Morgunblaðið - 28.07.1981, Side 11

Morgunblaðið - 28.07.1981, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ1981 11 keppandi á honum var Björn Sveinsson frá Varmalæk í Skaga- firði. Að vísu keppti hann aðeins í tölti, en þar náði hann þeim ágæta árangri að fara yfir 100 stig en það er mjög sjaldgæft og er þetta eini hesturinn sem náð hefur þessu marki í ár. Var það mál manna að þetta hafi ekki verið ofgefið. Keppni var yfirleitt mjög jöfn og ríkti oft mikil spenna eftir úrslit meðan verið var að reikna stig keppenda. Sérstaklega léleg mæting var í tveimur keppnis- greinum, hlýðnikeppni B og hindr- unarstökki. í hlýðnikeppnina voru skráðir 14 keppendur en aðeins tveir mættu og einn bættist við og keppti sem gestur. í hindrunar- stökkinu var þetta aðeins skárra, en þar voru skráðir níu en þrír mættu til leiks. Vaknar enn einu sinni sú spurn- ing hvort þessar keppnisgreinar eigi nokkurn rétt á sér því lítill áhugi virðist vera fyrir þeim og hefur ávallt verið svo. Keppendur hafa sennilega sjaldan eða aldrei verið fleiri en fimm í hindrunar- stökki og lítið fleiri í hlýðnikeppn- inni. Br þetta miður því hindrun- arstökk getur verið skemmtilegt á að horfa sé það rétt og vel framkvæmt. Br greinilegt að alla undirstöðuþekkingu á þessari keppnisgrein vantar meðal hesta- manna með örfáum undantekn- ingum. Er þetta verðugt umhugs- unarefni fyrir stjórn íþróttaráðs LH. Norðlendingar voru nokkuð drjúgir í flestum keppnisgreinum, t.a.m. voru fimm efstu í fjórgangi Norðlendingar. Að vísu verður að taka það með í reikninginn að nokkrir af fremstu reiðmönnum Suðurlands voru ekki meðal kepp- enda, en greinilegt er að norðan- menn gefa þeim ekkert eftir nema síður sé. Aðstaðan á Melgerðismelum er eins og best verður á kosið, vellir góðir og fyrsta flokks áhorf- endastæði. Aðstaða til upphitunar keppnishrossa og almennra út- reiða mjög góð. Áhorfendur sem voru frekar fáir tóku mikinn þátt í keppninni með því að láta í ljós ánægju með lófaklappi þegar keppendur sýndu góð tilþrif. Er næsta furðulegt hvað þessi íslandsmót sem haldin hafa verið hafa átt litlum vinsæld- um að fagna meðal hestaáhuga- manna. : Albert Jónsson var sigursæll á mótinu. Sigraði i gæðingaskciði, fjórgangi, islenskri tvikeppni, auk þess varð hann annar i fimmgangi og tölti. Hér situr hann hestinn Tigul frá Holti, en hann keppti á honum i tölti og fjórgangi. Hlaupið í skarðið fyrir formann íslensk-pólska menningarfélagsins - eftir séra Kára Valsson, Hrisey Þriðjudaginn 21. júli birtir Morgunblaðið grein eftir Hauk Helgason hagfræðing, formann íslensk-pólska menningarfé- lagsins. í greininni er rakin skilmerkilega þjáningarsaga Póllands, enda af nógu af taka. Þó er leitt til þess að vita að i blaðinu skuli ekki hafa verið rúm þann daginn til að rekja harmasöguna rækilegar. Mun Hauki væntanlega hafa þótt miður að þurfa að fella brott einmitt það, sem helzt eykur skilning á vanda hinna nafn- toguðu þjóðar á siðustu og verstu timum. Þvi vona ég, að Morgunblaðið sjái sér fært i dag að leyfa mér að hlaupa i skarðið. Fimm kunnar stað- reyndir ættu sizt að skerða samúð okkar með Pólverjum. Ég fann þær nýlega staðfestar i bók eftir Nóbeisverðlaunahaf- ann Czeslaw Milosz, „Ilerleidd- um sálum“ (The Captive Mind): 1. Það var ekki ónýtt fyrir Hitler sáluga að eignast ötulan handlangara í útrýmingarstríði á hendur Pólverjum, þar sem var Jósef Stalín. Þessir tveir heið- ursmenn gerðu friðarsamning sín á milli og skiptu Póllandi með sér bróðurlega. 2. Pólskum hermönnum, sem hörfað höfðu undan innrásarliði nazista, buðu Rússar gistingu í eyjaklasanum Gúlag. Þeir sem lifðu gestrisnina af, máttu þakka fyrir að losna eftir tvö ár. 3. Þó kastazt hafi í kekki með Séra Kári Valsson. Hersveitir rússn- eskra kommúnista biðu rólegar á hinum bakka Vislu og létu nazistaherinn murka lífið úr pólsk- um andspyrnu- mönnum, sem þorað höfðu að rísa upp gegn ofureflinu. þeim fóstbræðrum Hitler og Stalín, voru þeir ásáttir um það að eyða þessari menningarþjóð, en leyfa helzt ólæsum að halda lífi. Liðsforingjar í pólskum her hafa jafnan verið kennarar, lög- fræðingar, verkfræðingar, lækn- ar eða aðrir lærdómsmenn. Eng- ir eru framar í fylkingu, þegar berjast þarf fyrir sjálfstæði þjóðar. Þess urðu þeir að gjalda. Þjóðverjar gengu frá einum og einum, en Rússar myrtu meira en tugþúsund þeirra í Katyn- skógi. 4. Grein Hauks Helgasonar fylgir átakanieg mynd af gereyð- ingu Varsjár. Meðan þýzki her- inn streittist við að breyta gam- alli höfðuborg í malarhrúgu og valköst, naut hann þegjandi samþykkis óvinahersins. Her- sveitir rússneskra kommúnista biðu rólegar á hinum bakka Vislu og létu nazistaherinn murka lífið úr pólskum and- spyrnumönnum, sem þorað höfðu að rísa gegn ofureflinu. 5. Og hvaða umbun fékk pólskt heimavarnarlið, skærulið- ar, fyrir að hafa árum saman hætt eignum sinum, ástvinum og eigin lífi í baráttu við þýzk innrásaröfl? Um leið og Rússar frelsuðu þá undan Þjóðverjum, leystu þeir þá undan þeirri skyldu að hafa á hendi stjórn mála í eigin landi. Hreyfiafl skæruliðanna var ættjarðarást. Þeir hefðu getað orðið skeinu- hættir quislingunum, sem hreiðruðu um sig í skjóli Rauða hersins. Enginn ber í bætifláka fyrir skepnuskap nazista. Þeir eru týndir og tröllum gefnir, og það er vel. Mergurinn málsins er sá, að hinar Pólverjaæturnar eru enn við góða heilsu og ógna hverjum þeim, sem fær ekki rönd við reist. Ekjubrú til notkunar í Reykjavíkurhöfn DRÁTTARSKIPIÐ Goðinn er væntanlegt til Reykjavikur á sunnudagskvöld. með nýja „ekju- brú“ eða flotpramma til notkunar i Sundahöfn við lestun og losun ekjuskipa eða „ro-ro“-skipa, sem koma æ meir við sögu flutninga sjóleiðina. Að sögn Hannesar Valdimarsson- ar, yfirverkfræðings hjá Reykjavík- urhöfn, er ekjubrúin smíðuð hjá fyrirtækinu Kyst Service í Kragere í Noregi, og þaðan kemur hún nú í togi Goðans. Brúin var á hinn bóginn hönnuð í Gautaborg í Sví- þjóð, sérhönnuð fyrir aðstæður í Reykjavíkurhöfn. Ekjubrúin er 600 fermetrar að stærð, 20 metra breið og 30 metrar á lengd. Hún er úr stáli, og helst á floti af eigin flothæfileikum, líkt og skip. Að auki liggur svo 23 metra löng brú í land úr prammanum, en brú úr skipunum yfir í prammann er í hverju skipi fyrir sig. Að sögn Hannesar Valdimarsson- ar verður ekjubrúin nýja eign Reykjavíkurhafnar. Heildarkostn- aður við hönnun, smíði og flutning hingað til lands nemur um 3 millj- ónum norskra króna, sem samsvar- ar um 3,5 milljónum íslenskra nýkróna. MITSUBISHI STÆRSTA OG FJÖLHÆFASTA FYRIRTÆKI JAPANS Colt-inn hefur hlotið alþjóða viðurkenningu, — ekki eingöngu fyrir sérstaka sparneytni heldur og fyrir útlit sitt, aksturs- eiginleika, frábæra hljóðeinangrun, vandaðan frágang, og fullkominn innri búnað. Ennfremur er Colt-inn tæknilega háþróaður, framhjóla- drifinn blll og býður upp á aksturseiginleika sport- bllsins og hagkvæmni fjölskyldubllsins. Þetta eru háttstemdar fullyrðingar, en þvl ekki að koma, skoða hann og reynsluaka Coltinum. MlTSUBISHI MOTORS [hIheklahf J Laugavegi 170-172 Sími 21240

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.