Morgunblaðið - 28.07.1981, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ1981
3
Hitaveita Akureyrar:
Tekur 37 milljóna kr. er-
lent lán til nýframkvæmda
BÆJARSTJÓRN Akureyrar hef- upphæð rúmlega 37 milljónum
ur veitt bæjarstjóra heimild til króna (5 milljónum dollara)
lántöku hjá Citybank i London að vegna framkvæmda við Ilitaveitu
Sjófuglavarp í Gríms-
ey með eindæmum gott
„VIÐ hérna á Náttúrufræðistofn-
un íslands höfum verið talsvert á
ferðinni i sumar. en ekki orðið
varir við neitt óvenjulegt hvað
varðar varp og viðkomu fuiíla,“
sagði Ævar Petersen hjá Náttúru-
fræðistofnuninni. „Það eru alltaf
smá sveiflur á þessum hlutum frá
ári til árs. það er að se«ja meira af
cinum íukIí en öðrum og fuglar
byrja varp á misjöfnum tima.
Sjófuglavarp á Vestfjörðum var
r ^
INNLENT,
óvenjulega seint í ár. Hinsvegar var
varpið í Grímey með eindæmum
gott en aftur á móti fyrir vestan á
Hælavík og Hornbjargi var dræm
eggjataka.
Það hefur verið áberandi mikið af
ýmsum mófugli í ár, eins og þúfu-
tittlingi og grátittlingi. Fálkavarp
hefur líka verið ágætt á þessu ári.“
Arnþór Garðarsson hjá Líffræði-
stofnun Háskólans, sagði, „að gott
ástand hefði verið á andavarpi í
Mývatni og mikil viðkoma. Annars
staðar í kring, eins og í Laxá, þá
hefði ástandið ekki verið eins gott.
Stafaði þetta af því að afkoma
andavarpsins færi eftir átuskilyrð-
um í ám og vötnum en ekki árferði."
Akureyrar og er lánið í samræmi
við fjárhagsáætlun Hitaveitunn-
ar og lánsf járlög.
Að sögn Inga Þór Jóhannssonar,
fjármálafulltrua Hitaveitu Akur-
eyrar, er lánið ætlað til nýfram-
kvæmda á vegum Hitaveitunnar á
þessu ári, svo sem dreifikerfis,
lagna og borana. Þessi upphæð
væri þó ekki nægjanleg til þess
sem þyrfti og því hefði stjórn
Hitaveitunnar tekið þá ákvörðun í
vetur að fresta framkvæmdum við
eitt bæjarhverfanna og myndi það
verða að bíða næsta árs að fram-
kvæmdir þar hæfust. Sagði hann
einnig að nú stæðu yfir boranir
með Narfa í landi Botns í Eyja-
firði og væru bundnar miklar
vonir við að góður árangur yrði af
þeim. Einnig stæði til að hefja
boranir á Glerárdal innan
skamms.
Ingi sagði ennfremur að lánið
væri til 12 ár'a, vextir væru 1%
yfir millibankavöxtum og auk þess
fengi Landsbanki Islands 1% af
lánsupphæðinni í ábyrgðarþókn-
un.
Fannst sofandi
ÞESSI UNGI herramaður, þriggja ára gamall, fannst sofandi á
Laugaveginum um hálffjögurleytið í gærdag. Lögreglan auglýsti
eftir foreldrunum í útvarpinu og nokkru síðar kom mamman og sótti
snáðann. I ljós kom, að hún var að vinna þegar sá stutti týndist og sá
sem átti að gæta hans hafði ekki staðið sig nógu vel. Urðu að vonum
miklir fagnaðarfundir á lögreglustöðinni þegar móðirin kom. Litli
snáðinn kunni bara vel við sig hjá lögreglunni eins og sjá má.
LjÓHm. Mbl.: Emilla
900 GLS
á kr.146500.-
Vissir þú um þetta verö?
Sumir halda aö SAAB sé dýr.Útlitið, tækni-
leg fullkomnun, ogstrangar öryggiskröfur
gera SAABINN að ,,klassabíl“, sem hlýtur
þá að vera dýr. - En er svo í raun?
Vissulega eru 146.500 krónur talsvert fé.
En við hvað er miðað, og hvað færðu fyrir
það? Það skiptiröllu máli.
Berðu saman verð og gæði bíla, komdu í
Bíldshöfða 16 og sjáðu og finndu hvað
þú færð fyrir 146.500 krónur.
Prófaðu SAABINN — og þú verður ekki
samur maður eftir.
TÖGGURHR
SAAB
UMBODIÐ
BÍLDSHÖFÐA 16, SÍMI 81530