Morgunblaðið - 11.07.1981, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ 1981
9
Norræn
teikning
Á samnorrænu listamiðstöð-
inni í Sveaborg í Helsingfors
stendur nú mikil sýning á teikn-
ingum frá öllum Norðurlöndum,
og mér barst nýlega í hendur
vegleg sýningarskrá, sem gefin
hefur verið út í tilefni þessarar
sýningar. Bragi Ásgeirsson
skrifar þar stutta grein um
teikningu - á íslandi. Sýn-
ingarskrá þessi er hin vandað-
asta og til sóma þeim er að henni
standa, en það eru auðvitað öll
Norðurlöndin sem reka Lista-
miðstöð í Sveaborg.
Frægir menn, safnstjórar og
listamenn áttu sæti í dómnefnd
er valdi verkin á þessa sýningu,
og barst mikið magn af teikning-
um, en 162 verk voru valin eftir
52 listamenn frá öllum Norður-
löndum. Þar að auki ákvað
dómnefndin að bjóða einum
kunnum listamanni frá hverju
landi og urðu fyrir valinu:
Kristján Davíðsson frá Islandi,
Jörgen Römer frá Danmörku,
Ulla Rantanen frá Finnlandi,
Aase Gulbrandsen frá Noregi og
Lena Cronqvist frá Svíþjóð.
Sýning þessi er sett á laggirn-
ar fyrst og fremst til að sanna
gildi teikninga fyrir almenningi.
Því er ekki að neita, að oft vill
brenna við, að fólk haldi að
teikning sé óæðri list en til að
mynda málverk. Þetta er fjarri
sanni. Teikning er eldri en letur-
gerð og sannast það af stein- og
hellnaristum forfeðra vorra um
víða veröld. Teikning er undir-
staða málverks og raunar flestra
listaverka auk þess að vera ein
sannasta og mest iðkaða tjáning
á öllum tímum. Ef menn skrifa
nafn sitt, teikna þeir, svo að lítið
dæmi sé nefnt. Einnig má vel
benda á þann mikla mun, sem er
á grafík og teikningu. Grafík er
fjöldaframleiðsla, sem að vísu er
byggð á teikningu, en teiknuð
mynd er og verður ætíð einstæð
tjáning.
Það vill svo til að ég þekki
nokkuð til þeirra teikninga, sem
Kristján Davíðsson sýnir á þess-
ari sýningu. Ein þeirra er meira
að segja heimilisprýði hjá okkur
hjónum og höfum við haft mikla
ánægju af því verki. Kristján er
framúrskarandi teiknari, sem
kann ágætlega að norfæra sér
Myndllst
eftir VALTÝ
PÉTURSSON
hina viðkvæmu línu og léttleiki
mynda hans hefur aðlaðandi
kraft, sem einnig er að finna í
málverkum hans.
Aðrir Islendingar á þessari
sýningu eru: Sigrún Guðjóns-
dóttir, Sigurður Þórir Sigurðs-
son og Valgerður Bergsdóttir.
Ekki verður fjallað um þeirra
verk, þar sem ég hef ekki séð
þessa sýningu, en ég vil geta þess
að sýning þessi mun fara víðar
um Norðurlönd og er því merkur
atburður, en ekki mun hún sjást
hér hjá okkur.
Það er mjög gott fyrir íslend-
inga að eiga inni með verk sín á
slíkum sýningum og vonandi
verður gott framhald á starf-
semi Listamiðstöðvarinnar í
Sveaborg. Það er sérstakur heið-
ur fyrir Kristján Davíðsson að
vera valinn á þessa sýningu, og
mér finnst ómögulegt að þegja
yfir slíku. Það er oft á tíðum
hvimleitt, hve þögult er hér á
landi um merkilega hluti er
gerast fyrir listamönnum okkar
erlendis og enn leiðinlegra er,
þegar hróður listamanna okkar
hækkar það í hafi, að úr verður
eintómt rugl.
Ég óska Kristjáni Davíðssyni
og hinum á þessari sýningu til
hamingju með frammistöðuna
og vona, að allt gangi að óskum.
IBM á íslandi:
Beint samband við
tölvubanka í Englandi
IBM á Íslandi hefur nú beinan
aðgang að alþjóðlegum upplýs-
ingabanka IBM, þar sem nýjustu
upplýsingar um bilanir og við-
gerðaraðferðir eru sífellt til
reiðu. Nú geta starfsmenn tækni-
deildar IBM á íslandi náð beinu
sambandi gegnum simalinu við
áðurnefndan tölvubanka í Hamp-
shire i Englandi og fengið þaðan
upplýsingar, sem birtast á svip-
stundu á skjá hjá þeim i Reykja-
vík.
Þetta kerfi er nefnt RETAIN.
Inn í samtengdar móðurtölvur í
Englandi, Bandaríkjunum og Jap-
an er stöðugt safnað upplýsingum
um vandamál, sem koma upp í
rekstri IBM-tölva um víða veröld
og jafnframt hvernig vandamálin
hafa verið leyst eða gert hefur
verið við bilanir, hvort heldur er
varðandi hugbúnað eða tækjasam-
stæðurnar sjálfar.
Starfsmenn IBM á íslandi geta
nú með þessa tölvubanka sem
bakhjarl notfært sér reynslu
starfsbræðra sinna á tæknisviðinu
um allan heim. Á tæki sín i
Reykjavík skrá þeir lýsingu á
vandamálinu eða biluninni í
stuttu máli, töivan í Englandi
meðtekur skilaboðin og andartaki
síðar birtast á skjánum hér upp-
lýsingar um samskonar tilvik, sem
skráð hefur verið í einhverju öðru
landi og lýsing á því, hvernig
málið hefur verið leyst þar.
Ef þau tilvik, sem spurt er um,
eru áður óþekkt hjá IBM, kemur
það strax í ljós, þegar móður-
tölvan í Englandi er spurð. Þá er
lýsingin skráð inn í örfáum setn-
ingum og send um tölvunetið til
starfshópa sérfræðinga IBM í
Englandi eða Þýskalandi, sem
hefjast þegar handa um að leysa
málið. Svör þeirra og leiðbein-
ingar birtast svo á skjánum í
Reykjavík, þannig að viðgerðar-
maðurinn hér getur hagnýtt sér
upplýsingarnar fyrir viðskiptavini
IBM á íslandi.
Að sögn Ottós A. Michelsen,
forstjóra IBM á íslandi, hefur
beina sambandið við Retain-
tölvubankann í Englandi auðveld-
að fyrirtækinu að veita skjóta og
örugga þjónustu. Eins og áður sé
nú allt kapp lagt á það af hálfu
IBM á Islandi að lagfæra bilanir í
hug- og/eða tækjabúnaði svo
fljótt sem auðið er, því að hver
klukkustund, sem tölva í stóru eða
smáu fyrirtæki sé óstarfhæf, geti
kostað veruleg óþægindi.
t húsakynnum IBM á tslandi: Þorsteinn Þ. Þorsteinsson og Pétur
Ragnarsson i beinu sambandi við Retain-tölvubankann i Englandi.
Hjörtur Hjartarson, framkvæmdastjóri tæknideildar IBM, fylgist
með.
Flytur fyrirlestra
um sjúkraþjálfun
Karolinska sjukhuset í Stokk-
hólmi og er þekkt fyrir störf
sín og rannsóknir í sjúkra-
þjálfun, segir í frétt frá Félagi
íslenzkra sjúkraþjálfara. Þá er
Ingrid Odéen varaforseti
Heimssambands sjúkraþjálf-
ara.
Tveir fyrri fyrirlestrarnir
eru ætlaðir sjúkraþjálfurum,
iðjuþjálfurum og læknum, en
síðasti fyrirlesturinn er ein-
göngu ætlaður sjúkraþjálfur-
um.
I j
FLÓKAGÖTU 1
SÍMI24647
Einbýlishús
í Mosfellssveit, 6 herb. 4 svefn-
herb., bílskúr 50 fm. Bein sala.
Húsiö er til sýnis um helgina.
10 herb íbúð
viö Eskihlíö í tvíbýlishúsi sem er
efri hæð og ris alls 10 íbúöar-
herb. Tvíbýlishúsaaöstaöa.
Svalir. Sér þvottahús. Tvær
stórar geymslur. Sér hiti, sér
inngangur, bílskúrsréttur.
Hlíöar
3ja herb. íbúö við Engihjalla í
skiptum fyrir 4ra—5 herb. íbúð
í Kópavogi.
Eignarskipti
3ja—4ra herb. vönduö rishæö.
Svalir. Sér hiti.
Eignarskipti
3ja herb. íbúö við Granaskjól.
Æskileg skipti á 5 herb. íbúð.
Má vera í Breiöholti.
Jörö — félagasamtök
Til sölu jörö á fögrum staö í
Rangárvallasýslu. Hentar sér-
staklega vel fyrir félagasamtök.
Aöstaöa til fiskiræktar.
Helgi Ólafsson.
Löggiltur fasteignasali.
Kvöldsími 21155.
Akranes
Til sölu ný og vönduö 4ra herb. íbúö í fjölbýlishúsi viö
Einigrund. íbúöin sem er fullfrágengin er til afhend-
ingar strax og hefur ekki veriö búiö í henni áöur.
Sigurður G. Sigurösson,
Esjubraut 2, Akranesi,
Löggiltur fasteignasali,
sími 93-2120.
Borgarnes — íbúðir
Til sölu eru íbúðir í fjölbýlishúsi t.b. undir tréverk
og málningu.
Tvær 2ja herb. íbúðir á kr. 259.300,- ,
Ein 3ja herb. íbúö á kr. 309.600,-
Ein 4ra herb. íbúð á kr. 358.600,-
Tilbúnar til afhendingar í ágúst—sept. Góðir
greiösluskilmálar.
Uppl. hjá Ottó Jónssyni, sími 93-7347.
Akranes
Til sölu hús-
eignin Akur-
geröi 1, Akra-
nesi, ásamt
meöfylgjandi
eignarlóö og
bílskúr.
Upplýsingar veitir Sig. G. Sigurðsson — löggiltur
fasteignasali, Esjubraut 2, Akranesi. Sími 2120.
INGRID Odéen, sænskur
sjúkraþjálíari, ílytur fyrir-
lestra á vegum Félags ís-
ienzkra sjúkraþjálfara dag-
ana 13.—15. júlí nk., en þeir
fjalla aðallega á sjúklingum
með þverlamanir og stjarfa-
lömun.
Fyrirlestrarnir verða haldn-
ir í kennslustofu þjónustu-
Þjálfun í standbekk.
álmu Borgarspítalans og hefj-
ast klukkan 13.00. Fyrirlestur
sinn 13. júlí nefnir Ingrid
Odéen „Tidig mobilisering mot
vertical planet“. Fyrirlestur
inn 14. júlí nefnir hún „Be-
handling av spastricitet,
nágra forskningsrön" og fyrir-
lestur sinn 15. júlí nefndir
Ingrid Odéen „Tippbráda, ett
faciliteringshjálpmedel för
sjukgymnasten".
Ingrid Odéen starfar við