Morgunblaðið - 28.07.1981, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ1981
5
Innheimtudeild Rikisútvarpsins:
Kostaði 297 milljónir
gamalla króna 1980
KOSTNAÐUR við Innheimtu-
deild Ríkisútvarpsins var um 297
milljónir gamalla króna árið
1980, að því er Theódór Georgs-
son, innheimtustjóri sagði i sam-
tali við Morgunblaðið í gær.
Theódór sagði þennan kostnað i
aðalatriðum felast i launagreiðsl-
um, póstburðargjöldum, gerð
giróseðla og simakostnaði. Á
launaskrá Innheimtudeildarinn-
ar sagði hann vera um 16 manns,
auk samstarfsmanna
í viðtali við Þorstein Garðars-
son í Morgunblaðinu fyrir stuttu
og í viðtali við Rolf Johansen í
Helgarpósti Alþýðublaðsins í gær,
segja þeir að kostnaður við Inn-
heimtudeildina sé um 700 milljón-
ir g.kr. á ári. Þessar tölur sagði
Theódór vera fráleitar, og vitnaði í
kostnaðinn árið 1980,297 milljónir
g.kr. Hann kvaðst á hinn bóginn
ekki hafa tiltækar tölur yfir
kostnað við innheimtu afnota-
gjalda á þessu ári.
Fjórtán kepptu í
svifdrekaflugi
Þiniceyri 27. júli
Svifdrekakeppni var haldin hér
við Sandafell við Þingeyri sl.
helgi og sagði formaður Svif-
drekafélags Reykjavíkur og
mótsstjóri, Kári Guðbjörnsson,
að hér væru afbragðs aðstæður
og undraðist hann mest að
enginn skyldi hafa stundað
þessa íþrótt hér, en Sandafellið
er 376 m hátt.
Keppendur voru ekki of heppn-
ir með veður, en bezt er að keppa
í norðaustan eða suðvestanátt og
vegna veðurs um helgina lentu
svifdrekamennirnir Sandamegin
en ekki Þingeyrarmegin. Fyrsta
íslandsmótið í þessari grein var
haldið hér árið 1978. Núna voru
14 keppendur, frá Vestfjörðum,
Suðvesturlandi og Vestmanna-
eyjum, en byrjendum er sett það
skilyrði að þeir skuli hafa náð að
minnsta kosti klukkustundar
hangflugi, þ.e. samfelldu flugi í
eina klukkustund, hærra en
flugtaksstaðurinn.
Keppnin átti að hefjast á
föstudagskvöld, en var frestað
þar til á laugardagsmorgun og
lauk henni á sunnudagskvöld.
Keppt var í marklendingu og
sprengjukasti, en þar er sand-
poka kastað á flugi, sem næst
ákveðnu marki, og yfirlandsflugi,
sem er í því fólgið að komast sem
lengst frá flugtaksstað.
Meistari varð Einar Rafnsson
Reykjavík og í öðru sæti Kristján
Richter í Reykjavík. 3. varð Árni
Gunnarsson Reykjavík og hlaut
hann einnig farandbikar, fyrir
met sitt í yfirlandsflugi. Verð-
laun gáfu Tómas Tómasson ham-
borgarakóngur og Tjaldaleigan.
Mótið tókst með afbrigðum vel
og þakkar mótsstjóri Þingeying-
um alla fyrirgreiðslu, sérstak-
lega Ragnari Þórðarsyni og
framámönnum í íþróttafélaginu
Höfrungi. Tveir Dýrfirðingar
keyptu svifdreka og hyggjast
þeir hefja æfingar undir leiðsögn
Isfirðinga, sem einnig skildu
Staða forstöðu-
manns Tónabæjar:
Ólafur Jóns-
son hlaut flest
atkvæði í
Æskulýðsráði
BORGARRÁÐ mun væntanlega I
dag taka afstöðu til þess hver
hlýtur stöðu forstöðumanns
Tónabæjar.
Fjórir sóttu um starfið en við
atkvæðagreiðslu Æskulýðsráðs
hlaut Ólafur Jónsson, handbolta-
maður m.m., flest atkvæði, eða 4
af sjö. Ólafur hefur stafað við
félagsmiðstöðvar sem Æskulýðs-
ráð starfrækir fyrir unglinga und-
anfarin þrjú ár, en hann er einnig
þekktur sem fyrirliði landsliðsins
í handbolta.
dreka eftir til að koma hingað og
æfa.
Fréttaritari.
Ljósm. Mhl. Kmilía.
Nýja akreinin á Hafnarfjarðarvegi tilbúin mjög fljótlega
Framkvæmdum við breikkun Hafnarfjarðarvegar milli Arnarness og Vífilsstaðavegar miðar vel og er
viðbótarakreinin svo til tilbúin til lagningar slitlags. Þegar því er lokið verður gamla hluta vegarins lokað
og umferð beint um nýja hlutann, á meðan unnið verður að gerð brúar og undirganga á eldri hlutanum. Að
sögn Helga Hallgrimssonar hjá Vegagerðinni, hefur framkvæmdum miðað samkvæmt áætlun og er reiknað
með að þeim ljúki fyrir haustið.
Square nýja línanfrá
n. eilerten a/s
j'-t,
- ‘-r'
Falleg og
stílhrein sófa-
sett í úrvali
Símar: 86080 og 86244
ar
Húsgögn
Ármúli 8