Morgunblaðið - 11.07.1981, Side 13

Morgunblaðið - 11.07.1981, Side 13
 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ1981 13 Helgarviðtaliðl ^^■■■^^^■■i■■■■^■ Hasshundurinn SkipperHB Áfangar heitir tímarit sem nýlega kom á markaöinn en í blaöinu er fjallaö um útiveru og ferðamál. Ritstjóri blaösins og útgefandi heitir Siguröur Sigurðarson, ungur maöur og áhugasamur um þessi mál. Hann var spurður um aödragandann að útgáfu tímaritsins Áfanga. Sigurður Sigurðsson, ritstjóri og útgefandi Áfanga: Skemmtilegasta verkefni sem ég hef tekist á við „Undirbúningurinn aö útgáf- unni hófst fyrir rúmu ári, en ég hafði velt þessu lengi fyrir mér,“ sagði Sigurður. „Ég byrjaði að velta þessu fyrir mér í mars- mánuði í fyrra og fyrst beindist hugsunin að því að fá einhvern til aö gefa blaöiö út fyrir mig, en ritstýra því sjálfur. Síðan sá ég að það væri miklu skynsam- legra að gefa blaöið út sjálfur, með því móti vaeri £g minn eiginn herra og enginn til aö skipta sér af mér og útgáfunni. Því tók ég þá ákvörðun aö stofna mitt eigið útgátufyrirtæki til aö gefa út blaðið Áfanga og unarsveitanna. Ég hef mikinn áhuga á aö styöja viö bakið á þessum aðilum. Þá taldi ég mig geta fengiö velvilja þessara aðila og jafnframt sæju þeir ástæðu til að kaupa blaðiö fyrir vikiö,“ sagði Sigurður. Einn og óstuddur Hvernig hefur reksturinn gengið? „Þaö var gífurlega erfitt aö fást viö þetta til aö byrja með, ég lagði í mikinn kostnaö og fékk mjög litla fjárhagslega fyrirgreiðslu hjá bönkum. Það átti eftir aö draga dilk á eftir ey, Botnssúlur, Landmanna- laugar, Heklugosið 1980. og fleira. f öðru blaöinu sagöi Siguröur aö fjallað heföi veriö um Öskju og Dyngjufjöll, gönguleiðir í nágrenni Reykja- víkur og útivistarstaöi víðsvegar um landiö. í síöasta blaöi heföi svo verið fjallað um Ódáöa- hraun, fjallvegi á íslandi, göngu- leiöir á Vesturlandi og fleira. Margir hafa áhuga á blaðinu Hefur blaðið náð einhverri útbreiðslu? „Við erum þessa dagana aö SÍKurður Siguröarson Wtem. Mbi. Emiha fjalla í þvi um útiveru og ferða- mál, en ég hef alla tíð haft mikinn áhuga á þessum maíum. Litprentað að miklu leyti Ég gerði mér grein fyrir því aö ef ég gæfi blaðiö ekki út sjálfur, þá yröi ég ekki sjálf- stæöur og réði ekki fyllilega efnisvalinu í blaöð. Ég hóf undirbúning aö fyrsta tölublaöi Áfanga í ágústmánuði og sagöi jafnframt upp starfi mínu sem blaðamaöur. Ég gat því snúið mér óskiptur aö Áföngum þann 1. september og tók þá til óspilltra málanna. Hvaö efni blaösins varöaöi hafði ég hugsaö mér aö hafa blaöiö fræðandi, af lestri þess gæti fólk fræöst um landið. Einnig vildi ég hafa blaöiö lýsandi og í því skyni var nauösynlegt að birta margar myndir í blaöinu, ekki síst margar litmyndir. Rit sem á að vera landkynningarrit nær ekki tilgangi sínum nema þaö sé litprentað að miklu leyti,“ sagöi Siguröur. „Ég ákvaö í upphafi aö sækj- ast eftir samstarfi við ýmsa aöila sem hafa feröamál á stefnuskrá sinni, og hef ég samvinnu viö Feröafólagið, Úti- vist, Skotveiöifélag Islands, Landssamband hjálparsveita skáta, Flugbjörgunarsveitína, björgunarsveit Slysavarnafé- lagsins og íslenska Alpaklúbb- inn. Ég vildi samstarf við þessa aöila líka vegna þess aö þaö er nauösynlegt að vekja athygli á starfsemi þeirra, ekki síst björg- sér. Ég reyndi aö auglýsa út- komu fyrsta tölublaösins ræki- lega, en þar reisti ég mér huröarás um öxl, og því hef ég ekki getaö auglýst útkomu hinna blaöanna eins rækilega og ég heföi óskaö. En þess ber aö geta aö ég stend einn og óstuddur í þessu og er öllum óháður og fjárhagsgetan er því mjög lítil. Nú er svo komið aö eftir þau þrjú blöö sem út eru komin hefur áhugi fólks greini- lega vaknaö. Á degi hverjum berast nú tugir áskrifta, þannig aö sá tími sem blaöiö hefur veriö á markaðnum hefur nýst því til kynningar, fólk hefur kynnst blaðinu og vonir standa til þess að blaöið gangi vel í sumar.” Berst til þrautar „Ég er oröinn þaö bjartsýnn aö þaö stoppar mann ekkert héöan af, ég er orðinn haröák- veðinn í því aö berjast til þrautar fyrir þessu blaöi. Ég fæ líka hvatningu frá mörgumaöil- um og menn sem séð hafa blaðiö, hafa sagt mér aö þeir teljí aö þetta blaö eigi fyllilega rétt á sér. Ég held aö þetta blað sé ekki sambærilegt viö neitt annaö sem kemur út hér, ég veit ekki um neitt annaö þar sem möguleikar til feröalaga og útiveru eru kynntir," sagði Sig- uröur. Spurningu um efniö í blaðinu, svaraöi Siguröur þannig aö í fyrsta blaöinu, sem út heföi komið, heföu veriö greinar um ýmislegt, t.d. Þórsmörk, Surts- vinna aö bréfi sem verður sent þeim aöilum sem eru í þeim félögum sem viö erum í tengsl- um viö. Verður bréfiö sent til um tíu þúsund aöila, og ég vona aö þaö skili sér aö einhverju leyti í áskriftum. Viö erum nú aö leggja síöustu hönd á næsta blaö og verður þaö fjölbreytt aö efni. Meöal annars veröur fjall- aö um Drangey, Heröubreið og Kerlingafjöll og ýmislegt fleira, t.d. veröa leiðalýsingar í blaöinu og fræðandi efni. Einnig veröa margar litmyndir, eins og í blööunum sem út hafa komið.“ Er ekki erfitt aö standa í svona útgáfu? „Þetta er þaö skemmtileg- asta verkefni sem ég hef nokk- urn tíma tekist á viö. Ég hef kynnst fólki úr öllum landshorn- um í gegnum jjetta, sem annað- hvort hefur orðiö vinir mínir eöa kunningjar og hefur þaö haft mikinn áhuga á þessu blaöi. Það er ómetanlegt aö flnna þaö aö margir hafa áhuga á blaöinu, hvaö svo sem framtíöin mun bera í skauti sér. Til dæmis hafa menn komiö að máli viö mig og boðið mér greinar um hin marg- víslegustu mál og myndlr til blrtingar í blaöinu. I þessu sambandi vil ég nefna þrjá menn sem hafa reynst mér sérstaklega vel, þá Tómas Ein- arsson, kennara, dr. Svein Jak- obsson, jaröfræöing, og Jón Gauta Jónsson, sem nú er orðinn formaöur Náttúruvernd- arráös. En auðvitað er hægt að nefna miklu fleiri,“ sagöi Sig- urður Siguröarson. “.iblijlri L(il x-i i i>>'. Hasshundurinn Skipper af Lahradorkyni. kom til landsins fyrir nokkru. en hundurin er frá Danmörku og umsjónarmaður hans hér er Sna>björn Aðal- steinsson lögreglumaður. Illað- verpingar hittu þá félaga á dög- unum og spjölluðu við Snæbjörn um þjálfunina ytra. hundinn og fleira. Þjálfaður í Danmörku „Skipper er fæddur þann 8. apríl 1980 og er því 15 mánaða gamall," sagði Snæbjörn. „Danska lögregl- an keypti Skipper fyrir íslensku lögregluna í desember á síðasta ári og fóru þeir strax að þjálfa hundinn og voru það undirstöðu- æfingar til að byrja með. Ég fór síðan til Danmerkur í janúar síðastliðinn og fór strax í hunda- deild Kaupmannahafnarlögregl- unnar, en þar er þjálfunarstöð fyrir lögregluhunda í Danmörku. Þar var ég kynntur fyrir þjálfara Skippers, John Ficher Jensen, en hann er afburða snjall í hunda- Snæbjörn Aðalsteinsson og Skipper Sé ekki eftir að haf a tekið þennan hund þjálfun. Við störfuðum síðan sam- an í nokkurn tíma og kenndi hann mér meðferðina á hundinum. Við Skipper vorum látnir kynnast, enda er það nauðsynlegt ef maður og hundur eiga að geta starfað saman og tókst með okkur mikill vinskapur. Síðan hélt þjálfunin áfrarn," sagði Snæbjörn. Léttur í skapi „Skipper reyndist mjög næmur hundur og fljotur að taka við sér, enda náðum við góðu sambandi hvor við annan. Eftir 3 vikur vorum við farnir að taka þátt í húsleitum, þar sem leitað var að fíkniefnum, og þess á milli var unnið að þjálfun hundsins." Því hefur verið fleygt að svo- kallaðir hasshundar séu gerðir að eiturlyfjaneytendum og þannig hvattir til að finna slík efni. Er það rétt? „Nei, það er fjarstæða, hund- arnir eru ekki gerðir að neytend- um, enda er það ekki hægt dýr- anna vegna, slíkt er ekki hægt að gera hundum. Slíkir hundar myndu heldur aldrei endast lengi,“ sagði Snæbjörn. Hvernig fer leit að fíkniefnum fram? „Leitin er þannig upp byggð að hún er leikur manns og hunds. Ef hundurinn er leiður til dæmis, þá þýðir ekki að láta hann leita. Hundarnir eru nefnilega eins og við, þeir eru í mismunandi skapi á hverjum tíma, ekki alltaf vel upplagðir. Danir velja Labrador- hunda með sérstaka lund í fíkni- efnaleitir. Hundarnir verða að vera léttir í skapi og hafa ánægju af að leika sér, því leit að efnum er leikur í hundsins augum. Hund- arnir verða því að hafa ánægju af því að leika sér, „happy hunder", eins og Danir kalla þá.“ Valinn sérstaklega Hverskonar efni finnur hundur- inn? „Skipper er þjálfaður í því að finna hassefni, heróín, amfetamín og kókaín. Það er æskilegast að vera ekki með hundinn í of mörgum efnum, til að þeir geti betur einbeitt sér. Því væri ráð að hafa fleiri hunda. Hundurinn verður að vera nákvæmur í því sem hann gerir, það er grundvall- aratriði. go snis ,óimoJ tí 4,Is TÍgia.ti &Uul Þegar við höfðum lokið þjálfun- inni í Kaupmannahöfn, fórum við Skipper í próf í leit að fíkniefnum. Það gekk ágætlega og voru yfir- menn deildarinnar ánægðir með útkomuna. Þess ber að geta að þessi hundur er valinn sérstaklega af Dönum fyrir okkur. Þeir iögðu sig í líma við að útvega okkur reglulega góðan hund. Þeir gerðu allt sem í þeirra valdi stóð til að þetta heppnaðist vel,“ sagði Snæ- björn. Má ekki af mér sjá „Okkur Skipper kemur reglu- lega vel saman. Það má segja að hann megi ekki sjá af mér. Þegar hann kom til landsins var hann settur í einangrun, sóttkví til varnar því að sjúkdómar bærust með honum til landsins. Þessi tími var erfiður fyrir Skipper, það var mikill leiði í honum. Hann mátti ekki koma nálægt öðrum hundum, en hann hafði verið í hundahóp í Danmörku og saknaði hann þess greinilega. Það tók á taugarnar hjá honum að vera í einangrun. Þegar við höfðum fengið leyfi fyrir hundinum, sagði yfirdýra- læknir að hann ætti ekki að eignast hvolpa hér. Hundurinn væri vinnudýr, en ekki til undan- eldis,“ sagði Snæbjörn. Hvernig er farið að því að velja Labradorhund til fíkniefnaleitar? „Danirnir vilja hafa hundana alveg sérstaka. Þeir vilja til dæm- is ekki hafa þá of stóra, frekar í nettara lagi, en Skipper er ekki sérlega stór af Labradorhundi að vera. En þessir hundar þurfa mikla athgli. Þegar Skipper var í einangruninni fór ég oft á dag til að leika við hann og útbúa handa honum þrautir, til að halda hon- um í þjálfun. Ég held að það sé útilokað að vera með svona dýr lengi án þess að láta sér þykja vænt um það. Ég hafði aldrei átt hund, eða verið með hundi neitt að ráði fyrr en nú. Þessi tegund, Labradorar, eru mjög vel gefnir, blíðir og barngóð- ir. Skipper er þeim mun betri við krakka, því yngri sem þeir eru. Einnig hefur Skipper sérstaka aðferð til þess að gera mér skiljanlegt að hann vilji fara út, hann fer og sækir skóna mína og kemur með þá til mín. Nei, ég sé ekkert eftir því að hafa tekið þennan hund, sagði Snæbjörn Aðalsteinsson. nowínéloíÉ lublöiJó :sJ39q ‘ .'kUlls t.liioj ÚK I >

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.