Morgunblaðið - 11.07.1981, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ 1981
23
Minning:
Sigurveig Sigurðar-
dóttir frd Keflavík
Fædd 2. janúar 1905.
Dáin 26. júní 1981.
Á sólbjörtum júlídegi fyrir 29
árum lágu leiðir okkar Sigurveig-
ar Sigurðardóttur fyrst saman, er
ég kom inn á heimili hennar að
Vallargötu 26 í Keflavík í fyrsta
sinn. En svo bjartir, sem geislar
júlísólarinnar voru, þá fannst mér
þó ennþá meira til um geislana,
sem ljómuðu í brosi þessarar
hógværu konu, þegar hún bauð
mig velkominn og bað mér bless-
unar í því starfi, sem ég var um
þær mundir að takast á hendur
sem sóknarprestur í Keflavík.
Sigurveig Sigurðardóttir var
borinn og barnfæddur Keflvíking-
ur. Foreldrar hennar voru hjónin
Sigurður Gunnarsson og Guðný
Guðmundsdóttir. Börn þeirra voru
fimm talsins og var Sigurveig
yngst systkina sinna. Hún ólst upp
í Keflavík hjá foreldrum sínum og
átti heima hjá þeim, unz hún
stofnaði sitt eigið heimili.
Hinn 15. ágúst árið 1925 giftist
Sigurveig unnusta sínum, Friðriki
Þorsteinssyni, sem einnig var
Keflvíkingur að uppruna. Friðrik
kom víða við sögu í Keflavík um
langt skeið og allstaðar til góðs.
Hann stundaði verzlunar- og
skrifstofustörf, endurskoðun og
framkvæmdastjórn, svo að nokkuð
sé nefnt af mörgu, sem hann tók
sér fyrir hendur. Um áratuga
skeið var hann organisti í Kefla-
víkurkirkju og í sóknarnefnd
Keflavíkursafnaðar. Á þeim vett-
vangi urðu kynni okkar og kyntii
mín við fjölskyldu hans eðlilega
mest og nánust, og frá þeim
kynnum á ég margar fegurstu og
beztu minningar lífs míns.
Þau Friðrik og Sigurveig eign-
uðust 7 börn. Eina dóttur misstu
þau í frumbernsku, en hin eru öll á
lífi. Elztur þeirra er Ragnar,
fulltrúi á bæjarskrifstofunum í
Keflavík, kvæntur Ásdísi Guð-
brandsdóttur, þá er Þorsteinn,
sjómaður hjá Eimskip, býr í
Reykjavík, Björg Erna, sjúkraliði
á Landakotsspítala í Reykjavík,
Friðrik, starfsmaður Flugleiða,
kvæntur Ólafíu Guðnadóttur, þau
búa í Keflavík, Sigurður, einnig
starfsmaður Flugleiða, kvæntur
Ragnheiði Þórisdóttur, búsett í
Keflavík, og yngstur er Birgir,
skrifstofumaður hjá Varnarliðinu
á Keflavíkurflugvelli, búsettur í
Keflavík. Auk þess ólu þau Friðrik
og Sigurveig upp sonardóttur sína,
Sigurveigu Þorsteinsdóttur. Hún
er gift Karli Hólm Gunnlaugssyni
og búa þau í Ytri-Njarðvík.
Afkomendur þeirra hjóna eru 40
talsins.
Sigurveig var frábær húsmóðir
og þau hjón yndisleg heim að
sækja. Sigurveig var að eðlisfari
mjög hlédræg, svo að jaðraði við
feimni, en viðmótshlýja hennar,
tryggð og góðhugur í þeirra garð,
sem eignuðust vináttu hennar,
verður ekki metin eða þökkuð svo
sem vert væri.
Þau hjónin reyndust mér jafnan
sem beztu foreldrar, umhyggju-
söm, hollráð og skilningsrík.
Friðrik varð bráðkvaddur hinn
31. ágúst árið 1968, en þá hafði
hann kennt vanheilsu um nokkurt
skeið. Eftir það dvaldist Sigurveig
í Keflavík í skjóli barna sinna til
ársins 1972, en þá fluttist hún til
Reykjavíkur og bjó þar að Nes-
haga 7 með börnum sínum og
kunni vel við sig. Síðustu árin var
hún veil fyrir hjarta, og varð sá
sjúkdómur henni að aldurtila hinn
26. júní sl.
Mér finnst það bæði fagurt og
táknrænt, að hún, sem í mínum
huga var alltaf umleikin sólar-
geislum og átti í brosi sínu þá
geisla sem voru öllum sólargeisl-
um fegurri og bjartari, skyldi fá
að kveðja á meðan landið okkar
brosir í sinni „nóttlausu voraldar
veröld, þar sem víðsýnið skín“.
Ég þakka henni tveggja áratuga
samleið, ómetanlega vináttu og
ógleymanleg kynni. Börnum henn-
ar og ástvinum votta ég innilega
samúð og bið þess, að bjartir
geislar móðurkærleikans megi
varpa birtu sinni yfir ófarinn
framtíðarveg þeirra.
Sigurveig verður jarðsungin frá
Keflavíkurkirkju í dag.
Björn Jónsson
í dag verður jarðsungin frá
Keflavíkurkirkju Sigurveig Sig-
urðardóttir. '
Sigurveig var dóttir hjónanna
Guðnýjar Guðmundsdóttur og
Sigurðar Gunnarssonar.
Arið 1925 giftist Sigurveig Frið-
riki Þorsteinssyni organista. Þau
eignuðust 7 börn, eina stúlku
misstu þau í frumbernsku. Á lífi
eru Ragnar, Þorsteinn, Björg
Erna, Friðrik, Sigurður og Birgir.
Einnig ólu þau upp sonardóttur
sína, Sigurveigu, dóttur Þorsteins,
sem var þeim yndisleg dóttir og
reyndist ömmu sinni dásamlega
vel eftir lát afa síns.
Mann sinn missti Sigurveig 31.
ágúst 1968. Var það henni mikill
missir, því að þau hjónin voru
einstaklega samrýnd og unnu
börnum sínum og heimili af alhug.
Ég sem þessar fátæklegu línur
skrifa eignaðist Sigurveigu sem
tengdamóður og vinkonu fyrir 23
árum. Og á þesum árum bar aldrei
skugga á. Við bjuggum í húsi
þeirra í 9 ár, en eftir lát Friðriks
flutti Sigurveig til okkar og dvaldi
hjá okkur í 16 mánuði. Á þessum
tíma kynntumst við enn nánar og
tel ég dætur okkar hafa lært og
öðlast margt, sem ömmur einar
geta veitt. Frá okkur flutti Sigur-
veig ásamt Björgu og Þorsteini til
Reykjavíkur að Neshaga 7. Þar
leið þeim vel á sínu failega
heimili. Alltaf þótti okkur gott og
gaman að koma á Neshagann og
held ég að öll höfum við hugsað að
við værum komin heim.
Sigurveig var mjög fíngerð og
falleg kona. Hún var ekki allra, en
Kristilegt æskulýðs-
og söngmót í ágúst
þeir sem náðu að kynnast henni,
áttu góðan vin, sem allt lagði í
sölurnar til hjálpar svo öllum liði
vel.
Ég þakka góðum guði fyrir góða
tengdamóður og vinkonu.
Guð blessi minningu góðrar
konu.
Far þú í friði, friður guðs þig
blessi. Hafðu þökk fyrir allt og
allt.
Ragnheiöur Þórisdóttir
í tilefni af þúsund ára afmæli
kristniboðs á íslandi mun verða
haldið æskulýðs- og söngmót á
Vestmannsvatni og Hafralæk i
Aðaldal i ágúst.
Mótið hefst að kvöldi 12. ágúst
og lýkur með sönghátíð í Akureyr-
arkirkju sunnudaginn 16. ágúst kl.
17.
Gert er ráð fyrir um 150 þátt-
takendum eða jafnvel fleirum, svo
að það verður væntanlega mikill
söngur og hljóðfærasláttur. Þátt-
taka er opin öllum áhugamönnum,
leikum og lærðum, 14 ára og eldri,
hvaðan sem er af landinu. Börn
eru þó líka velkomin í fylgd
fullorðinna. Flestir munu búa í
tjöldum og hafa sitt eigið nesti, en
möguleiki er á gistiplássi og mat á
staðnum.
Dagskráin er byggð upp með
söng- og hljómsveitaræfingum,
biblíulestrum, kvöldvökum og
frjálsum tíma.
I tilefni af hátíðinni kemur í
heimsókn hingað til lands norskur
unglingahópur, sem er æskulýðs-
félag og sönghópur úr sveitarsókn.
Hópur þessi er hluti af hreyfingu
sem nefnist „ten-sing“, en í Noregi
munu vera um 200 slíkir hópar
starfandi.
„Ten-sing“ hreyfingin hóf göngu
sína í Bergen 1967, þar sem 100
manna sönghópur með hljómsveit
boðaði til stór-móts, þar sem
komu 2000 þátttakendur. Æsku-
lýðurinn fór heim fylltur áhuga og
ákveðinn í að byrja slíkt starf í
heimabyggð sinni. Síðan hefur
þetta starf vaxið hröðum skrefum.
Sönghóparnir starfa ýmigt í
frjálsum, kristilegum félögum eða
innan safnaða.
Með þessum unglingahópi er
stjórnandi hans og prestur, Sindre
Eide. Sindre var einn upphafs-
manna hreyfingar þessarar og um
nokkurra ára skeið sérstakur
starfsmaður hreyfingarinnar allr-
ar. Auk þess sem Sindre er mikill
tónlistarmaður og trompetleikari,
hefur hann beitt sér á mörgum
öðrum sviðum æskulýðs- og ferm-
ingarmáia, skrifað margar bækur
og leiðbeiningar og stýrt nám-
skeiðum. Sindre kom hingað í
fyrra og var aðalleiðbeinandi á
leiðtoganámskeiði í Skálholti í
sept.
Æskulýðssönghópurinn í
prestakalli hans, sem er í Sirdal í
Vestur-Noregi, var stofnsettur
fyrir 3 árum, þegar Sindre varð
þar sóknarprestur.
Prestakallið er víðfemt, 4 sókn-
arkirkjur og 1700 sóknarbörn, þar
af um 500 í þorpinu Tonstad.
Nálægt 90% unglinganna í presta-
kallinu koma í æskulýðsfélagið og
um helmingur þeirra er í söng-
hópnum.
Unglingahópur úr sveitarsókn í Noregi sem syngja mun á kristilegu æskulýðs- og söngmóti á
Vestmannsvatni og Hafralæk í Aðaldal.
VANTAR ÞIG VINNU
VANTAR ÞIG FÓLK
tP
Þl AIGLÝSIR l M ALLT
LAND ÞEGAR Þl Al'G-
LYSIR 1 MORGUNRLADIM
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
Miðstöövarofn
til sölu nýlegur mlöstöövarofn
4-faldur. Stærö 140x75 cm.
1200 kcal. Verö kr. 500. Uppl. í
síma 52557.
Dyrasímaþjónustan
sími 43517
Uppsetnlng og viögeröir.
Innheimtustofa
Þorvaldur Ari Arason, hrl,
smiöjuvegi D-9, Kópavogi S:
40170, box 321, 121 Reykjavík.
Slæ bletti og lóðir
með orfi og Ijá. Sími 43053, eftir
kl. 7 á kvöldin.
Heimatrúboöið
Óðinsgötu 6a
Almenn samkoma á morgun kl.
20.30. Allir velkomnir.
FERÐAFÉLAG
ini HMiTf
ÖLDUGÖTU'j
8ÍMAR117N og 19S9.
Dagsferöir
sunnudagínn 12. júlí
1. Kl. 09 Sögustaöir í Borgar-
firöi. Verö kr. 80.-. Fararstjóri:
Haraldur Sigurösson.
2. Kl. 13 Vífilsfell og Jósepsdal-
ur. Létt ganga fyrir alla fjölskyld-
una. Fararstjóri: Finnur Fróöa-
son. Verö kr. 35.-.
Ath.: Frítt fyrir börn í fylgd meö
foreldrum. Fariö frá Umferöa-
miðstööinni, austanmegin Far-
miöar viö bíl.
Feröafélag íslands.
Krossinn
Æskulýössamkoma í kvöld kl.
20.30 aö Auöbrekku 34. Kópa-
vogi. Allir hjartanlega velkomnlr.
ÚTIVISTARFERÐIR
Sunnudagur 12. júlí
Kl. 8: Þórsmörk, verö 170 kr.
Kl. 13: Strompahellar — Þrí-
hnúkar, hafiö góö Ijós meö. Verö
50 kr. frítt f. börn m. fullorönum.
Fararstjóri Erlingur Thoroddsen.
Farið trá BSÍ, vestanveröu.
Grænland 16. júlí, vlka f Eystri-
byggö.
Sviss 18. júlí, vika í Bernar
Oberland.
Hornstrandir 18. júlí, vika í
Hornvík.
Verslunarmannahelgi
Þórsmörk, Hornstrandir, Dalir-
Akureyjar, Snæfellsnes, Gæsa-
vötn-Vatnajökull.
Upplýsingar á skrifstofunni,
Lækjargötu 6A, sími 14606.
Fíladelfía
Guösþjónustur helgarinnar eru
laugardag kl. 20. sunnudag kl.
10.30 og kl. 20. Síðustu tækifæri
til aö heyra Rolf Karlson. Fjöl-
breyttur söngur.
EF ÞAÐ ER FRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU