Morgunblaðið - 11.07.1981, Side 35

Morgunblaðið - 11.07.1981, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ 1981 35 1500 manns taka þátt í 17. Landsmóti UMFI a Akureyri 17. Landsmót UMFÍ hófst á Akureyri í «ærdaj{. Sjaldan eða aldrci hefur mótið verið haldið við betri aðstæður og aldrei hafa keppendur og sýningar- fólk á mótinu verið fleiri en nú. Gert er ráð fyrir að rúmlega 1500 manns taki þátt á einn eða annan hátt í keppni og sýning- um á Landsmótinu að þessu sinni. Þá mun starfsfólk á mótinu vera um 600 manns og það sýnir best hversu umfangsmikið slíkt mót er og hversu mikil vinna felst í því að halda það. Veður- guðirnir voru mótsgestum og keppendum sérlega hliðhollir fyrsta dag mótsins, biíðskapar- veður var á Akureyri, stafalogn og um 15 stiga hiti. Þess má geta, að fyrsta lands- mót UMFÍ, sem haldið var, fór fram á Akureyri 1909. Þá stóð Ungmennafélag Akureyrar fyrir mótinu fyrir hönd UMFÍ og fór mótið fram á fæðingardegi Jóns Sigurðssonar 17. júní. Lands- mótið fór einnig fram á Akur- eyri 1955, og er þetta því þriðja Landsmótið sem haldið er í höfuðstað Norðurlands. Alls taka 28 ungmenna- og héraðssambönd þátt í mótinu að þessu sinni, flesir eru þátt- takendurnir frá UMSK, 156 tals- uia, ufl iiuiv ciu iui iia wiii 125. Þá er gert ráð fyrir um 8—10.000 gestum til Akureyrar í sambandi við Landsmótið. í gærdag setti mikill fjöldi að- komumanna svip sinn á bæinn. Mótið fer fram á 12 stöðum í bænum og keppt er í 17 greinum íþrótta. Þá eru frjálsar íþróttir taldar sem ein keppnisgrein, einnig starfsíþróttirnar. Fatlað- ir taka nú í fyrsta sinn þátt í mótinu og er það vel. Auk þess fara nú fram í fyrsta skipti siglingar og var það falleg sjón í gærdag að sjá fjölda lítilla seglbáta á Akureyrarpolli. Forseti íslands, Vigdís Finn- bogadóttir, kom til Akureyrar í gærdag, en hún er nú í heimsókn á Norðurlandi. Forsetinn var viðstaddur setningu mótsins í gærkvöldi og flutti ávarp. Heiðursgestur Landsmótsins að þessu sinni er Vilhjálmur Hjálmarsson fyrrverandi ráð- herra, en eins og kunnugt er hefur hann starfað mikið að félagsmálum og er meðal annars einn af stofnendum Ungmenna- félagsins Þjálfa í Mjóafirði þr. á Akureyri. Síðasta skipti sem ég stjórna hóp- göngu á Landsmóti — segir Þorsteinn Einarsson Einn er sá maður sem komið hefur meira við sögu á Lands- mótum frá upphafi en flestir aðrir. Sá er Þorsteinn Einars- son fyrrverandi íþróttafulltrúi ríkisins. Þorsteinn Einarsson. sem öiiu íþróttafólki og forystu- mönnum er kunnur fyrir mikið og ötuit starí í gegnum fjölda ára. og hefur stjórnað hópgöng- unni á Landsmótinu á 13 lands- mótum. Þorsteinn var í óða önn að undirbúa gönguna og merkja íþróttavöllinn þegar blaðamaður Mbl. ónáðaði hann. „Jæja, nú er komið að leiðarlokum á Lands- mótum. Þetta verður síðasta Landsmótið þar sem ég mun stjórna hópgöngunni og taka þátt í undirbúningnum," sagði Þorsteinn. Fyrsta Landsmótið sem ég tók þátt í var á Hvann- eyri árið 1943. Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar, en eins og áður er Landsmót UMFÍ afar þýðingarmikið fyrir ís- lenska æsku og íþróttum í land- inu mikils virði, sérstaklega þó landsbyggðarfólkinu." Aðspurð- Myndsjá frá Landsmótinu. Efsta myndin sýnir hluta af tjaldborg- inni, miðmyndin brot af tjald-. búðalifinu, en neðsta myndin er frá langstökkskeppninni. Landsmótiö: Urslit fengust í nokkrum greinum 17. Landsmót UMFÍ var sett á fjölda keppenda og íþróttagreina hafði betur í „framlengingu". Akureyri I gærkvöldi og var setningarathöfnin öll hin glæsi- legasta. Keppendur og fleiri komu saman við iþróttahöilina og gengu fylktu liði niður á íþróttavöllinn þar sem athöfnin hófst með fánahyllingu. Pálmi Gisiason formaður UMFÍ setti siðan mótið og i kjöifarið fylgdu ávörp frá Vigdisi Finnbogadótt- ur forseta íslands, Sigurði Jó- hannessyni forseta bæjarstjórnar Akureyrar, Ingvari Gislasyni menntamáiaráðherra og Þóroddi Jóhannssyni formanni Lands- mótsnefndar. Komu siðan fim- leikasýningar frá Gerplu og Fim- leikaráði Akureyrar, fallhlífar- stökk á vegum Fallhlífaklúbbs Akureyrar og fleira. Gærdagurinn var fyrsti dagur mótsins og vegna hins mikla hófst keppni strax klukkan 9.30. Til dæmis má geta þess, að í 100 metra hlaupi karla eru keppendur 38 talsins og þurfa þeir sprett- hörðustu að hlaupa fimm hlaup áður en í úrslitin er komið. Þegar blaðið fór í prentun í gærkvöldi lágu úrslit þó ekki fyrir nema í fáum greinum. Starfsíþróttirnar voru komnar á mikinn skrið og úrslit höfðu fengist í þremur þeirra. Mikil keppni var í línubeit- ingum, en þar sigraði Sigurður Sigurðsson HSÞ með 149 stig. Magnús Hreiðarsson HSÞ varð annar með 148 stig og Jósteinn Hreiðarsson HSÞ þriðji með 147 stig. Guðmundur Jónsson HSK sigr- aði í jurtagreiningu eftir harða keppni við Ketil Tryggvason HSÞ. Báðir hlutu 48 stig, en Guðmundur Sesselía Ingólfsdóttir UMSE varð þriðja með 47 stig. í hestadómum sigraði Kristm Thorberg UMSK og hlaut hún 94 stig. Sigurður Pálsson HSÞ og Steingrímur Vikt; orsson HSK hrepptu 93 stig. í starfsíþróttum er keppt í margvís- legum greinum, þar á meðal pönnukökubakstri. Úrslit fengust einnig í lang- stökki karla, þar sigraði Kristján Harðarson ÚMSK, stökk 7,12 metra. Keppni lauk auk þess í tveimur sundgreinum, Hugi Harð- arson HSK sigraði í 800 metra skriðsundi karla á 9:23,8 og Ólöf L. Sigurðardóttir HSK sigraði í 400 metra skriðsundi kvenna, synti á 4:54,3 mínútum. Eitt met var sett í 800 metrunum, Marteinn Tryggva- son setti Borgarfjarðarmet, synti á 11:28,4 mín. þr. Akureyri. ur um eftirminnilegasta Lands- mótið sagði Þorsteinn: „Eftir- minnilegasta Landsmótið sem ég hef upplifað var árið 1949 í Hveragerði, þá gerði slíkt óveður með stórrigningu að allir kepp- endur urðu að flýja úr tjaldbúð- unum og inn í skólahúsnæðið. Öll aðstaða til keppni var mjög slæm og erfið, hlaupið var og stokkið í hálfgerðri forareðju. Engu að síður skein gleði út úr augum æskufólksins og allir léku við hvern sinn fingur. Og sýndu dug og þol sem býr í æsku íslands. Allt gekk svo að lokum vel fyrir sig og um síðir kom sól og blíða og í slíku veðri var Landsmótinu slitið. Landsmótið á Laugarvatni 1965 var mjög eftirminnilegt, en þá gekk hitabylgja yfir móts- svæðið. Sjaldan eða aldrei hafa fleiri gestir sótt mótið en þá. Nú, það er athyglisvert hversu vel á öll Landsmót hafa tekist og unga fólkið ávallt staðið sig vel og verið vandanum vaxið að taka þátt í slíkum stórmótum sem Landsmótin eru. I framtíðinni þarf að halda þeirri stefnu að fá fjöldann til að vera með á Landsmótum. Þau mega ekki verða að stjörnumótum. Ég mun sakna þess að stjórna ekki fleiri hópgöngum,“ sagði Þorsteinn að lokum og var rokinn í undirbún- inginn, en það er athyglisvert hversu vel Þorsteini hefur farist stjórn á hinum stóra hópi íþróttafólks í hópgöngum mörg undanfarin Landsmót og á fleiri íþróttamótum. þr. á Akurcyri. Þorsteinn Einarsson mun ekki stjórna fleiri skrúðgöngum eða Landsmótum. Ljósm. Þórarinn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.