Morgunblaðið - 11.07.1981, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 11.07.1981, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ1981 lifandi afl í harðræði, umbrot- um og kúgun, vegna þess að honum var gaumur gefinn. Byltingartíð Á síðustu áratugum hefur nánast orðið bylting í samfé- lagsháttum íslendinga. Nýir atvinnuvegir og umbylting hinna gömlu, allt krefst þetta kunnáttu og þjálfunar, sem aðeins getur skilað sér í tak- Maður þarfnast skemmtunar á öllum aldursstigum en aldr- að fólk þarf stundum nokkra hvatningu til að vera með. Eða hefur nokkur maður nokkru sinni séð fegurra andlit en hrukkótta og veðurbarða ásjón gamals manns, með ver- aldarsálina í augum? Eða hef- ur nokkur hönd nokkru sinni verið mýkri en vinnulúna hendin sem strauk tár af ungum hvarmi? Iláðist að sjálfsvirðingu Það hefur ætíð gerst í gegn- um tíðina að mönnum hefur verið safnað saman í búðir eða stofnanir, þar sem sjálfsvirð- ingu þeirra hefur verið ógnað. Þá gildir einu hver aldurshóp- urinn er ef skipulega er ráðist að sjálfsvirðingu manna. Nú fer fjarri að það hafi alltaf verið ætlunin að vega í þann knérunn, en hvers má vænta ef menn eru gerðir óvirkir? Við hverju er að búast ef fólk er vistað þar sem það hefur ekk- ert til málanria að leggja, ekkert til að takast á við, ekkert til að gefa? Er ekki líklegt að sjálfsvirðingin, at- hafnasemin, þjónustan, já mennskan standi þar höllum fæti? Það gildir einu hvar maðurinn er staðsettur ef þetta eru þau viðhorf sem við blasa og á hugann leita. Ef til vill er kominn tími til að snúa við heilræði Páls og segja: Lát engan líta smáum augum á elli Þú skalt standa upp fyrir hinum gráhœrða og heiðra hinn aldraða, og þú skalt óttast Guð þinn. Svo stendur í 19. kafla 3. Mósebókar. Stundum hefur heyrst og það hefur verið látið að því liggja að slík fyrirmæli helgrar bókar væru nokkurs konar trygging til handa hin- um eldri um mannsæmandi viðurværi og stöðu í samfélagi, þar sem vernd og öflun viður- væris fjölskyldunnar hvíldi á herðum hinna ungu, hraustu og sterku. Svo er trúlega að hluta. En bak við þessi orð er annar og mun víðtækari skiln- ingur. Heill og hamingja, við- gangur, vöxtur og afkoma, er undir samstöðu og samheldni allra aldursstiga fjölskyldunn- ar komin. Þar sem verkleg kunnátta skilaði sér frá einni kynslóð til annarrar, er aug- Ijóst hversu rof á samskiptum aldurshópa eða kynslóða hafa verð alvarleg fyrir alla verk- kunnáttu og þar með afkomu. En það var fleira sem skipti máli. Andlegur arfur kynslóð- anna, reynsla þeirra ára, sem hin gráu hár vitnuðu um, skyldi ekki heldur lítilsvirtur og léttvægur fundinn. GaKnkvæm virðing En viðhorfið til annarra ald- urshópa skyldi heldur ekki vera virðing og tillitssemi á eina hlið. Lát engan líta smá- um augum á æsku þína, skrif- aði Pál! postuli til Timoteusar. En með gagnkvæmri virðingu, tillitssemi og samstöðu kyn- slóðanna var von hamingjuríks lífs. Öllum er okkur ljóst, að sömu viðhorf og hin framan- greindu sjónarmið suður í ísrael fyrir árþúsundum, voru ráðandi í samfélagi þess fólks, sem byggði þetta land. Verkleg kunnátta skilaði sér frá for- eldrum til afkomenda, og and- legur arfur íslenskrar þjóðar skilaði sér sömu leiðina og varð Að miðla reynsluforðanum, því að ungur nemur hvað gamall temur. nokkur tilraun hafi verið gerð, . flestum tilvikum, til endur- þjálfunar eða endurmats á lífsstíl, er ekki undarlegt þó spurning vonsvikins manns heyrist: „Hvaða gagn er að mér sem gömlum manni?" Auglýs- ingar, fréttamyndir, frásagnir af atburðum og uppákomum stundarinnar, alls staðar er ungt fólk og fallegt yfirgnæf- andi. Hrukkóttur vangi, vinnu- lúnar hendur, bogið bak, hverj- um þykir það fréttefni, eða verðugt myndefni, hvað þá vænlegt í sölumennsku auglýs- inganna? Er þá undarlegt þó menn efist um að þeir eigi nokkurn tilgang framar? Og þó er þetta allt saman afstætt. * Fyrirbænin er mikilvægt verkefni aldraðs fólks. gefið og gráu hárin vitna um. Þú átt reynslu áranna og þann þroskaða skilning, sem barátta við misjafnar aðstæður gefur. Þú geymir í huga þínum og sál verðmæti, sem eru ómetanleg vegna þess að það eru verð- mæti lífsins sjálfs og það er harmur ungri kynslóð ef hún fær ekki kynnst þessum verð- mætum á lifandi hátt. Ég held líka að þú með reynslu áranna að baki þekkir ráð til að finna þessari auðlegð, sem þú átt farveg til þeirra, sem mest þurfa. Annir elliára Ég heimsótti fyrir rösku ári elliheimili í Finnlandi. Þar var ég kynntur fyrir gamalli konu, sem alla ævi hafði búið í þægindasnauðu húsi, þar sem hvorki var renandi vatn, snyrt- ing né upphitun önnur en frá opnum eldi. Sjálf hafði hún borið inn vatn, höggvið við og gert annað það, sem til þurfti. Nú hafði hún öll þau þægindi, sem við teljum sjálfsögð. Mér fannst því ekki óeðlilegt að spyrja hvort hún fyndi ekki til viðbrigða og hvort hún hefði nú nóg fyrir stafni, minnugur þess hve auðvelt er að verða óvirkur og atkvæðalaus við svo róttækar breytingar. En hún svaraði: „Ég hef aldrei haft meira að gera en nú, því nú þarf ég að biðja fyrir öllum þeim sem hafa það ekki eins gott og ég.“ Þeirrar samábyrgðar skul- um við minnast, hversu mörg sem árin er að baki. ítarlega er fjallað um mál- efni aldraðra í síðasta jóla- hefti Kirkjuritsins undir yfirskriftinni Afi og Amma. Ritstjórn Morgunblaðsins tekur við spurningum sem óskað er svara við á þessari síðu. Utanáskrift: Ritstjórn Morgunblaðsins Á kristniboðsári c/o Bernharður Guðmundsson Aðalstræti, Reykjavík Spurt er: jppí^ mörkuðum mæli frá kynslóð til kynslóðar, í það minnsta þegar breytingin verður með þeim hætti sem orðið hefur. Tölvu- væðing og endurskipulagning kennsluhátta, hefur líka gerst á þann veg, að óljóst er hvernig andlegur arfur fær skilað sér með beinum, persónulegum tengslum frá eldri borgurum til hinna yngri, og þyrstir þó báða aldurshópa eftir nánari tengslum og tjáskiptum. Fimm kynslóða fjölskyldur Þá er þess og að gæta, að þeim hefur fjölgað mjög, sem náð hafa háum aldri. Kynslóð- irnar eru ekki lengur þrjár, eins og algengast var, heldur fjórar eða fimm. Áður va*- talað um unga, fullorðna og aldraða. Nú getum við í það minnsta bætt hópi háaldraðra við. Þegar við þetta bætist að yngri kynslóðirnar hafa verið önnum kafnar fram úr hófi, og hinir eldri hafa orðið að láta af störfum í fullu fjöri án þess Séra Sigurður Helgi Guð- mundsson er sóknarprestur Víðistaðasóknar i Hafnar- firði, en mikið starf þess safnaðar fer einmitt fram á Hrafnistu, dvalarheimili aldr- aðra þar í sókn. Sr. Sigurður Helgi er formað- ur öldrunarnefndar kirkjunn- ar. þína. Það gildir nefnilega það sama í okkar samtíð og á dögum Móse, að órofin sam- staða allra aldurshópa, er grundvöllur hamingjuríks samfélags. Ef tengslin rofna skapast vandamál, unglinga- vandamál, foreldravandamál, ellivandamál. Það sem við köll- um vandamál af þessu tagi, eru aldrei einangruð fyrirbrigði. Þau eru afleiðing af sérhags- munastefnu einhvers sem sér ekki út fyrir daginn né stund- Svar við spurningu Og nú vildi ég svara þér aldraði maður, þegar þú spyrð: „Hvaða gagn er að mér sem gömlum manni?" Ég veit ekki hvað þú telur gagnlegt, hvort það er í þínum augum að stunda það sem þú hefur áður gert? Ég veit ekki heldur hvort þú telur þig öllu sviptan og möguleikalausan? Ég hlýt að svara út frá mínu elgin lífsvið- horfi. Og þá fyrst: Lát engan líta smáum augum á elli þína. Þú átt það sem árin ein geta Hvaða gagn er að mér sem gömlum manni?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.