Morgunblaðið - 09.07.1981, Qupperneq 48
Síminn á afgreiðslunm er
83033
JttflrjjitnMatsifo
FIMMTUDAGUR 9. JÚLÍ1981
Flugleiðir hf. taki
breiðþotu í notk-
un vorið 1982
- segir bandarískt ráðgjafarfyrirtæki
„A FLUGLEIÐINNI yfir Norftur-
Atlantshaf teljum við hrntugast að
nota breiðþotu ok ég tel að Flug-
leiðir eÍKÍ að nota tækifærið núna
(>K kaupa notaða breiðþotu, en þær
fást nú á ótrúleKa Iúku verði.“ saKði
I)ixon Speas í samtali við Mb!.. en
hann er forstjóri handariska ráð-
Kjafarfyrirtækisins Aviation Con-
sultinK. sem tekið hefur saman
skýrslu um rekstur FluKleiða á
Norður-Atlantshafsleiðinni.
Dixon Speas telur að á næstu
misserum muni stóru fluKfélögin
breyta stefnu sinni í farujaldamál-
um ok hækka þau þar sem þau sjái
sér ekki lengur fært að bjóða
fargjöld lanRt undir kostnaðarverði
á flugleiðum yfir Norður-Atlants-
hafið. Telur hann betri tíma fram-
undan á þessari flugleið og að
FluKleiðir standi þar traustum fót-
um þrátt fyrir erfiðleika um þessar
mundir. Þess vegna eigi fyrirtækið
að fara út í breiðþotukaup og taka
hana í notkun vorið 1982. Viðræðum
fulltrúa íslands og Luxemborgar um
stuðning við Flugleiðir lauk í
Reykjavík í gær og mun Steingrímur
Hermannsson leggja til við ríkis-
stjórn íslands áframhaldandi stuðn-
ing, en Luxemborgarmenn munu
ákveða sig eftir ríkisstjórnarfund á
morgun.
Sjá nánar á bls. 3.
Hvalvertíðin
gengur vel
IIVALVERTÍÐIN hefur gengið var að semja við Verkalýðsfélagið
Ijómandi vel það sem af er vertíð-
inni ok hafa veiðst 124 lanKreyður
og 1 húrhvalur. sagði Magnús
Gunnarsson hjá Ilval hf.
Vertíðin hófst þann 2. júlí síðast-
liðinn, sem er örlítið seinna en í
fyrra, en það var vegna þess að verið
Afram kalt fyrir
norðan og austan
í DAG er búist við að veðrið á
landinu verði svipað og verið
hefur að undanförnu. sam-
kva'mt upplýsingum er Morgun-
hlaðið fékk hjá Veðurstofu ís-
lands í gærkvöldi. Sunnanlands
verður hægviðri ok breytileK
átt. skúraleiðingar siðdeKÍs.
Á Norðurlandi og Austurlandi
er gert ráð fyrir norðangolu og
kulda, skýjuðu og súld með köfl-
um. Á Vesturlandi er spáð norð-
austanátt, víða kalda og strekk-
ingi í Borgarfirði. Þurrt verður
að mestu á þeim slóðum.
Hlýjast verður því áfram á
Suðurlandi, en nyrðra verða
menn enn að búa við kalt veður-
far. Þar var til dæmis nær alls
staðar aðeins um fimm stiga hiti
á annesjum í gær klukkan 18.
Hörð í Hvalfirði.
Á sama tíma í fyrra höfðu veiðzt
172 langreyður og 2 búrhvalir. Ef
tekin er inn í myndina sá dráttur,
sem varð á því að vertíðin hæfist nú,
má segja að aflinn sé mjög svipaður
nú og í fyrra.
Aðspurður, hvað hvalmerkingum
um borð í Ljósfara liði, sagði
Magnús, að þær gengju mjög vel, en
lítið væri hægt að segja um þær fyrr
en þeim lyki, en óvíst væri hvenær
það yrði.
Séra Sigurði Pálssyni, vigslubiskup, afhent heiðursskjalið á heimili hans í Kær, er hann var gerður að fyrsta
heiðursborgara Selfossbæjar. Á myndinni eru, f.v. frú Stefanía Gissurardóttir, vigslubiskupsfrú,
vígslubiskup. dr. Sigurður Pálsson og Hafsteinn Þorvaldsson, formaður bæjarráðs. i.jósm. Mbl. K \X.
Fyrsti heiðursborgari Selfossbæjar
Dr. Sigurður Pálsson, vígslu-
hiskup á Selfossi. var á áttræðis-
afmæli sinu i gær gerður að
fyrsta heiðursborgara Selfoss-
bæjar. Gerði ba'jarráð kunnugt
um ákvörðun þessa á heimili
vígsluhiskupshjónanna.
Er. sr. Sigurði var afhent heið-
ursskjalið, sagði Hafsteinn Þor-
valdsson, formaður bæjarráðs,
m.a. að Selfossbæ væri sannur
heiður að því að einn virtasti
fræðimaður íslensku kirkjunar
yrði fyrsti heiðursborgari hans og
þakkaði sr. Sigurði langa þjón-
ustu og tryggð við byggðalagið.
Sr. Sigurður Pálsson þakkaði
þennan stórmannlega heiður og
kvaðst alltaf hafa átt sína fram-
tíðardrauma um Selfoss, þó að
sumir hefðu verið vantrúaðir á að
vöxtur bæjarins ætti eftir að vera
slíkur, sem hann væri nú. Hvað
framtíðina varðaði þá væri mest
um vert að kunna að bregðast við
nýjum tíma og nýta hann og að til
þess að rækja best hlutverk sitt,
sem vaxandi höfuðstaður á Suður-
landi, bæri Selfossbæ að leggja
ríka rækt við menninguna.
Þá var séra Sigurður einnig
heiðraður í tilefni afmælisins í
Skálholti, fyrr um daginn. Prestar
fluttu honum kveðjur og honum
voru færðar gjafir.
Þorskafli jókst um 6,4%
fyrstu sex mánuði ársins
ÞORSKAFLINN fyrstu sex
mánuði ársins var samkvæmt
hráðahirgðatiilum Fiskifélags
íslands 308.768 tonn, cn var á
sama tíma í fyrra 290.101 tonn.
Aukningin milli ára er því
liðlega 6,4%.
Bátaþorskaflinn jókst hins
vegar um liðlega 11,4% milli
ára, eða úr 171.376 tonnum í
Sjálfstæðismenn óska eft-
ir borgarstjórnarf undi
FIMM borgarstjórnarfulltrúar
Sjálfsta-ðisflokksins óskuðu i gær
eftir aukafundi í borgarstjórn um
tvö ágreiningsmál borgarráðs og
skyldi fundurinn verða í dag. 9. júlí.
Settur borgarstjóri. Jón G. Tómas-
son. óskaði cftir þvi, 1 samráði við
fulltrúa meirihlutans. að slíkur
fundur yrði ekki haldinn fyrr en
næstkomandi mánudaK. 13. júli —
þar sem allir borgarráðsmenn
vinstrimeirihlutans væru erlendÍN.
auk borgarstjóra og horgarritara.
Vegna þeirrar óvenjulegu stöðu
sem komin er upp í málefnum
borgarinnar hafa borgarfulltrúar
Sjálfstæðisflokks og varamenn
þeirra lýst því yfir að þeir séu
tilbúnir að mæta til aukafunda
borgarstjórnar hvenær sem þess
kann að gerast þörf. í bréfi til setts
borgarstjóra lýsir Davíð Oddsson,
oddviti borgarstjórnarflokks sjálf-
Allir borgar-
ráðsmenn vinstri-
meirihlutans
erlendis
stæðismanna, afstöðu þeirra til ofan-
greinds máls. Þar segir m.a. að í
viðtali við einn af forsetum borgar-
stjórnar í einu dagblaðanna í gær
hafi hann gefið í skyn, að borgar-
fulltrúar Sjálfstæðisflokksins muni
hafa hug á að nota sér stjórnleysi
það og upplausn er ríki innan
meirihlutans til að tefja fram-
kvæmdir á vegum borgarinnar. Sé
þar sérstaklega vitnað til útboðs
gatnagerðarframkvæmda í Suður-
hlíðum, sem samþykkt var með
ágreiningi í borgarráði sl. mánudag.
Við afgreiðslu málsins þá hafi komið
fram, að útboð hefði getað farið fram
í apríl sl. — en borgaryfirvöld hins
vegar dregið það úr hömlu m.a. vegna
óvissu og óreiðu í skipulagsmálum
borgarinnar. Megi rekja þennan
seinagang til þeirrar staðreyndar, að
lægsta tilboðið í þessar framkvæmd-
ir var rúmlega 20 prósentum yfir
áætluðum kostnaði við verkið og
önnur tilboð miklu hærri. Væri aliur
þessi dráttur og hið mikla fjárhags-
tjón, sem af honum leiddi, á ábyrgð
vinstri meirihlutans.
Vegna þeirra alvarlegu ásakana,
sem fulltrúar Sjálfstæðisflokksins
telja að felist í fyrrgreindu blaðavið-
tali, hafi þeir viljað gera sitt til að
ágreiningsefni fengju sem fyrst efn-
islega niðurstöðu og óskaö eftir að
borgarstjórnarfundur yrði boðaður
við fyrsta tækifæri.
Sjá nánar á miðopnu.
190.963 tonn, en samdráttur var
í togaraafla upp á tæplega 0,8%,
eða úr 118.725 tonnum í 117.805
tonn.
Sé litið á heildaraflann, þá
varð samdráttur fyrstu sex
mánuði ársins um 26%, en á
land höfðu borizt 618.299 tonn,
en höfðu fyrstu sex mánuði
ársins á undan borizt um
832.626 tonn á land.
í þorskafla varð aukningin
milli ára mest á Austfjörðum,
en fyrstu sex mánuði þessa árs
bárust þar á land 45.224 tonn, en
á sama tíma í fyrra höfðu borizt
þar á land 36.733 tonn, eða um
23% aukning milli ára.
Eins og áður sagði var afla-
samdráttur fyrstu sex mánuði
ársins um 26%, en mestur varð
samdrátturinn í afla á Norður-
landi, en þar bárust á land
fyrstu sex mánuði þessa árs
81.224 tonn, en á sama tíma í
fyrra bárust þar á land 164.610
tonn. Samdráttur á milli ára er
því 50,7%.
í Hafnarfirði og Reykjavík
var samdráttur milli ára um
40%, en í ár bárust á land 62.166
tonn, en á sama tíma í fyrra
bárust á land þar 102.982 tonn.
Nýjar íslenzkar kartöfl-
ur á markaðinn í ágúst?
BÚIZT cr við að islenzkar kart-
öflur komi á ntarkaðinn i ágúst-
mánuði, ef tið helst sæmilega góð
á Suðurlandi. en kartöflur að
norðan munu verða siðar á ferð-
inni, að þvi er Jóhann Jónasson
forstjóri Grænmetisverzlunar
landbúnaðarins tjáði Mbl.
Kartöflubirgðir landsmanna eru
ennþá miklar og taldi Jóhann
Jónasson þær geta enzt þar til
nýjar íslenzkar koma á markað, en
það væri þó undir geymsluþoli
þeirra komið. Birgðir eru nægar,
en Jóhann sagði það ráðast af
meðferð kartaflna í geymslu hvort
matarþolið héldist fram í ágúst,
en þess eru dæmi fyrr. Kvaðst
Jóhann Jónasson gera sér vonir
um að svo mætti verða, en ef það
yrði ekki myndu keyptar erlendar
kartöflur seint í sumar.