Morgunblaðið - 11.07.1981, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 11.07.1981, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ1981 V-Þýzkaland: 46 Afganir f orðuðu sér úr f lugvél og báðust hælis Frankfurt. 10. júlí. AP. FJÖRUTÍU og sex Afganir forðuðu sér af pakistanskri júmbóvél er hún millilenti í Frankfurt snemma á föstudag á leið til Afganistan. Ruddust mennirnir inn i flugstöðvarbygginguna og báðu um hæli, að því er flugvallarstarfsmenn sögðu. Eftir aö mál mannanna hafði verið kannað kom í ljós að tveir þeirra höfðu gildar áritanir til Vestur-Þýzkalands. Vélin var á leið frá London til Karachi, og á áætlun var milli- lendingin í Frankfurt þar sem um 50 manns ætluðu að fara frá borði. Talsmaður flugvallarins sagði að fólkið hefði pantað sér miða í ferð frá Karachi í því skyni að fara af í Frankfurt. Þegar sú vél var komin vel áleiðis kom í ljós að þeir urðu að fara alla leið til London, þvi að ekki var ætlunin að stoppa í Frankfurt í þeirri leið. Akváðu mennirnir þá að taka sér far með næstu vél frá London sem hefði viðkomu í Frankfurt. Svo virðist sem allt þetta hafi verið í undirbúningi drjúgan tíma og nú hafa um níu þúsund Afganir óskað eftir að fá hæli í V-Þýzka- landi síðan Sovétmenn gerðu inn- rás í landið. I kvöld var verið að íhuga beiðnir mannanna og voru 23 enn á flugvellinum meðan þeir biðu niðurstöðunnar. Indira ver kaup á erlendu korni Nýju Delhi. 10. júli. AP. INDIRA Ghandi, forsætisráðherra Indlands. hefur sætt gagnrýni i heimalandi sínu fyrir að kaupa korn frá Bandaríkjunum. þrátt fyrir að nægilegt korn sé til í kornhlöðum landsins. Hún sagði, að nauðsynlegt væri að kaupa korn til að byggja upp varaforða. „Þessi kaup á korni eru nauðsyn- leg til að koma í veg fyrir verðhækk- un erlendis. Kornkaupin eru hag- stjórnartæki og liður í baráttunni gegn verðbólgunni," sagði Ghandi við fréttamenn í Nýju Delhí í dag. Hún sagði, að það væri lífsnauðsyn fyrir Indverja að vera ekki undir hæl óstöðugs markaðar. Þó Indverjar framleiddu nú nægilega kornvöru til að anna eftirspurn innanlands, þá mætti lítið útaf bera. Ef uppskeru- brestur yrði, þá þýddi það hækkað heimsmarkaðsverð og aukna verð- bólgu í landinu. Indira Ghandi sagði, að nú væru til varakornbirgðir sem næmu 13,7 milljónum smálesta. Indira Ghandi benti á, að stjórn sinni hefði orðið verulega ágengt í baráttunni við verðbólguna. Tekist hefði aö koma henni úr 21,4%, þegar hún tók við völdum, í 11%. Hún lét í ljósi áhyggjur af fólksfjölgun í landinu og sagði að ef svo héldi afram sem horfði, þá gæti indversk- ur landbúnaður ekki fullnægt eftir- spurn innanlands. Ólæti við jarðar- f ör McDonnells Bolfast. 10. júlí. AP. ÓLÆTI brutust út í jarðarför Joe McDonnells í Belfast í dag, þegar breskir hermenn reyndu að ná grimuklæddum vopnuðum mönnum, sem skutu kveðjuskotum írska lýðveldishersins yfir kistu McDonnells að gömlum sið. Hermennirnir skutu plastkúlum að hópi ungmenna, sem varðist með grjótkasti. Nokkrir særðust í ólátunum og rómverskir prestar sögðu að tveir hefðu látist. Olætin brutust út skömmu eftir að rómversk-kaþólskur prestur sagði við jarðarförina, að breska stjórnin hefði ekki komið hreint fram við írska samingamenn, sem reyndu að bjarga lífi McDonnells. Hann sagði, að McDonnell, sem var í mótmælasvelti í Maze- fangelsinu í yfir 60 daga, hefði vonað, að komist yrði að sam- komulagi við brezku stjórnina um breytta meðferð á írskum föngum. Pat McGeown, sem er 25 ára, hóf mótmælasvelti í fangelsinu í dag í stað McDonnells. Hann er dæmdur fyrir að koma sprengju fyrir í Europa-hótelinu í Belfast. Tékkóslóvakía: Andóf smaður dæmdur Vinarborg, 10. júli. AP. TÉKKNESKUR baráttumaður fyrir mannréttindum, Jiri Gruntorad, var i dag dæmdur til fjögurra ára fangelsisvistar fyrir „starfsemi sem er f jandsamleg hagsmunum ríkisins“, eins og sagði i dómsorði. Likur eru á því að tiu til viðbótar verði leiddir fyrir rétt innan tíðar bornir svipuðum sökum. Gruntorad var einn af frum- kvöðlum Mannréttindahreyfingar Tékkóslóvakíu. Meðal þeirra tíu sem eiga réttarhöld yfir höfði sér eru Jiri Hajek, fyrrverandi utan- ríkisráðherra, og Olga Havel, kona leikskáldsins Ivan Havel sem situr í fangelsi. Stjórnmálafréttaritarar segja að aðgerðir stjórnvalda í Tékkó- slóvakíu nú sýni að þau séu staðráðin í að ganga milli bols og höfuðs á andófsmönnum og haft er fyrir satt að Rudolf Battek, fyrrverandi þingmaður og mjög virtur borgari, verði leiddur fyrir rétt síðustu daga júlímánaðar. Evelyn Walker — ánægð á svip en hún fékk 3 milljarða gkróna i skaðabætur. Slmamynd AP. Dregin á tálar: Fékk þrjá milljarða gkróna í skaðabætur San Diego. 10. jáll. AP. KONU nokkurri vestur i Bandarikjunum voru dæmdir rétt um þrir miiljarðar gkróna i skaðabætur i vikunni. Hún höfðaði skaðabótamál á hendur sálfræðingi nokkrum, sem hún staðhæfði að hefði dregið sig á tálar. Rétturinn var henni sammála og dæmdi henni hæstu skaðabætur i sliku máli i sögu Bandarikjanna. Málsatvik voru þau, að konan, Evelyn Walker, hóf að fara tií sálfræðingsins Zane Perzen. í tvö og hálft ár gekk konan til Perzen, sem sagðist elska hana. Sálfræðingurinn hafði kynmök við Evelyn og að sögn hennar, þá voru kynferðismál einkum rædd í þau tvö og hálft ár sem hún gekk til hans. í hvert sinn sem Evelyn gekk til Zane, greiddi hún 55 dollara fyrir viðvik sál- fræðingsins. Ástarsamband Evelyn og Zane varð til þess, að eiginmaður hennar skildi við hana og hún missti yfirráðarétt yfir tveimur börnum sínum og einnig eignum þeirra hjóna. Læknirinn viðurkenndi við réttarhöldin að hafa haft mök við Evelyn og þannig brotið gegn siðareglum. Fyrir ári var hann sviptur réttindum sínum. í kvið- dóminum voru 10 konur og tveir karlmenn. Tapað fundið StraubinK. Vrstur-Þýakalandi. AP. Vestur-Þýzkur hermaður setur hér hluta af „Side- winder“-eldflaug inn í þyrlu. Eldflaugin týndist, þegar æfingar þýska flughersins stóðu yfir í síðustu viku. Hennar var leitað íengi, en loks fundu nokkrir menn, sem voru í sveppaleiðangri í skógum Bæjaralands, eldflaugina. ísraelar ráðast á stöðvar PLO ÍSRAELSKAR orustuþotur réðust I morgun á stöðvar Palestínu- skæruliða og felldu, að sögn sjónarvotta, að minnsta kosti einn skæruiiða og særðu sex. Þó segja aðrar heimildir, að 20 skæruiiðar hafi fallið i árásunum i morgun. ísraelsku þoturnar réðust á stöðvar skæruliða fyrir norðan og sunnan Kahrani-fljót, sem er skammt fyrir norðan landamæri Libanons og ísraels. Talsverðar skemmdir urðu í árásunum og eyðilögðu ísraelar eldflaugapalla. Þá kváðu við mikl- ar sprengingar þegar skotfæra- geymslur sprungu. Arásir ísraela í morgun eru hinar fyrstu um fimm vikna skeið. Þeir hafa haft hægt um sig eftir árásina á kjarnorkuverið í írak á dögunum. Ástæðuna segja fréttaskýrendur vera kosningarnar í ísrael og friðarviðleitni Philip Habibs, sér- legs sáttasemjara Ronald Reag- ans, forseta Bandaríkjanna. Philip Habib er nú staddur í Líbanon. Hann átti í morgun viðræður við Shafik Wazzan, for- sætisráðherra Líbanons, í Beirut. Habib neitaði að skýra frétta- mönnum frá því, hvert hann myndi halda eftir viðræðurnar í Beirut. Anwar Sadat, forseti Egypta- lands, staðfesti í Kairó í dag, að Menachim Begin, forsætisráð- herra ísraels, myndi fljótlega halda til Egyptalands til viðræð- na. Sadat sagði að enn hefði engin dagsetning verið sett á för Begins. Israelsk stjórnvöld hafa í hyggju að banna erlendum ferða- mönnum að ferðast frá Jórdaníu til ísraels. Ferðamönnum hefur verið heimilt að fara yfir landa- mærin til ísraels frá Jórdaníu en hins vegar hafa jórdönsk yfirvöld bannað ferðamönnum að fara yfir landamærin frá ísrael. Hóteleig- endur í Jerúsalem gagnrýndu þessa ákvörðun harðlega í dag en árlega fara tugþúsundir ferða- manna yfir landamærin til ís- raels. Hér er um að ræða ferða- menn, sem ferðast með ódýru leiguflugi til Jórdaníu en verja mestum tíma sínum og fjármun- um í ísrael. Litið er á þessa ákvörðun stjórnvalda í ísrael sem merki um harðari stefnu stjórn- valda. Baskar enn að verki Bilbao. 10. júlí. AP. LÖGREGLAN i Bilbao sagði frá þvi i dag að menn sem væru félagar í aðskilnaðarsamtökum Baska hefðu drepið þjóðvarðiiða i járnhrautarlest í úthverfi Biibao. Þrír menn komu aðvífandi, skutu á manninn og tókst að komast á braut áður en nokkrum tækist að hafa hendur í hári þeirra.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.