Morgunblaðið - 28.07.1981, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 28.07.1981, Blaðsíða 1
48 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI 164. tbl. 68. árg. ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ1981 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Símamynd — /\r. Karl Bretaprins veitir lafði Díönu aðstoð eftir að ágangur blaðamanna og ljósmyndara hafði fengið á lafðina, þar sem hún fylgdist með væntanlegum húsbónda sínum leika póló i fyrradag. Karl prins og lafði Díana ganga í það heilaga á morgun, miðvikudag, og þótt milljónir manna um heim allan muni gleðjast með þeim, hefur brúðkaupið væntanlega orðið til þess að sletta upp á vinskap Breta og Spánverja, og Grikkir telja sig einnig hafa verið móðgaða á þessum tímamótum. Grikkir móðgaðir: Karamanlis ekki til brúðkaupsins Aþenu. 27. júli. AP: ÁREIÐANLEGAR heim- ildir hermdu, að Kara- manlis Grikklandsforseti væri við hestaheilsu, og að hann hefði hætt við fyrir- hugaða Lundúnaferð vegna brúðkaup Karls prins og lafði Díönu þar sem brezka konungsfjöl- skyldan hefði boðið Konst- antín fyrrum Grikkja- konungi til brúðkaupsins. Blöð í Grikklandi sögðu frá því, að formlega hefði því verið mót- mælt við konungsfjölskylduna, að Konstantine skyldi kallaður kon- ungur Grikkja í stað fyrrverandi konungur. í opinberri tilkynningu sagði, að Karamanlis hefði hætt við Lundúnaferðina þar sem hann ætti við nýrnaveiki að stríða, en hermt er, að hann hafi verið viðstaddur brautskráningu for- ingjaefna við liðsforingjaskóla og virtist jafnvel brattari en fyrr. Hann hélt kraftmikla ræðu og gekk rösklega um skólasvæðið. Spænskir stjórnmálaflokkar, stéttarfélög og fleiri aðilar hvöttu í dag til mótmælaðgerða í Vilja „toppfund“ Washinjfton. 27. júli. AP. FIMM íhaldssamir öldungadeildar- menn úr röðum demókrata hafa hvatt Reagan forseta til að boða helztu sérfræðinga stjórnarinnar, þingsins og bandaríska seðlabank- ans saman til „toppfundar" og fela þeim að finna leiðir til vaxtalækk- unar, áður en „hávextir vinna óbæt- anlegt tjón á efnahag landsins". Fimmmenningarnir hafa alla jafna stutt efnahagsáform Reagans. borginni La Línea við Gíbraltar daginn sem Karl prins og lafði Díana koma til „klettsins" um- deilda, þar sem þau stíga um borð í brezku konungssnekkjuna fyrir brúðkaupsferð sína um Miðjarð- arhaf. Tilgangurinn með mót- mælunum er annars vegar að lýsa stuðningi við þá ákvörðun spænsku konungsfjölskyldunnar að fara ekki til brúðkaupsins, og hinsvegar að mótmæla heimsókn brúðhjónanna væntanlegu til Gíbraltar, sem Spán og Bretland hefur greint um eignarrétt á. Sjá nánar erlendar fréttlr á bla 18—19. Stjómin gefur eftir kröfum Samstöðu Kjötskammtur aðeins minnkaður í ágúst VarsjA, 27. júli. AP. PÓLSKA stjórnin samþykkti í dag eítir viðræður við leið- toga Samstöðu að takmarka fyrirhugaða kjötskammtar- minnkun, sem nemur 20% frá núverandi skammti, aðeins við ágústmánuð, en fyrirhug- að hafði verið að kjötskammt- arminnkunin kæmi einnig til framkvæmda í september. Jafnframt samþykktu leið- togar Samstöðu að ekki yrði boðað til verkfalla vegna mat- væiaskorts i ágústmánuði. Talsmenn Samstöðu sögðu, að áfram yrði haldið viðræðum við stjórnvöld í því augnamiði að fá kjötskammtarminnkuninni einnig aflétt í ágústmánuði. Embættis- menn segja fjárskort ekki leyfa kjötkaup, en samt fékkst engin skýring á því hvernig tryggt verði að minnkunin verði ekki einnig nauðsynleg í september. Víða hefur verið efnt til mót- mælaaðgerða í Póllandi í dag og um helgina til að leggja áherzlu á kröfu pólskra þegna um að ráðin verði bót á matvælaskortinum. Hefur af þessum sökum verið farið í margar mótmælagöngur um borgir og bæi landsins, og eru fleiri göngur af þessu tagi fyrirhugaðar í dag og næstu daga. Samtök finnskra kjötútflytjenda skýrðu frá því í dag, að samist hefði við Pólverja um kaup á þremur þúsundum smálesta af svínakjöti er fluttar verða til Póllands í ágúst- mánuði á bílum með frystigámum. Læknar fyrirskipuðu Lech Wal- esa leiðtoga Samstöðu að hafa hægt um sig í viku þar sem hann er þjakaður af ofþreytu. Walesa mun þó ekki leggjast inn á sjúkrahús til langrar dvalar, eins og orðrómur hafði verið á kreiki um. Vikuritið Der Spiegel skýrir frá því í dag, að fylgi við hin óháðu verkalýðssamtök í Póllandi fari vaxandi í Austur-Þýzkalandi, og að dreifiritum hafi verið dreift í A-Berlín, þar sem hvatt hefur verið til félagsíegra og pólitískra umbóta í A-Þýzkalandi. Der Spiegel segir að lögð hafi verið niður vinna í ýmsum stofnunum til að mótmæla aðbún- aði á viðkomandi vinnustöðum, og að komið hafi til átaka lögreglu og unglinga, sem tóku byggingar á sitt vald, í Erfurt, Rostock, Karl Marx Stadt og Weimar. Frá svonefndri hungurgöngu í borginni Kutno i Póllandi á laugardag. Efnt hefur verið til víðtækra aðgerða í Póllandi um helgina til að bcina athygli að hinum gifurlega matvælaskorti, sem sagður er vera í mörgum borgum og bæjum Póllands. Símamynd - AP. NATO-æfingar: Norðmenn og Danir taka þátt Kaupmannahöfn, 27. júli. — AP. SKÝRT var frá því af opinberri hálfu í Danmörku i dag, að bæði Norðmenn og Danir myndu taka þátt i umfangsmiklum flotaæfing- um Atlantshafsbandalagsins er hefjast i næsta mánuði. en fregnir Umhverfísverndarmenn um fund Alþjóöahvalveiðiráðsins: Meiriháttar áfangi á sviði hvalverndar Greenpeace leggur að Islendingum að hætta hvalveiðum Brighton. 17. júli. AP. TALSMENN hvalverndunar á fundi Alþjétðah val veiðiráðsins sögðu. að meiriháttar áfangi hefði náðst i hvalverndunarmálum þeg- ar fundurinn samþykkti bann við veiðum búrhvela á laugardag. Þá samþykkti ráðið að ekki skyldi leyft að veiða fleiri en 13,524 hvali alis á næsta ári, miðað við 14,523 á þessu ári. Ráðið samþykkti að taka til athugunar beiðni Japana um heim- ild til að veiða búrhveli í Norðurhluta Kyrrahafsins næsta haust, ef niðurstöður sérstakra funda vís- indanefndarinnar og fulltrúa ráðs- ins i marz nk. bentu til þess að stofninum stæði ekki hætta af áframhaldandi veiðum í þessum heimshluta. Sir Peter Scott ráðgjafi brezku sendinefndarinnar á fundi Al- þjóðahvalveiðiráðsins fagnaði þeirri ákvörðun ráðsins að banna notkun venjulegs skutuls við hrefnuveiðar, og sagði að með þessu væri lífi tíu þúsund hrefna bjargað á ári. Norðmenn og Japan- ir lögðust gegn þessu banni. Þrátt fyrir þessar samþykktir stóðu hvalveiðiþjóðirnar saman að því að fella tvær tillögur hvalfrið- unarþjóða um algjört bann við öllum hvalveiðum og tillögu Frakka um bann við hrefnuveiðum á úthöfum, svo og tillögu Breta um bann við veiðum langreyða, sand- reyða og búrhvela í Norður- Atlantshafi. Talsmaður Greenpeace-samtak- anna í Lundúnum sakaði íslensku fulltrúana á fundi Alþjóðahval- veiöiráðsins um ábyrgðarleysi með því að krefjast stærri kvóta lang- reyða á næsta ári en vísindanefnd ráðsins lagði til að íslendingar fengju. Nefndin lagði til að íslend- ingar fengju í mesta lagi að veiða 158 langreyðar, en fundur ráðsins heimilaði þeim að veiða 194 lang- reyðar. „Allt bendir til þess, að dagar íslenzkra hvalveiða verði senn tald- ir. Með tilliti til þess að búrhveli hafa verið vernduð í Norður- Atlantshafi frá og með 1982, og með tilliti til þess, að langreyðar og sandreyðar eiga á hættu að þeim verði útrýmt, væri skynsamlegast fyrir íslendinga að leggja hvalveið- ar sínar niður," sagði ennfremur í frétt frá Greenpeace. síðustu daga hafa gengið í aðra átt. Talsmaður varnarmálaráðu- neytisins norska staðfesti að Norðmenn myndu taka þátt i æfingum i september. er væru hluti af hinum umfangsmiklu æfingum, sem nefndar hafa verið „Ocean Venture 81“ á ensku máli. Æfingarnar, sem hefjast 1. ág- úst næstkomandi, verða í átta þáttum, og taka Norðmenn og Danir þátt í þeim hlutum sem fram fara á Eystrasalti og í Norðurhöfum, eins og farið hafði verið fram á af hálfu Atlantshafs- bandalagsins. Æfingarnar hefjast í Suður- Atlantshafi og á Karíbahafi og taka þar þátt í þeim ríki sem ekki eiga aðild að Atlantshafsbanda- laginu. Thorvald Stoltenberg varn- armálaráðherra Noregs hefur lýst andúð sinni á æfingunum og sagt að verið væri að „útvíkka" pólitískt og hernaðarlegt yfirráðasvæði bandalagsins. Ætti þessi útfærsla eftir að koma bandalaginu í koll, þegar til lengdar léti. „Ég kalla þetta ekki æfingar Atlantshafs- bandalagsins," sagði Stoltenberg. Fregnir hermdu, að Stoltenberg hefði verið andvígur þátttöku Suður-Ameríkuríkja í æfingunum. Talsmaður Atlantshafsbandalags- ins sagði, að Norðmenn hefðu ekki verið beðnir að senda skip til fyrstu hluta æfinganna, þeir myndu taka þátt í þeim hlutum Ocean Venture 81, sem þeir hefðu verið beðnir um. Sjá ennfremur erl. fréttir bls. 18—19.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.