Morgunblaðið - 11.07.1981, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 11.07.1981, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ1981 25 Barokktónleikar í Bústaðakirkju Annað kvöld klukkan 20.30 halda fimmtán manna hljómsveit og fimm söngvarar tónleika i Bústaðakirkju og eru meðlimirn- ir allir í XolleKÍum musicum“ í Bremen. Eftir þessa tónleika mun hópurinn halda i hálfsmán- aðar tónleikaferð um Norður- os Suðurland. Efnisskrá Collegium Musicum er frá Barrokk-tímabilinu og er stjórnandi hljómsveitarinnar Lothar Stövel kantor og orgelleik- ari við Martinkirche í Bremen. Á Akureyri heldur hópurinn tónleika 14. júlí n.k., á Húsavík þann 15. í Skjólbrekku þann 16., á Dalvík þann 17., á Siglufirði þann 18., á Sauðárkróki þann 19. og í Skálholti þann 22. Að lokum verða síðustu tónleikarnir haldnir á Þingvöllum 23. júlí. LEIKLIST Ferðaleikhúsið hefur sýningar LIGHT NIGHTS í kvöld og á morgun klukkan 21.00 eru sýn- ingar á Light Nights, að Fríkirkjuvegi 11. Það er ferðaleikhúsið eða „The Summer Theatre“ sem hef- ur nú hafið sýningar sín- ar. Efni Light Nights er allt islenskt efni en er flutt á ensku. Á milli atriða eru sýndar skyggnur af verkum ís- lenskra listamanna og leik- in íslensk tónlist af hljómplötum. Þetta er tólfta árið sem Ferðaleik- húsið færir upp leiksýn- ingar fyrir enskumælandi ferðamenn en leikhúsið hefur einnig haldið sýn- ingar erlendis. Sýningar á Light Nights verða í sumar á fimmtu- dögum og föstudögum ásamt laugardögum og sunnudögum. Þakkir Hjartanlega þakka ég þeim, sem glöddu mig meö gjöfum og heillaóskum á sjötugsafmæli minu. Leó Sigurðsson. Ný hárgreiðslustofa í Garðabæ NÝLEGA var opnuð ný hárgreiðslustofa i Garðabæ, Hárgreiðslustoían Inna, Aratúni 1. Eigandi er Kristín Ottosdóttir en hún útskrifaðist frá hárgreiðslustofunni Saion-VEH 1976. Opið er frá 1 til 6 alla virka daga og 9 til 4 á laugardögum. Kristin sagði að svokölluð „frönsk lina“. stutt hár og permanent, væri vinsælust i sumar, en Lady Diana greiðslan væri þó að komast i tisku hjá ungum stúlkum. Gas 09 grillvörur Suóurlandsbraut 4 síni 38125

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.