Morgunblaðið - 11.07.1981, Side 11

Morgunblaðið - 11.07.1981, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ1981 X 1 Frá tónleikum i Jóhannesarkirkjunni í Rheydt. Ljósm. Gunnlaugur Sigfússon. öllum frjálst að láta stjórnast af öðru en hagsmunum sínum, en þeir duga ekki lengi í frjálsri samkeppni. Að síðustu skyldu menn athuga, að frjáls markaður á ekki við allt mannlíf, einungis opinber efnahagsleg samskipti manna en ekki einkalíf. Það er ekkert, sem kveður á um, að menn geti ekki verið fórnfusir og óeigin- gjarnir í einkalífi, þótt aðrar reglur gildi um samskipti þeirra á frjálsum markaði. Þriðja einkenni frjálshyggju samtimans er eindregin andstaða við samhyggju eða sósíalisma af öllu tæi og sú skoðun, að sam- hyggja hafi verið hrakin með rökum. Af þessum einkennum, sem hér hafa verið rakin, spretta marg- vísleg viðhorf til atburða líðandi stundar. Fáein umhugsunar- og áhyggjuefni frjálshyggjumanna úr samtímanum eru verðbólga, skólakerfi og sterkt ríkisvald. Flest þessara einkenna má sjá i fyrsta árgangi Frelsisins. Ólafur Björnsson skrifar þar grein um Ludwig von Mises og þá skoðun Misesar, að hann hafi afsannað samhyggju, og um huglægu virðis- kenningu Misesar. Ritstjórinn fjallar um kenningu Robert Noz- icks um lágmarksríkið, sem felst i því, að ríkið hafi það eitt hlutverk að tryggja lög og rétt og annað ekki, og um, hvernig og hvaða rök hníga til þessarar skoðunar. Rit- stjórinn kynnir Mont Pelerin- samtökin og bókabúð í New York, sem verzlar með bækur um frjáls- hyggju, og Skafti Harðarson kynnir samskonar bókabúð í Lundúnum. F.A. Hayek á fyrir- lestur, sem nefnist Miðjumoðið, þar sem sýnt er fram á, að sú forsenda velferðarríkisins, að dreifing lifsgæðanna sé siðferði- legur vandi en framleiðsla þeirra ekki, er fræðileg villa. Matthías Johannessen birtir tvö ljóð í þessum árgangi. Eyjólfur Konráð Jónsson setur fram álit sitt á því, hvernig sigrast eigi á verðbólg- unni með snöggu átaki, Jónas H. Haralz gerir athugasemdir við hugmyndir Eykons. Þorvaldur Búason og ritstjórinn skrifa ítar- lega gagnrýni á tvær bækur um samfélagsfræði, eða lýðfræði, eins og ritstjórinn vill kalla félags- fræði. í þessum tveimur greinum koma saman flest þau einkenni frjálshyggjunnar, sem að framan eru talin: eindregin andstaða við samhyggju af öllu tæi, stuðningur við frjálsan markað, áhyggjur vegna innrætingar í skólakerfinu og andstaða gegn vöggustofuvel- ferð sameignarinnar. Auk þess gengur skýrt fram af þessum greinum tveimur hugtakarugland- inn, sem viðgengst í þessum bók- um. En hluti félagsfræðinga, og raunar annnarra, sem fást við mannvísindi, er ekki við eina fjölina felldur í þeim efnum. Mér er sagt, að skólameistari einn hér í borginni hafi það fyrir sið, þegar hann á tal við félags- fræðinga, sem trúa því, að öll greind ráðist einungis af um- hverfi, að spyrja þá, hvort það sé tilviljun, að mongólítar séu ekki prófessorar í félagsfræðum. Og bæti því gjarnan við, þegar fátt verði um svör, að það skipti kannski engu máli, því að enginn mundi taka eftir muninum. Það er til einhvers unnið við útgáfur tímarits á borð við Frels- ið, ef tekst að reka þvættinginn ofan í fimbulfambarana í fræðum og stjórnmálum, sem vaða uppi í landinu óáreittir. En Frelsið hefur auk þess boðskap að flytja um, hvernig skynsamleg^st sé að haga mannlegu félagi. Rits, sem hefur eitthvað að segja, bíða ærin verk- efni. Guðmundur Heiðar Frímannsson Stund á milli stríða. Á myndinni eru frá vinstri Hörður Áskelsson organleikari og kórfélagarnir Jón Sigurmundsson. Haukur Tómas- son, Gerður Gunnarsdóttir, Bogi Þór Siguroddsson, Erna Ingvarsdótt- ir, Magnús Baldursson og Sigurlaug Lövdahl. Ljósm. Gunnlaugur Sigfússon. upp byggður, tónvís og hljómfag- ur. Getur hann um mjög góðan sópraneinsöng Rannveigar Braga- dóttur í Máríuversi Páls ísólfsson- ar og nefnir, að kórfélagar leiki einnig á strengjahljóðfæri auk þess sem tónsmiður og ljóðskáld séu í hópnum. Á tónleikunum í Wuppertal lék Hörður Áskelsson organleikari einleik á milli kór- verka, en hann hefur nýlokið A-prófi í Tónlistarháskólanum í Dússeldorf. Flutti Hörður Recit de Nazard úr Suite im 2. Ton eftir L.N. Clérambault. Grein sinni lýkur Arnd Richter á þeim orðum, að tónleikar Hamrahlíðarkórsins hafi enn sýnt, að vestur-þýskir kórar séu illa á vegi staddir og hafi dregist aftur úr. MEKTARAVERK CHRVSLER LeBAIQxl ð CHRYSLER Le BARON 198iereinn ZSXSXSZ"ekR'- LE„ u.b»bom CHBVSLGB SSS& SSfflÆ 'srícss: ts? - .<»» s •■jss 'fl ISSXh LeBABON « MEISTABAVEBK O Wlökull hf. Ármúla 36 Sími: 84366

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.