Morgunblaðið - 11.07.1981, Page 36

Morgunblaðið - 11.07.1981, Page 36
Sími á ritstjórn og skrifstofu: 10100 fttaripitiKiIf&tfr LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ1981 Súrálsskýrslan lögð fyrir ríkis- stjórn á mánudag IÐNAÐARRÁÐHERRA Hjörleifi Guttormssyni hefur, samkvæmt heimildum Mbl., borist skýrsla frá Coopers og Lybrandt sem er endur- skoðunarfyrirtæki i London, um meinta hækkun súráls i hafi frá Ástralíu til íslenska álversins i Straumsvík. Skýrslan verður lögð fram á rikisstjórnarfundi sem boðaður hefur verið kl. 11 fyrir hádegi á mánudag. Skýrsla þessi, sem unnin er að beiðni iðnaðarráðherra, er dagsett 6. júlí sl. og er hún nú í athugun hjá iðnaðarráðherra. Áður hafði sér- stakri nefnd á vegum ráðuneytisins borist drög að skýrslunni. Starfs- menn Coopers og Lybrandt vinna nú, einnig að beiðni iðnaðarráðherra, að endurskoðun ársreikninga álversins fyrir árið 1980. Framhaldsaðalfundur stjórnar ís- lenzka álfélagsins verður væntanlega haldinn í ágústmánuði, en honum var frestað vegna þessarar skýrslu. Þrátt fyrir itrekaðar tilraunir tókst ekki að ná sambandi við Hjörleif Guttormsson iðnaðarráðherra vegna þessa máls. Forsetinn kom til Akureyrar i gær Forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir, kom til Akureyrar siðdegis i gær og setti hún i gærkveldi landsmót ungmennafélaganna. Koma Vigdisar til Akureyrar er upphaf opinberrar heimsóknar forsetans í Eyjafjarðar- og Þingeyjarsýslur. Biskupskjörið: Sr. Ólafur Skúlason hlaut flest atkvæði Iðnaðurinn rekinn með 7,5% tapi janúar-júní GENGISbRÓUNIN frá áramótum hefur verið meginþorra samkeppn- is- og útflutningsiðnaðar afar óhagstæð. brátt fyrir, að innlend- Líkur á rigningu bEGAR líður á sunnudaginn er spáð suðaustanátt og skýjuðu veðri hér sunnanlands og jafn- vel er búist við rigningu, sam- kvæmt upplýsingum sem Morg- unhlaðið fékk á Veðurstofunni i gær. I dag er búist við svipuðu veðri og verið hefur að undanförnu, hálfskýjuðu og sólskini á milli og á þetta við svæðið frá Árnessýslu og vestur til Vestfjarða. Búist er við sólskini fram að hádegi, en síðan er talið að ský hrannist upp. Með suðaustanáttinni á sunnudag mun veður hlýna um landið og gæti rigning fylgt í kjölfarið. ur tilkostnaður hafi hækkað á tímahilinu um 15—20%, hefur gengi íslenzku krónunnar verið hækkað gagnvart mikilvægum Evrópugjaldmiðlum. — „bað má i raun segja, að iðnaðinum sé að blæða út og þetta ástand getur ekki varað til lengdar,“ sagði Davið Scheving Thorsteinsson, formaður Félags islenzkra iðnrek- enda, í samtali við Mbl. „Á síðasta ári var iðnaðurinn rekinn á núlli, en samkvæmt bráða- birgðaathugun á afkomunni fyrstu sex mánuði þessa árs er hann rekinn með 7,5% tapi, sem segir sína sögu,“ sagði Davíð Scheving Thorsteinsson ennfremur. Sem dæmi um hina óhagstæðu gengisþróun síðustu sex mánuði, má nefna, að dollarinn hefur styrkzt um 20%, en á sama tíma hefur gengi íslenzku krónunnar verið hækkað gagnvart mikilvæg- um Evrópugjaldmiðlum eins og áður sagði, sterlingspundi um 4,4%, dönsku krónunni um 5,6% og vestur-þýzka markinu um 3,7%. Þessi þróun mála hefur valdið útflutningsiðnaði, sem selur sínar vörur á Evrópumarkaði, miklum búsifjum. Hann fær nú færri ís- lenzkar krónur fyrir vörur sínar en hann gerði í desembermánuði, en á sama tíma hefur innlendur til- kostnaður hækkað verulega. Sam- keppnisiðnaður, sem keppir við iðnaðarvörur frá Evrópulöndum, á ekki síður í miklum erfiðleikum nú. Má í því sambandi benda á, að samkeppnisstaða íslenzkra fyrir- tækja, sem eiga í samkeppni við þýzkar iðnaðarvörur, hefur versnað um 8—9% frá áramótum og er þá ekki tekið tillit til áhrifa, sem ábyrgð ríkissjóðs á 5% hækkuðu viðmiðunarverði í febrúar hafði á stöðu iðnaðarins. TALNING atkvæða úr biskupskjöri fór fram i dómsmálaráðuneytinu i gær undir stjórn Baldurs Möller ráðuneytisstjóra, formanns kjör- stjórnar. Á kjörskrá voru 148 og kusu 142. brjú efsti sætin skipa þeir sr. ólafur Skúlason dómpró- fastur, sem hlaut 62 atkvæði, sr. Pétur Sigurgeirsson vigslubiskup fékk 36 atkvæði og sr. Arngrimur Jónsson fékk 23 atkvæði. Þá hlaut sr. Heimir Steinsson rektor 10 atkvæði, sr. Jónas Gíslason lektor 6, og sr. Bernharður Guð- mundsson, sr. Halldór Gröndal og sr. Þórir Kr. Þórðarson eitt atkvæði hver. Auðir seðlar voru 2. Þar sem enginn hlaut hreinan meirihluta í þessari kosningu þarf að kjósa að nýju milli þriggja efstu manna. Sr. Ólafur Skúlason var næst því að hljóta meirihluta, hann vantar 10 atkvæði til að svo hefði verið. Að sögn Baldurs Möller hefst kjörstjórn þegar handa um að undirbúa kjör- gögn fyrir síðari umferðina og eftir að þau hafa verið send út er 4 vikna skilafrestur. Kvaðst hann gera ráð fyrir að úrslit gætu legið fyrir síðari hluta ágústmánuðar. Sjá viðtöl við þrjá efstu menn á blaðsíðu 3. Frá talningu atkvæða úr biskupskjöri. Frá vinstri sr. borbergui Kristjánsson fulltrúi Prestafélags íslands, sr. Ingiberg J. Hannesson. Baldur Möller formaður kjörstjórnar og borleifur Pálsson ritari kjörstjórnar. Liósm. Guðjón. Erlent lán Sildarútvegsnefndar: Vextir og gengis- tap í fyrra 84% SÍLDARÚTVEGSNEFND hefur síðustu árin algjörlega verið neit- að um innlend lán til að fjármagna innkaup á rekstrarvörum vegna síldarsöltunarinnar, tunnum, salti, sykri, kryddi og fleiru, og hefur nefndin því neyðst til að taka bandarískt lán i þessu skyni fyrir milligöngu Landsbanka ís- lands. betta kemur fram í nýút- komnu fréttabréfi Síldarútvegs- nefndar til sildarsaltenda. — Gert hefir verið yfirlit um kostnað vegna þessarar lántöku á sl. reikningsári, 1. maí 1980 — 30. apríl 1981, og reyndist kostnaður- inn 84,43%, þ.e. vextir, bankakostn- aður og gengistap. Var ekki einhver að tala um, að sjávarútvegur nyti forréttinda í lánamálum?(!), segir orðrétt í fréttabréfinu. Þetta jafn- gildir því, að hefði Síldarút- vegsnefnd tekið innlent lán vegna málsins, þá hefði hún þurft að greiða 84% vexti. Sr. Jón Auðuns látinn SÉRA Jón Auðuns, fyrrverandi dómprófastur, lézt I Landspítal- anum í gær, 76 ára að aldri. Hann var fæddur 5. febrúar 1905 á ísafirði, sonur hjónanna Jóns Auðuns framkvæmdastjóra og al- þingismanns á fsafirði og Mar- grétar Guðrúnar Jónsdóttur frá Stað á Reykjanesi. Jón lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1924 og guðfræðiprófi frá Háskóla ís- lands 1929. Hann stundaði síðan nám í samanburðarguðfræði og helgisiðafræði í Marburg og París og feröaðist auk þess víða um Vestur-Evrópu. 1930 var hann vígður forstöðumaður fríkirkju- safnaðarins í Hafnarfirði og 1941 var hann jafnframt ráðinn for- stöðumaður fríkirkjusafnaðarins í Reykjavík og var hann búsettur í Reykjavík síðan. Jón var skipaður prestur við Dómkirkjuna í Reykja- vík 1. desember 1945 og dómpró- fastur í Reykjavíkurprófastsdæmi 1951. 1971 var honum veitt lausn frá starfi að hálfu vegna heilsu- brests og að fullu 1973. Jón var ráðinn forstöðumaður Listasafns Einars Jónssonar 1970, sat kirkjuþing á árunum 1958 til 1962 og var prófdómari í guðfræði við Háskóla Islands frá 1950, formaður Safnaðarráðs Reykjavík- ur frá 1953 til 1973 og formaður Ekknasjóðs Reykjavíkur sama tímabil. Þá var hann formaður stjórnar kirkjubyggingarsjóðs Reykjavíkur frá 1954. Jón var skipaður í Skálholtsnefnd 1955 til 1956 og í dómnefnd um leikrita- samkeppni fyrir Skálholtshátíðina 1955. Þá var hann forseti Sálar- rannsóknarfélags íslands frá 1939 til 1963, í stjórn Barnaverndarfé- lags Reykjavíkur í mörg ár og formaður Reykjavíkurdeildar Rauða kross íslands frá 1951 til 1967. Jón ritaði einnig mikið í þágu kristinnar trúar og gerði sér annt um uppeldi barna og ritaði einnig talsvert um sálarrannsóknir og spírtisma. Eftir hann liggja mörg rit, bæði frumsamin og þýdd auk fjölda blaða- og tímaritsgreina. Eftirlifandi kona Jóns er Dagný Einarsdóttir og varð þeim ekki barna auðið. Séra Jón Auðuns skrifaði kirkju- þætti í Morgunblaðið og vöktu þeir ávallt mikla athygli. Hann var mikill baráttumaður fyrir hug- sjónum sínum og einn þeirra, sem brá stórum svip yfir umhverfi samtíðar sinnar á íslandi. Hann skrifaði ævisögu sína og varð hún tilefni mikilla umræðna. Þegar séra Jón varð sjötugur birtist hér í blaöinu greinaflokkur um ævi hans og starfsferil og byggðist hann á frásögu hans sjálfs. Morgunblaðið sendir frú Dagný og öðrum ættingjum séra Jóns samúðarkveðjur með þökkum fyrir langt og gott samstarf.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.