Meistaraflokkur FH í hand- knattleik notar þessa leið til fjáröflunar fyrir utanferð sna til Danmerkur i ágústmánuði. MEISTARAKEPPNIN i knatt- spyrnu fór fram i gærkvöldi á Laugardalsvellinum, en þá mætt- ust að venju íslandsmeistarar og bikarmeistarar siðasta árs. Hug- myndin með þessum pistli er að kvabba dálítið út af framkvæmd þessa leiks. Hann átti að fara fram 10. júní, en var frestað til kvöldsins í gær vegna beiðni Valsmanna, sem fóru fram á frestun vegna strangs leikja-„prógramms“ um þær mundir. Framarar vildu ekki frestun, en mótmæli þeirra voru ekki tekin til greina. Þá telur undirritaður sig hafa örugga vitn- eskju fyrir því að vallaryfirvöld hafi einnig verið því mótfallin að fresta leiknum þrátt fyrir að slæmt ástand vallar hafi verið nefnt sem ein ástæða fyrir frest- uninni. Nú, en ástæður Vals- manna eru ekki til umræðu, því þær eru í sjálfu sér góðar og gildar. Það sem er hins vegar til umræðu, er reglugerð KSÍ um meistarakeppnina, reglugerð sem ekki er orðin ársgömul, en er þegar búið að brjóta. Á ársþingi KSÍ 1980 var samþykkt sérstök reglugerð fyrir leik þennan og stendur þar meðal annars: „Leik- urinn skal fara fram fyrri hluta júní og skal leikið á grasi." Virðist hafa verið hinn mesti óþarfi að berja saman reglugerð ... — KK- Austur-Þjóðverjar sigruðu í tíu greinum af tuttugu 1500 metra hlaupi á 3:47,22. Frank Emmelmann sigraði í 100 metra hlaupinu á 10,33 sekúndum, Detl- eff Michel sigraði í spjótkasti með kast upp á 88,48 metra, Werner Schildhauer sigraði í 10.000 metra hlaupi á 28:21,58 mínútum, Matt- hias Schmidt sigraði í kúluvarpi á 19,40 metrum og austur-þýska sveitin í 400 metra boðhlaupi hljóp á 39,03 sekúndum. Hollendingurinn Coen Gijsebers sigraði í 400 metra hlaupinu, hljóp á 45,80 sekúndum og er það hollenskt met. Tékkarnir Jan Leitner og Miroslav Kodejs sigr- uðu í sínum greinum. Leitner varð hlutskarpastur í langstökki, stökk 8,06 metra, en Kodejs bar sigurorð af keppinautum sínum í 400 metra grindahlaupi, hljóp á 49,47 sek- úndum. Annars var það einna mark- verðast að í stangarstökkinu sigr- aði Patrick Desruelles frá Belgíu með 5,30 metra stökk. Frakkinn Thierry Vigneron, sem nýlega setti heimsmet í stöng, varð að láta sér nægja 5,20 metra, eða jafn hátt stökk og gildandi íslandsmet í greininni. Emil Puttemans frá Belgíu sigraði í 5000 metra hlaupi, hljóp á 13:50,27, hins vegar sigraði ítalinn Mariano Scartezzini í 3000 en Roland Steuk frá Austur- Þýskalandi sigraði í sleggjukasti, lengsta kast hans var 74,73 metr- ar, en í enn einni hlaupagreininni, 110 metra grindahlaupi, sigraði landi hans Thomas Munkelt, hljóp á 13,55 sekúndum. Einn Þjóðverj- inn enn, Bernhard Hoff, bar sigur úr býtum í 200 metra hlaupinu, tími hans var 20,92 sekúndur. Janus skorar JANUS Guðlaugssun var í miklu stuði er lið hans, Fortuna Köln, hóf undirbúning sinn fyrir næsta keppnistimabil með leikjum gegn áhugamannalið- unum GW Nippes og DS Duer- en. Fortuna lék Nippes sundur og saman og sigraði 12—0. Skoraði Janus tvivegis i leikn- um. Verr gekk að afgreiða Dueren. en sigur hafðist þó að lokum. 2—1. Kom Janus þar einnig við sögu, skoraði fyrra mark Fortuna Köln. AUSTUR-býskaland og ítalia höfnuðu í tveimur fyrstu sætun- um í þeim riðli undanúrslitanna i frjálsum iþróttum. sem keppt var í við Villeneuve d'Asch í Frakk- landi um siðustu helgi. Tryggðu þjóðirnar sér þar með sæti í úrslitakeppni Evrópukeppninnar sem fer fram i Belgrad i Júgó- slaviu dagana 15.—16. ágúst. Austur-Þjóðverjarnir sterku gerðu sér lítið fyrir og sigruðu í helmingi þeirra greina sem keppt var í, eða tíu af tuttugu. Fengu þeir 143 stig, en ítalir hins vegar 125 stig. Þær þjóðir sem voru í þriðja og fjórða sæti, Frakkland með 109 stig og Tékkóslóvakía með 95,5 stig, eiga enn möguleika á því að komast í lokakeppnina, því sérstök keppni fyrir 3.-4. sæta-liðin fer fram í Aþenu í Grikklandi. Efstu liðin úr þeirri keppni komast til Júgóslavíu þrátt fyrir frammistöðuna um helgina. Þess má geta, að Holland, Dan- mörk, Belgía og Grikkland voru einnig meðal keppenda í þessum riðli, Belgía hafnaði í fimmta sæti með 80,5 stig, Holland í sjötta sæti með 63 stig, Grikkland í sjöunda sæti með 57 stig og loks Danir í áttunda sæti með 44 stig. Meðal afreka á mótinu í Frakk- landi má fyrst geta nokkurra þeirra sem Austur-Þjóðverjarnir metra hindrunarhlaupi, en hann ___________________________________ _ ___________ voru að baki. Olaf Bayer sigraði í skokkaði vegalengdina á 8:24,30 _ .. n . . . . , . . . „ .... , • Góður tími náðist f 110 metra gnndahlaupi. bar sigraði Thomas Munkelt, hljóp á 13,55 sek. 1 1 # * II IH 11 m w ■ m ai* i$i

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.